Fréttablaðið - 07.11.2003, Qupperneq 4
4 7. nóvember 2003 FÖSTUDAGUR
Viltu að DV haldi áfram að koma
út?
Spurning dagsins í dag:
Verður bandarískur her á Íslandi eftir
tíu ár?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
23,7%
35,5%
Nei
40,8%Veit ekki
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
Ríkisendurskoðun um fjármál ríkisins árið 2002:
Framúrkeyrsla gagnrýnd
EFNAHAGSMÁL Ríkisendurskoðun
bendir á að útgjöld á um fimmt-
ungi fjárlagaliða ríkisins fóru
fram úr þeim mörkum sem fjár-
lög og reglugerð um framkvæmd
fjárlaga kveða á um.
Í nýrri skýrslu um endurskoð-
un ríkisreiknings árið 2002 kem-
ur fram að á árinu var ríkissjóð-
ur rekinn með 8,1 milljarða
króna halla en í fjárlögum hafði
verið ráðgert að hann skilaði 18,5
milljarða rekstrarafgangi. Fram
kemur að tekjur ríkissjóðs voru
nálægt því sem áætlað var í fjár-
lögum en gjöld urðu 28 milljörð-
um hærri en búist var við. Um
helmingur þess fráviks skýrist
af því að gjaldfærsla vegna líf-
eyrisskuldbindinga meira en
sexfaldaðist milli ára og afskrift-
ir meira en þrefölduðust.
Í greinargerð Ríkisendur-
skoðunar um framkvæmd fjár-
laga kemur fram að útgjöld 109
fjárlagaliða af 510 fóru fram úr
þeim 4% mörkum sem ákveðin
eru í reglugerð um framkvæmd
fjárlaga. Þar af voru um 80
stofnanir og aðalskrifstofur
ráðuneyta. Í sumum tilvikum
hefur verið stofnað til útgjalda
langt umfram 4% mörkin. Ríkis-
endurskoðun bendir á nauðsyn
þess að tekið verði á þessum
vanda. ■
Bakari hengdur
fyrir bæjarfulltrúa
SVEITARSTJÓRNIR Stuðningsmenn
Andrésar Sigmundssonar, forseta
bæjarráðs Vestmannaeyja og leið-
toga Framsóknarflokks í bæjar-
stjórn, unnu sigur þegar þeir
gerðu hallarbyltingu í Framsókn-
arfélagi Vestmannaeyja í fyrra-
dag. Andrésarmenn náðu inn í
stjórn félagsins og
ýttu þannig til hlið-
ar þeim sem and-
vígir voru því að
Andrés sprengdi
meirihlutasamstarf
við Sjálfstæðismenn til að hefja
samstarf við vinstri menn Vest-
mannaeyjalistans. Framsóknar-
flokkurinn var klofinn í málinu og
varamaður Andrésar var hallur
undir sjálfstæðis-
menn og meiri-
hlutinn hélt því
ekki nema hann
sæti sjálfur á bæj-
arstjórnarfund-
um.
„Ég er mjög
ánægður með nýja
stjórn og lít á þetta
sem sigur og
traust fyrir meiri-
hlutann. Fram-
sóknarflokkurinn
stóðst prófið og nú
hefst málefna-
starf,“ segir Andr-
és.
Nýr formaður Framsóknarfé-
lags Vestmannaeyja er Sigurður E.
Vilhelmsson, sem tók við af Víkingi
Smárasyni. Framsóknarfélagið
undirstrikaði á aðalfundinum
stuðning sinn við meirihlutann með
því að álykta um jafnræði í úthlut-
unum aflaheimilda og taka þar
undir með bæjarstjórn.
„Það var full sátt um nýja stjórn
og nú ganga allir í takt,“ segir Sig-
urður Vilhelmsson, nýkjörinn for-
maður Framsóknarfélagsins. Hann
segir að flestir virkir framsóknar-
menn í Eyjum hafi mætt á fundinn
en nokkrir hafi þó boðað forföll;
þeirra á meðal var Ásta Halldórs-
dóttir, varabæjarfulltrúi Andrésar.
