Fréttablaðið - 19.11.2003, Blaðsíða 8
8 19. nóvember 2003 MIÐVIKUDAGUR
Upplýstur strákur
Ég er kannski einn af fáum af
minni kynslóð sem veit að það er
ljótt að sparka í liggjandi mann.
En einu sinni er allt fyrst og ég
bara get ekki staðist mátið.
Erpur Eyvindarson gagnrýnir Eirík Sigurbjörns-
son í Kjallaragrein. DV, 18. nóvember.
Lini maðurinn
Ég vil ekki segja að við séum lin-
ir í samskiptum við félögin en
kannski má segja að við höfum
verið of linir í samskiptum við
ákveðna leikmenn.
Eggert Magnússon um forföll í landsliðinu,
DV, 18. nóvember.
Á förum?
Kristinn H. Gunnarsson, sem er
um þessar mundir þingmaður
Framsóknarflokks, hefur lagt
fram frumvarp til stjórnskipun-
arlaga
Davíð Þorláksson. Íslendingur.is, 16. nóvember.
Orðrétt
LANDHELGISGÆSLAN „Það er nauð-
synlegt að huga að nýjum mark-
miðum og nýrri lagasetningu fyr-
ir Landhelgisgæsluna,“ sagði
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra í svari við fyrirspurn Guð-
mundar Hallvarðssonar alþingis-
manns.
Dómsmálaráðherra sagði að
sérstakur starfshópur hefði skoð-
að fjármál gæslunnar og jafn-
framt hefði hópurinn farið yfir
starfsemi gæslunnar með hlið-
sjón af fjárveitingum og öðrum
slíkum þáttum.
Löggjöfin um Landhelgisgæsl-
una er frá apríl 1967 en margt
hefur breyst síðan lögin voru sett.
Fyrirspyrjandi spurði um
smíði nýs varðskips í ljósi þess að
þau þrjú skip sem nú eru í notkun
hjá Landhelgisgæslunni eru all-
verulega komin til ára sinna. Óð-
inn er 43 ára, varðskipið Ægir 35
ára og Týr 23 ára.
„Varðandi smíði nýs varðskips
þá vísa ég til þess sem kom fram
í stefnuræðu forsætisráðherra
þegar hann kynnti stefnu ríkis-
stjórnarinnar í haust og lét þess
getið að það yrði ráðist í smíði
nýs varðskips og einnig hugað að
endurskoðun á uppbyggingu á
flugflota gæslunnar,“ svaraði
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra. ■
SKÓLAMÁL Tveir landshlutar, Suð-
urnes og Norðurland vestra, koma
áberandi verst út úr samræmdum
prófum 4. og 7. bekkjar í stærð-
fræði og íslensku, sem haldin voru
16. og 17. október.
Samanlagt þreyttu rúmlega 8
þúsund börn prófin og komu börn í
skólum í nágrannasveitarfélögum
Reykjavíkur best út.
Samræmd meðaleinkunn í
stærðfræði í 4. bekk yfir landið allt
var 7,0 og 6,6 í íslensku. Í 7. bekk
var samræmd meðaleinkunn 7,5 í
stærðfræði og íslensku. Sigur-
grímur Skúlason, sviðsstjóri sam-
ræmdra prófa hjá Námsmats-
stofnun, segir að einkunnir séu
svipaðar og síðustu ár. Þó telji
hann að prófin í 7. bekk hafi verið
of létt, sérstaklega þegar miðað sé
við niðurstöðurnar í 4. bekk.
Þegar kemur að því að bera
saman einkunnir milli landshluta
styðst Námsmatsstofnun við með-
altöl normaldreifðra einkunna, þar
sem meðaltalið er 5,0.
Marktækur munur er á
einkunnum barna á höf-
uðborgarsvæðinu ann-
ars vegar og lands-
byggðinni hins vegar í
öllum tilfellum nema í
stærðfræði í 4. bekk. Al-
mennt eru munurinn
minni í stærðfræði en ís-
lensku og á það bæði við
4. og 7. bekk.
Lægsta meðalein-
kunnin í stærðfræði í 4.
bekk er á Norðurlandi
vestra en sú hæsta í ná-
grannasveitarfélögum
Reykjavíkur. Í íslensku er lægsta
meðaleinkunnin á Suðurnesjum en
sú hæsta er á Norðurlandi eystra.
Í 7. bekk er meðaleinkunn í
stærðfræði og íslensku í báðum til-
fellum lægst á Suðurnesjum.
Hæstu meðaleinkunnirnar stærð-
fræði eru hins vegar höfuðborgar-
svæðinu en í íslensku er hæsta
meðaleinkunnin í nágrannasveit-
arfélögum Reykjavíkur og Norð-
urlandi eystra.
