Fréttablaðið - 07.11.2003, Side 14

Fréttablaðið - 07.11.2003, Side 14
14 7. nóvember 2003 FÖSTUDAGUR KONUNGLEG TRÚLOFUN Spænski krónprinsinn Felipe og unnusta hans, Letizia Ortiz, veifa til blaðamanna fyrir utan Pardo-höllina í Madríd í gær eftir að þau höfðu opinberað trúlofun sína. MEXÍKÓ, AP Hundruð kvenna hafa látið lífið eða horfið sporlaust í borginni Juarez á landamærum Mexíkó og Bandaríkjanna á und- anförnum tíu árum. Yfirvöld í Mexíkó segja að 258 ungar konur hafi verið myrtar í Juarez síðan árið 1993. Að minns- ta kosti 93 þeirra voru misnotað- ar kynferðislega af morðingjun- um. Mexíkósk og alþjóðleg mann- réttindasamtök telja aftur á móti að yfir 300 konur hafi verið myrt- ar. Einnig hafa tugir ungra kven- na horfið í Juarez og nágranna- bænum Chihuahua. Þrátt fyrir að á annan tug manna hafi verið handtekinn í tengslum við rannsóknir á þess- um morðum hefur aðeins einn verið dæmdur. Egypskur karl- maður, búsettur í Bandaríkjun- um, var dæmdur fyrir að hafa framið eitt af fyrstu morðunum. Ráðamenn og mannréttinda- samtök um allan heim hafa gagnrýnt mexíkósk yfirvöld harðlega fyrir aðgerðarleysi í þessum málum. Rannsóknaraðil- ar hafa verið sakaðir um skeyt- ingarleysi og frumstæð vinnu- brögð. Í síðasta mánuði skipaði forseti landsins, Vicente Fox, nefnd sem á að hafa eftirlit með þeim aðilum sem rannsaka morðin. ■ Ný stjórnarskrá ESB: Bretar gefa ekki eftir LONDON, AP Tony Blair, forsætis- ráðherra Bretlands, segir að Bretar muni ekki gefa eftir neitunarvald sitt í skattamálum, varnar- og utanríkismálum í nýrri stjórnarskrá Evrópusam- bandsins. Blair áréttaði þetta í fyrispurnartíma á breska þing- inu í fyrradag. Með nýrri stjórnarskrá á öll ákvarðanataka að verða auð- valdari innan sambandsins. Samningar standa enn yfir en Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, sem er í forsæti sam- bandsins, hefur sagst vilja ná niðurstöðu fyrir áramót. Blair segir að stjórnarskráin breyti ekki í grundvallaratrið- um stöðu Breta innan ESB og því sé engin þörf á þjóðar- atkvæðagreiðslu líkt og stjórn- arandstaðan hefur krafist. ■ Friðarverðlaunahafa hótað lífláti: Fær lífvörð TEHERAN, AP Íranska lögfræðingn- um og mannréttindafrömuðinum Shirin Ebadi, handhafa friðar- verðlauna Nóbels, hefur verið skipaður sérstakur lífvörður vegna ítrekaðra líflátshótana að undanförnu. Frá því Ebadi sneri aftur til Írans eftir að hafa veitt verðlaun- unum viðtöku, hafa dunið á henni hótanir og taldi lögregla ekki ann- að fært en að láta fylgjast með henni. Mohammad Ali Dadkhah, tals- maður mannréttindasamtakanna CPHR, segir að Ebadi hafi borist tvö til þrjú hótunarbréf á dag frá því hún var tilnefnd til Nóbels- verðlaunanna, 10. október, en ekki sé ljóst hver eða hverjir hafi sent bréfin. Útnefning Ebadi var óvænt en ýmsir höfðu spáð Jóhannesi Páli páfa II heiðrinum. ■ BLAIR OG BERLUSCONI Forsætisráðherra Bretlands stendur fast á kröfu sinni um að halda neitunarvaldi í skattamálum, varnar- og utanríkismálum í nýrri stjórnarskrá ESB. Allt í strand á Eiðum Hugmyndir um alþjóðlegt mennta- og menn- ingarsetur, sem fyrirhugað var að koma á fót að Eiðum, hafa siglt í