Tíminn - 23.07.1971, Blaðsíða 13

Tíminn - 23.07.1971, Blaðsíða 13
ÉÖSTUBAGUR 23. jútí 1971 IÞROTTIR TIMINN ÍÞRÓTTIR 13 Spá um úrslit í einstökum greinum á: Sundmeistaramóti íslands Hefst í kvöld í Laugardalslauginni, en lýkur á sunnudaginn. Um .hetgina fer fram Sundmeistaramót íslands í sund- laugunum í Laugardal. Mótið hefst í kvöld, en þá verður keppt í þremur greinum. Á morgun hefst aðalhluti þess, en mótinu lýkur á sunnudag. Þetta mét er 40- íslandsmótið í sundi, sem haldið er. Þátttakendur að þessu sinni eru á annað hundrað frá 9 fé- lögum og héraðssamböndum, en auk þeirra taka þátt í mót- inu sundfólk frá Vestur-Þýzkalandi, sem hér er í heimsókn, og hin efnilega sundkona frá Bandaríkjunum, Lísa Ronson Pétursdóttir. Búizt er við skemmtilegri keppni í mörgum greinum, og að fslands- met falli í sumum þeirra. Þetta mót ræður miklu um val á lands- liði því, sem mæta mun Dönum, írum og Skotum í ágúst. Við munum reyna að spá um úrslit í einstökum greinum móts- ins, og er þetta okkar spá í þeim greinum sem keppt verður í í kvöld og á morgun. Spá um þær greinar, sem keppt verður í á sunnudag birtist í blaðinu á morg un: STUTT... if Frábær árangur náðist á Spartakiaden í Moskvu nýlega. Borsov, Sovét hljóp 100 m. á 10,1 sek. Iwanov varpaði kúlu 19,39 m., Sanajew stökk 17,39 m. í þrístökki, Syssajew hljóp 3 km. hindrunar- hlaup á 8:30,6 mín. og Lyachow kastaði kringlu 61,14 m. —O— + Norska stúlkan Kari Karlsen setti nýtt Norðurlandamet í há- stökki kvenna á brezka meistara- mótinu fyrir nokkru, stökk 1,80 m. Hún er aðeins 19 ára. Gamla metið átti Langkilde, Danmörku 1,77 m. FRÁ K.K.Í. KKÍ hefur í samvinnu við fleiri aðila gengizt fyrir því að fá hing- að bandarískan þjálfara á vegum bandaríska þjálfarasambandsins. Fengizt hefur vilyrði fyrir að fá hingað þjálfara að nafni Kent Finanger frá Luther College í Iowa. Áformað er að halda námskeið 18. ágúst til 4. september n.k. Þau félög eða aðrir aðilar, sem áhuga hafa á þátttöku hafi sam- band við Hólmstein Sigurðsson, sími 13134 eða Guðmund Hall- grímsson, sími 38000 í síðasta lagi 26. júlí. FRÁ F.R.Í. Frjálsíþróttasamband íslands efnir um þessar mundir til skyndi happdrættis. Fjárþörf sambandsins er mikil, þar sem fratnundan í sumar er landskeppnin við íra og unglinga- landskeppni í Álaborg. Þá mun Frjálsíþróttasambandið senda bátt takendur á þjálfaranámskeið í London í júlílok og fara þeir Guðmundur Þórarinsson, Karl Stefánsson, Hreiðar Jónsson og Páll Dagbjartsson þangað. Frjálsíþróttasambandið heitir a alla velunnara sína, sem fá miða senda að bregðast skjótt og vel við og kaupa eða skipuleggja sölu á þeim miðum, sem þeir fé. Upplao miðanna er 3.500, verð mifans er kr. 100.00 og vinning- ar eru þrjár Sunnu-ferðir til Mall orea Dreajg verður 1. sept. n.k. 1500 m. skriðsund karla. Keppnin í þessari lengstu vega- lengd sem keppt er í, verður að að líkindum aldrei þessu vant skemmtileg. Við spáum Guðmundi Gíslasyni, Á, sigri, að hann bæti íslandsmetið. Keppnin um annað sætið verður mikil á milli met- hafans í greininni Gunnars Krist jánssonar, Á, og hins unga KR- ings, Friðriks Guðmundssonar, en við spáum Gunnari öðru sætinu, þar sem hann hefur mun meiri reynslu í keppni þessarar greinar. 800 m. skriðsund kvenna. Keppnin um meistaratitilinn mun standa á milli Vilborgar Júlíusdóttur, Æ, og Guðmundu Guðmundsdóttur, Self. Sennilega sigrar Vilborg, oiS ætti að takast að bæta metið. Salóme Þórisdótt- ir, Æ, verður að líkindum þriðja. 400 m. bringusund karla. Leiknir Jónsson, Á, sigrar ör- ugglega, en skemmtileg keppni ætti að verða á milli Gests Jóns- sonar, Á, og Guðjóns Guðmunds- sonar, ÍA, en það einvígi er lík- legt að Guðjón vinni. 