Fréttablaðið - 19.11.2003, Blaðsíða 30
30 19. nóvember 2003 MIÐVIKUDAGUR
Systir mín vinnur á hár-greiðslustofunni Skala og
vinnufélagarnir afhentu mér
þessa mynd af henni,“ segir
Svava Hrafnkelsdóttir. „Það hef-
ur oft verið talað um að hún sé lík
Elínu Hirst og þessi mynd ætti
að sanna að hér eru á ferðinni
ósviknir tvífarar,“ segir Svava
og hlær.
„Er þetta einhver grikkur?“
segir Helena Kristbjörg Hrafn-
kelsdóttir þegar blaðamaður inn-
ir hana eftir líkingunni. „Við
erum kannski ekkert svo ósvip-
aðar en ég var á sínum tíma talin
lík fréttakonunni Sigrúnu Stef-
ánsdóttur. Ég held að það hafi
verið út af því að við áttum eins
gleraugu,“ segir Helena sem tel-
ur spaugið vera í anda móralsins
á hárgreiðslustofunni. „Við erum
að gera heimasíðu fyrir hár-
greiðslustofuna og þess vegna
var þessi myndataka. Vinnufé-
lagarnir eru mikið búnir að
hlæja að þessu.“
Svava, systir Helenu, segir
fólkið á hárgreiðslustofunni
vinna einstaklega gott starf:
„Þau hafa til dæmis tekið upp
þann sið að gefa andvirði eins
dags vinnu til góðgerðamála fyr-
ir jólin. Um daginn gáfu þær
heitan pott á Barðastæði en það
er sambýli fyrir þroskahefta.
Þeim var boðið í opnunarpartí og
þegar þau mættu höfðu þau
keypt sérmerkt handklæði handa
öllum íbúum sambýlisins.“ ■
Íhaust hefur viðrað vel á gestiUmhverfisfræðsluseturs Land-
verndar í Alviðru. Lokið er haust-
dagskrá Alviðru, Náttúran í
haustskrúða, sem stóð frá 25.
ágúst til 31. október. Dagskráin
var fullbókuð í ár eins og undan-
farin ár og hafa grunnskólabörn
víðsvegar af landinu hafa heim-
sótt Alviðru í ár.
Í desember verður í Alviðru
dagskrá með þjóðlegu ívafi sem
ber yfirskriftina „Bráðum koma
jólin“ og stefnt er að því að söng-
ur, leikir og gleði muni ráða ríkj-
um í Alviðru á jólaföstu. Dagskrá-
in er einkum ætluð börnum á
yngsta og miðstigi grunnskóla og
er hugsuð sem nýtt innlegg í jóla-
undirbúninginn. ■
Gott haust í Alviðru
...fær Steingrímur Sævarr Ólafs-
son fyrir skúbb og góðar fréttir á
vef sínum frettir.com.
Hrósið
TVÍFARAR
Vinnufélagar Helenar Kristbjargar á hárgreiðslustofunni Skala telja Helenu vera ósvikinn
tvífara Elínar Hirst
Alveg eins og Elín
Rafmengun
og krabba-
mein
í dag
Bankarnir
græða
25 milljarða
Jón Ólafsson
í bíó með
Karli
Bretaprins
Óku út í sjó
Leikararnir Stefán Jónsson ogJón Gnarr lentu um helgina í
lífsháska þegar bíll þeirra flaug
niður grjóturð í Eyjafirðinum og
hafnaði tugi metra út í sjó. „Það er
guðs mildi að við sluppum lifandi
úr þessu,“ sagði Stefán þegar
Fréttablaðið hafði samband við
hann.
Stefán og Jón voru á heimleið úr
Freyvangsleikhúsinu þar sem þeir
sýndu norska leikritið Elling.
Óhappið var þegar þeir nálguðust
brúna til Akureyrar.
