Fréttablaðið - 07.11.2003, Qupperneq 46
Hrósið 46 7. nóvember 2003 FÖSTUDAGUR
Kiri Te Kanawa, frægasta óp-erusöngkona í heimi, er vænt-
anleg til landsins í næstu viku til
að syngja á tónleikum í Háskóla-
bíói þann 15. nóvember. Söngkon-
an hefur sungið við öll helstu óper-
hús heims og inn á fjölmargar
hljómplötur hjá EMI-útgáfunni.
Hún söng við brúðkaup Díönu
prinsessu og Charles Bretaprins
og hefur verið gestur á öllum hel-
stu tónlistarhátíðum heims.
Það er tónleikafyrirtækið
Concert, í eigu Einars Bárðasonar,
sem náði að sannfæra söngkonuna
um að koma hingað til lands: „Það
er ótrúlegur heiður að fá Kiri Te
Kanawa til landsins og ánægjulegt
að hún skuli gefa sér færi á að
koma hér við á tónleikaferð sinni
um Skandinavíu,“ segir Einar en
söngkonan var öðluð af Elísabetu
Bretadrottningu árið 1982 og hlot-
ið fjöldann allan af heiðursnafn-
bótum víða um heim.
Kiri Te Kanawa hefur á ferðum
sínum sungið fyrir hundruðir þús-
unda um allan heim. Hún er góðu
vön og velur að ferðast um Ísland
á dýrasta BMW-bíl sem fluttur
hefur verið til landsins. Það er
aksturþjón-
ustufyrirtæk-
ið Brookes,
sem starf-
rækt er bæði
á Íslandi og í
B r e t l a n d i ,
sem á bílinn
en hann er af
g e r ð i n n i
BMW 745Li: „Þetta er það flottasta
sem hægt er að bjóða henni upp á
og hún valdi bifreiðina sjálf.“
BMW 745Li er af mörgum talinn
einn sá besti sem smíðaður hefur
verið í Þýskalandi. Af ríkulegum
útbúnaði bílsins má meðal annars
nefna þrjá síma, sjónvarp, kæli-
skáp, skothelt gler og hljóðkerfi
sem telur á annan tug hátalara. ■
Ópera
KIRI TE KANAWA
■ Heimsfræg óperusöngkona er
væntanleg hingað til lands. Söngkonan
er góðu vön og hefur valið að ferðast um
Ísland á dýrasta BMW-bíl sem fluttur
hefur verið til landsins.
... fær Árni Sigfússon fyrir að
standa með sínu fólki.
Fréttiraf fólki
Fréttiraf fólki
Heimsfræg óperusöngkona á flottasta bílnum
■ Leiðrétting
Að gefnu tilefni skal það tekið fram að
Þórólfur er ekki olíuborinn þótt hann hafi
verið sleipur á Pressukvöldi RÚV.
Kvikmynd Hilmars Oddssonar,Kaldaljós, sem byggir á sögu
Vigdísar Grímsdóttur, verður
frumsýnd 1. janúar 2004. Myndin
segir sögu af tvennum tímum í
lífi Gríms Hermundarsonar. Ást-
ríkri barnæsku Gríms lýkur
alltof fljótt þegar hann verður
fyrir miklu áfalli. Langt fram á
fullorðinsár hefur Grímur sig lítt
frammi í lífinu, þar til nýir ást-
vinir koma til sögunnar og knýja
dyra í lífi hans. Aðalhlutverk er í
höndum Ingvars E. Sigurðssonar.
Svokallaður lénastuldur er far-inn að ryðja sér til rúms í
bloggheimum. Bókmenntafræð-
ingurinn Ármann Jakobsson hef-
ur bloggað undir nafninu Blogg-
ari dauðans í nokkur misseri á
slóðinni haltukjafti.blogspot.com
og hefur meðal annars hlotið vef-
verðlaun sem „skemmtilegasti
bloggarinn“ tvö ár í röð. Hann
lagði upp laupana skömmu eftir
að honum hlotnaðist nafnbótin
öðru sinni og nú hefur einhver
tekið sig til og stofnað nýtt blogg
á svæði Ármanns. Aðdáendur
þess síðarnefnda hafa tekið þessu
illa og telja lítið gert úr minningu
hins dauða bloggara dauðans.
Arftakinn gefur þó ekkert eftir
og rífur kjaft sem vart væri
virðulegum háskólaborgara sæm-
andi.
Arnar Dór Hannesson, nemi íFjölbrautaskólanum í Breið-
holti, hefur verið rekinn úr keppn-
inni í Idol Stjörnuleit fyrir að
brjóta fjölmiðlabann í keppninni.
