Fréttablaðið - 07.11.2003, Side 12
12 7. nóvember 2003 FÖSTUDAGUR
HART Í ÁRI Á SÚMÖTRU
Joni, mannapi af órangútan-ætt, tyggur
sígarettustubb í Bukit Lawang á eyjunni
Súmötru í Indónesíu. Heimkynni
fjölmargra apa eyðilögðust í miklum flóð-
um um helgina og nú ráfa þeir um í reiði-
leysi í leit að æti.
ALÞINGI Steingrímur J. Sigfússon,
formaður Vinstri grænna, og
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra tókust á um lögmæti innrás-
arinnar í Írak
í fyrirspurn-
artíma á Al-
þingi.
Steingrím-
ur óskaði eftir
mati utanrík-
isráðherra á
lögmæti inn-
rásarinnar og
vísaði til þess
að hún hefði
hvorugt skil-
yrði Samein-
uðu þjóðanna fyrir innrás upp-
fyllt. Hún hefði ekki verið gerð í
sjálfsvörn og ekki að fengnu sam-
þykki öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna.
Halldór svaraði því til að Írak-
ar hefðu ítrekað brotið gegn
samþykktum Sameinuðu þjóð-
anna. „Ákvörðun (ríkisstjórnar-
innar) er fyrst og fremst stuðn-
ingur við það sjónarmið að Sam-
einuðu þjóðirnar þyrftu að fylgja
eftir ályktunum sínum um af-
vopnun í Írak.“ Hann sagði af-
stöðu stjórnvalda ekki hafa
breyst og aldrei komið til greina
að taka Ísland af lista yfir þær
þjóðir sem studdu stríðið: „Enda
væri það sérkennileg söguföls-
un.“
Steingrímur sagði að snúa
mætti rökum fyrir innrás í Írak;
að aðrar þjóð-
ir teldu sér
stafa ógn af
því og það
bryti gegn
samþykktum
S a m e i n u ð u
þjóðanna, yfir
á Ísrael og
spurði hvort
menn ættu
ekki að vera
sjálfum sér
samkvæmir. ■
Listahátíð verður
haldin árlega
Áhersla verður lögð á að hátíðin hafi sterkt þema hverju sinni og mun
hátíðin 2004 einkennast af sviðslistum. Stjórnandi Listahátíðar segir að
reynt sé að forðast beina samkeppni við aðra á menningarmarkaði.
LISTAHÁTÍÐ Á fundi ríkisstjórnar Ís-
lands á þriðjudagsmorgun var
tekin ákvörðun um að eftirleiðis
yrði Listahátíð í Reykjavík haldin
á hverju ári og enn fremur að
framlag ríkisins yrði þrjátíu
milljónir króna árlega. Á fundi
borgarráðs sama dag var einnig
ákveðið að styðja þá ákvörðun að
hátíðin yrði haldin árlega og að
framlagið yrði hækkað í 30 millj-
ónir á ári.
Listahátíð hefur verið haldin á
tveggja ára fresti frá því hún var
fyrst haldin árið 1970. Á meðal
listamanna sem komið hafa fram í
gegnum árin eru Led Zeppelin,
David Bowie, Gypsy Kings, Luci-
ano Pavarotti, Yehudi Menuhin og
Simply Red.
Þórunn Sigurðardóttir, stjórn-
andi Listahátíðar, segir að sú
ákvörðun að halda listahátíð ár-
lega sé meðal annars hugsuð til
þess að nýta betur þá fjármuni
sem varið er í hátíðina auk þess
sem það sé orðið afar sjaldgæft að
sambærilegar listahátíðir séu
haldnar sjaldnar en árlega. Á ný-
legum aðalfundi alþjóðasamtaka
listahátíða kom í ljós að af þeim
hátíðum sem aðild hafa að samtök-
unum var listahátíðin í Reykjavík
sú eina, fyrir utan listahátíð í Sí-
beríu, sem ekki var haldin árlega.
„Það er búið að stefna að þessu
nokkuð lengi en það hefur tekið
tiltölulega stuttan tíma að klára
þetta,“ segir Þórunn. Hún segir að
við fjölgun listahátíða breytist eðli
þeirra að nokkru leyti og að í
framtíðinni megi búast við því að
hver listahátíð taki fyrir afmark-
aðri þætti menningarlífsins en
áður. Þannig hafi verið ákveðið að
listahátíð árið 2004 verði helguð
sviðslistum og árið 2005 verði
samtímamyndlist gerð sérstök
skil.