Andrés segist hafa mátt þola sitt
af hverju síðan hann klauf sig frá
Sjálfstæðisflokknum. Hann segist
hafa sætt ofsóknum sem enduðu
með því að hann varð að loka bak-
aríi sínu, Magnúsarbakaríi. Ástæð-
an hafi verið sú að hann hafi verið
rægður og viðskiptavinir fældir
frá.
„Þarna var bakari hengdur fyrir
bæjarfulltrúa. Ég er hættur að
baka en það er þó enginn bilbugur
á mér og ég mun nú snúa mér að
öðru. Ég mun berjast áfram, fullur
bjartsýni. Nú er ég að undirbúa
sýningu á eigin málverkum,“ segir
Andrés.
rt@frettabladid.is
Erlendir ferðamenn:
Japönum
fjölgar mjög
FERÐAMÁL Alls fóru rúmlega 22.500
erlendir ferðamenn um Leifsstöð í
október og er það tæplega 27%
aukning miðað við sama tímabil í
fyrra. Mest fjölgaði japönskum
ferðamönnum eða úr 162 í 875, en
það er 440% fjölgun milli ára.
Í tilkynningu frá Ferðamálaráði
Íslands segir að á tímabilinu frá
mars til september á þessu ári hafi
fjöldi ferðamanna aukist um 30.000
manns. Það jafngildir rúmlega 13%
fjölgun miðað við sama tímabil í
fyrra. Í október á þessu ári komu
flestir ferðamenn frá Bretlandi eða
um 4.100, en það er um 18% fækk-
un miðað við sama tíma í fyrra. ■
NÝR LEIÐTOGI
Michael Howard var í gær útnefndur
leiðtogi breskra íhaldsmanna.
Michael Howard:
Sjálfkjörinn
leiðtogi
LONDON, AP Michael Howard er
sjálfkjörinn næsti leiðtogi
breskra íhaldsmanna. Framboðs-
frestur rann út í gær og lýsti
Howard einn yfir framboði sínu.
Howard, sem er 62 ára, tekur
við af Iain Duncan Smith, en þing-
flokkurinn samþykkti vantrausts-
tillögu á hann í síðustu viku. Mikl-
ar deilur hafa verið í Íhalds-
flokknum síðustu ár og kreppan í
forystusveitinni alger.
„Verkefni okkar er að byggja
upp sterkan flokk, trúverðugan
kost og leiða hann til valda á ný.
Þetta verður vitaskuld erfitt verk-
efni, gangan er rétt að hefjast,“
sagði Howard. ■
LEIFAR FJARLÆGÐAR
Krani fjarlægir leifar Chinook-þyrlu Banda-
ríkjahers sem var skotin niður yfir Fallujah.
Fyrrum foringjar
Skipulögðu
árásirnar
ÍRAK, AP Bandarískir hermenn
handtóku tvo fyrrverandi hershöfð-
ingja í her Saddams Hussein í
Falluja. Ekki hefur enn verið upp-
lýst hverjir mennirnir eru en þeir
eru grunaðir um að hafa skipulagt
og fjármagnað árásir á bandaríska
hermenn nærri Falluja. Sprengju-
árásir á þessum slóðum hafa verið
tíðar að undanförnu. Meðal annars
fórust 16 manns og yfir 20 særðust
þegar bandarísk Chinook-herþyrla
var skotin niður við Falluja fyrir
tæpri viku.
Í gær var upplýst að Bandaríkin
hyggist skipta út herliði sínu í Írak
á næsta ári. Ætlunin er að skiptin
hefjist strax um áramót.
Bandarískum hermönnum, sem
nú eru 132.000 í Írak, fækkar í rúm-
lega 100.000 í maí næstkomandi. ■
Nú er hún komin.
Drepfynda metsölubókin
sem hefur lagt heiminn að
fótum sér.
"Algert meistaraverk."
BBC
"Tryllingslega skemmtileg."
San Francisco Chronicle
Loksins
á íslensku
# 1 í Bandaríkjunum,
Bretlandi, Þýska-
landi og Japan
SKIPAAFGREIÐSLA KEYPT Eim-
skip hefur keypt Skipaafgreiðslu
Suðurnesja og tekur við rekstrin-
um 1. janúar. Markmiðið með
kaupunum er að styrkja mark-
aðsstöðu Eimskips á Suðurnesj-
um og auka hagræði í rekstri
landflutningsnetsins.