Í fréttatilkynningu frá Stöð 2
kemur fram að bannið sé sett
fram til þess að keppendur í Idol
Stjörnuleit heyi ekki kosningabar-
áttu: „Það birtist við mig lítið við-
tal í blaðinu Víkurfréttir í Kefla-
vík en þar er alltaf viðtal við þá
sem hafa skarað fram úr í vik-
unni. Í blaðinu svaraði ég
nokkrum spurningum sem tengd-
ust ekki efni Idol-þáttarins. Svo
fékk ég símtal frá dagskrárstjóra
Stöðvar 2 og í símtalinu var mér
sagt að ég væri rekinn úr keppn-
inni. Í símtalinu var mér sýndur
hroki og dónaskapur,“ segir Arnar
Dór Hannesson. „Mér datt ekki í
hug að þetta viðtal sem er dreift á
svona litlum stað skipti máli. Ég
hef margsinnis hringt upp á Stöð 2
og spurt hvort ég megi gera hitt
og þetta og ég spurði síðast hvort
ég mætti taka þátt í leiklistarsýn-
ingu FB og fékk leyfi til þess að
fara með aðalhlutverkið í söng-
leiknum Hárinu.“
Arnar segist hafa orðið var við
ákveðna hlutdrægni í keppninni:
„Það er sagt að allir eigi að fá
jafna fjölmiðlaumfjöllun en auð-
vitað er erfitt að standa undir því.
Ég er ekki að reyna að réttlæta
það að ég hafi farið í viðtalið en
það hafa birst önnur viðtöl. Sumir
keppendur hafa birst í nokkrar
sekúndur á skjánum áður en þeir
spreyta sig á keppninni sjálfri
meðan öðrum hefur verið fylgt
eftir á heimaslóðir og birst fjór-
falt meir á sjónvarpsskjánum.“
Arnar Dór sér þó ekki eftir að
hafa tekið þátt í keppninni:
„Maður er búinn að eyða fjórum
mánuðum í þessa vinnu og ég sé
alls ekki eftir að hafa tekið þátt í
keppninni. Sem betur fer er
meirihluti starfsfólksins í keppn-
inni að vinna frábært starf.“ ■
Keppendur
Idol í kvöld
Einar Valur
Sigurjónsson
markaðsfulltrúi hjá
Rolf Johansen
Lag: Amazed með Lonestar
Útgeislun ______
Framkoma ______
Söngur ______
Oddur Carl Thorarensen
sölumaður í BT Smáralind
Lag: Don’t let the Sun go
down on me með Elton
John
Útgeislun ______
Framkoma ______
Söngur ______
Gunnhildur Júlíusdóttir
nemi í Menntaskólanum
hraðbraut
Lag: Proud Mary með
Tinu Turner
Útgeislun ______
Framkoma ______
Söngur ______
Rannveig Káradóttir
nemandi í Tónlistarskólanum í
Reykjavík og FÍH
Lag: You don’t know me
úr My best Friends Wedd-
ing
Útgeislun ______
Framkoma ______
Söngur ______
Ardís Ólöf Víkingsdóttir
vinn á snyrtistofunni La
Rosa í Garðabæ
Lag: End of the World
með Cilla Black
Útgeislun ______
Framkoma ______
Söngur ______
Alma Rut
Krisjánsdóttir
vinn í Skífunni í Kringlunni
Lag: River deep Mountain
High með Tinu Turner
Útgeislun ______
Framkoma ______
Söngur ______
Arndís Ósk Atladóttir
nemandi í Menntaskólanum í
Kópavogi
Lag: Everything I do, I do
it for you með Brian Ad-
ams
Útgeislun ______
Framkoma ______
Söngur ______
STJÖRNULEIT
Keppnin æsist og í kvöld sýna næstu átta
keppendur fram á getu sína. Tveir komast
áfram eftir að þjóðin hefur kveðið upp
sinn dóm
Sími: 900 2001
SMS: 1918 Idol 1
Sími: 900 2002
SMS: 1918 Idol 2
Sími: 900 2003
SMS: 1918 Idol 3
Sími: 900 2004
SMS: 1918 Idol 4
Sími: 900 2005
SMS: 1918 Idol 5
Sími: 900 2006
SMS: 1918 Idol 6
Sími: 900 2008
SMS: 1918 Idol 8
ARNAR DÓR HANNESSON
Hefur verið rekinn úr Idol Stjörnuleit eftir
að hafa svarað nokkrum spurningum í
Víkurfréttum í Keflavík en hann braut þar
með fjölmiðlabann sem keppendur
Stjörnuleitar gangast undir.
Rekinn úr
Idol Stjörnuleit
Sjónvarp
ARNAR DÓR HANNESSON
■ Var rekinn úr Idol Stjörnuleit og klippt-
ur út úr þættinum sem sýndur verður í
kvöld en sér þó ekki eftir að hafa tekið
þátt í keppninni.
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Fjórir.
Hólmavíkur og Gilsfjarðar.
Gianni Porta.
BMW 745LI
Söngkonan heims-
fræga kemur til með
að ferðast um Ísland
á dýrasta BMW-ein-
takinu sem er til hér
á landi.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/ALD
A LÓ
A
KIRI TE KANAWA
Frægasta óperusöng-
kona heims heldur
tónleika í Háskólabíói
15. nóvember