Fréttablaðið - 07.11.2003, Page 8
FANGELSI FYRIR VESKISSTULD
Hæstiréttur staðfesti í gær fjög-
urra mánaða fangelsisdóm yfir
síbrotamanni fyrir þjófnað. Mað-
urinn vildi mildun á dómnum en
hann hafði í byrjun árs stolið
veski viðskiptavinar í stórmark-
aði í Reykjavík. Kvað Hæstirétt-
ur fyrri dóma mannsins hafa
ítrekunaráhrif.
FJÓRTÁN MÁNAÐA FANGELSI
Hæstiréttur staðfesti í gær fjórt-
án mánaða fangelsisdóm Héraðs-
dóms Reykjaness yfir manni fyr-
ir að hafa í tvígang brotist inn í
sömu verslunina. Með brotum
sínum rauf maðurinn skilorð
reynslulausnar.
8 7. nóvember 2003 FÖSTUDAGUR
■ Viðskipti
Sjaldséðir hrafnar
„Í veislunni var stór vinkvenna-
hópur með mökum sínum. Konan
uppgötvaði að hún kannaðist
varla við karla vinkvenna sinna,
suma hafði hún aldrei séð.“
Gunnar Hersveinn um kvennahópa sem skilja
karlana eftir heima. Morgunblaðið 6. nóvember.
Elsku höfðatalan
„Til að verða okkur jafnfætis í ál-
bræðslu miðað við fólksfjölda
þyrfti að reisa í náinni framtíð
ein 170 álver í Mósambík.“
Bergþóra Sigurðardóttir. Morgunblaðið 6. nóvember.
Misjöfn sýn
Hryðjuverkamaður í mínum aug-
um er frelsishetja í þínum. Varn-
arlið í mínum augum eru ríkis-
rekin hryðjuverk í þínum. Frels-
un í mínum augum er hernám í
þínum. Andófsmenn í mínum
augum eru óeirðaseggir í þínum.
Jónas Kristjánsson. jonas.is 5. nóvember.
Orðrétt
Guðmundur Gunnarsson segir starfsmönnum hótað:
Sálfræðihernaður Varnarliðsins
KJARAMÁL Guðmundur Gunnars-
son, formaður Rafiðnaðarsam-
bandsins, sakar starfsmanna-
hald Varnarliðsins á Keflavíkur-
flugvelli um ósmekklega fram-
komu gagnvart þeim starfs-
mönnum sem fengu send upp-
sagnarbréf með möguleika á að
semja upp á nýtt með verri kjör.
„Það er ámælisvert hvernig
þeir stilla þessu upp þannig að
starfsmaðurinn sé að segja upp
ef hann sættir sig ekki við
kjaraskerðingu. Ef starfsmað-
urinn segir sjálfur upp er hann
búinn að tapa miklum réttind-
um.“
Guðmundur segist telja að
einhverjir starfsmenn hafi sætt
sig við kjaraskerðinguna vegna
ágangs starfsmannahaldsins.
„Þeir ganga um völlinn meðal
starfsmanna og segja að það
verði fleiri uppsagnir ef fólk
tekur ekki kjaraskerðingu.
Þetta er sálfræðihernaður, þeir
eru að etja fólkinu saman á vell-
inum. Ég efast ekki um að marg-
ir hafi látið þetta yfir sig ganga.
Þarna er fullt af fólki fyrir ofan
miðjan aldur og vill ekki fara í
neina óvissu. Þessar hótanir og
skæruhernaður gagnvart starfs-
mönnum hafa borið árangur.
Þess lags framkoma í uppsögn-
um er óþekkt hér á landi.“ ■
Kostnaður hæstur
í Reykjanesbæ
Hver Reykvíkingur greiddi 48.274 krónur í stjórnsýslukostnað árið 2002
en Hafnfirðingurinn greiddi rúmlega 27 þúsund. Stjórnsýsla
borgarinnar þenst út, segir leiðtogi minnihluta Sjálfstæðisflokks
SVEITARSTJÓRNIR Reykjavíkurborg
er með einna hæstan kostnað á
hvern íbúa af sveitarfélögum á
höfuðborgarsvæðinu ef litið er til
sameiginlegs kostnaðar sem inni-
heldur yfirstjórn, skrifstofuhald,
laun og breyt-
ingar á lífeyris-
skuldbinding-
um. Af samliggj-
andi sveitarfé-
lögum er ein-
ungis Seltjarn-
arnes með meiri
kostnað. Hver
Reykvíkingur
þurfti að greiða
sem nemur
48.274 krónum
fyrir þennan
málaflokk árið
2002 en kostnaður hvers Kópa-
vogsbúa vegna þess málaflokks er
35.723 krónur. Reykjanesbær
skákar þó bæði Mosfellingum og
Reykvíkingum en þar er kostnað-
ur á hvern íbúa 60.786 krónur.
