Fréttablaðið - 07.11.2003, Qupperneq 22
22 7. nóvember 2003 FÖSTUDAGUR
■ Andlát ■ Jarðarfarir
■ Afmæli
Þennan dag árið 1940 hrundifjögurra mánaða gömul brú
yfir sundið Tacoma Narrows í
Washington-ríki á vesturströnd
Bandaríkjanna.
Brúin var rúmlega 280 metra
löng og var þrjú ár í smíðum. Til
að spara kostnað var hún höfð
óvenju mjó.
Þann 1. júlí árið 1940 var um-
ferð hleypt yfir hana í fyrsta sinn,
og þann dag var mikið við haft.
Fljótlega tóku ökumenn eftir
því að jafnan þegar hvessti, þótt
ekki væri nema lítillega, tók brúin
að sveiflast til hliðanna og stund-
um snerist upp á hana. Þegar
mjög hvasst var í veðri sögðust
ökumenn sjá bílana á undan
hverfa sjónum nokkrum sinnum á
meðan ekið var yfir brúna.
Fáir virtust þó óttast þessa
óvenjulegu hegðun brúarinnar.
Þvert á móti gerði fólk sér að leik
að aka yfir hana þegar hvessti og
skemmti sér hið besta í sveifl-
unni.
Þann 7. nóvember mældist
vindhraðinn 18 metrar á sekúndu
og þá lét brúin undan, þrátt fyrir
að hún hafi átt að þola mun meira.
Ekkert manntjón varð, enda
hafði verið lokað fyrir umferð.
Hundur einn hrapaði þó niður og
sást ekki aftur. Ljósmyndari
nokkur gat með naumindum forð-
að sér á hlaupum. ■
Ef satt skal segja hef ég ekkihaldið upp á afmælisdaginn
minn síðan ég var tíu ára og ég á
ekki von á að á því verði breyt-
ing,“ segir Jakob Möller lögmað-
ur, sem í dag er 63 ára.
Jakob segir að á tíu ára afmæl-
isdeginum hafi móðir hans haldið
myndarlegt afmælisboð og hann
boðið vinum og skólafélögum í af-
mælið. „Ég fékk mikið af góðum
bókum í afmælisgjöf og eins mik-
ill bókaormur og ég er vildi ég
helst af öllu byrja að lesa. Ég
reyndi því að draga mig frá en
móðir mín var ekki ánægð með
það og vildi að ég blandaði geði
við gestina. Ég neyddist til þess
en hét því um leið að ég skyldi
aldrei halda upp á afmælið mitt
aftur. Ég hef staðið við það en það
kemur ekki síður til vegna þess að
ég hef alls ekki gaman f því að
vera miðpunktur athyglinnar,“
segir Jakob og hlær við minning-
una.
Hann segir að fjölskylda hans
virði það við hann og sé því ekki
með neina viðhöfn þennan dag.
Systkinin hans hringi og óski hon-
um til hamingju en fátt annað
minni á afmælisdag. „Ég kann því
mjög vel en það er ekki þar með
sagt að ég hafi ekki gaman af að
vera í afmælisboðum hjá öðrum
og mannfagnaður á prýðilega vel
við mig; aðeins ef ég þarf ekki að
vera miðpunkturinn,“ segir
Jakob.
Á stórafmælum lætur hann sig
gjarnan hverfa í burtu til að
minna ekki óþarflega á sig og fer
þá oftast eitthvað til útlanda. „Ég
hef komist upp með þetta og þarf
ekki að hugsa fyrir stórafmæli
fyrr en eftir sjö ár. Ég reikna með
að ég hugsi á svipaðan máta þá.“
Jakob rekur lögmannsstofuna
Logos ásaamt fleiri lögmönnum
og í dag verður stofan lokuð
vegna stefnumótafundar sem
haldinn verður fyrir utan borgina.
Hann segir að það sé nauðsynlegt
að komast í burtu og vinna saman
í friði.
Í frítímanum les Jakob mikið,
er algjör fréttafíkill og fer því
nokkur tími í að fylgjast með fjöl-
miðlum. „Ég stunda golf af mikilli
ánægju en minni hæfni. Það er
ekki langt síðan ég byrjaði í golf-
inu en finnst óskaplega gaman,“
segir Jakob Möller. ■
Afmæli
JAKOB MÖLLER
■ Lögmaðurinn Jakob er 63 ára í dag.
Hann ætlar ekki að halda upp á daginn
nú fremur en síðustu fimmtíu ár.
■ Þetta gerðist
1916 Jeannette Rankin tekur fyrst
kvenna sæti á Bandaríkjaþingi.
1940 Franklin D. Roosevelt er í þriðja
sinn kosinn forseti Bandaríkjanna.
1951 Söngvarinn Frank Sinatra og leik-
konan Ava Gardner ganga í
hjónaband.
1957 Fyrsti Trabantinn er framleiddur í
bílaverksmiðjunni í Zwickau í
Austur-Þýskalandi.
1972 Richard Nixon er endurkosinn í
forsetaembætti Bandaríkjanna.
