Fréttablaðið - 07.11.2003, Side 28

Fréttablaðið - 07.11.2003, Side 28
7. nóvember 2003 FÖSTUDAGUR Frá Cote du Rouffach ekrunni á Haut-Rhin svæðinu í Alsace kemur þetta kryddaða, þykka og mikla Gewurztraminer frá framleiðandanum Rene Muré. Það gef- ur af sér gríðarlega skemmtilega angan af hunangi, aprikósum og sætu kryddi sem einnig endurspeglast í bragðinu. Feikilegt eftirbragð, langt og viðvarandi með örlít- illi sætu í byrjun en endar í þurrum ávöxtum. Rene Mure Gewurztraminer Cote de Rouffach er frábært vín með austurlensk- um mat, til dæmis indverskum kormarétt- um, en hentar einnig með ýmsum ostum. Fæst í flestum stærri Vínbúðum og kostar 1.490 kr. Kryddað, þykkt og mikið hvítvín Nú er tími villibráðarhlaðborðaog fjöldi veitingahúsa sem býður upp á girnilega og framandi villibráðarrétti. Björn Bragi Bragason, matreiðslumeistari í Perlunni, segir að margt spenn- andi sé á villibráðarborðinu. „Forréttirnir eru til dæmis hreindýra- og gæsa-carbage, reyktur áll og birki- og taðreykt- ur lax svo eitthvað sé nefnt. Í að- alrétt er meðal annars boðið upp á gæs í tveimur útfærslum, anda- bringur og hreindýr.“ Hann segir því miður engar rjúpur á boðstól- um og að ekki sé heldur boðið upp á hvalkjöt, en hreindýrið sé mjög vinsælt. „Fólk er mjög duglegt að smakka á öllum réttunum, og undantekningarlaust mjög ánægt,“ segir Björn Bragi. Hlað- borðið í Perlunni stendur til 12. nóvember. Á Hótel Loftleiðum er líka villi- bráðarhlaðborð, en þar er meðal annars boðið upp á dúfu-terrene, skötuselslifur og heitreyktan háf. Reynir Magnússon matreiðslu- meistari segir skötuselslilfrina falla í góðan jarðveg hjá mörgum, en þó sé það þannig að annað hvort finnist fólki hún algjört gómsæti eða algjört óæti. „Svo erum við auðvitað með hefðbundna villibráð eins og hreindýr, endur, gæs og lunda, að ógleymdum rjúpunum, sem við eigum síðan í fyrra. Nú erum við með svo góðar frystigeymslur að rjúpan hefur geymst vel.“ Reynir segir að fólk reyni að smakka sem flest og sé allsendis óhrætt við að prófa eitthvað nýtt. Villibráðin verður í boði á Hót- el Lofteiðum til 15. nóvember, en þá taka jólahlað- borðin við. ■ Að nota hrísgrjónaafganga tillummugerðar er gömul ís- lensk matarhefð sem virðist vera á undanhaldi enda er margt annað hægt að gera við köld hrísgrjón. Mínir hrísgrjónaafgangar fara oftast í að búa til þetta salat sem er svo ávanabindandi að ég sýð gjarnan allt of mikið af hrísgrjón- um svo örugglega verði afgangur til salatgerðarinnar, og stundum fyllist ég fíkn og sýð hrísgrjónin jafnvel sérstaklega svo hægt sé að halda hrísgrjónasalatveislu. Það er í raun hægt að nota nánast hvaða grænmeti sem er í þetta salat, því ediksblandan er að- altrixið, en hér kemur tillaga sem virkar alveg sérstaklega vel. 5-6 bollar soðin, köld hrísgrjón 1 gul paprika 1/2 púrra 6–8 sneiðar sólþurrkaðir tómatar 1 dós túnfiskur í bitum 1 1/2 bolli soðnar svartar baunir (gular baunir eða nýrnabaunir líka í lagi) 2 harðsoðin egg 4 msk. edik (sushi edik lang best) 3 msk. ólífuolía 2 tsk. hunangs dijon sinnep 2 msk. ristuð graskersfræ (má sleppa) Þeytið edik, ólífuolíu, sinnep og nýmalaðan pipar saman í skál með gaffli. Brytjið grænmetið og saxið púrruna. Hellið vatninu vel af túnfisknum og blandið öllu saman við hrísgrjón og baunir. Hellið svo ediksósunni yfir og veltið öllu vel saman. Skerið egg- in í báta og raðið ofan á salatið. Gott að strá ristuðum graskers- fræjum yfir. Berið fram með góðu brauði. Kostnaður samtals: Örugglega undir 600 kr. ■ Hrísgrjónasalat VILLIBRÁÐARHLAÐBORÐIN KITLA BRAGÐLAUKANA Margt að smakka, bæði hefðbundin villibráð og framandi réttir. Til hnífsog skeiðar GUÐRÚN JÓHANNSDÓTTIR ■ Eldar handa minnst fjórum fyrir 1.000 kr. eða minna. Villibráðarhlaðborð: Hreindýr, háfur og skötulselslifur Kexsmiðjan: Átta tegundir Jólasmákökurnar frá Kexsmiðj-unni eru komnar í verslanir. Hægt er að kaupa piparkökur, dropakökur, vanillufingur með súkkulaði, kókosappelsínukökur, súkkulaðibitakökur, loftkökur, kókostoppar og jólamix, sem er blanda af fjórum vinsælum teg- undum. Að sögn Styrmis Þorgeirsson, sölustjóra Kexsmiðjunnar, eru vinsældirnar alltaf að aukast og skýrir hann það meðal annars með því að fólk sé hætt að baka heima. „Svo er hráefnið hjá okkur mjög gott og kökurnar mjög góð- ar.“ Kexsmiðjan var stofnuð árið 1997, og hóf framleiðslu á jólakök- um sama ár. Kökurnar fást í öllum helstu matvöruverslunum. ■ SMÁKÖKUR Átta tegundir og hér er sýnishorn þeirra. Vín vikunnar René Mure Gewurztraminer FISKBÚÐIN HAFBERG TÚNFISKUR verð 1190-1990 kr/kg STÓR HUMAR RISA HÖRPUSKEL RISA RÆKJA TÍGRISRÆKJA Á SPJÓTI SÚPUHUMAR 1090 kr/kg ÚRVAL FISKRÉTTA Í OFNINN Gnoðarvogi 44, sími 588 8686

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.