„Ég hafði skipst á að setja háu
og lágu ljósin á, enda umferð að
koma á móti,“ segir Stefán sem sat
við stýrið. „Ég vissi ekki fyrr en
það koma vegamót og það eina sem
ég gat gert var að bremsa. Ef ég
hefði beygt hefði bíllinn oltið.“
Bílaleigubíll þeirra félaga þaut
áfram upp háa grjóturð án þess að
Stefán fengi nokkuð við ráðið. „Við
endasentumst niður í fjöru og end-
uðum eina 20 metra út í sjó,“ segir
Stefán. „Það er guðs mildi að við
sluppum lifandi úr þessu. Við stig-
um út úr bifreiðinni og óðum í
land.“
Það vildi þeim félögum til happs
að ung stúlka áttileið hjá. Hún
hleypti þeim inn í bíl á meðan
beðið var eftir lögreglunni,
sem kom ekki fyrr en hálftíma
seinna vegna mistaka. Á með-
an á biðinni stóð óð Stefán aft-
ur út í sjó til að sækja búninga
sem voru enn í bílnum.
„Það hafði myndast svona
lítið Halló Akureyri þarna því
fólk vildi sjá hvað væri um að
vera. Þegar ég sá að það var
byrjað að flæða inn í bílinn óð
ég aftur út í og náði í búning-
inn og töskuna mína,“ segir
Stefán.
Þeim félögum varð ekki
meint af volkinu og þurftu
ekki að fara í skoðun á eftir.
„Þetta var svona stund þar
sem maður horfir inn í eilífð-
ina. Þarna vorum við á þess-
um þröskuldi og það er eigin-
lega kraftaverk að við skyld-
um lifa þetta af og vera heilir
á húfi,“ sagði Stefán. ■
Í FLUGI
Ryanair býður ókeypis flug til fjölmargra
borga og borga að auki smávegis af flug-
vallarsköttum.
Borga
með flugi
FLUG Breska lággjaldaflugfélagið
Ryanair bíður nú eina milljón
ókeypis sæta og greiðir jafnframt
eina evru eða eitt pund af flug-
vallargjöldum farþega, hvora leið.
Ryanair er með framhaldsflug
til fjölmargra borga í Evrópu, svo
sem Brüssel, Barcelona og Milan.
Íslendingar ættu því að geta kom-
ist út í heim fyrir lítinn pening.
Tilboðið gildir til miðnættis 20.
nóvember og aðeins er hægt að
bóka á Netinu, á slóðinni
www.ryanair.com ■
VÍDALÍN
Staðurinn hefur verið endurnýjaður og
verður opnaður í lok nóvember.
Vídalín end-
urnýjaður
SKEMMTANALÍF Vídalín gengur nú í
endurnýjun lífdaga. Að sögn
Ragnars Halldórssonar, sem
keypti reksturinn í sumar, verður
staðurinn opnaður með nýju sniði
í lok nóvember. „Við ætlum að
reka kaffihús í elsta hluta hússins
á virkum dögum. Á kvöldin verð-
ur menningarstarfsemi sinnt. Um
helgar verður svo barinn opinn
fram á nótt,“ segir Ragnar sem
ætlar þó að breyta markhópi stað-
arins aðeins. „Við ætlum að höfða
til eldra fólks, þeirra sem nú sitja
á Næsta bar til dæmis,“ segir
Ragnar. Á Næsta bar er engin tón-
list leikin en tónlistin mun samt
óma á Vídalín - bara ekki of hátt
stillt.
Staðurinn verður opinn um
helgar þar til hann opnar með
breyttri ásjónu. ■
Í ALVIÐRU
Vel hefur viðrað á gesti Alviðru í haust.
STEFÁN JÓNSSON
Eftir atvikið ræddu þeir Stefán og Jón um eilífðina til tvö um nóttina. Þeir voru heppnir að
sleppa lifandi úr lífsháska.
Kraftaverk
STEFÁN JÓNSSON OG JÓN GNARR
■ Sluppu með skrekkinn þegar bíll þeirra
endasentist tugi metra út í sjó. Kraftaverk
að þeir skyldu lifa af.
BÍLLINN
Rífa þurfti innan úr bílnum til að laga hann eftir óhappið.
M
YN
D
S
. S
AL
VA
R
SS
O
N
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
M
YN
D
/O
D
D
S
TE
FÁ
N