Greinilegt er að mesta
sóknin virðist vera í ná-
grannasveitarfélögum
Reykjavíkur bæði í 4. og
7. bekk. Aðspurður segist
Sigurgrímur ekki getað
svarað því í hvaða skólum
eða hvaða sveitarfélögum
árangurinn sé bestur.
Námsmatsstofnun eigi
eftir að fara nánar yfir
þær niðurstöður. Varð-
andi laka útkomu á Suður-
nesjum segir hann að und-
anfarin ár hafi miklar
sveiflur verið þar, en yfir-
leitt hafi einkunnir þar
verið í lægri kantinum.
Það vekur athygli að meðalein-
kunn í íslensku í 4. bekk á Austur-
landi lækkar úr 5,6 í 4,9 milli ára.
Það er hlutfallslega mesta lækk-
unin milli ára. Sigurgrímur segir
að árgangurinn í fyrra hafi ein-
faldlega verið mjög góður. Ár-
gangurinn í ár sé alls ekki lakur
enda sé hann alveg við lands-
meðaltalið.
trausti@frettabladid.is
PAUL BREMER
Bremer segir nauðsynlegt að handtaka
eða drepa Saddam.
Bremer um Saddam:
Aðeins rödd
úr óbyggðum
ÍRAK, AP Paul Bremer, landstjóri
Bandaríkjamanna í Írak, segir
nauðsynlegt að Saddam Hussein
verði handtekinn eða drepinn.
Þetta kom fram þegar Bremer
var spurður um síðustu hljóðupp-
tökuna með rödd Saddams, sem
send var út á al-Arabiya sjón-
varpsstöðinni um helgina. Brem-
er sagði einnig að Saddam væri
aðeins „rödd úr óbyggðunum“ og
nyti ekki lengur neins stuðnings í
Írak nema meðal bófaflokka. „Það
er aðeins lítill hópur morðingja
sem fylgir honum og þeir hafa
enga sýn á framtíð Íraks. Þeir eru
fastir í fortíðinni þegar ofbeldi og
spilling viðgekkst í skjóli Sadd-
ams,“ sagði Bremer. ■
Stóriðja á Norðurlandi:
Um 60%
hlynnt
SKOÐANAKÖNNUN Um 60% þjóðar-
innar eru hlynnt uppbyggingu stór-
iðju á Norðurlandi en rúmlega 27%
andvíg, ef marka má skoðanakönn-
un sem Gallup gerði fyrir iðnaðar-
ráðuneytið.
Stuðningur landsmanna við ál-
ver Alcoa fyrir austan virðist vera
að aukast. Samkvæmt könnuninni
eru 67% hlynnt byggingu álversins
í Reyðarfirði en 22% andvíg. Um
11% svöruðu: hvorki né.
Einnig var kannað viðhorf al-
mennings til erlendrar fjárfesting-
ar. Niðurstaðan er sú að 66% eru
hlynnt erlendri fjárfestingu en 17%
andvíg. ■
Starfsemi Landhelgisgæslu Íslands:
Þörf á nýrri löggjöf
ENDURNÝJUNAR ÞÖRF
Varðskip gæslunnar eru komin til ára
sinna. Týr er 23 ára, Óðinn 43 ára og Ægir
35 ára. Forsætisráðherra hefur sagt nauð-
synlegt að laga starf landhelgisgæslunnar
að nýjum kröfum, ráðast í smíði nýs varð-
skips og gera áætlun um endurnýjun á
flugflota hennar.
ÁLFTANESSKÓLI
Marktækur munur er á
einkunnum barna á
höfuðborgarsvæðinu
annars vegar og lands-
byggðinni hins vegar í
öllum tilfellum nema í
stærðfræði í 4. bekk.
Einkunnir lægstar
á Suðurnesjum
Niðurstöður úr samræmdum prófum 4. og 7. bekkjar hafa verið kynntar. Talið að prófin í 7.
bekk hafi verið of létt. Árangurinn lakari á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu.
NORMALDREIFÐAR EINKUNNIR Á KVARÐANUM
1 TIL 9 Í OKTÓBER 2003
4. bekkur 7. bekkur
Stærðfræði Íslenska Stærðfræði Íslenska
Reykjavík 4,9 5,1 5,1 5,1
Nágr. Rvk. 5,3 5,2 5,1 5,3
Suðurnes 4,8 4,5 4,5 4,1
Vesturland 5,1 4,9 4,7 4,8
Vestfirðir 4,8 4,6 5,0 5,0
Norðurl. vestra 4,4 4,7 4,7 4,7
Norðurl. eystra 5,1 5,3 5,0 5,3
Austurland 5,0 4,9 4,9 4,9
Suðurland 4,8 4,7 4,9 4,8
Landið allt 5,0 5,0 5,0 5,0
■ Hæst ■ Lægst
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T