Hann sagði af sér árið 1974
vegna Watergate-málsins.
2000 Samvöxnu tvíburarnir Jodie og
Marie eru aðskildar í Lundúnum,
tæplega þriggja mánaða gamlar.
Fyrir fram var vitað að Mary
myndi deyja, en Jodie lifir af að-
gerðina.
BRÚARHRUNIÐ
Sérfræðingar eru ekki á einu máli um
ástæðu hrunsins, en flestir telja vindinn
hafa magnað upp sveiflur á eigintíðni brú-
arinnar með þessum afleiðingum.
Tacoma-brúin hrynur
BRÚIN YFIR TACOMA
NARROWS
■ Splunkuný brú vestantil í Bandaríkjun-
um hrundi með stæl þegar vind hvessti
svolítið.
7. nóvember
1940
Leiðist eigin afmæli
Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
39.940kr.
Prag
Sértilbo› 27. nóv.
Ver› frá
á mann í tvíbýli.
Innifalið: Flug, gisting með
morgunverði í 3 nætur á Tulip
Inn hótelinu, flugvallarskattar
og íslensk fararstjórn.
Ekki innfalið: Akstur til og frá
flugvelli erlendis kostar
1.700 kr. á mann.
Akstur og skoðunarferðir þarf
að bóka á skrifstofu
í síma 535 2100 fyrir brottför.
Prag er ein fallegasta
borg Evrópu og b‡›ur upp
á ótal möguleika. Hægt er
a› sko›a gamla
mi›bæinn, setjast inn á
eitt af ótal kaffihúsum
borgarinnar, versla, fara
í söfn e›a göngufer› vi›
ána og á Karlsbrúna.
Miki› úrval veitingasta›a
er í borginni flar sem
bæ›i er bo›i› upp á
tékkneskan og vestur-
evrópskan mat.
Menningar- og
skemmtanalífi› er öflugt
í bænum: Leikhús,
tónleikar, ballet, ópera,
brú›uleikhús, Svarta
leikhúsi›, vínkjallarar,
spilavíti, barir
og kaffihús.
JÓNAS GUÐMUNDSSON,
SÝSLUMAÐUR BOLVÍKINGA
Hann hefur stofnað félag sem hefur það
að markmiði að leggja nýjan veg úr Gils-
firði um Arnkötludal og Gautsdal yfir í
Hólmavík.
??? Hver?
Jónas Guðmundsson, sýslumaður í Bol-
ungarvík.
??? Hvar?
Ég er staddur heima hjá mér í hádegis-
mat.
??? Hvaðan?
Ég er úr 101 Reykjavík.
??? Hvað?
Við viljum veg sem fyrst á milli Gilsfjarð-
ar og Hólmavíkur um Arnkötludal og
Gautsdal. Það styttir heilsársleiðina um
40 kílómetra fyrir flesta Vestfirðinga.
??? Hvers vegna?
Við teljum hana hagkvæmasta þegar á
allt er litið. Í stað þess að aka Strandir í
Hólmavík er ekið yfir Gilsfjarðarbrú og
þessa leið til Hólmavíkur.
??? Hvernig?
Hugsunin er að fá fyrir kostnaði með
veggjöldum svipað og um Hvalfjarðar-
göng.
??? Hvenær?
Hönnun tekur tvö ár og vegagerð gæti í
fyrsta lagi hafist eftir það.
JAKOB MÖLLER
Hann verður í vinnu-
ferð í dag með lög-
mannsstofunni Logos
en hann gefur lítið
fyrir að vera mið-
punktur athyglinnar.
Andrés Hannesson frá Litlu Háeyri,
Eyrarbakka, lést mánudaginn 20. októ-
ber. Útförin fór fram í kyrrþey.
13.30 Guðrún S. Guðmundsdóttir verð-
ur jarðsungin frá Bústaðakirkju.
13.30 Sigríður Rósa Þórðardóttir,
Hrafnistu, Hafnarfirði, verður jarð-
sungin frá Áskirkju.
14.00 Ingólfur Arnarson Stangeland
verður jarðsunginn frá Siglufjarð-
arkirkju.
14.00 Haukur Ingason, Hlíðarvegi 5,
Ytri-Njarðvík, verður jarðsunginn
frá Ytri-Njarðvíkurkirkju.
15.00 Stefanía Guðmundsdóttir, áður
Hjaltabakka 28, verður jarðsungin
frá Fríkirkjunni í Reykjavík.
Anna Áslaug Ragnarsdóttir píanóleik-
ari, 57 ára.
Gunnar Stefánsson, ritstjóri Andvara,
57 ára.
.
Ingibjörg Hafstað, 56 ára.
Gylfi Páll Hersir, 52 ára.
Eiður Guðnason sendiherra, 64 ára.
Þorvaldur Þorsteinsson rithöfundur, 43 ára.
LEON TROTSKÍ
Rússneski byltingarmaðurinn fæddist árið
1879. Hann féll reyndar í ónáð og var
myrtur í útlegð í Mexíkó árið 1940.
■ Persónan
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T