Fréttablaðið - 07.11.2003, Síða 2
2 7. nóvember 2003 FÖSTUDAGUR
„Stundum. Þeir eru misjafnir en
maður fær leið.“
Sigurður Geirdal, bæjarstjóri í Kópavogi, hefur ver-
ið gagnrýndur fyrir að mæta ekki á borgarafundi
um skipulagsmál í Lundi. Hann segist þurfa að
sækja mikinn fjölda funda um þetta leyti árs.
Spurningdagsins
Sigurður, leiðast þér fjölmennir
fundir?
EFNAHAGSMÁL Vaxtahækkun Seðla-
bankans er á næsta leiti. Birgir Ís-
leifur Gunnarsson, formaður
bankastjórnar, sagði í gær að
hækkun gæti orðið hvenær sem
er en hversu miklar hækkanir
verði, ráðist meðal annars af því
hvort af stækkun Norðuráls verði,
hvernig ríkisstjórnin ætli að brey-
ta húsnæðislánum og hvernig rík-
isútgjöld haldist í takt við fjár-
lagafrumvarpið.
Útgjöld ríkisins hafa vaxið og
viðskiptakjör versnað á árinu, auk
þess sem útflutningur hefur
minnkað. Þetta leiðir til þess að
Seðlabankinn spáir tveggja pró-
senta hagvexti á ár-
inu, sem er minna
en áður hafði verið
spáð. Eins verður
viðskiptahalli meiri
þótt Birgir Ísleifur
segi ekki ástæðu til
að hafa áhyggjur
enn sem komið
væri þar sem hall-
inn byggist fyrst og
fremst á tímabundnum áhrifum.
Birgir Ísleifur segir að einka-
neysla hafi verið keyrð áfram á of
mikilli bjartsýni.
Seðlabankinn gerir ráð fyrir
því að verðbólga haldist rétt und-
ir verðbólgumarkmiði bankans á
næsta ári en geti farið upp fyrir
mörkin snemma á árinu 2005.
Á næsta ári er gert ráð fyrir
því að hagvöxtur verði 3%. Hins
vegar mun þessi spá hækka ef
Norðurál verður stækkað.
Birgir Ísleifur segir afar mikil-
vægt að aðhald haldist óskert í
ríkisrekstrinum og verði meira
eftir því
sem á líður.
Hann var-
aði við því
að það geti
sigið á ógæfuhliðina árið 2006. Þá
eiga að koma til framkvæmda
annar áfangi skattalækkanaá-
forma ríkisstjórnarinnar um leið
og mesti kúfurinn verður í stór-
iðjuframkvæmdum á Austur-
landi.
Í sambandi við áform ríkis-
stjórnarinnar í húsnæðismálum
lagði Birgir Ísleifur höfuðáherslu
á tímasetningar þeirra áforma og
að fara verði varlega.
Formaður bankastjórnar lýsti
því yfir að bankinn ætlaði að
halda áfram að kaupa gjaldeyri til
að halda uppi gjaldeyrisforðanum
en ekki til að stýra genginu.
Þannig er stefnt að því að kaupa
gjaldeyri fyrir fimm milljónir
dollara á viku á næsta ári.
kgb@frettabladid.is
Pólskir iðnaðarmenn í Laugardal:
Vísað úr landi en komnir aftur
ATVINNUMÁL Hópur pólskra málm-
suðumanna sem vísað var úr
landi fyrir mánuði, þar sem at-
vinnuleyfi voru ekki fyrir hendi,
eru komnir aftur og starfa við
uppsetningu málmvirkis við nýju
sundlaugina í Laugardal.
Félag járniðnaðarmanna furð-
ar sig á stöðu mála og þeirri
kúvendingu sem átt hefur sér
stað hjá Vinnumálastofnun. „Það
er með ólíkindum að meðan at-
vinnuleysi ríkir í greininni hér á
landi að Vinnumálastofnun skulu
stimpla pappíra þessara Pólverja
þegjandi og hljóðalaust,“ segir
Örn Friðriksson, formaður fé-
lagsins. Segir Örn að þar með sé
Vinnumálastofnun komin í mót-
sögn við fyrri úrskurði sína þar
sem niðurstaðan var að störf Pól-
verjanna í Straumsvík fyrir mán-
uði síðan væru ekki svo sérhæfð
að ekki hefði verið unnt að sinna
þeim með innlendu vinnuafli.
Gissur Pétursson, forstjóri
Vinnumálastofnunar, segir að
ekki hafi verið gerðar athuga-
semdir við Pólverjana sjálfa
heldur fyrirtæki það sem þeir
störfuðu hjá áður. „Það fyrirtæki
sem þeir störfuðu fyrir áður fékk
ekki leyfi fyrir þessa menn en
þeir eru hér nú fyrir tilstilli
Ístaks og það fyrirtæki sótti um
leyfi fyrir þá.“ ■
VIÐ INGUNNARSKÓLA
Ekki var annað talið óhætt en að rýma
bæði Ingunnarskóla og leikskóla við hlið
hans þegar sleði undir byggingarkrana slig-
aðist.
Ingunnarskóli:
Rýmdur í
skyndingu
SLYSAHÆTTA Gripið var til þess ráðs
í gær að rýma Ingunnarskóla á
Grafarholti og leikskóla í næsta
húsi þegar sleði sem byggingar-
krani rennur á gaf sig og himin-
hár kraninn hallaðist út á hlið í
áttina að húsunum.
Það var mat manna að ekki
væri hætta á því að kraninn færi á
hliðina þótt hann hefði orðið fyrir
skakkafallinu. Aftur á móti var
talin á því veruleg hætta að kran-
inn félli á skólahúsin þegar reynt
yrði að gera við undirstöður hans.