Þórunn segir að mikil breyting
hafi orðið á framboði menningar-
efnis á Íslandi á síðustu árum og
að skipuleggjendur listahátíðar
gæti að því að vera ekki í sam-
keppni við aðra aðila sem skipu-
leggja menningarviðburði hér á
landi. „Við erum ekki að taka það
sem er auðvelt fyrir aðra að fram-
kvæma og skemma þannig fyrir
þeim,“ segir Þórunn. „Við beinum
sjónum okkar meira að því að gera
hluti sem aðrir geta ekki farið út í,
samstarfsverkefni við erlendar
hátíðir og verkefni sem hentað
geta til útflutnings,“ segir hún.
thkjart@frettabladid.is
EKIÐ Á HJÓLREIÐAMANN Ekið
var á hjólreiðamann á gatnamót-
um Hallarmúla og Suðurlands-
vegar á miðvikudag. Maðurinn
fann til eymsla á höndum og á
olnboga. Hann var fluttur með
sjúkrabíl á slysadeild.
SEXTÁN ÓHÖPP Sextán umferðar-
óhöpp urðu í Reykjavík í fyrradag
frá hádegi til átta um kvöldið.
HAFNAÐI Á GRJÓTVÖRN Ökumað-
ur missti stjórn á bílnum sínum á
Óshlíð, milli Bolungarvíkur og
Hnífsdals, um fjögurleytið í gær-
dag. Slæm akstursskilyrði voru á
þessu svæði og hafnaði bíllinn á
grjótvörn ofan við veginn. Enginn
meiddist en bíllinn er óökufær.
Herþotur:
Trufla menn
mismikið
ALÞINGI „Ég hef orðið vitni að því
oftar en einu sinni að þær valda
gríðarlegu ónæði,“ sagði Stein-
grímur J. Sigfússon, formaður
Vinstri grænna, þegar hann
spurði utanríkisráðherra hvort
hann hygðist gera eitthvað til að
bregðast við óánægju með há-
vært æfingaflug bandarískra
herþotna sem hefðu truflað ró
manna og dýra jafnt í bæjum
sem sveitum.
Halldór Ásgrímsson utanrík-
isráðherra sagði reglur um flug
herþotna yfir og við landið unn-
ar í góðri samvinnu Flugmála-
stofnunar og varnarliðsins og
þær hefðu verið endurskoðaðar
nýlega. „Ég sé því ekki betur,
herra forseti, en málin séu og
hafi verið í góðum farvegi.“ ■
ÁREKSTUR
Þrír voru fluttir á slysadeild.
Reykjavík:
Harður
árekstur
LÖGREGLUFRÉTTIR Árekstur tveggja
bíla varð á gatnamótum Miklubraut-
ar og Snorrabrautar í fyrradag.
Þrír voru fluttir á slysadeild eft-
ir áreksturinn en meiðsli þeirra
reyndust vera minniháttar. Báðir
bílarnir voru dregnir á brott með
kranabíl þó nokkuð skemmdir. ■
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/VILH
ELM
Stuðningur við innrás í Írak ekki útræddur:
Deilt um lögmæti
HALLDÓR
Rétt að gera innrás.
STEINGRÍMUR
Innrásina skorti
lögmæti.
■ Lögreglufréttir
■ Lögreglufréttir
ÞÓRUNN SIGURÐARDÓTTIR, STJÓRNANDI LISTAHÁTÍÐAR
Listahátíðir verða haldnar árlega í Reykjavík og eftirleiðis verður lögð áhersla á að ákveðin
tegund menningar verði í brennidepli í hvert sinn.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
LD
ÍS
P
ÁL
S
HERÞOTA VARNARLIÐSINS
Stjórnmálamenn höfðu misjafnar
áhyggjur af flugi þeirra yfir landi.
FLEIRI KÆRÐIR FYRIR
HRAÐAKSTUR Fjögur hundruð
fleiri ökumenn hafa verið
kærðir fyrir hraðakstur í um-
dæmi lögreglunnar á Hvolsvelli
í ár en á sama tíma í fyrra. Þeg-
ar hafa 974 ökumenn verið
kærðir en voru 578 í fyrra. Lög-
reglan segir skýringuna að
finna í öflugri löggæslu á veg-
um með breyttu vaktakerfi lög-
reglunnar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Ásatrúarmenn:
Forn trú
viðurkennd
DANMÖRK, AP Ásatrúarsöfnuðurinn
í Danmörku mun von bráðar
hljóta viðurkenningu hins opin-
bera sem sjálfstætt trúfélag.
Söfnuðurinn „Forn trú“, sem telur
um 240 meðlimi, hefur árum sam-
an barist fyrir viðurkenningu hins
opinbera. Í fyrra mælti nefnd á
vegum kirkjumálaráðuneytisins
með því að orðið yrði við beiðni
safnaðarins að því tilskildu að sið-
ir hans yrðu útlistaðir nákvæm-
lega í félagslögunum. Þetta hefur
verið gert og er nú aðeins beðið
eftir formlegu samþykki kirkju-
málaráðherrans.
Viðurkenningin felur meðal
annars í sér að hjónavígslur leið-
toga safnaðarins öðlast lagalegt
gildi. ■