Fréttablaðið - 07.11.2003, Page 19

Fréttablaðið - 07.11.2003, Page 19
19FÖSTUDAGUR 7. nóvember 2003 Búið er að stofna samtök semmunu vinna m.a. að réttindamál- um fjölskyldna barna með sérþarfir. Samtökin hyggjast stofnsetja óháða ráðgjafarmiðstöð sem nefnd hefur verið Sjónarhóll. Miðstöðinni er ætl- að að verða miðpunktur allrar þjón- ustu og upplýsingagjafar til þessara fjölskyldna og er óhætt að segja að hún muni valda straumhvörfum í réttindabaráttu barna sem eiga við erfið og langvarandi veikindi og fötlun að stríða. Sem starfandi leikskólastjóri í leikskólanum Múlaborg gleðst ég yfir þessu merka framtaki, því ég trúi að það komi öllum foreldrum til góða að eiga sér öflugan tals- mann líkt og leiðsögumann til markvissrar sérfræðiþjónustu. Ég lít svo á að öll höfum við okkar sér- þarfir, sem að mestu leyti er hægt að uppfylla. Völundarhús velferðarkerf- isins – vandinn Öðru máli gegnir um sérþarfir barna sem verða til vegna einhvers konar þroskaseinkunar eða þroska- hindrunar og enn fremur þar sem framtíðarspár um andlegan eða lík- amlegan þroska eru óljósar. Opin- berir aðilar s.s. Greiningar- og ráð- gjafastöð ríkisins, heilsugæslan og ráðgjafadeildir leikskólanna sjá um að vinna þroskamat hjá barninu samkvæmt beiðni foreldra. Í sam- ræmi við niðurstöður matsins er leitað bestu leiða í meðferð kennslu og uppeldi í leikskólum landsins og síðar á grunnskólastigi. Eftir að þroskamat barnsins ligg- ur fyrir eru foreldrar upplýstir og þeim leiðbeint í samræmi við niður- stöður matsins. Endurmat á þroska- mati þarf að vera með jöfnu tíma- bili. Alltaf er verið að leita bestu leiða fyrir barnið. Fram að þessu hefur vitneskju og reynslu í þessum málaflokki verið að finna á ótal mörgum stöðum í samfélaginu og fyrir vikið hafa for- eldrar þessara barna oft villst af leið um stuðningsúrræði kerfisins, jafn- vel týnst þar eða hreinlega gefist upp við að sækja sér rétt barna sinna um fullnægjandi og lögbundna þjónustu við þau. Það hefur því lengi vantað einn stað þar sem foreldrar barna með sérþarfir geta samræmt stuðningsúrræði fyrir barn sitt til betra lífs. Óháð ráðgjafarmiðstöð Sjónarhóll mun styðja foreldra í nýju og krefjandi hlutverki sem for- eldrar barna með sérþarfir upplifa. Hlutverki sem kallar á óöryggi for- eldra, því óteljandi spurningum er ósvarað. Mikilvægt er að styðja for- eldra í sálrænum og félagslegum átökum sem þeir eiga í. Sjónarhóll mun gefa góðar upplýsingar um hvar foreldrar geta fengið þjónustu og upplýsingar um hvaða réttindum þeir eigi rétt á innan samfélags okk- ar. Sjónarhóll mun skapa aðstæður þar sem komið er á tengslum við foreldra annara barna með svipaðar sérþarfir. Sjónarhóll mun efla fræðslu til foreldra og fjölskyldna barna með sérþarfir sem og þeirra sem koma að uppeldi barna almennt. Sjónarhóll mun leita að færum leið- um í uppeldi og til kennslu barna með sérþarfir. Reynsla Sjónarhóls auðveldar opinberum aðilum mark- vissari ákvörðunartöku í málefnum barna með sérþarfir. Ég álít að tilkoma ráðgjafarmið- stöðvar sem Sjónarhóll stendur fyr- ir muni auðvelda mörgum fjölskyld- um lífið. Til hamingu, þið framfara- menn og -konur. ■ Tímamót í málefnum foreldra barna með sérþarfir Umræðan ARNDÍS BJARNADÓTTIR ■ leikskólastjóri skrifar um ráðgjafarmiðstöð- ina Sjónarhól. Umræðan PÉTUR TRYGGVI HJÁLMARSSON ■ gull- og silfursmiður skrifar um snjóflóða- varnargarða. Um umhverfis- sköpun Það er dásamlegt að fá verð-laun. Svo virðist sem jafnvel séu veitt verðlaun fyrir hvað sem er. En oft er það svo með viður- kenningar að þær segja meira um þá sem veita þær heldur en þá sem fá þær. Stund- um er viðurkenn- ingin veitt ein- hverju því sem pöpullinn á erfitt með að sætta sig við. En eftir veit- inguna verða flest- ir sáttir og jafnvel stoltir af að fá að snerta viðurkennd- an óskapnaðinn. Þeir eru til dæmis ófáir níðingarnir í heiminum sem hafa verið heiðraðir. Þar sem landslag hefur verið metið ljótt eða hættulegt er kallað til mannfólk, sem hefur meiri gáf- ur en frumkrafta, til að umskapa náttúruna þannig að hún falli vel inn í umhverfið. Einhverjar rann- sóknir segja að fólki líði betur í sérhönnuðu og verðlaunuðu um- hverfi. Ef einhverjum líður öðru- vísi en niðurstaða rannsóknar færði sönnur á, er hann ekki nor- mal. Einhverra hluta vegna sækir fólkið samt í umhverfi frumkraft- anna þegar það hefur tíma til eig- in ráðstöfunar. Þar líður fólki best, hvað sem rannsóknir segja. Vinnuvélalandslag Þeim stöðum fer fækkandi hér á landi þar sem ekki hefur verið komið fyrir flekkjum grenitrjáa sem mynda æxli til „fegrunar“ ósnortinnar náttúru. Og nú er komið að því að verðlauna nýjasta „hitt“ verktakamáttarins, sem er snjóflóðavarnargarðar. Bent hefur verið á að hleypa má snjósöfnun niður í litlum hættulausum spýjum áður en snjómagnið verður óviðráðanlegt. En sú aðferð er ekki verktakavæn og fær þess vegna ekki medalíu. Sést hefur stórfenglegra lands- lag en vinnuvélalandslag. En það landslag er aldrei verðlaunað vegna þess að enginn makar krók- inn á þeirri sköpun og enginn veit hverjum á að veita heiðurinn. ■ ■ Sést hefur stór- fenglegra landslag en vinnuvélalands- lag. En það landslag er aldrei verðlaun- að vegna þess að enginn mak- ar krókinn á þeirri sköpun.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.