Fréttablaðið - 29.12.2003, Síða 4

Fréttablaðið - 29.12.2003, Síða 4
4 29. desember 2003 MÁNUDAGUR Fórst þú í messu um jólin? Spurning dagsins í dag: Hvernig verður nýja árið? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is 60,8% 39,2% Nei Já Kjörkassinn Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is ■ Evrópa ■ Asía Opnað fyrir fleirum en vélstjórum einum Vélstjórar lýsa þungum áhyggjum vegna stöðugrar fækkunar í far- mannastétt. Þeir kalla eftir utanaðkomandi aðgerðum sem tryggi bæði íslenskt eignarhald á kaupskipum og íslenska mönnun. VÉLSTJÓRAFÉLGIÐ „Við gerum tillög- ur um að félagið verði opnað, þannig að við getum tekið inn fleiri en þá sem uppfylla skilyrði um vélstjórnarmenntun. Það hef- ur þegar orðið geysilega mikil fækkun á sjón- um og við sjáum fyrir okkur að það muni fækka enn frekar, verði ekkert að gert. Við rekum ekki öflugt hags- munafélag nema vera með ákveð- inn félaga- fjölda,“ sagði Helgi Laxdal, formaður Vélstjórafélags Íslands. Á aðalfundi félagsins í gær var samþykkt lagabreyting sem gerir kleift að taka inn í Vélstjórafélag- ið tæknimenntaða menn og konur sem vinna á svipuðum forsendum og félagsmenn Vélstjórafélagsins gera í dag. Helgi segist alls ekki útiloka samvinnu eða sameiningu við önnur hagsmunasamtök. „Það á auðvitað að skoða alla kosti og ég hafna ekki fyrir fram slíkum hlutum. Við viljum fyrst og fremst vera í góðri samvinnu við önnur félög og ef það stæði til boða að sameinast öðrum félög- um, til sjós eða lands, þá hafna ég því ekki,“ sagði Helgi. Í ályktun sem aðalfundur vél- stjóra samþykkti er þungum áhyggjum lýst vegna stöðugrar fækkunar í farmannastétt. Aðal- fundur vélstjóra telur einsýnt að án utanaðkomandi aðgerða muni sama þróun halda áfram og valda ómældu tjóni, bæði fyrir íslenska farmenn og íslenskt samfélag. Þá segir að störf farmanna séu ekki bara þeirra einkamál, störf far- manna snerti þjóðarheildina og séu óumdeilanlega hluti af okkar menningarsamfélagi og sjálfstæði. „Fyrir eyþjóð sem verður, legu sinnar vegna, að nýta hafið að stærstum hluta til flutninga til og frá landinu, er öflug farmanna- stétt ein forsenda sjálfstæðis,“ segir í ályktun aðalfundar Vél- stjórafélagsins. Lagt er til að stjórnvöld og hagsmunaaðilar móti sameigin- lega stefnu sem tryggi bæði ís- lenskt eignarhald og íslenska mönnun skipanna. Í þeim efnum verði horft til aðgerða nágranna- þjóðanna, einkum Dana. Enn fremur er lagt til að stjórnvöld létti umframálögum af eigendum kaupskipa. the@frettabladid.is VOPNAÐIR VERÐIR Vopnaðir lög- reglumenn verða um borð í sumum breskum farþegaflug- vélum. Breska ríkisstjórnin greindi frá þessu í gær og tiltók aukinn viðbúnað Bandaríkja- manna vegna hryðjuverkaógna sem ástæðuna fyrir þessu. Ekki verður gefið upp í hvaða flug- vélum vopnaðir lögreglumenn verða um borð. SKAUT KONU OG SON 74 ára gamall grískur karlmaður skaut eiginkonu sína til bana og særði sjálfan sig og lamaðan son sinn lífshættulega. Kona mannsins hafði verið rúmliggjandi eftir hjartaslag. Maðurinn skildi eftir skilaboð og fé til að standa straum af útfararkostnaði. Einar K. Guðfinnsson: Veikir spari- sjóðakerfið STJÓRNMÁL Einar K. Guðfinnsson, þingflokksformaður Sjálfstæðis- flokks, segir brotthvarf SPRON úr