Fréttablaðið - 29.12.2003, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 29.12.2003, Blaðsíða 12
12 29. desember 2003 MÁNUDAGUR Að kvöldi 29. desember árið1940 gerðu Þjóðverjar verstu loftárásir sögunnar á London. Þúsundir óbreyttra borgara biðu þar bana þetta kvöld og um nóttina. Eldur brann úti um alla borg- ina, en slökkviliðsmenn börðust hetjulegri baráttu þrátt fyrir að sprengjuregnið félli allt um kring. Þeim tókst að bjarga stórum hluta borgarinnar frá enn frekari eyði- leggingu. Sumarið áður höfðu Þjóðverjar byrjað að varpa sprengjum á enskar borgir. Í júlí höfnuðu Bret- ar tilboði Hitlers um grið gegn því að skipta sér ekki af hernaði Þjóð- verja á meginlandinu. Í ágústlok svöruðu Bretar síðan með loftárás á Berlín og í kjölfarið hertu Þjóð- verjar loftárásir sínar á Breta um allan helming. Verstu árásirnar urðu 29. des- ember, þegar Þjóðverjar gerðu hverja hrinuna á fætur annarri án afláts í samtals sex klukkustundir. Um vorið 1941 hættu Þjóð- verjar þó að mestu árásum á Bretland, enda var þýski herinn þá á leið austur á bóginn. Þá um sumarið hófst innrás Þjóðverja í Sovétríkin. ■ Sonja Sigrid Hakansson, Barðaströnd 25, Seltjarnarnesi, lést sunnudaginn 21. desember. Gunnar Jóhannes Guðbjörnsson, Hæðargarði 17, Reykjavík, lést fimmtu- daginn 25. desember. Ólafur Jensson, verkfræðingur, er látinn. Guðrún Soffía Gísladóttir, Hrafnistu, Hafnarfirði, áður Sundlaugavegi 24, Reykjavík, lést föstudaginn 26. desem- ber. Ingibjörg Skúladóttir, Hlíf 1, Ísafirði, lést fimmtudaginn 25. desember. Þorsteinn Gíslason, málarameistari og fyrrverandi kaupmaður, Miðleiti 7, Reykjavík, lést aðfaranótt 25. desember. Hulda Valdimarsdóttir, frá Vopnafirði, Kleppsvegi 128, Reykjavík, lést mánu- daginn 22. desember. Guðmunda (Gógó) Sigríður Óskars- dóttir, nuddari, Hrísmóum 1, Garðabæ, lést fimmtudaginn 25. desember. Sigríður Ólafsdóttir, Hveragerði, lést fimmtudaginn 25. desember. Margrét Bjarnadóttir, Grímshaga 3, lést 25. desember. 13.30 Maja-Greta Briem verður jarð- sungin frá Fossvogskirkju. 14.00 Ársæll Ottó Valdimarsson, Espigrund 15, Akranesi, verður jarðsung- inn frá Akraneskirkju. 15.00 Helgi Viðar Magnússon, Granda- vegi 3, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík. Söngleikurinn Grease meðBirgittu og Jónsa í aðalhlut- verkum er greinilega með allra vinsælustu sýningum ársins. Hann hefur gengið fyrir fullu húsi í Borgarleikhúsinu alveg frá því hann var frumsýndur í sumar. Í dag er 57. sýningin á þessu vin- sæla stykki, eða sú 59. ef tvær forsýningar eru taldar með. Búið er að ákveða aukasýningu næsta laugardag, og síðan verður sýn- ingum haldið áfram næstu vikur og jafnvel mánuði, svo lengi sem ekkert lát er á aðsókninni. ■ Ekkert lát á aðsókn Konuna mína langar til að kallaeinhverja saman á afmælis- daginn minn,“ segir hr. Ólafur Skúlason biskup, sem er 74 ára í dag. „Börnin mín munu koma og það er mér sérstakt gleðiefni að sonur minn Skúli, sem hefur verið prestur í Svíþjóð, kom með konu sinni og tveimur börnum til að vera hjá okkur um jólin og verður því einnig hjá mér á afmælinu. Tengdadóttir mín Sigríður Björk Guðjónsdóttir, sem er sýslumaður á Ísafirði, þarf reyndar að fljúga vestur til að sinna skyldum sínum en þau hin verða hérna áfram hjá okkur. Skúli er nú á milli embætta og verður því ekki í prestsverkum eins og vaninn hefur verið um jól- in. Einnig ætlar Ebba konan mín að hringja í systur mínar og bjóða þeim, auk þess sem hér er statt frændfólk hennar frá Þýskalandi sem við munum bjóða. Ebba er svo móttökuglöð og hefur mikið yndi af því að halda veislu.