Fréttablaðið - 19.11.2003, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 19.11.2003, Blaðsíða 27
MIÐVIKUDAGUR 19. nóvember 2003 Tónlistarmanninum JamesApollo er í fréttatilkynning- unni líst sem sérvitrum roots- rokkara. Eins konar bræðingi af Eddie Cochran, Elvis Costello, Tom Waits og Buddy Holly á sýru. Hann hefur nú rekið á strendur Íslands og heldur hann tónleika á Grand rokk í kvöld ásamt einni efnilegustu tónleikasveit landsins um þessar mundir, Kimono. Það er nokkuð víst að í honum leynis smá djassgeggjari og örlít- ill blúsari. Hann er 25 ára ævin- týramaður frá St. Paul í norður- hluta Bandaríkjanna sem virðist lifa fyrir augnablikið. Að minnsta kosti virðist sú stefna hafa ráðið ríkjum þegar hann vann aðra breiðskífu sína, Sweet Unknown, sem hann gaf út fyrr á árinu. „Nýju plötuna vann ég með hljómsveitinni minni þegar við vorum í tónleikaferðalagi um Bandaríkin,“ útskýrir James Apollo. „Þegar lagahugmyndir fæddust reyndum við að finna hljóðver í næsta bæ til þess að taka þær upp. Þá eru lögin alveg fersk og þau voru yfirleitt ekki kláruð fyrr en upptökum lauk. Ég fór inn með einhverja hugmynd um hvernig lögin ættu að vera, án þess að vita það fullkomlega. Það sem gerist svo í hljóðverinu verð- ur að lagi. Vinnuaðferðir mínar eru fáránlegar. Ég er með hóp manns og enginn einn gæti gert allt, en einhver getur alltaf gert eitthvað.“ Á þeim tíma sem viðtalið er tekið virðist sem um svipaðar vinnuaðferðir verði um að ræða á tónleikunum. „Á tónleikunum ætla ég líka að reyna að grípa and- artakið, ég er ekki viss um hvern- ig þeir verða. Ég er með þriggja manna hljómsveit og kannski bætast einhverjir heimamenn við. Þetta verður að minnsta kosti ein- stakt.“ Húsið opnar kl. 22. Miðaverð er 500 kr. ■ ■ TÓNLIST Maður augnabliksins Bókið hópa núna! Keramik fyrir alla, Laugavegi 48b, sími 552 2882, www.keramik.is Opið alla virka daga kl. 11-18, laugardaga 13-17, opið hús miðvikudagskvöld kl. 20-23. Hvernig fannst þér í Keramik fyrir alla? Hópurinn okkar kemur einu sinni í mánuði allan ársins hring, við eigum frábært kvöld og framfarirnar eru glæsilegar eins og sjá má heima hjá okkur! Stella 40 ára, ein af stórum hópi. ■ ■ FYRIRLESTRAR  12.15 Hrafnaþing á Hlemmi, fræðsluerindi Náttúrufræðistofnunar Ís- lands. Borgþór Magnússon líffræðingur flytur erindið Gróðurframvinda og strandmyndun við Blöndulón – hvað hefur gerst á 12 árum? í sal Möguleik- hússins á Hlemmi. Hrafnaþing er öllum opið.  12.30 David Walters, ljósahönnuð- ur frá Ástralíu, flytur fyrirlestur um ljós og liti í Listaháskóla Íslands, Skipholti 1, stofu 113.  16.15 Rúnólfur Smári Steinþórs- son, dósent í Viðskipta- og hagfræði- deild HÍ, flytur erindi á málstofu Hag- fræðistofnunar að Aragötu 14 sem ber yfirskriftina Stefnumótun hjá hinu opin- bera. Í erindinu er stefnumótun hjá hinu opinbera sett í samhengi við stefnumið- aða stjórnun. Allir velkomnir.  16.30 Félagsvísindatorg Háskólans á Akureyri, Þingvallastræti 23. Náms- og starfsval, ígrunduð ákvörðun eða hugljómun? Í erindi sínu fjallar Sif Ein- arsdóttir um kenningar um náms- og starfsval sem hafðar eru að leiðarljósi í náms- og starfsráðgjöf. ■ ■ FUNDIR  20.30 Er áfengi í þinni fjölskyldu? Afmælisfundur og opinn kynningarfund- ur Al-Anon samtakanna á Íslandi í Bú- staðakirkju. Al-Anon samtökin voru stofnuð á Íslandi þann 18. nóvember 1972 og eru félagsskapur ættingja og vina alkóhólista. Á fundinum segja fjórir Al-Anon félagar og einn félagi í AA-sam- tökunum sögur sínar. Kaffi að fundi loknum. Allir velkomnir! ■ ■ SÝNINGAR  20.00 Finnska handverkskonan og kennarinn Merja Heikkinen heldur fyrir- lestur í húsi Heimilisiðnaðarfélags Ís- lands að Laufásvegi 2. Fyrirlesturinn fjallar um þjóðlegt handverk, búninga, menntun og menningu Sama í máli og myndum. Kaffiveitingar. Aðgangseyrir kr. 1.000. ■ ■ SÍÐUSTU FORVÖÐ  Sýningu Dagnýjar Guðmundsdóttur „Horfum á karlmenn“ í Listhúsi Ófeigs, Skólavörðustíg 5, lýkur í dag. Upplýsingar um viðburði og sýningar sendist á hvar@frettabladid.is ekki síð- ar en sólarhring fyrir birtingu. JAMES APOLLO „Ég fékk símhringingu einn daginn og mér var sagt að við ættum endilega að fara til Ís- lands,“ svarar James Apollo um ástæður þess að hann kom hingað. „Ég var sammála því þar sem þetta hljómaði eins og góður staður til þess að heimsækja. Tækifærið birtist mér og ég greip það.“ SKRIFSTOFUSKILRÚM Til sölu notuð Vista skrifstofuskilrúm frá Pennanum. Litur blár, hæð pr. einingu 175 cm. að breidd x 80 cm. Uppl. í síma 575 1838. Aveda Hárdagar á hárgreiðslustofunni Prímadonnu Dagana 20-26 nóvember verður litaráðgjafi frá Aveda hjá okkur. • Persónuleg ráðgjöf með háralitum sem endast betur • Aveda litirnir eru 97% nátturlegir • Leggjum metnað í gera þitt hár fallegt og þig ánægða. Allar nánari upplýsingar og tímapantanir í 5885566 og 5885567.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.