Fréttablaðið - 07.11.2003, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 07.11.2003, Blaðsíða 31
litlu um þægindi eins og stillanleg handföng og vetrardekk. Aðrir vilja það nýjasta á markaðnum og í tískulitunum. Sigurveig Friðgeirs- dóttir, eigandi verslunarinnar Allir krakkar, segir að undanfarin þrjú ár hafi dökkir litir verið vinsælast- ir en línan sé að verða bjartari og rautt að koma meira inn. Lögun vagnanna hefur jafnframt breyst. Líkt og bílarnir eru þeir ekki leng- ur kassalaga heldur straumlínu- laga. „Þeir eru fyrst og fremst sportlegir og það er ákveðinn jeppafílingur sem fylgir stóru loft- dekkjunum,“ segir Sigurveig. En svo er alltaf einhverjum hjart- anlega sama, svo lengi sem vagninn hrynur ekki á leiðinni út í búð. audur@frettabladid.is 31FÖSTUDAGUR 7. nóvember 2003 HANNAÐI JÓLA- SVEINASKEIÐINA 2003 Dagbjört Andrésdóttir, nemandi í 7. bekk Klébergsskóla, var vinningshafi í hönn- unarsamkeppni um jólasveinaskeiðina 2003. Fulltrúar frá Gull- og silfursmiðj- unni Ernu ehf. af- hentu Dagbjörtu við- urkenningu og fulltrúi fræðslumiðstöðvar óskaði henni til ham- ingju með árangur- inn. Hún fékk að sjálfsögðu afhenta silfurskeið með henn- ar jólasveini sem er Kjötkrókur. Þetta er í níunda skipti sem hugmyndir 11-12 ára grunnskólabarna eru nýttar við gerð jóla- sveinaskeiðarinnar. Aukin samvera fjölskyldunnar: Fólk þarf sveigjan- legri vinnutíma Umboðsmaður barna, Þórhild-ur Líndal, óskaði á síðasta ári eftir upplýsingum um vetrarfrí í grunnskólum. Af svörunum má ráða að almennt er vilji til að veita vetrarfrí í grunnskólum og jafn- framt er áhugi meðal yfirvalda og foreldra að nýta þann tíma til auk- innar samveru fjölskyldna. „Fleira verður þó að koma til, svo frídagarnir geti orðið fjölskyldu- dagar, þar sem börn og foreldrar fá notið samvista,“ segir í skýrslu umboðsmanns barna. „Í því sam- bandi er nauðsynlegt að atvinnu- lífið komi að málinu og bjóði upp á sveigjanlegri vinnutíma foreldra, þannig að þeim verði gert mögu- legt að verja þessum dögum með börnum sín- um.“ Er vitnað til Barnasátt- málans þar sem mælt er fyrir um rétt barns til hvíld- ar og tóm- stunda og segir að foreldrar eða forsjáraðil- ar beri aðalábyrgð á uppeldi barns. „Í samræmi við það verður að búa svo um hnútana að börn geti átt uppbyggjandi samveru- stundir með foreldrum sínum, jafnt hversdags sem í fríum frá hinu daglega amstri,“ segir í skýrslu umboðsmanns. ■ Í ÞESSUM ER EGGJABAKKADÝNA OG LOFTRÆSTIKERFI Í BOTNINUM Vagninn er frá Emmaljunga og fæst í Vörðunni. GREPPIKLÓ Bókin er eftir Juliu Donaldsson og þýdd af Þórarni Eldjárn. Upplestur: Lesið fyrir þau yngstu Á morgun verður lesið fyriryngstu bókaormana í Bókabúð Máls og menningar á Laugavegi. Þar verður lesið úr myndabókun- um Höfuðskepnur Álfheima eftir Ólaf Gunnar Guðlaugsson sem segir frá ævintýrum Benedikts búálfs og félaga hans, Leyndar- málið hennar ömmu eftir Björk Bjarkadóttur þar sem er sagt frá dálítið sérstakri ömmu, Ég vildi að ég væri eftir Önnu Cynthiu Leplar sem fjallar um hvað það er gott að vera maður sjálfur og Greppikló eftir Juliu Donaldsson, í þýðingu Þórarins Eldjárns, sem er um skrímsli og villidýr og hvernig lít- illi mús tekst að leika á alla. Upplesturinn hefst klukkan 11. ■ BÖRN Eiga sinn rétt til nægrar hvíldar. LENGRI VIÐVERA Viðvera barna á leikskólum heldur áfram að lengjast bæði á landsvísu og í höfuðborginni. Árið 2002 voru 84% barna í Leikskólum Reykja- víkur í heilsdagsvistun og dvöldu þar 7 til 9 stundir á dag. Tæplega 27% barna voru í 9 klukkustunda vistun. Af þeim voru 90 börn skráð í 9,5 stunda vistun. Börnin sem eru í 9,5 tíma vistun eru yfirleitt í leik- skólanum frá hálfátta til fimm á daginn eða frá átta til hálfsex, en þá loka flestir leikskólarnir. Þetta kemur fram í skýrslu umboðs- manns barna fyrir árið 2002. ■ Leikskólar

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.