“ Hann segist alltaf hafa verið feginn að afmælið er á milli jóla og nýárs, en ekki rétt fyrir jól. „Það var alltaf mikið af kökum hjá mömmu og hún gætti þess vand- lega að afmælisdagurinn týndist ekki og gerði daginn sérstakan. Síðan hefur konan mín séð vel um mig á þessum degi.“ Sjálfur segist Ólafur ætla að taka því rólega, þar sem hann er nýkominn af spítala og þarf að jafna sig. „Ég er búinn að taka því allt of rólega að mér finnst.“ Hann tekur lífinu með ró nú, sem eru mikil viðbrigði fyrir mann sem hefur alltaf haft nóg fyrir stafni. „Þetta voru gríðarleg viðbrigði fyrst, ekki síst eftir að ég hætti sem sóknarprestur. Sem biskup var ekki mikið um prestverk og helgihald á hátíðum, en ég sakna mikið samfélagsins við fólkið. Þetta var svo yndislegt, jafnvel þó svo að það byggðist oft á sorgleg- um atburðum, eins og jarðarförum eða veikindum, þá voru skírnir, fermingar, giftingar og venjulegir messudagar miklar hátíðarstundir. Við vorum svo heppin í Bústað- asókn að það var alltaf góð kirkju- sókn og við þurftum aldrei að horfa á hálftóma bekkina.“ ■ Afmæli HERRA ÓLAFUR SKÚLASON ■ biskup er 74 ára í dag. Hann er að jafna sig eftir sjúkrahúsdvöl. JUDE LAW Þessi vinsæli leikari fæddist í suðaustur- hverfum Lundúnaborgar árið 1972. 29. desember ■ Þetta gerðist 1170 Erkibiskupinn Tómas Beckett er myrtur í dómkirkjunni í Kantara- borg á Englandi. 1845 Texas verður 28. ríki Bandaríkj- anna. 1890 Bandarískir hermenn stráfella allt að 400 indjána í orrustunni við Undað kné. 1946 Söngkonan Marianne Faithfull fæðist. 1947 Bandaríski leikarinn Ted Danson fæðist. 1975 Ellefu manns bíða bana þegar sprengja springur á LaGuardia- flugvellinum í New York. 1998 Leiðtogar Rauðu Kmeranna í Kam- bódíu biðjast fyrirgefningar á því að hafa myrt um milljón manns á tímum ógnarstjórnar sinnar á átt- unda áratug síðustu aldar. LONDON BRENNUR Þúsundir óbreyttra borgara féllu þennan dag í loftárásum Þjóðverja á London. Loftárásir á London VERSTU LOFTÁRÁSIRNAR Á LONDON ■ Þjóðverjar vörpuðu sprengjum látlaust í sex klukkustundir á London þennan dag árið 1940. 29. desember 1940 Betra að eiga afmæli nú en rétt fyrir jól Framkvæmdabókin 2004 er ekki eingöngu dagbók, heldur einnig tæki til að koma hlutum í verk! Útsölustaðir: FRAMKVÆMDABÓKIN ... og þú kemur hlutum í verk 2004 Sissa tískuhús G l æ s i b æ , s í m i 5 6 2 5 1 1 0 Sissa Tískuhús óskar öllum gleðilegs árs og þakkar það liðna. Útsalan hafin, 20-80%afsláttur!!! Glæsilegur fatnaður!!! Opið 29. des. 11-18 og 2. jan. 13-18 Verið velkomin Kröftugur skóli þótt lítill sé Við munum fara nýjar leiðir íkennsluháttum,“ segir Guð- björg Aðalbergsdóttir, nýskipað- ur skólameistari við Fjölbrauta- skóla Snæfellinga, en reiknað er með að skólinn taki til starfa næsta haust. „Aðalmarkmiðið verður að bjóða upp á fjölbreytt nám og að allir geti fundið eitt- hvað við sitt hæfi, þó að skólinn sé lítill. Því munum við leggja áherslu á nýtingu upplýsinga- tækni og einstaklingsmiðað nám.“ Að sögn Guðbjargar ríkir mikil bjartsýni meðal heima- manna um að þetta nýja skóla- starf muni takast vel upp. ■ ÚR GREASE Birgitta Haukdal og Jón Jósep Snæbjörnsson trekkja að áhorfendur stanslaust í Borgar- leikhúsinu. ■ Söngleikur GUÐBJÖRG AÐALBERGSDÓTTIR Segir Fjölbrautaskóla Snæfellinga koma til með að bjóða upp á fjölbreytt nám. HERRA ÓLAFUR SKÚLASON Saknar mikið samfélagsins við fólkið frá því hann var sóknarprestur í Bústaðasókn. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA ■ Andlát ■ Jarðarfarir

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.