Fréttablaðið - 07.11.2003, Side 6
6 7. nóvember 2003 FÖSTUDAGUR
■ Lögreglufréttir
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 76.43 0.22%
Sterlingspund 127.84 0.01%
Dönsk króna 11.77 0.15%
Evra 87.53 0.14%
Gengisvístala krónu 124,00 -0,29%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 783
Velta 6.996 milljónir
ICEX-15 1.944 0,43%
Mestu viðskiptin
Fjárf.f. Straumur hf. 1.821.183.948
Íslandsbanki hf 834.148.076
Landsbanki Íslands hf. 817.842.982
Mesta hækkun
Sláturfélag Suðurlands svf. 4,76%
Grandi hf. 2,78%
Opin Kerfi Group hf. 2,40%
Mesta lækkun
Líftæknisjóðurinn hf. -5,66%
Sæplast hf. -4,90%
Austurbakki hf. -4,04%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ* 9.793,0 -0,3%
Nasdaq* 1.959,3 0,0%
FTSE 4.324,2 0,5%
DAX 3.733,9 0,4%
NK50 1.345,1 0,0%
S&P* 1.047,8 -0,4%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Veistusvarið?
1Hversu margir þingmenn eru í fæðing-arorlofi?
2Uppi eru hugmyndir um að leggja vegí einkaframkvæmd á Vestfjörðum.
Milli hvaða staða á hann að liggja?
3Hvað heitir verkefnisstjóri Impregilo áÍslandi?
Svörin eru á bls. xx
Breyttir útreikningar Jöfnunarsjóðs:
Þyngir róður sveitarfélaga
DÓMSMÁL Minnihluti hlutahafa í
Hraðfrystistöð Þórshafnar telur
að Samherji hafi misnotað eignar-
stöðu sína innan fyrirtækisins til
að selja skip sitt, Þorstein EA, á
yfirverði til Þórshafnar.
Samherji á tæp 50 prósent
hlutafjár í fyrirtækinu og greiddi
atkvæði á hlutahafafundi með því
að Hraðfrystistöðin keypti Þor-
stein af Samherja á 1.360 milljón-
ir króna ásamt kvóta. Minnihlut-
inn lagði fram þá tillögu á hlut-
hafafundi að aflað yrði óháðs
verðmats á skipinu og aflaheim-
ildum, en Samherji og tengd félög
felldu tillöguna.
Minnihlutinn hefur höfðað mál
gegn Hraðfrystistöðinni og Sam-
herja og krefst þess að nýafstaðin
kaup á Þorsteini gangi til baka.
Telja þeir kaupverðið á Þorsteini
og kvótanum langt yfir sannvirði,
en verðmat sem minnihlutinn
bendir á var hundruðum milljóna
króna lægra.
Hilmar Þór Hilmarsson,
stjórnarmaður í Hraðfryststöð-
inni og forsvarsmaður kærenda,
segir kaupin vera á yfirverði og
yfirleitt of dýr fyrir fyrirtækið.
„Þessi kaup á yfirverði veikja
stöðu fyrirtækisins og byggðar-
lagsins. Það er gott að fá nýtt skip
og kvóta, en við hefðum getað
keypt á eðlilegu verði. Samherji
misnotaði vald sitt í málinu,“ seg-
ir hann.
Finnbogi Jónsson, stjórnarfor-
maður Samherja og Hraðfrysti-
hússins, segir skipið hafa verið
selt á eðlilegu verði samkvæmt
fyrirliggjandi verðmati frá um-
svifamesta skipamiðlara landsins.
Hann segir kaupin styrkja byggð-
arlagið, með tilkomu aukinna afla-
heimilda og nýs fjölveiðiskips.
„Skipamiðlarinn mat skipið á 60
til 65 milljónir norskra króna og í
viðskiptunum er skipið metið á
62,5 milljónir. Við eigum hlut í
Hraðfrystistöðinni og eigum mik-
illa hagsmuna að gæta í því að
fyrirtækinu gangi vel. Þessi
ákvörðun hefði aldrei verið tekin
ef við héldum að þetta kæmi niður
á fyrirtækinu.“
Að sögn Finnboga munu afla-
heimildir í bolfiski, sem áður voru
leigðar út, nú nýtast byggðarlag-
inu í auknum umsvifum.
Málið var þingfest í Héraðs-
dómi Norðurlands eystra á Akur-
eyri í gær. Þorsteinn er nú gerður
út frá Þórshöfn en kaupin ganga í
gegn í lok mánaðarins.
jtr@frettabladid.is
Hækkun lægstu launa:
Skilar sér
upp allan
launastigann
KJARAMÁL Um 65% aðspurðra í
vefkönnun Samtaka atvinnulífs-
ins telja að sérstakar hækkanir
lægstu launa muni leiða til sam-
svarandi hækkana upp allan
launastigann. Ef einungis eru
skoðuð svör þeirra sem taka af-
stöðu og hafa starfsfólk á lægstu
umsömdu töxtum telja 80% að svo
sé. Þetta kemur fram í fréttabréfi
samtakanna.
Þar kemur einnig fram að
vegna sérkrafna undanfarinna
ára um sérstaka hækkun lægstu
launa sé svigrúm til frekari hækk-
ana á þeim fullnýtt. ■
KEYRÐI Á RAFMAGNSSTAUR
Ökumaður missti stjórn á bíl sín-
um til móts við Rjúpnaás neðan
við Bifröst í gærmorgun og end-
aði á rafmagnsstaur utan vegar.
Konan var flutt á heilsugæsluna
til aðhlynningar. Bíllinn, sem var
talsvert skemmdur, var fjarlægð-
ur með kranabíl. Málið er í rann-
sókn.
