Fréttablaðið - 19.11.2003, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 19.11.2003, Blaðsíða 18
nám o.fl. Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um al l t sem viðkemur námi Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: nam@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is. FRÆÐSLULEIKIR FÁST Í BT grunnskóli - framhaldsskóli - háskóli NÁMSAÐSTOÐ íslenska • stærðfræði • efnafræði • eðlisfræði enska • danska • þýska • franska • spænska Nemendaþjónustan sf s. 557 9233 www.namsadstod.is FJÖLMENNT Menntun og starfsendurhæfing ætluð fólki með geðröskun og fólki með heilaskaða Umsóknir um námskeið á vorönn 2004 Fjölmennt „menntun og starfsendurhæfing“ býður upp á nám- skeið fyrir fólk sem á ekki kost á námstilboði við hæfi hjá öðrum skólastofnunum. Í boði er m.a. bóklegt nám, tölvufræði, myndlist, skrautskrift, hljóð- færanám, kórsöngur, dans, félagsfærniþjálfun/lífsleikni, eldhús- þjálfun, rágjöf. Fjarnám við Fjöldbrautarskólann við Ármúla Samstarfsverkefni Fjölmenntar og Fjölbrautarskólans við Ármúla. Kennslan fer fram í Túngötu 7 undir leiðsögn og skipulagi kenn- ara. Umsóknarfrestur er til 10. desember. FJÖLMENNT Menntun og starfsendurhæfing Túngata 7, Reykjavík S. 570 1709, 862 4433, 570 1700 VÍ: Ný bygging Sjálfseignarstofnun Verslunar-ráðs Íslands um viðskipta- menntun (SVÍV) afhenti Verzlun- arskóla Íslands síðastliðinn mánudag nýja 2.090 fm byggingu sem risið hefur við skólann. Tómas Ingi Olrich menntamála- ráðherra afhenti bygginguna við hátíðarathöfn. Verzlunarskóla- kórinn kom þar fram og nemandi í þriðja bekk, Anna María Björns- dóttir, lék á píanó og söng. ■ VIÐBYGGING AFHENT FORMLEGA Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra sá um afhendinguna við hátíðlega athöfn. Vinnuvélanámskeið Kvöldnámskeið. Námskeiðsstaður, Þarabakki 3. 109 Reykjavík (Mjódd). Verð 39.900.- Upplýsingar og innritun í síma: 894-2737 Flest verkalýðsfélög styrkja nemendur á vinnuvélanámskeið, einnig atvinnuleysistryggingasjóður FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M Við erum þegar komin með einnhóp án þess að vera farin að auglýsa þetta,“ segir Gréta Hlöðversdóttir sem hefur unnið að því að koma á fót spænsku- kennslu fyrir spænskumælandi börn á vegum félagsins Hispán- ica. Á morgun stendur félagið Hispánica fyrir kynningarfundi vegna þessara námskeiða í Al- þjóðahúsinu við Hverfisgötu. „Við hóum saman kennurum og þeim sem hafa áhuga á að senda börnin sín á þessi námskeið þannig að bæði börn og foreldrar geti spjall- að við kennarana. Við erum með tvo kennara, báða frá Spáni, Celiu frá Barcelona og Isaac sem kenn- ir við Háskólann.“ Gréta segir að farið verði hægt af stað með námskeiðin. „Við stefnum að því að hafa ekki nema sex og tíu í hverjum hópi og verð- um bæði með kennslu fyrir læsa nemendur og þá sem eru að læra að lesa og verðinu verður stillt í hóf,“ segir Gréta. „Við ætlum að ríða á vaðið fyrir jólin og sjá svo til hvernig gengur,“ segir hún og bætir við að aðstandendurnir séu fullir bjartsýni. Félagið Hispánica var stofnað í fyrra í tengslum við spænska kvikmyndahátíð sem þá var hald- in. Markmið félagsins er að efla vináttu- og menningartengsl Ís- lands og spænskumælandi þjóða og standa fyrir menningarvið- burðum því tengdu. Gréta bendir á að mikill og vaxandi áhugi virð- ist vera á hinum spænskumæl- andi heimi hér á landi og hefur til dæmis fyrir satt að nú velji fleiri nemendur spænsku en frönsku í framhaldsskólum þar sem bæði tungumálin eru í boði. Auk þess fjölgar stöðugt þeim Íslendingum sem hafa verið búsettir á Spáni um lengri eða skemmri tíma. Gréta átti sjálf heima á Spáni í sex ár. „Mér finnst mikilvægt að krakkar geti haldið við tungumál- inu,“ segir hún og bendir á að stöðugt verði mikilvægara fyrir fólk að hafa góð tök á tungumál- um. Fundurinn verður í kennslusal Alþjóðahússins milli klukkan 16 og 17 á morgun. ■ Spænskunámskeið fyrir börn: Mikilvægt að halda málinu við GRÉTA HLÖÐVERSDÓTTIR ÁSAMT DEGI LOGA OG SINDRA ÞÓR Strákarnir voru saman í bekk þegar þeir áttu heima á Spáni. Þeir verða í fyrsta spænskuhópnum í Alþjóðahúsinu. HVAÐ RÆÐUR NÁMS- OG STARFSVALI? Náms- og starfsval, ígrunduð ákvörðun eða hugljómun? Þessari spurningu leitast Sif Einarsdóttir við að svara í fyrirlestri sínum á félagsvísindatorgi Há- skólans á Akureyri kl. 16.30 í dag. Fyrirlesturinn verður haldinn í Þingvallastræti 23, stofu 14. Sif fjallar um kenningar um náms- og starfsval sem hafðar eru að leiðarljósi í náms- og starfsráðgjöf og leitar svara við spurningunni um það hvort ungt fólk á Íslandi hafi aðgang að þeim upplýsing- um sem þarf til að geta tekið ígrundaðar ákvarð- anir um náms og starfsval. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A LD A LÓ A

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.