Ákveðið var að rýma skólann um
hádegisbil og aflýsa skólahaldi.
Hringt var í foreldra allra barna
og þeir beðnir að sækja börn sín.
Viðgerð á undirstöðum kranans
tókst eftir hádegið og er nú allt í
föstum skorðum á Grafarholti. ■
MÓAR
„Svona fyrirbæri eru verðmætust ef þau
eru seld í virkri starfsemi,“ segir Ástráður.
Skiptastjóri Móa:
Áhugi fyrir
kaupum
VIÐSKIPTI Ástráður Haraldsson, ný-
skipaður skiptastjóri kjúklinga-
fyrirtækisins Móa, segir áhuga-
sama aðila þegar hafa haft sam-
band og rætt um kaup á Móum.
„Það var ekki hægt að stoppa
reksturinn fyrirvaralaust og því
ekki annað í boði en að halda
rekstrinum áfram tímabundið,“
segir Ástráður. „Meiningin er að
finna kaupanda sem allra fyrst að
pakkanum, helst í heild sinn. Ef
það tekst ekki verður annaðhvort
að semja við veðhafa um yfirtöku
rekstrarins eða fara í það að stop-
pa reksturinn og losa eignir.“ ■
ATVINNUMÁL Vopnafjarðarhreppur
og íbúar hans hafa náð því tak-
marki að eignast ráðandi hlut í
Tanga hf. af Eskju frá Eskifirði.
Bjarney ehf., félag í eigu Vopn-
firðinga, keypti um mánaðamótin
tæpan fjórðung í fyrirtækinu á
meðan hreppurinn jók hlut sinn
úr átta prósentum í tæp fjórtán
prósent. Með fulltingi Spari-
sjóðabankans, sem keypti 13,6
prósent í fyrirtækinu, hafa Vopn-
firðingar náð Tanga úr höndum
utanbæjarmanna. Takmark
Vopnfirðinga var að endurheimta
völdin yfir langstærsta fyrirtæki
þorpsins, og þar með endur-
heimta sjálfræði. Vopnfirðingar
greiddu alls 929 milljónir króna
fyrir hlut Eskju, smærri hlut
Skeljungs og 0,67 prósent afla-
heimilda í loðnu. ■
Veðurstofan:
Mældi tugi
jarðskjálfta
JARÐSKJÁLFTAR „Skjálftahrina var
um 26 kílómetra norðnorðaustur
af Siglufirði í gær. Um klukkan
hálf tvö höfðu yfir 60 skjálftar
mælst frá miðnætti,“ segir Sigur-
laug Hjaltadóttir, jarðeðlisfræð-
ingur á Veðurstofu Íslands.
Stærsti skjálftinn varð rétt
fyrir klukkan níu um morguninn
og mældist þrír á Richter. Sigur-
laug segir skjálftana vera á brota-
belti sem er samskonar Suður-
landsbrotabeltinu þar sem verði
reglulega vart við skjálfta. Á
þessu sama svæði varð nokkuð
stór hrina árið 1997.
Önnur hrina hefur verið í gangi
við Öskju. Þar hafa orðið um þrjá-
tíu skjálftar síðan á mánudag. ■
VOPNAFJÖRÐUR
Heimamenn hafa náð takmarki sínu með kaupum á Tanga. 50,42 prósenta hlutur Eskju
frá Eskifirði í fyrirtækinu hefur verið keyptur upp.
Hlutur Eskju frá Eskifirði hefur verið keyptur upp:
Vopnfirðingar ná völdum í Tanga
STÆRSTU HLUTHAFAR Í TANGA
Bjarney ehf. 24,6%*
Vopnafjarðarhreppur 21,3%*
Sparisjóðabankinn 13,6%
Ker hf. 10%
Skiphólmi ehf. 9,07%*
Vátryggingafélag Íslands hf. 7,39%
Kaupþing-Búnaðarbanki 4,82%
* Í eigu Vopnfirðinga
M
YN
D
: J
Ó
N
S
IG
U
RÐ
AR
SO
N
Hæstiréttur:
Staðfesti tíu
mánaða dóm
DÓMUR Hæstiréttur staðfesti tíu
mánaða fangelsisdóm Héraðs-
dóms Reykjavíkur yfir karlmanni
fyrir fjársvik og skjalafals. Sjö
mánuðir eru skilorðsbundnir.
Maðurinn falsaði undirskriftir
á víxil og skuldabréf að upphæð
1.550.000 krónur. Þá sveik hann út
90.000 króna yfirdrátt í nafni ann-
arrar manneskju. Ákærði krafðist
þess að dómurinn yrði allur skil-
orðsbundinn og var skírskotað til
hegðunar hans að undanförnu og
að nokkuð langt væri frá því að
brotin hefðu verið framin. Vegna
eðlis og umfangs brotanna var því
hafnað. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/
RÓ
B
ER
T
NÝJA SUNDLAUGIN
Félag járniðnaðarmanna gerir athuga-
semdir við störf pólskra iðnaðarmanna á
svæðinu.
Seðlabankinn boðar
vaxtahækkun fljótlega
Hagvöxtur er talinn verða minni á næsta ári en spáð hafði verið og við-
skiptahalli meiri. Aðhald í ríkisrekstri mikilvægt, annars verður staðan á
árinu 2006 áhyggjuefni.
BIRGIR ÍSLEIFUR GUNNARSSON
Breytingar á húsnæðislánakerfinu, hugsanleg stækkun Norð-
uráls og þróun ríkisútgjalda ráða miklu um hversu mikið vext-
ir hækka.
■
Á næsta ári er
gert ráð fyrir
því að hagvöxt-
ur verði 3%.
Hins vegar mun
þessi spá
hækka ef Norð-
urál verður
stækkað.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T