Fréttablaðið - 07.11.2003, Síða 30
Fæstir gera sér grein fyrir þvífyrr en á hólminn er komið að
val á barnavagni fyrir nýja krílið
getur verið flókið og erfitt ferli.
Foreldrar eru yfirleitt ekki bara að
kaupa burðarrúm á fjórum hjólum
heldur farartæki og svefnstað fyr-
ir barnið sem verður nær daglega í
notkun næstu eitt til tvö árin. Og þá
skiptir máli að vagninn hlífi fyrir
veðri og vindum, sé þægilegur og
öruggur og að auðvelt sé að aka
honum um götur bæjarins, jafnt í
sólskini og slyddu.
Hafa verður ákveðin öryggis-
atriði í huga. Vagnar ættu til dæm-
is að vera með belti eða beisli og
börnin alltaf óluð niður á meðan
þau eru í vagninum. Bremsurnar
þurfa jafnframt að vera í lagi.
Sumir vagnar
eru sérstak-
lega styrktir
k r i n g u m
höfðalagið og
þola þar meiri
högg. Gott er
að festa kaup á
flugnaneti og
hlífðarplasti
sem ver gegn
rigningu og
roki um leið og
vagninn er
keyptur. Góð-
ur kerrupoki
er ómissandi
fyrir veturinn
og ef barnið á að sofa úti má ekki
blása gegnum vagninn.
Þegar búið er að tryggja öryggi
og þægindi barnsins má einnig
huga að þægindum foreldranna.
Líkt og með bílana virðist enda-
laust hægt að bæta við útbúnaðinn
og í flottustu verslununum má sjá
sannkölluð túrbó-farartæki með
stillanlegu handfangi, beygjum að
framan, grófum loftdekkjum og
fleiri kostum sem ekki var mikið
spáð í þegar amma var ung. Flestir
vilja að hægt sé að brjóta vagninn
saman með lítilli fyrirhöfn og gott
er að kanna hvort hann passar í
skottið á bílnum áður en gengið er
frá kaupunum.
Einnig er gott að hafa í huga að
vagninn sé nógu langur þannig að
hann endist fram á annað aldursár
barnsins. Íslensk börn eru yfirleitt
frekar stór og það kemur sumum
foreldrum á óvart þegar fætur
barnsins fara allt í einu að standa
upp úr nýja fína vagninum.
Svokallaðir kerruvagnar eru
vinsælir þessa dagana, en hægt er
að breyta þeim í kerru með
nokkrum handtökum og jafnvel
snúa þeim við þannig að barnið
snúi í akstursstefnu.
Síðast en ekki síst skiptir útlitið
alltaf einhverju máli. Hver vill láta
góma sig í gönguferð með auga-
steininn liggjandi í hallærislegri
druslu? Sumir vilja bara gamlan
flottan Silvercross-vagn og skeyta
börn o.fl.
Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um al l t sem viðkemur börnum
Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: born@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is
Kristín Helga Gunnarsdóttir, rit-höfundur og blaðamaður, er
krökkum að góðu kunn fyrir barna-
bækur sínar, en þær eru orðnar níu
talsins. Nú er að koma út hjá Máli
og menningu ný barnabók eftir
Kristínu Helgu, Strandanornir. „Ég
vann þessa bók norður á Ströndum,
á Hólmavík, nýtti mér heimildir á
Galdrasafninu þar og notaðist að
auki við þjóðsagnasafn Jóns Árna-
sonar og fleira. Þetta er skáldsaga
úr nútímanum þar sem stuðst er
við atburði á íslensku galdraöld-
inni, segir Kristín Helga. „Nei, sag-
an á ekkert skylt við Harry Potter,
þetta er okkar þjóðsagna- og sögu-
arfur,“ segir hún. „Kaflarnir eru
skreyttir með galdrastöfum úr Jóni
Árnasyni, en formæður okkar og -
feður notuðu stundum galdrastafi
til að gera sér lífið bærilegra.“ Get-
ur maður þá galdrað yfir sig alls
konar hluti við lesturinn? „Ja, hver
veit?“ segir Kristín Helga leyndar-
dómsfull.
