Tíminn - 23.07.1971, Page 9
FÖSTUDAGUR 23. Júlí 1971 TIMINN 9
ffijómaríkrtfstofur 1 Edduhúslnu, simar 18300 - 18306 Skrif
»tofur Bankastraeti 7 — Afgreiðslusíml 12323 Auglýstngaslml
10523 Aðrar skrifstofur simi 18300. Askriftargjald kr 195.00
á mánuði Innanlands. t lausasölu kx 12,00 eint - Prentsm
Edda hf.
Pólitískt ofstæki
Eins og ríkisstjórnin hafði boðað í málefnasamningi
hafa nú verið gefin út bráðabirgðalög um stórbætt launa-
kjör sjómanna. Þetta er gert með því að lækka þá pró-
sentu af útflutningsverði fiskafurða, sem runnið hefur
til Verðjöfnunarsjóðs, en auk þess kemur til viðbótar
nokkur hækkun á fiskverði, þannig að í heild hækkar
skiptaverð um 18—19%. Frá sama tíma er niður felld
sú 11% skerðing á skiptaverði, sem tekin var af sjó-
mönnum með lögum.
Með þessum ráðstöfunum er rekstrargrundvöllur út-
gerðar eða fiskiðnaðar í engu skertur. Þrátt fyrir þessa
lækkun á greiðslum til Verðjöfnunarsjóðs munu tekjur
hans á þessu ári verða í heild svipaðar og áætlað var að
þær yrðu er viðmiðunarverð var ákveðið í maí s.l. og
mun frystideild Verðjöfnunarsjóðs verða komin í 1000
milljónir um næstu áramót eins og reiknað var með.
Viðmiðunarverðið hefur staðið óbreytt þrátt fyrir mikl-
ar hækkanir á útflutningsverðinu. Skerðingin á útflutn-
ingsverðinu vegna framlaga til Verðjöfnunarsjóðs hefði
numið hátt á annað hundrað milljónum króna hærri
upphæð en áætlað var og tekjur frystideildar sjóðsins
numið á sjötta hundrað milljónir á þessu ári að óbreyttu.
En áttum okkur dálítið á því, hvað gerzt hefði, ef
ríkisstjómin hefði ekki gripið til þessara ráðstafana og
bætt sjómannskjörin. Sjómenn una hag sínum illa- Erfið-
lega hefur gengið að manna bátana og sjómenn hafa
verið að ganga í land. Eftir kauphækkanir landverká-...
fólks, sem allir gera sér greih fyrir að verða í haust,
myndu sjómenn ganga í stórum flokkum í land, cn þeir
hafa bundna samninga til áramóta. Ennfremur hefði
komið upp hættulegt misræmi í fiskverðinu hér innan-
lands og í nágrannalöndum, þar sem útflutningsverðið
kemur allt til skipta, en það hefði þýtt auknar landanir
erlendis, og ekki furða þar sem 17 krónur fengust fyrir
kílóið í Færeyjum en 9 krónur hér. Þróun í þá átt hefði
einnig þýtt minnkaðar tekjur Verðjöfnunarsjóðs ásamt
hráefnaskorti hjá íslenzkum fiskiðnaðarfyrirtækjum og
minni atvinnu verkafólks.
Þegar þetta er haft í huga, ættu allir að mega vel
við ráðstafanir ríkisstjórnarinnar una og víst er um það,
að öll þjóðin er sammála um að nauðsyn beri til að hækka
laun sjómanna. Eru útgerðarmenn ýmsir þar raunar
fremstir í flokki, enda byggist rekstur þeirra á því, að
hæfir sjómenn fáist á skipin.
En viti menn. Nokkrir forystumenn 1 stjórn LÍÚ taka
sér fyrir hendur við þessar aðstæður að knýja fram
meirihlutasamþykkt í stjórn LÍÚ, þar sem þessum ráð-
stöfunum, sem tryggja mannskap á bátana og skaðar í
engu rekstrargrundvöll útgerðarinnar, er harðlega mót-
mælt! Þeir hafa allt á hornum sér, tala um íhlutun í
samningsrétt, þótt hér sé um breytingu á lögum að
ræða, (11 prósentin) sem skapað hafa þeim mikla erfið-
leika í samningum við sjómenn, telja þetta hættulegt fyr-
ir framtíð sjávarútvegsins og fleira í. þeim dúr. Má af
þvi gagnálykta, að þessir menn, sem tekið hafa að sér
að gæta hagsmuna útgerðarmanna, hafi heldur viljað,
að útgerðin bæri ein og óstudd nauðsynlegar kjarabæt-
ur til handa sjómönnum. Er hæpið að útgerðarmenn í
landinu vilji allir samþykkja slíkan málatilbúnað for-
ystumanna sinna.
