Fréttablaðið - 19.11.2003, Blaðsíða 19
19MIÐVIKUDAGUR 19. nóvember 2003
Vantar þig
gatara?
550 4111
Verslun 550 4100 • Fax 550 4101 • www.office1.is • pontun@office1.is
HÓMÓPATAR ÚTSKRIFAST
Hópur hómópata útskrifaðist frá The College of Practical Homeopathy í síðasta mánuði.
Efri röð frá vinstri: Bylgja Matthíasdóttir, Steinunn Guðmundsdóttir, Sigríður Gunnarsdóttir,
Magnea S. Guttormsdóttir, Rósa Bjarnadóttir. Neðri röð: Guðný Ósk Diðriksdóttir, Líney
Helgadóttir, Ingibjörg Friðbertsdóttir, Þóra G. Ásgeirsdóttir Einnig eru á myndinni þrír af
kennurum skólans, Roger Dyson, Christopher Hammond og Robert Davidson.
Sóknarpresturinn í Hallgrímskirkju:
67 ára og enn í skóla
Sigurður Pálsson, sóknarpresturí Hallgrímskirkju, lauk guð-
fræðiprófi fimmtugur og er enn að
læra. Nú er hann staddur í kóngs-
ins Kaupmannahöfn þar sem hann
leggur stund á uppeldisheimspeki
jafnframt því að rannsaka hvernig
kristindóms- og trúarbragða-
fræðsla hefur þróast í danska
skólakerfinu á öldinni sem leið.
„Það er meðal annars til að geta
borið saman við þróunina heima
áður en horft er til framtíðar,“ seg-
ir Sigurður.
„Ég er í námsleyfi frá mínu
starfi, en þetta tengist verkefni
sem ég er að vinna að sem heitir
Kirkja og skóli á 20. öld.“
Sigurður byrjaði sinn starfsferil
sem barnakennari í Breiðagerðis-
skóla og var þar í 12 ár. „Þá var ég
ráðinn skrifstofustjóri hjá Ríkisút-
gáfu námsbóka og var þaðan kallað-
ur upp í menntamálaráðuneyti árið
1977, til að vera námsstjóri í kristn-
um fræðum. Þá fyrst fór ég í Háskól-
ann og byrjaði á að lesa guðfræði og
uppeldisfræði til BA-prófs. Í fram-
haldi af því fékk ég „blod på tænder-
ne“ eins og danskir segja og var að
safna mér í kandidat næstu árin.“
Sigurður mælir eindregið með
því að fólk fari í nám á besta aldri.
„Ég hef aldrei notið mín betur í
skóla en þegar ég var í guðfræði-
deildinni. Það er yndislegt að fá
tækfæri til þess milli fertugs og
fimmtugs að fara í nám. Ég hafði
bara ekki skólaþroska fyrr en ég
var orðinn fertugur,“ segir hann
hlæjandi og er alsæll í Kaupmanna-
höfn. „Borgin er falleg og þægileg
og Danirnir skemmtilegt fólk.“
Sigurður er væntanlegur aftur
heim um jólin og mun halda áfram
sínum prestskap næstu þrjú árin,
eða þangað til hann verður sjötug-
ur. ■
Námskeið:
Skjalastjórn-
unarstaðall
Útkoma staðalsins ISO15489markar tímamót í þróun
skjalastjórnunar. Staðallinn kem-
ur brátt út á íslensku. Haldið
verður námskeið í staðlinum mið-
vikudaginn 10. og fimmtudaginn
11. des frá kl. 13 til 16.30 báða
dagana. Á námskeiðinu verður
efni staðalsins útskýrt, rætt um
hlutverk staðla í atvinnulífinu,
gerð grein fyrir aðdraganda að
gerð alþjóðlegs staðals um skjala-
stjórnun og sagt frá ástralska
staðlinum sem ISO15489 byggir
mikið á. Einnig verður farið í
kafla staðalsins með sérstakri
áherslu á að skýra hagnýtt gildi
þessara leiðbeininga fyrir fyrir-
tæki. Skipulag og skjöl standa
fyrir námskeiðinu. Kennari er
Sigmar Þormar M.A. Námskeiðs-
gjald er kr. 25.000 og fylgja nám-
skeiðsgögn og kaffimeðlæti. ■
Samstarfssamningur:
Þekkingar-
miðlun
Landbúnaðarháskólinn áHvanneyri og Orkuveita
Reykjavíkur hafa gert með sér
samstarfssamning sem felur í sér
gagnkvæma þekkingarmiðlun.
Starfsmenn Orkuveitunnar koma
að kennslu og rannsóknum við há-
skólann og geta sjálfir sótt þekk-
ingu þangað með því að sækja ein-
staka námsáfanga. Magnús B.
Jónsson rektor og Ásgeir Mar-
geirsson, aðstoðarforstjóri OR,
undirrituðu samning þessa efnis í
síðustu viku. Einnig var tekið í
notkun nýtt tölvuver skólans, en
sú aðstaða hefur verið myndar-
lega studd af Orkuveitunni. ■
SÉRA SIGURÐUR PÁLSSON
Nám Sigurðar í Kaupmannahöfn fer fram
á dönsku, en danskan þvælist ekkert fyrir
honum.