Fréttablaðið - 19.11.2003, Side 24
24 19. nóvember 2003 MIÐVIKUDAGUR
FÓTBOLTI Walesmenn vonast eftir
fullu húsi á Millennium Stadium í
Cardiff þegar þeir mæta Rússum
í kvöld. Heimamenn eygja mögu-
leika á að komast í lokakeppni
stórmóts í fyrsta sinn síðan 1958
en þá komust þeir í heimsmeist-
arakeppnina í Svíþjóð eftir króka-
leiðum.
Þjóðirnar gerðu markalaust
jafntefli í Moskvu á laugardag og
gekk það ekki átakalaust fyrir
sig. Upp úr sauð seint í leiknum
þegar bakvörðurinn Vadim Ev-
seev taklaði Ryan Giggs. Rúss-
arnir halda því fram að Giggs
hafi gefið Evseev olnbogaskot en
Giggs sagði að taklingin hafi ver-
ið ein sú ljótasta sem hann hefði
mátt þola og hann hefði einungis
ýtt við Rússanum en ekki slegið
hann. Walesmennirnir Gary
Speed og Robbie Savage voru
bókaðir í kjölfar taklingarinnar
sem og Rússinn Alexander
Mostovoi og missir hann af leikn-
um í kvöld vegna leikbanns.
Markvörður Rússanna, Sergei
Ovchinnikov, tekur einnig út leik-
bann.
Rússar kærðu Giggs til UEFA
en knattspyrnusambandið til-
kynnti í gær að Giggs mætti leika
með Walesmönnum í kvöld en
hann verðu kærður vegna atviks-
ins. Mark Hughes, þjálfari Wales,
sagði að framganga Rússanna
hefði miðað að því að eyðileggja
það besta í velska liðinu með
góðu eða illu.
Giggs hefur lítið æft með Wa-
lesmönnum vegna meiðsla sem
hann hlaut í taklingunni en hann
verður leikfær í kvöld. Mark
Pembridge er hins vegar meidd-
ur og leikur ekki með Wales. ■
Vantaði ástríðuna
Ruud van Nistelrooy vill að Hollendingar leggi sig alla fram gegn Skot-
um í kvöld. Leikmennirnir fóru ekki eftir leiðbeiningum mínum, sagði
Advocaat, þjálfari Hollendinga, eftir fyrri leikinn.
FÓTBOLTI „Ég er óánægðastur með
að við sýndum enga ástríðu í
leiknum gegn Skotum,“ sagði
sóknarmaðurinn Ruud van Nistel-
rooy. „Ég hef alltaf sagt að Skot-
um sé eðlilegt að leika af ástríðu
og það sýndi sig á Hampden Park.
En það vantar ástríðuna í hol-
lenska liðið. Í okkar liði eru of
margir sem eru ekki tilbúnir að
leggja harðar að sér - leikmenn
sem vilja vinna hvað sem það
kostar.“
„Þetta gæti orðið martröð. Ég
verð þrítugur þegar næsta heims-
meistarakeppni fer fram og ég
hef enn ekki tekið þátt í loka-
keppni á stórmóti,“ sagði Van Ni-
stelrooy. „Hvað segir það um mig
sem leikmann eða einstakling ef
við vinnum ekki á laugardag.“
Jimmy Calderwood, þjálfari
Dunfermline Athletic, starfaði
lengi í Hollandi. „Þetta er síðasta
tækifæri margra leikmanna og
þeirra stolt er sært,“ sagði hann
um hollenska liðið. „Þeir verða í
ham frá byrjun og munu skæja en
þannig eru þeir bestir.“
„Ef Skotar halda út til leikhlés
snúast áhorfendur gegn Hollend-
ingum,“ sagði Calderwood. „En ég
held að Skotarnir verði að leika
enn betur í Amsterdam en þeir
gerðu á Hampden Park.“
Dick Advocaat hefur kallað á
Arjen Robben og Wilfred Bouma,
leikmenn PSV Eindhoven, inn í
leikmannahópinn. Andy van der
Meyde, leikmaður AC Milan,
verður líklega með en hann féll í
yfirlið í sjónvarpsviðtali á mánu-
dag.
„Við eru fullir sjálfstrausts
vegna þess að við sköpuðum
fjölda færa í fyrri leiknum og
vonandi náum við að nýta þá,“
sagði Pierre van Hooijdonk. „En
það verður erfiðara vegna þess
að Skotarnir fengu ekki á sig
mark í Glasgow og ef þeir skora
þurfum við að skora þrisvar.“
Van Hooijdonk eygir mögu-
leika á sæti í liðinu því Patrick
Kluivert og Ruud van Nistel-
rooy náðu ekki saman í leiknum
í Glasgow of fengu á baukinn í
hollenskum fjölmiðlum eftir
leikinn. Kluivert er þess samt
fullviss að þeir eigi eftir að ná
saman og muni leggja sitt að
mörkum svo Hollendingar vinni
Skota og komist til Portúgals.
