Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.11.2003, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 07.11.2003, Qupperneq 26
Egils Pilsner er ný íslensk bjór-tegund sem nú er til sölu í nær öllum verslunum ÁTVR. Egils Pilsner er ódýrasti bjórinn á markaðnum en 0,5 lítra umbúðir kosta 149 krónur. Egils Pilsner kom á markaðinn 1. september og viðtökurnar hafa verið mjög góð- ar. Bruggmeistarar Ölgerðarinnar unnu að þróun hins nýja Egils Pilsners í nokkra mánuði en bjór- inn er byggður á Egils Pilsner létt- bjórnum sem bruggaður hefur verið síðan 1917. Hann flokkast undir pilsen bjór og er 4,5% að styrkleika. Að sögn Guðmundar Mar Magnússonar, bruggmeistara Ölgerðarinnar, er bjórinn ljós- brúnn á lit og ber keim af malt- korni, örlítilli sætu og beisku en mildu bragði. Til fróðleiks má geta þess að sambærilegar bjórtegundir í Dan- mörku í 0,5 lítra umbúðum kosta tæplega 110 krónur en Egils Pilsner kostar 149 krónur. Opinber gjöld nema tæpum 82% af verði Egils Pilsner. Þar ber hæst áfengisgjaldið en það er 44,3% af söluverðinu. Séu áfengis- gjöldin dregin frá er Egils Pilsner 12% ódýrari en sambærilegur bjór í Dan- mörku. Að sögn Önnu Maríu Árna- dóttur hjá Öl- gerðinni hef- ur Ölgerðin mætt kröf- um neytenda um mjög góðan bjór á lágu verði með tilkomu Egils Pilsner bjórsins en markmið Öl- gerðarinnar er að Egils Pilsner verði alltaf ódýrasti bjórinn í ÁTVR. ■ Sigmar B. Hauksson matgæðing-ur er sérfræðingur þegar kem- ur að villibráð og er einn af þeim sem fara og sækja sína villibráð sjálfir. Þó rjúpur séu í mestu uppá- haldi hjá Sigmari er hann næstum jafn hrifinn af hreindýrakjötinu. „Ég fór nýlega og felldi einn tarf,“ segir Sigmar og brosir að einfeldni blaðamanns sem spyr hvort ekki sé erfitt að fella svo fallegt dýr. „Það er nú þannig að það þarf að halda stofninum niðri svo landið geti bor- ið þennan fjölda hreindýra. Auk þess veit fólk oft ekki að náttúru- legur dauði villtra dýra er mjög kvalafullur. Það er ekki eins og hjá okkur mönnunum, sem verðum veikir, förum á spítala og fáum töflur við verkjunum. Þegar dýrin verða gömul hætta þau að geta étið þannig að þau veslast upp. Minni bráð, eins og til dæmis rjúpan, sem mikið hefur verið í umræðunni upp á síðkastið, er yfirleitt étin af ein- hverjum, tófu, fálka eða öðru rán- dýri, þannig að það að vera felldur af veiðimanni er kannski besti kosturinn í stöðunni,“ segir Sig- mar. Tarfinn felldi Sigmar við rætur Snæfells, en hann segist aðspurður ekki geta séð áður en hann fellir dýrið hversu gamalt það sé. „Við getum séð af hvaða kyni dýrið er og kannski áttað okkur ör- lítið á aldrinum eftir stærð horn- anna, en aldurinn getum við ekki greint nákvæmlega. Reyndir hreindýramenn geta stundum séð á feldinum hvort um er að ræða gamalt dýr eða ungt. Kjötið þykir þó best af kvígum, en af ungum tarfi er það líka ljómandi ljúf- fengt.“ Sigmar lætur kjötiðnaðarmenn um að verka kjötið, sem er verkað á svipaðan hátt og um nautgrip væri að ræða. „Bestu hlutar dýrs- ins eru hryggvöðvarnir og lund- irnar, en allir hlutar skepnunnar eru mjög góðir.“ Hreindýrakjöt er mjög dýrt, en Sigmar segir það eðlilegt miðað við að kvótinn er ekki stór. „Hrein- dýraráð ákveður á hverju ári hversu mörg dýr má fella og flest- ir veiðimenn hirða dýrin sín sjálfir. Það er þess vegna lítið framboð á markaði. Reyndar eru flutt inn dýr frá Norðurlöndunum og Græn- landi, en þau þykja ekki jafn bragð- mikil. Okkar hreindýr ganga í fjall- lendi og éta kjarnmikinn gróður, þannig að þau eiginlega krydda sig sjálf,“ segir Sigmar, sem notar hvert tækifæri til að elda ljúffenga hreindýrasteik. Hann leiðbeinir lesendum um hvernig hægt er að elda hreindýr á einfaldan hátt. edda@frettabladid.is matur o.fl. Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um mat og drykk Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: matur@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is Íslenskt hreindýrakjöt: Ljúffengt og bragðmikið og kryddar sig sjálft SIGMAR B. HAUKSSON Felldi glæsilegan hreindýrstarf við Snæfell. Hann segir að mesti tíminn í veiðiferðinni fari í að leita að dýrunum, sem dyljast vel í landslaginu. Egils Pilsner fæst í nær öllum Vínbúðum: Ódýrasti bjórinn í 0,5 l umbúðum Lime Er sítrusávöxtur náskyldursítrónunni, en safameiri og mildari. Lime vex meðal ann- ars á Fílabeinsströndinni, í Brasilíu og Vestur-Indíum. Það er oft notað í suðræna rétti. Þá þykir safinn úr þessum súr- sæta ávexti henta vel í ýmsa kokkteila og drykki. ■ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T Jólaævintýrið hefst 27. nóvember Borðapantanir eftir kl. 14 í síma 551 9555 www.argentina.is N Ý R M A T S E Ð I L L Villibráð restaurant bar take-away Sólin rís í austri Nýr veitingastaður Aðalstræti 12 sushi, salöt, misósúpur, curries, núðlur og grillréttir opið í kvöld frá kl.17.30 Villibráðarkvöld verður þann 8. nóvember á Hótel Ólafsvík og dansleikur um kvöldið. Verð með gistingu í tveggja manna herbergi kr. 8.500 á mann. Pantanir í síma 430 1650 Hótel Ólafsvík Villibráðarkvöld Ostrur Laxatartar Kryddlegin hörpuskel Tandori steinbítur Sverðfiskur með tómat chutney Sinnepsleginn skötuselur með grænum pipar

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.