LÉLEG NOTKUN BÍLBELTA Á
SUÐURNESJUM
Suðurnesjamenn virðast kæru-
lausari en aðrir landsmenn að
nota bílbelti. Í könnun sem gerð
var á bílbeltanotkun á Suðurnesj-
um kom í ljós að einungis 67%
ökumanna notuðu bílbelti í þétt-
býli og 85% utan þéttbýlis. Lög-
reglan í Keflavík segir þessa nið-
urstöðu með öllu óviðunandi og
hyggst herða eftirlit og kæra
óspart þá sem ekki nota beltin.
edda.is
Galdrasaga
Hörkuspennandi galdrasaga úr
íslenskum veruleika eftir
margver›launa›an metsölu-
höfund. Í gamla daga var
kukla› í hverri vík á
Ströndum. Skyldi fla› vera
flannig ennflá?
Kristín Helga
Gunnarsdóttir
SVEITARSTJÓRNARMÁL Mörg sveitar-
félög standa frammi fyrir því að
framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfé-
laga eru langt frá því sem gert
var ráð fyrir í fjárhagsáætlunum
ársins. Ástæðan er sú að úthlutun-
arreglum sjóðsins var breytt þeg-
ar komið var fram á fjárlagaárið
en engar upplýsingar um slíkt
bárust sveitarstjórnum. Skekkir
þetta langtímaáætlanir sveitarfé-
laganna verulega og er mikil
óánægja meðal margra sveitar-
stjórnarmanna með gang mála.
„Þetta kemur afskaplega illa
við okkur hér í Sandgerði,“ segir
Óskar Gunnarsson, forseti bæjar-
stjórnar Sandgerðinga. Við
greiðslur á framlögum ársins frá
sjóðnum var stuðst við framlög
ársins 2002 og er því búið að of-
greiða bæjarfélaginu 18 milljónir
á árinu.
„Þetta þyngir allan róður fyrir
okkur og setur stórt strik í áætl-
anir fram í tímann. Það má nánast
segja að okkar áætlanir til næstu
ára séu í raun ónýtar vegna
þessa.“
Óskar segir að beðið sé við-
bragða frá starfsfólki Jöfnunar-
sjóðs en tvær vikur eru síðan er-
indi Sandgerðinga barst inn á
borð þeirra. „Við settum allt í bið-
stöðu um leið og þetta var ljóst og
á meðan það liggur ekki fyrir
hvert framhaldið er leggjum við
ekki í neinar framkvæmdir.“ ■
FRÁ SANDGERÐI
Áætlanir bæjarfélagsins eru í uppnámi eftir
að útreikningum Jöfnunarsjóðs var breytt
án viðvörunar.
STÆRSTU HLUTHAFAR Í HRAÐ-
FRYSTISTÖÐ ÞÓRSHAFNAR
Samherji hf. 49,66%
Sjóvá Almennar hf. 11,39%
Kaldbakur fjárfestingarf. 5,09%
Efnaverksmiðjan Sjöfn hf. 4,24%
Hilmar Þór Hilmarsson 3,98%
Rafn Jónsson 3,85%
Sparisjóður Þórshafnar og nágr. 2,97%
Þórshafnarhreppur 2,96%
Fræ ehf. 2,62%
Íslensk Verðbréf 2,11%
Samherji sagður
misnota vald sitt
Minnihluti eigenda í Hraðfrystistöð segir Samherja hafa misnotað vald sitt
innan fyrirtækisins til að selja því skip og kvóta á yfirverði. Stjórnarfor-
maður fyrirtækjanna beggja segir hagsmuna hraðfrystistöðvarinnar gætt.
ÞORSTEINN EA
Minnihluti hluthafa í Hraðfrystistöð Þórshafnar hafa kært fyrirtækið og Samherja á grund-
velli þess að Samherji hafi beitt valdi til að selja hraðfrystistöðinni Þorstein á yfirverði.
Svíþjóð:
Njósnapar
handtekið
STOKKHÓLMUR, AP Lögreglan í
Stokkhólmi handtók í vikunni karl
og konu sem eru grunuð um
njósnir. Parið hefur búið í Svíþjóð
um nokkurt skeið og er talið að
þau séu í sambandi við erlent ríki.
Þau eru þó ekki starfsmenn er-
lends sendiráðs.
Saksóknari og öryggislögregla
Svíþjóðar, SAPO, neita að tjá sig
um málið. Lögfræðingur parsins
staðfestir að þau séu í haldi lög-
reglu en segir ásakanirnar um að
þau stundi njósnir úr lausu lofti
gripnar. Refsing við brotum sem
parið er sakað um er allt að fjög-
urra ára fangelsi. ■
Miðlunartillaga:
Flugvirkjar
semja
ATVINNUMÁL Miðlunartillaga ríkis-
sáttasemjara í deilu Flugvirkja-
félags Íslands og Samtak atvinnu-
lífsins var
samþykkt
með mikl-
um meiri-
hluta af fé-
lagsmönn-
um í Flug-
v i r k j a f é -
laginu. At-
kvæði voru
talin á skrifstofu ríkissáttasemjara
í gær.
Alls voru 128 á kjörskrá en 119
greiddu atkvæði. Af þeim studdu
103 miðlunartillöguna, fjórtán voru
á móti en tvö atkvæði voru ógild.
Stuðningur við tillöguna er því
tæplega 87% hjá þeim sem greiddu
atkvæði.
Tillaga sáttasemjara var einnig
samþykkt af vinnuveitendum og er
því löglegur samningur komin á. ■
LEIFSSTÖÐ
Hefði ekki samist hefði það
getað sett millilandaflug úr
skorðum.