Dick Advocaat var öskuillur út í
fjölmiðlana. „Það var ekkert
rangt við taktíkina, það voru
leikmennirnir sem fóru ekki eft-
ir leiðbeiningum mínum,“ sagði
Advocaat. ■
NBA-deildin:
Skipt í
þrennt
KÖRFUBOLTI Stjórn NBA-deildar-
innar í körfubolta samþykkti í
gær að þrískipta Vestur- og Aust-
urdeildinni en þær hafa alltaf ver-
ið spilaðar í
tveimur riðlum
til þessa. Nýtt lið
mun auk þess
bætast í hópinn á
næsta tímabili
þegar Charlotte
Bobcats verður
30. liðið í NBA.
Charlotte liðið
spilar í Austur-
deildinni og fyrir
vikið er lið New
Orleans Hornets
fært yfir í Vest-
urdeildina. Hornets léku áður í
Charlotte áður en þeir fluttu til
New Orleans fyrir tveimur árum.
Liðin spila fjórum sinnum við lið-
in í sínum riðli, þrisvar eða fjór-
um sinnum við liðin í sömu deild
og tvisvar við liðin í hinni deild-
inni. Sigurvegarar hvers riðils fá
sæti í úrslitakeppninni og hin
fimm sætin fá liðin með besta sig-
urhlutfallið á eftir þeim. ■
Evrópukeppni bikarhafa:
Frakklandsferð í boði fyrir Hauka
HANDBOLTI Haukar keppa nú að því
að tryggja sér sæti í Evrópu-
keppni bikarhafa í handboltanum
en liðin sem hafna í þriðja sæti
riðlanna í riðlakeppni meistara-
deildar fá að spreyta sig í Evrópu-
keppni bikarhafa. Haukar eru
núna í 3. sætinu í B-riðli eftir eins
marks sigur, 34-33, á Vardar
Skopje á dögunum og haldi þeir
sætinu mæta þeir franska liðinu
US Creteil í Evrópukeppni bikar-
hafa í desember. Creteil sló
Bregenz, lið Dags Sigurðarsonar,
út úr keppninni í síðustu umferð.
Úrslitaleikurinn um þriðja sæt-
ið í B-riðli verður út í Makedóníu
30. nóvember og nægir Haukum
þar jafntefli en Vardar nægir að
vinna með einu marki skori Hauk-
ar minna en 33 mörk í leiknum.
Drott sem sló út HK um helgina
mætir liðinu í þriðja sæti í H-riðli
en þar er sem stendur tékkneska
liðið HC Banik Karvina. ■
Marcel Desailly:
Endar á
heimaslóð
FÓTBOLTI Fyrirliði franska lands-
liðsins í knattspyrnu, Marcel Des-
ailly, sem hefur leikið í tíu ár utan
heimalands síns, ætlar sér að
enda ferillinn í frönsku úrvals-
deildinni þegar samningur hans
við Chelsea rennur út árið 2005.
„Ég hef framlengt samning
minn við Chelsea til 2005 en síðan
ætla ég mér að spila heima og það
er ekkert sem getur fengið mig til
að spila áfram á Englandi eða
snúa aftur til Ítalíu,“ sagði þessi
34 ára miðvörður við franska
knattspyrnutímaritið France
Football í gær.
Desailly fór frá Olympique
Marseille til AC Milan í nóvember
1993 og lék þar í fimm ár áður en
hann gekk til liðs við Chelsea
1998.
Desailly hefur leikið 111 lands-
leiki fyrir Frakkland. ■
WALES - RÚSSLAND
Gary Speed, fyrirliði Wales, í baráttu við Rússann Dmitry Bulykin í fyrri leik þjóðanna á
laugardag.
Evrópumeistarakeppnin 2004:
Giggs leikfær
HOLLAND - SKOTLAND
Edgar Davids og Barry Ferguson börðust um yfirráð á miðjunni í leiknum á Hampden
Park á laugardag. Ferguson segist hlakka til að mæta Davids í Amsterdam í kvöld.
HAUKAR
Keppa við US Creteil í Evrópukeppni bikarhafa nái þeir þriðja sæti í B-riðli
Meistaradeildarinnar.
NÝ RIÐLASKIPTING NBA
Austurdeildin:
Suður-austur riðill: Atlanta Hawks,
Charlotte Bobcats, Miami Heat, Orlando
Magic og Washington Wizards.
Miðriðill: Chicago Bulls, Cleveland
Cavaliers, Detroit Pistons, Indiana Pacers
og Milwaukee Bucks.
Atlantshafsriðill: Boston Celtics, New
Jersey Nets, New York Knicks, Phila-
delphia 76ers og Toronto Raptors.
Vesturdeildin:
Suð-vestur riðill: Dallas Mavericks, Hou-
ston Rockets, Memphis Grizzlies, New
Oreleans Hornets og San Antonio Spurs.
Norð-vestur riðill: Denver Nuggets,
Minnesota Timberwolves, Portland Trail-
blazers, Seattle Supersonics og Utah
Jazz.
Kyrrahafsriðill: Golden State Warriors,
Los Angeles Lakers, Los Angeles Clipp-
ers, Phoenix Suns og Sacramento Kings.
ALLEN IVERSON
Philadelphia 76ers
munu leika í
Atlantshafsriðli.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M