MÖRG VIÐSKIPTI Mikill fjöldi
viðskipta var með bréf Íslands-
banka í gær eða 486 fyrir rúm-
lega 800 milljónir króna. Bankinn
sjálfur keypti mikið af bréfum til
að selja áfram til starfsmanna
sinna. Starfsmönnum bankans
stendur til boða að kaupa bréf á
genginu 5,95. Lokaverð bréfa Ís-
landsbanka var 6,25.
STOKKHÓLMUR, AP Gæsluvarðhald
yfir Mijailo Mijailovic, meintum
morðingja Önnu Lindh, utanríkis-
ráðherra Svíþjóðar, var enn
framlengt í gær. Saksóknari
krafðist tveggja vikna framleng-
ingar og gerði Mijailovic ekki at-
hugasemdir við kröfuna. Gæslu-
varðhaldsvistin var því fram-
lengd til 21. nóvember. Anna
Lindh lést af völdum hnífstunga
11. september síðastliðinn en
Mijailovic hefur setið í varðhaldi
frá 24. september.
Saksóknarar fóru í gær, líkt og
í nokkur fyrri skipti, fram á
lengri frest til að undirbúa
ákæru á hendur Mijailovic. Hann
hefur lýst sig saklausan en full-
yrt er að lögreglumönnum hafi
tekist að afla mikilvægra sönnun-
argagna gegn honum. Meðal ann-
ars liggja nú fyrir niðurstöður
DNA-rannsókna á sýnum sem
fundust á morðstaðnum, á morð-
vopninu og gallabuxum sem lög-
regla hefur að sögn tengt við
Mijailo Mijailovic með óyggjandi
hætti. ■
Andrés Sigmundsson, bæjarfulltrúi í Vestmannaeyjum, hefur lokað
bakaríi sínu. Andrési segist hafa verið ofsóttur. Andrésarfólk með
hallarbyltingu í Framsóknarfélagi Vestmannaeyja.
ANDRÉS SIG-
MUNDSSON
Hvergi banginn
þótt bakaríi hans
sé nú lokað.
Hann hefur tekið
til við að mála og
opnar sýningu
um þetta leyti.
■
Ég er hættur að
baka en það er
þó enginn bil-
bugur á mér
FRÁ VESTMANNAEYJUM
Fyrri stjórn Framsóknarfélagsins í Vestmannaeyjum var ósátt við að bæjarfulltrúi flokksins
hæfi samstarf við Vestmannaeyjalistann um meirihluta í bæjarstjórn.
Morðingi Önnu Lindh, utanríkisráðherra Svíþjóðar:
Gæsluvarðhald framlengt
LÖGMAÐUR MEINTS MORÐINGJA
Peter Althin, lögmaður Mijailovic, meints morðingja Önnu Lindh, gerði ekki athugasemdir
þegar saksóknarar kröfðust í gær, enn einnar framlengingar gæsluvarðhalds yfir Mijailovic.
■ Viðskipti
■ Reykhólar
KRÓKSFJARÐARNES ÚR PÓST-
ÁRITUN Hreppsnefnd Reykhóla-
hrepps óskar eftir því við Ís-
landspóst að póstáritun hreppsins
verði breytt úr 380 Króksfjarðar-
nes í 380 Reykhólahreppur.
■ Borgarbyggð
ÞRÁÐLAUSU NETI HAFNAÐ Ekkert
verður af uppbyggingu þráðlauss
dreifikerfis fyrir Internet í Borg-
arbyggð eftir að bæjarráð hafn-
aði erindi frá fyrirtækinu eMax
þessa efnis.
STJÓRNARRÁÐIÐ
Í greinargerð Ríkisendurskoðunar um
framkvæmd fjárlaga kemur fram að út-
gjöld 109 fjárlagaliða af 510 fóru fram úr
þeim 4% mörkum sem ákveðin eru í
reglugerð um framkvæmd fjárlaga.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T