Það voru heldur ekki allir stjórnarmenn í LÍÚ sam-
þykkir þessum mótmælum og létu bóka stuðning við
þessar ráðstafanir ríkisstjórnarinnar. Auðvitað er vendi-
lega um það þagað í fréttatilkynningu LÍÚ, enda eru
þessi mótmæli ekkert annað en pólitískt ofstæki þeirra,
sem láta Mbl. ráða gerðum sínum og orðum- — TK
JAMES P. STERBA:
Hagur Indóuesíu þykir heldur
hafa vænkazt hin síðustu ár
Ríkið skuldar gífurlegar fjárhæðir og draga margir í efa, að það fái risið undir vöxt-
um og afborgunum af þeim skuldum. Erlent fjármagn hefur streymt til landsins tvö
undangengin ár og vonir standa til, að arður af námum og olíulindum taki von bráð-
ar að létta róðurinn.
ENDA þótt efnalegar fram-
farir séu greinilegar eru
óánægjuraddir ýmsra stjórn-
málamanna allháværar. And-
stæðingar ríkisstjórnarinnar
halda til dæmis fram, að kosn-
ingarnar í ár séu lítið annað
en skollaleikur til að slá ryki
í augu erlendra þjóða og fá
þær til að fallast á áframhald-
andi stjórn hersins í þeirri
trú, að stefnt sé að auknu
lýðræði.
Einn af stjórnarfulltrúum
Vesturlandaþjóðanna sagði til
dæmis um kosningarnar:
„Þessar kosningar fara fram
samkvæmt hinni kunnu lýð-
ræðishefð á Formósu og Suður-
Vietnam“.
Háttsettur embættismaður
ríkisstjórnarinnar var á öðru
máli:
„Kosningarnar eru tilraun,
stutt skref stigið af varúð.
Enginn getur ætlast til, að við
hverfum frá hernaðarstjórn til
fullkomins lýðræðis á einni
nóttu.“
jc Suharto lagði einkennisbún-
ing sinn á hilluha fýrir löngu
' Og gengurá-borgaralegum klæð
um. Hann hefur heitið því að
minnka herinn og draga úr
valdi hans. Árið sem leið setti
hann rúmlega 60 hershöfðingja
á eftirlaun, en þrátt fyrir það
er einkennisbúningur talinn
tákn um góða stöðu og frama
og er þess til dæmis krafizt, að
Adam Malik, einn kunnasti
maður í Indónesíu utan hers-
ins, heilsi með hernaðarkveðju
áður en hann tekur í hendina
á embættismannL
Forustumenn hersins halda
fram, að þeir séu einu menn-
irnir í landinu, sem hafi til að
bera nægilegar gáfur og skipu-
lagshæfileika til að stjórna
landinu og efla framfarirnar.
STÖÐU GLEIKINN í efna-
hagsmálum landsins byggist á
gífurlegri skuldasöfnun. Indó-
nesía skuldar öðrum þjóðum
um fjóra milljarða dollara í
höfuðstól og vöxtum. Þeir kapp
kostuðu að hamla gegn kröfum
lánadrottna sinna fram á ár-
ið sem leið, en gert er ráð fyr-
ir, að þeir hefji endurgreiðslu
lána á yfirstandandi ári.
Sukarno fyrrverandi forseti
safnaði meirihluta skuldanna
eða um hálfum þriðja milljarði
dollara. Indónesar skulda Sovét
mönnum um einn milljarð
dollara og er meginhluti þess
andvirði hernaðarflugvéla. Nú
eru bæði skip og flugvélar í
lamasessi vegna skorts á vara-
hlutum. sem Rússar neita að
láta af hendi nema gegn stað-
"reiðslu.
Vestrænir lánadrottnar féll-
ust í apríl 1970 á að breyta
greiðsluskilmálum á þann vag,
gð Indónesar endurgreiði þeim
skuldirnar á næstu þrjátíu ár-
um. Sovétríkin og flestir lána-
SUHARTO, forseti Indonesíu.
drottnar Indónesa í Austur-
Evrópu hafa nú fallizt á svip-
aða skilmála. <40 ....