samstarfi sparisjóða skilja eft- ir mikið skarð og vandfyllt þannig að sparisjóðakerfið veikist. Það sé þvert á það sem þörf sé á. „Þeir þurfa að verða fjórði val- kosturinn í fjármála- og banka- þjónustu einstaklinga og fyrir- tækja. Til þess að standast snún- ing í þeirri samkeppni sem er til staðar á tilteknum sviðum þurfa sparisjóðirnir að sameinast og stækka,“ segir Einar í pistli á vef sínum. „Það væri óhappaverk ef sparisjóðirnir hyrfu úr flórunni. Þeir hafa mikilvægu hlutverki að gegna og í þessu nýja risasamfé- lagi íslenska bankaheimsins þurfa þeir að vera til staðar.“ ■ KVIKNAÐI Í ÍBÚÐ Eldur tók á móti eldri konu þegar hún opnaði dyr að íbúð sinni á Sauðárkróki á laugardagskvöld. Eldur hafði kviknað í íbúðinni meðan konan var úti við. Eldurinn reyndist hins vegar ekki mikill og gekk slökkvistarf vel. Einhverjar skemmdir urðu á innbúi og hús- næði en engin meiðsl á fólki. HANDTÖKUR Í PAKISTAN Lög- reglan í Pakistan hefur handtek- ið fjölda manns í tengslum við misheppnað morðtilræði við Musharraf forseta á jóladag, en þá slapp hann naumlega þegar tvær öflugar sprengjur sprungu á leið hans um Rawalpindi. Fimmtán manns fórust í spreng- ingunum, þar á meðal þrír sjálfsmorðsliðar. HREINSUN HAFIN Hreinsun er nú hafin á gasvinnslusvæðinu í Chongqing í suðvesturhluta Kína eftir gassprenginguna á þriðju- dag sem varð 198 manns að bana auk þess sem flytja þurfti nærri tíu þúsund manns á sjúkrahús vegna gaseitrunar og brunasára. Steinsteypu var hellt í gaslindina til að loka fyrir lekann. HERT EFTIRLIT Yfirvöld í Kína, Hong Kong og Taívan hafa hert allt eftirlit með ferðamönnum eftir HABL-tilfellið sem upp kom í Guangdong-héraði í suðurhluta Kína fyrr í mánuðinum. Að sögn kínverskra stjórnvalda er maður- inn í einangrun en á batavegi. BÍLFLAKIÐ Talið er að sjálfsmorðsliðinn hafi sprengt sig í bíl sínum þegar lögreglan reyndi að handtaka hann. Sjálfsmorðsárás í Kabúl: Sex manns létu lífið AFGANISTAN Að minnsta kosti fimm liðsmenn afgönsku öryggissveit- anna, þar á meðal yfirmaður þeirra, fórust og margir aðrir slösuðust illa þegar sjálfsmorðsárásarmaður sprengdi sig upp í nágrenni flug- vallarins í Kabúl í Afganistan í gær. Að sögn talsmanns lögreglunnar í Kabúl tókst sjálfsmorðsliðanum, sem var útlendingur, að fela sprengju innanklæða og sprengdi hann hana inni í lögreglubíl eftir handtöku. Mikil öryggisgæsla er nú í Kabúl vegna þings afganska þjóðarráðs- ins, sem skipað er 500 trúar- og hér- aðsleiðtogum, en þeir funda stíft í höfuðborginni þessa dagana um framtíð Afganistans. Skæruliðahreyfing talíbana hef- ur lýst ábyrgð á árásinni og hóta þeir að halda sjálfsmorðsárásum áfram. ■ ■ Eldsvoði SPÁ Davíð Oddsson lætur af emb- ætti forsætisráðherra en heldur áfram í pólitík í fjögur til sex ár og Ólafur Ragnar Grímsson gefur áfram kost á sér í embætti forseta og verður endurkjörinn. Svo spáir völva Vikunnar fyrir um atburði næsta árs. Um aðra stjórnmálamenn segir völvan að Steingrímur J. Sigfús- son, formaður Vinstri grænna, vaxi fremur en hitt, en því sé öfugt farið með Össur Skarphéðinsson, formann Samfylkingar. Varnarliðið á Keflavíkurflug- velli verður áfram til staðar í árs- lok, þó í minnkaðri mynd sé, en verður líklega alveg horfið innan tveggja ára. Varnir landsins munu í framtíðinni frekar tengjast Evr- ópu en Bandaríkjunum. Völvan segir að tvö stór hneyksl- ismál komi upp á árinu, annað teng- ist banka en hitt stóru fyrirtæki á vinnumarkaði. „Það hriktir í stoð- um og þetta á eftir að koma við sið- ferðisvitund þjóðarinnar.