Fréttablaðið - 29.12.2003, Page 32

Fréttablaðið - 29.12.2003, Page 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Bakþankar ÞRÁINS BERTELSSONAR Útsalan hefst í dag! 30-50% afsláttur af öllum vörum Smáralind Kópavogi 2003 www.gunnimagg . i s Trúlofunar- og giftingarhringir 20% afsláttur í takmarkaðan tíma Burtséð frá þeim fréttum semdynja á manni daglega af inn- lendum vettvangi hefur maður ærna ástæðu til þess að hafa áhyggjur af gangi mála í víðara samhengi, því að öll erum við jú ein fjölskylda sem byggjum þessa plánetu. Hvað eftir annað hefur manni svelgst á morgunkaffinu yfir þeim ósköpum sem ganga á í útlandinu. Reyndar byrjaði árið nokkuð friðsamlega og á nýársdag tók Lula da Silva (Lúlli frá Skógum) við forsetaembætti í Bras- ilíu, en hann er sagður vera „maður fólksins“, og miðað við hvað Banda- ríkjamenn eru uppteknir í Írak og Afganistan er ekki víst að þeir gefi sér tíma til að myrða hann eins og Allende forðum og aðra suður- ameríska leiðtoga sem vilja vera alvöru sjálfstæðismenn. FYRSTA STÓRSLYS ársins var þegar geimferjan Kólumbía fórst með 7 manns innanborðs 1. febrúar. Hinn 14. febrúar var svo Zoran Djindjic forsætisráðherra Serbíu myrtur. Og 20. mars byrjaði hið margauglýsta innrásarstríð í Írak, en því lauk að nafninu til 9. apríl þegar Bagdad féll og Saddam Hússein faldi sig í jarðhýsi. FYRIR þá sem ekki kippa sér upp við fregnir af manndrápum, styrj- öldum og hungursneyðum utan ís- lenskrar landhelgi kom þó sem reiðarslag sú fregn að David Beck- ham væri hættur í Manchester United og genginn til liðs við Real Madrid, það var 18. júní. Údæ og Kúsæ, synir Saddams, voru drepnir í Bagdad 22. júlí og enn eitt illmenni kvaddi veröldina 16. ágúst þegar Ídí Amín, fyrrum harðstjóri í Úganda, andaðist á sóttarsæng í Arabíu. SORGARFREGN barst frá Svíþjóð 11. september, en þá myrti geðveik- ur maður Önnu Lindh utanríkisráð- herra á förnum vegi. 8. október var vaxtarræktarmaðurinn Arnold Schwarzenegger kosinn ríkisstjóri í Kaliforníu. Og 14. desember fundu Bandaríkjamenn loksins Saddam Hússein, og töldu þá mest aðkallandi að láta það verða sitt fyrsta verk að leita honum lúsa. ÞETTA SKELFILEGA registur yfir minnisstæðar hörmungar á liðnu ári sýnir með hvílíkum harmkvælum mannkynið fetar sína þróunarbraut og með það í huga verða þau vanda- mál sem við eigum við að etja hérna á eyjunni tiltölulega viðráðanleg. Gleðilegt ár og takk fyrir það liðna!

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.