99 1 ít Var „lukkutröll" Ár - manns gegn Haukum Eftir að hafa beðið í 40 mín. eftir línuverði gátu Ármann og Haukar hafið leik í 2. deild. Leik urinn byrjaði kl. 21,15 (átti að byrja kl. 20.30), og varð því hálf- gerð „Miðnæturknattspyrna“ leik- in og endaði hún 2:2. öll mörk leiksins voru skoruð í fyrri hálfleik, sem Haukar áttu meira í. Fyrir Ármann skoraði Bragi Jónss., á 12. og 42. mín., en fyrir Hauka Jóhann Larsen á 22. 02 30. mín. Ármenningar áttu meira í síðari hálfleik, og oft munaði mjóu. Hefði það verið ósanngjarnt ef Haukar hefðu skorað á síðustu mín. leiks- ins, en þá áttu þeir skot i stöng — sögðu Ármenningar að „Lukku tröllið Gormur I.“, sem fékk að hanga í neti Ármanns í þessum fyrsta leik þeirra, hafi þar verið vel á verði. Haukar Oa Ármann leika svip- aða knattspyrnu — gefa stungu- bolta fram á miðherjana Jóhann og Braga, sem eru mjög sprett- harðir og markheppnir, fyrir bragðið verður lítið um samspil — meira um hlaup og „kílingar". Veikustu hliðar liðanna eru bakverðirnir og útherjarnir — því fór sem fór — spilað var al- gjörlega á miðjunni. Og gætu lið- in þess vegna spilað á „hlaupa- braut“! Ármenningar hafa betri einstaklinga — Haukar samrýmd- ara lið. — SOS. 2. DAGUR. 100 m. flugsund kvenna. í þessari grein verður hart bar- izt um titilinn á milli methafans Guðcnundu Guðmundsdóttur og Lísu R. Pétursdóttur, ef marka má þær fréttir er borizt hafa af henni, en hún æfir í Bandaríkjun- um. Við spáum Guðmundu sigri, og vonandi tekst henni að bæta met sitt. Ingibjörj Haraldsdóttir, Æ, verður þriðja. 200 m. bringusund karla. Leiknir sigrar örugglega og bæt ir met sitt í greminni. Guðjón verður annar eftir skemmtilega keppni við Gest. 400 m. skriðsund kvenna. Vilborg Júlíusdóttir, er örugg með íslandsmeistaratitilinn í þess- ari grein og ætti, ef henni tekst vel upp, að bæta met sitt, þrátt fyrir enga keppni. Salóme verður önnur eftir nokkra keppni við Elínu Gunnarsdóttur, Self. 200 m. baksund karla. Hafþór Guðmundsson, KR, sigr ar, en Páll Ársælsson, Æ, verð- ur annar. Þriðji verður sigurveg- arinn í 100 m. baksundi á Lands- mótinu, Stefán Stefánsson, UBK. ............. .............., Við spáum sundfólki Ægis góðum árangri á sundmoistaramótinu,, sem fram fer um helgina. Á myndinni er þjálfari Ægis, GuSmundur Harðarson, ásamt Helgu Gunnarsdóttur, en henni spáum við sigri í 100 og 200 metra bringusundi. 200 m. fjórsund kvenna. 1 þessari grein munu þær Lísa og Guðmunda berjast aftur um tit- ilinn. Líklegt er að Lísa vinni þessa grein, en Guðmunda fylgir fast á eftir. Um þriðja sætið keppa þrjár stúlkur, og er líklegt að Ingibjörg hreppi það. 100 m- skriðsund karla. Keppnin í þessari grein verður skemmtileg sem endranær. Við spáum Finni Garðarssyni sigri og meti. Guðmundur Gíslason verð- ur annar, en keppnin um þriðja sætið verður mjög hörð á milli Gunnars Kristjánssonar og Sig- urðar Ólafssonar, Æ. 100 m. bringusund kvenna. Þessa grein sigrar Helga Gunn- arsdóttir örugglega, en keppnin um 2.—4. sætið mun standa á milli Ingibjargar Haraldsdóttur, Æ, Guðrúnar Erlendsdóttur, Æ, og Guðrúnar Magnúsdóttur, KR. Við spáum að röðin verði sú sama og þær eru taldar upp hér að framan. 200 m. flugsund karla. Guðmundur Gíslason sigrar, en sennilega bætir hann ekki met- ið, vengaþ ess, hve stutt livíldin verður frá 100 m. skriðsundi. Gunnar Kristjánsson verðu rann- Framhald á bls. 10. I I l SPARISJÓÐUR VÉLSTJÓRA hefur flutt starfsemi sína í nýtt húsnæði að Hátúni 4ay „Norðurver“ (á horni Laugavegs og Núatúns). Afgreiðslutími kl. 12,30-18,00; föstudaga kl. 12,30-19,00. Vér bjúðum viðskiptavinum vorum upp á alla aimenna bankaþjónustu og næg bifreiðastæði. Sími: 17674 - 16593. I **<**** sjré'é'írrarrs'f'S' Wé

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.