“ Íþróttamenn koma til með að gera það gott á árinu og völvan er ekki frá því að Ísland vinni að minnsta kosti tvenn gullverðlaun á ólympíuleikunum í Aþenu. ■ VÖLVUSPÁIN 2004 Sér fyrir tvo sjóskaða og þrjú snjóflóð, eitt lítilsháttar en tvö stærri. Völva Vikunnar spáir Íslandi gulli á ólympíuleikunum: Ólafur Ragnar og Davíð áfram Maður ársins: Jón Helgi verðlaunaður ATHAFNALÍF Tímaritið Frjáls versl- un hefur valið Jón Helga Guð- mundsson mann ársins í íslensku viðskiptalífi. Í grein um Jón Helga í nýjasta tölublaði tímarits- ins segir að félagið sem hann veit- ir forystu, Byko, hafi vaxið gríð- arlega á síðustu árum. Það var Geir H. Haarde fjár- málaráðherra sem veitti Jóni Helga viðurkenninguna við hátíð- lega athöfn á Hótel Sögu í gær. Þetta er í sextánda sinn sem Frjáls verslun útnefnir mann árs- ins en árið 2002 voru það aðstand- endur Samsonar sem hlutu nafn- bótina. ■ MAÐUR ÁRSINS Jón Helgi í Byko er maður ársins að mati Frjálsrar verslunar. Geir H. Haarde veitti honum viðurkenningu af því tilefni. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T „Við sjáum fyrir okkur að það muni fækka enn frekar, verði ekkert að gert. VILJA OPNA FÉLAGIÐ Aðalfundur Vélstjórafélags Íslands samþykkti í gær að taka inn í félagið fleiri en þá sem uppfylla skilyrði vélstjórnarmenntunar. Vélstjórar hafa þungar áhyggjur af stöðugri fækkun félagsmanna. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T SVEITARSTJÓRNARMÁL Kennarar í Þykkvabæjarskóla fengu miklum mun rausnalegri desemberuppbót heldur en aðrir kennarar í sveitar- félaginu. Þeir fengu 250 þúsund krónur aukalega í desember en starfsmenn hinna grunnskólanna í Rangárþingi - ytra, Helluskóla og Laugalandsskóla, fengu ein- ungis 40 þúsund krónur. Mismunurinn mun vera staðar- uppbót sem samið hafði verið um við kennara í Þykkvabæjarskóla fyrir nokkrum árum, fyrir sam- einingu sveitarfélaganna. Nokkur óánægja er meðal kennara vegna þessa máls og er vísað til þess að sérstök nefnd hafa fjallað um samræmingu á starfskjörum inn- an bæjarfélagsins frá því í ágúst árið 2002. Guðmundur Ingi Guðmunds- son, sveitarstjóri í Rangárþingi - ytra, segir að nú sé unnið að stefnumótunarvinnu á vegum hreppsins þar sem meðal annars sé til skoðunar samræming á hlunnindum og starfsskilyrðum starfsmanna sveitarfélagsins. Hann gerir ráð fyrir að tillögur þess efnis muni liggja fyrir á fyrsta ársfjórðungi næsta ár. Hann segir að ákveðið hafi ver- ið að breyta ekki greiðslum til kennarana núna fyrir jól. „Það var í þeim anda að gera ekki breyting- ar á kjörum eftir sameiningu mjög bratt heldur taka það á ein- hverjum tíma,“ segir hann. Hann segir að ekki megi gleyma rétti þeirra starfsmanna sem hafi samið um þessi tilteknu kjör. ■ AF HELLU Kennarar í Rangárþingi ytra búa við afar misjöfn kjör en unnið er að samræmingu. Mikill kjaramunar á milli kennara í sama sveitarfélagi: Unnið að samræmingu starfskjara

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.