-ÍNDÓNESAR hafa fengið að
láni hálfan annan milljarð doll
ara á Vesturlöndum síðan 1966,
og hefur það fé einkum runnið
til greiðslu eldri skulda, efl-
ingar stöðugleikans á efnahags
málum og aukningar framfara
í landinu. Gert er ráð fyrir, að
vextir og afborganir erlendra
skulda nemi um fimmtungi af
Síðari grein
útflutningstekjum landsins ár-
ið 1980, en almennt er talið,
að fimmtán prósent sé hámark
þess, sem áhættulaust sé í
þessu efni.
Auk hins erlenda lánsfjár
njóta Indónesar mjög mikillar
og vaxandi efnahagsaðstoðar er
lendis frá og rennur mest af
því fé til framfara í landinu.
Hin erlenda efnahagsaðstoð lýt-
ur eftirliti nefndar, sem lána-
drottnar landsins skipuðu ár-
ið 1967, en þeir eru Ástralíu-
menn, Belgir, Frakkar, Vestur-
Þjóðverjar, ítalir, Japanir, Hol-
lendingar, Bretar og Banda-
ríkjamenn auk nokkurra fleiri
þjóða, svo og Alþjóðabankinn,
Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn og
Þróunarbanki Ásíu.
Bandaríkjamenn eru stór-
tækastir í framförum og nam
framlag þeirra 232,7 milljón-
um dollara árið sem leið, en
af því runnu nálega 102 millj-
ónir dollara til matvörukaupa.
FRÆÐSLUKERFIÐ i Indó-
nesíu er afar ófullkomið og
alls ófullnægjandi. Kennslan er
sérlega léleg, enda ná almenn
kennaralaun ekki tíu dollurum
á mánuði, og það er allt of lít-
ið til lífsframfæris, jafnvel 1
Indónesíu. Fræðslumálastjórn-
in í landinu gerir ráð fyrir, að
rúmlega sex milljónir barna á
aldrinum sjö til fimmtán ára
fari á mis við alla kennslu
vegna skorts á skólum og kenn
urum.
Heilsugæzla er litlu sem
engu betur á vegi stödd. Dja-
karta er nýtízkulegasta borgin
í landinu og íbúar hennar eru
um fimm milljónir, en í borg-
inni eru þá 1200 íbúar um
hvert sjúkrarúm í sjúkrahús-
unum.
ÞETTA ber greinilega vott
um offjölgun fólks, en hún er
sá vandi, sem er einna erfið-
astur viðfangs. Sérfræðingar
halda fram, að hún kunni að
bera hina ágætustu framfara-
viðleitni ofurliði, en samt sem
áður er ekki lögð höfuðáherzla
á getnaðarvarnir og raunar
ekki hafizt handa um út-
breiðslu þeirra fyrri en nú fyr-
ir skömmu.
Áætlunum um fólksfjöldann
í landinu ber ekki saman, en
hann er talinn nema 115—123
milljónum manna. Um 1000 af
13667 eyjum landsins eru
byggðar ,og enda þótt fólksfæð
sé til verulegs baga á hinum
fjarlægari eyjum búa hvorki
meira né minna en 73 milljón-
ir manna á Jövu einni, en hún
er ekki nema 49 þús. fermílur
að stærð, eða aðeins á stærð
við fylkið New York í Banda-
ríkjunum.
STÖÐUGLEIKINN og fram-
farirnar í efnahagsmálum hafa
lítil áhrif haft á daglegt líf
Indónesa yfirleitt. Margir er-
lendir menn, sem fylgjast með
framvindunni í landinu, óttast
mjög, að bráðlega dragi til
kommúnistauppreisnar í land-
inu ef ekki tekst að bæta lífs-
kjör landsmanna til muna og
varanlega.
Framhald á bls. 14
Útgefandl: FRAMSÓKNARFt-OKKURiNN
Framkvæmdastjórl' Kristján Benediktsson Ritstjórar Þórarinn
Þórarinsson (áb) Jón Helgason. tndriði G. Þorsteinsson og
i’ómas Karlsson Auglýsingastjóri: Stetngrimur Gislason Rit