Hún hefur aldrei sett aldurs-
mörk á bækurnar sínar, sem eru
hugsaðar sem fjölskyldubækur, en
veit ekki nema hún þurfi að setja
aldurstakmark á þessa. „Það er
vakinn upp draugur í upphafi sögu
og ekki kveðinn niður fyrr en í lok-
in, þannig að kannski við segjum að
þetta sé saga fyrir 8-108 ára.“
Kristín Helga hefur áður sótt í
þjóðsagnaarfinn, í bók sinni Millj-
ón steinar og hrollur í dalnum.
Uppáhaldsbækur Kristínar Helgu
eru því fyrst og síðast þjóðsögurn-
ar, en sú persóna sem hún heldur
mest upp á úr barnabókmenntun-
um er Lína Langsokkur. „Ég held
að hún hafi alltaf verið og sé enn
mín aðalfyrirmynd. Ég vona svo
innilega að við Lína eigum eitthvað
sameiginlegt,“ segir Kristín Helga,
og minnir sannarlega á Línu með
rauða hárið sitt og prakkaralegt
brosið. ■
Kristín Helga Gunnarsdóttir:
Vill líkjast
Línu Langsokki
Nýtísku barnavagnar:
Tryllitæki með flottum aukabúnaði
s í m i 5 5 3 8 0 5 0 • w w w . e c c o . c o m
ÞURRIR OG HEITIR FÆTUR Í BARNASKÓM FRÁ ECCO
Ecco Kids
73992-3
Stærðir: 27-40
Litir: Svart og silfur
Ecco Kids
70271-3
Litir: Svart, vínrautt
og rautt
Ecco Kids
70301-3
Litir: Svart og rautt
FRÆÐSLULEIKIR
FÁST Í BT
MÆÐGURNAR
Fyrsta bók Kristínar Helgu byggði á sögum, sem hún sagði stelpunum sínum, Birtu Krist-
ínu, Erlu Guðnýju og Soffíu Sóleyju, þegar þær voru litlar.
SPORTLEGIR VAGNAR VINSÆLIR
Bébécar. Flottustu vagnarnir frá Öllum
krökkum leggjast mjög vel saman og taka
lítið pláss í forstofu eða bílskotti.
SILVERCROSS-VAGNARNIR
Hafa ákveðinn stíl yfir sér.
KENNARAR HYLLTIR
Önnur barnabók Madonnu, Eplin hans
Peabodys, er væntanleg í búðir á mánu-
daginn 10. nóvember kl. 20:00. Bókin er til-
einkuð kennurum um allan heim, enda er
boðskapur hennar máttur orða og mikil-
vægi góðra kennara. Bandarískur myndlistarmaður, Lor-
en Long, myndskreytir bókina í anda bandarískra átt-
hagamálara frá öldinni sem leið. Ensku rósirnar, fyrsta
barnabók Madonnu af fimm fyrirhuguðum, hefur vermt
efstu sæti metsölulista um allan heim frá því hún kom út
um miðjan september meðal annars hérlendis.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
SMÁSKÓR
SÉRVERSLUN MEÐ BARNASKÓ
í bláu húsi við Fákafen sími. 568 3919
opið virka daga kl: 10.00-18.00 laugardaga kl:11.00-15.00
Litir: Rautt / Blátt
Stærðir: 22-29
Verð: 4.990
Litir: Grátt/
Vínrautt/ Svart
Stærðir: 21-39
Verð: 5.390
Hverafold 1–5
S. 567-6511
WALT DISNEY - KYNNINGARTILBOÐ
21% AFSLÁTTUR af öllum Walt Disney fötum
föstudag og laugardag.
Flott föt fyrir flotta krakka og flott í pakka.
Sjáumst