strand. FRÁ EIÐUM Stórhuga hugmyndir eigenda staðarins hafa siglt í strand eins og sakir standa. LUNDÚNIR, AP Maður sem var ósátt- ur við söluverð húss sem hann ætlaði að kaupa var fundinn sek- ur um að hafa tekið eigandann í gíslingu og misþyrmt honum. Vegna uppsveiflu á fasteigna- markaði hafði fórnarlambið, Adam Adamou, hækkað verðið á húseigninni um sem svarar tæp- um 32 milljónum íslenskra króna. Lester Stacey, sem taldi sig hafa samið um kaupverðið fimm mán- uðum áður, fór heim til Adamou og hótaði að skera úr honum hjartað og plokka úr honum aug- un. Saksóknarar héldu því fram að Stacey hefði kýlt Adamou í andlitið, haldið honum föngnum í margar klukkustundir og rifið símann af veggnum til að koma í veg fyrir að hann gæti hringt á lögreglu. ■ MENNINGARSETUR Þrátt fyrir stórar yfirlýsingar í upphafi um starfs- rækslu alþjóðlegrar mennta- og menningarmiðstöðvar að Eiðum hefur lítið þokast og engin starf- semi hefur farið þar fram að ráði síðan nýir eigendur tóku við. Eitt ár er síðan eigendurnir, Sigurjón Sighvatsson kvikmynda- framleiðandi og Sigurður Gísli Pálmason kynntu hugmyndir sín- ar um nýtingu staðarins með hlið- sjón af skýrslu sem unnin var sér- staklega fyrir þá félaga af sér- skipaðri nefnd. Þær hugmyndir sem sú nefnd skilaði hafa ekki komist í framkvæmd. „Staðan er sú að við erum að vinna að því fá sveitarstjórn Aust- ur-Héraðs og ríkið til að koma að uppbyggingu Eiða með okkur,“ segir Árni Páll Árnason, sem sinn- ir þessu máli fyrir hönd Sigurjóns Sighvatssonar hér á landi. „Það er auðvelt að ana út í eitthvað ævin- týri sem dregur svo dilk á eftir sér í mörg ár. Það viljum við forð- ast og koma Eiðum almennilega á kortið í samvinnu við fleiri aðila. Við viljum meina að það hafi já- kvæð áhrif fyrir alla aðila. Hins vegar þarf sú starfsemi sem þarna verður að vera sjálfbær.“ Helga Guðmundsdóttir, for- stöðumaður fræðslu- og menning- arsviðs Austur-Héraðs, sagðist ekki vita til þess að samningar hefðu verið brotnir en ein megin- ástæða þess að sveitarstjórnin seldi Sigurði og Sigurjóni var framtíðarsýn þeirra um menning- arsetur á staðnum. „Þarna fór fram námskeið í sumar sem leið og Óperustúdíó Austurlands er rekið þarna í júní á hverju sumri en að öðru leyti hefur engin menn- ingarstarfsemi verið á svæðinu sem ég veit um.“ Áætlanir þeirra Sighvats og Sigurðar, sem kynntar voru fyrir ári síðan, gerðu ráð fyrir að Eiðar yrðu alþjóðlegt umhverfissetur, sköpunar- og fræðasetur með áherslu á listræna samvinnu, mið- stöð verkefna í umhverfismálum og aðsetur fyrir margþætt önnur verkefni. „Ef okkar áætlanir ná fram að ganga, verður þetta mjög hreyf- anlegt setur, með gríðarlega mög- urleika,“ sagði Sighvatur Sigur- jónsson, þegar kaupin voru um garð gengin 31. júlí 2001. albert@frettabladid.is Ósáttur kaupandi: Tók eigandann í gíslingu YFIRVÖLD GAGNRÝND Mexíkósk kona mótmælir aðgerðarleysi yfirvalda fyrir utan innanríkisráðuneytið í Mexíkó- borg. Hundruð óupplýstra morðmála í Mexíkó: Konur hverfa sporlaust 17 VÉLAR á Broadway LAUGARDAGSKVÖLDIÐ 8. nóvember kl. 00.00 Miðaverð aðeins kr. 1200.-

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.