Þetta kemur fram í Árbók sveitar-
félaga 2003.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
leiðtogi minnihluta Sjálfstæðis-
flokksins, segir að skýringar á
háum sameiginlegum kostnaði í
Reykjavík sé að leita í þenslu í
borgarkerfinu.
„Þessi niðurstaða vekur at-
hygli en við sjálfstæðismenn höf-
um haldið því fram að stjórnsýsl-
an hafi á undanförnum árum ver-
ið að þenjast út á ýmsum sviðum
og margt smátt gerir eitt stórt.
Stjórnsýslan, sem þjónusta við
íbúana, hefur ekki batnað að sama
skapi,“ segir Vilhjálmur Þ.
„Þarna er fyrst og fremst um
að ræða launakostnað sem þýðir
að margt fólk er að vinna við hitt
og þetta. Hjá borginni eru nokkur
dæmi um að fólk hefur verið ráð-
ið til einstakra verkefna en síðan
verið fastráðið. Ég þekki nokkur
dæmi um það. Þetta er bara eins
og rekstur á heimili og þegar kíkt
er á einingarnar kemur í ljós að
það er einn hér og einn þar án
þess að það skili miklu. Við sem
störfum við þetta skynjum að
hérna er þensla sem hefur verið
viðvarandi,“ segir Vilhjálmur.
„Ef borgarstjóri er maður til
þess þá verður hann að gera grein
fyrir því hvernig stendur á
þessu,“ segir Vilhjálmur.
rt@frettabladid.is
Gæsluvarðhald:
Fellt úr gildi
DÓMUR Hæstiréttur felldi út gildi
gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðs-
dóms Reykjaness yfir manni
vegna fjölda brota.
Ákæruvaldið hafði farið fram á
að maðurinn sætti varðhaldi til að
koma í veg fyrir frekari afbrot
svo að lögreglu og ákæruvaldi
væri unnt að ljúka málum hans.
Maðurinn er grunaður um fjöl-
mörg brot eftir að hann var síðast
látinn laus úr varðhaldi. Hann
neitar aðild að þeim brotum. Taldi
Hæstiréttur að fyrri gæsluvarð-
haldstími hafi ekki verið nýttur
sem skildi án haldbærra skýringa.
Þá hafi ekki verið gefin út ákæra
og þótti því ekki efni til að dæma
manninn í gæsluvarðhald á ný. ■
Dómarar:
Út fyrir sitt
hlutverk
DÓMUR Hæstiréttur ómerkti dóm
Héraðsdóms Vesturlands og sendi
aftur heim í hérað til löglegrar
meðferðar og dómsálagningar að
nýju. Þar segir að dómarar hafi
farið út fyrir hlutverk sitt með
sjálfstæðri rannsóknarvinnu.
Málið varðar tjón vegna bilunar
í vatnskerfi í sumarbústað. Málsað-
ilar eru ekki á eitt sáttir um hvað
hafi bilað og því þykir óljóst hver
eigi að bera kostnað tjónsins. ■
V-power:
Tíu króna
afsláttur
BENSÍN Frá og með deginum í dag
verður tilboð á 99 oktan V-power-
bensíni á Shell-stöðvunum. Sjálfs-
afgreiðsluafsláttur á V-power-
bensíninu verður hækkaður tíma-
bundið úr fjórum krónum í tíu
krónur á hvern lítra. Með lækkun-
inni er verið að vekja athygli á
þessu sérframleidda bensíni í
upphafi vetrar. ■
Þrítugur maður:
Slasaðist
á höfði
VINNUSLYS Tæplega þrítugur mað-
ur slasaðist á höfði í vinnuslysi á
Þeystareykjum þar sem unnið er
að borun eftir heitu vatni.
Stór slanga hafði verið látin
síga niður í eina holuna þegar hún
spratt upp aftur með þeim afleið-
ingum að maðurinn fékk stóra
stálmúffu, sem var á enda slöng-
unnar, í höfuðið.
Vinnufélagar mannsins fluttu
hann á móti sjúkrabílnum sem
flutti hann áfram á sjúkrahúsið á
Húsavík. Hann var saumaður
átján spor í ennið og fékk að fara
heim í gærkvöldi. ■
UPPGJÖR SH Fyrstu níu mánuði
ársins var hagnaður SH 321 millj-
ón króna, en var 490 milljónir
árið áður. Hagnaður fyrir af-
skriftir og fjármagnsliði nam
1.293 milljónum á móti 1.480
milljónum ári áður og hagnaður
fyrir skatta nam 484 milljónum
en 740 milljónum sama tíma
2002.
AUKNING HJÁ JARÐBORUNUM
Hagnaður Jarðborana var 140
milljónir fyrstu níu mánuði árs-
ins samanborið við 110 milljón
króna hagnað fyrir sama tímabil í
fyrra. Jarðboranir keyptu Björg-
un hf. í haust og er einungis sept-
emberuppgjör Björgunar í sam-
stæðureikningum Jarðborana.
Björgun var rekin með 123 millj-
ón króna hagnaði fyrstu níu mán-
uði ársins.
ATVINNUMÁL Bæjarstjórn Reykja-
nesbæjar vill formlegar viðræður
við ríkisstjórn Íslands um viðbrögð
vegna fjöldauppsagna Varnarliðs-
ins.
Að því er segir í ályktun bæjar-
stjórnarinnar er mun lengra geng-
ið í uppsögnum á Keflavíkurflug-
velli en í eðlilegum hagræðingar-
aðgerðum.
„Þá virðist vinnubrögðum við
uppsagnir vera verulega ábótavant
og óviðunandi sú óvissa sem áfram
er sköpuð þrátt fyrir fyrirliggjandi
uppsagnir. Mikilvægt er að leita
allra leiða til að draga úr þeim til-
finningalegu og félagslegu erfið-
leikum sem atvinnuuppsögn við
þessar aðstæður veldur. Bæjar-
stjórn telur brýnt að flýta niður-
stöðu í viðræðum við íslensk
stjórnvöld um atvinnumál á svæð-
inu. Jafnframt er nauðsynlegt að
formlegar viðræður verði teknar
upp við ríkisstjórn Íslands um við-
brögð við þeim uppsögnum sem nú
þegar hafa komið fram,“ segir bæj-
arstjórnin. ■
LÖGIN UNDIRRITUÐ
Bush sagði löngu tímabært að ríkisstjórnin
kæmi saklausum börnum til bjargar.
Fóstureyðingar:
Umdeildar
breytingar
WASHINGTON, AP George W. Bush
undirritaði í gær lög sem banna
fóstureyðingar eftir að fjórtán vik-
ur eru liðnar af meðgöngu. Gert er
ráð fyrir því að gera megi undan-
tekningar ef líf móður er í hættu en
ekki ef aðeins heilsa hennar er í
húfi. Læknar sem virða bannið að
vettugi eiga yfir höfði sér allt að
tveggja ára fangelsi.
Andstæðingar nýrra laga um
fóstureyðingar í Bandaríkjunum
hafa þegar gripið til róttækra að-
gerða til að fá lögunum hnekkt.
Dómari í Nebraska segir að lögin
stangist hugsanlega á við stjórn-
arskrá landsins. ■
edda.is
Eftir erfi›an skilna› sn‡r
söguma›ur heim í
fæ›ingarbæ sinn og
dvelur flar sumarlangt.
Frumleg og áleitin saga
um efni sem margir
flekkja af eigin reynslu
eftir einn listfengasta
rithöfund fljó›arinnar,
Gyr›i Elíasson.
Listilega skrifu›
KEFLAVÍKURFLUGVÖLLUR
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar segir mun
lengra gengið í uppsögnum Varnarliðsins á
Keflavíkurflugvelli en í eðlilegum hagræð-
ingaraðgerðum.
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar:
Stjórnvöld bregðist
við uppsögnunum
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
UPPSAGNARBRÉF
Talið er að á þriðja hundrað íslenskra
starfsmanna Varnarliðsins hafi fengið sent
uppsagnarbréf með möguleika á endur-
ráðningu með verri kjör.
■ Dómar
VILHJÁLMUR Þ. VILHJÁLMSSON
Telur að þensla hjá borginni valdi því að sameiginlegur kostnaður er einna hæstur hjá
Reykvíkingum.
SAMEIGINLEGUR KOSTNAÐUR
- á hvern íbúa árið 2002
Reykjavík 48.274
Kópavogur 35.273
Garðabær 31.046
Hafnarfjörður 27.283
Bessastaðahreppur 21.540
Seltjarnarnes 49.132
Reykjanesbær 60.786
Mosfellsbær 33.119
„Hjá borg-
inni eru nokk-
ur dæmi um
að fólk hefur
verið ráðið til
einstakra
verkefna en
síðan verið
fastráðið.