Tíminn - 11.08.1971, Blaðsíða 5
MTÐVIKUn /VGUR 11. ágúst 1971.
TIMINN
5
MEÐ iÍORGUN
KAFFiNU
'r
— Þelta er l fyrsta sinn, sem
ég er kosin fegurðardrottning.
Séra Friðrik lét sér rnjög
annt um drengi eins og þjóð-
frægt er. Allir þroskuðust af
umgengni við hann. Ekki van-
rækti hann vangefna drengi. Af
alúð umgekkst hann þá og er
furðulegt hvað uppeldisaðferð-
ir hans hafa getað komið sum-
um þeirra til mikilla mannvirð-
inga. Séra Friðrik kom upp sum-
arbúðum fyrir drengi í Kaldár-
seli og Vatnaskógi. Þar dvöldu
venjulegir drengir í nokkur sum
ur. Var útvist þeirra þar kall-
aður skógargangur og þeir skóg-
ármérín.' Enginn lærisveinn séra
Friðriks hefir sýnt sumarbúð-
unum meiri rækt en Þórður
Möller yfirlæknir, og er öllum
K.F.U.M.-drengjum það velkunn
ugt.
Svo var það á íslandssögu-
prófi í einum barnaskóla borg-
arinnar í vor, að í einni spurn-
ingunni var spurt: Nefnið 3
fræga kappa, sem sættu skógar-
gangi (útlegð) ? Flestir svöruðu,
Grettir, Gísli og Hörður, en í
bekknum var einn K.F.U.M.-
drengur ug hljóðaði svar hans
SVO:
„Þórður Möller 39 ár, Fjalla-
Eyvindur 28 ár og Grettir í 19
ár.“
1 útgerðarbæ einum var dug-
legur og áhugasamur líkkistu-
smiður. Eitt sinn fór læknir um
borð í togara og kom til baka
og var sá, sem læknirinn vitjaði
borinn í land í sjúkrabörum.
Á bryggjunni var likkistusmið-
urinn mættur og spurði, hvort
sá í börunum væri látinn eða
slasaður. Hann var sagður illa
slasaður: Þá spurði líkistusmið-
urinn lækninn, hvort ekki væri
samt vissara fyrir hann, að taka
málið af honum strax.
Ungur maður giftist óvenju-
lega ríkri heimasætu. Vinir
hans óskuðu honum innilega til
hamingju og nefndu um leið
mikil auðævi, konnunar. Vin-
urinn leit á þá kampakátur og
mælti:
,,Því skyldi maður vera að
giftast fátækum konum, þegar
ríkar eru jafngóðar.“
Eitt sinn stóð í niðurlagi lög-
regluskýrslu. Við handtökuna
kallaði kærði undirritaðan lög-
regluþjón asna. Ég tjáði honum
að svo væri ekki. Þetta tilkynn-
ist yður hér með herra lögreglu-
stjóri. ... ||
— Hver gat eigiulcga blásið
þig upp, manni?
DENNI
Vertu ekki að hafa fyrir þvi
að leggja á borðið fyrir mig,
því ég er farinn strax og ég hcf
f**^ M A I____________________AUSI náíí n,^r 1 pnninga fyrir fari
eitthvað í burtu héðan.
vfmuMimiuiniHiituiitMtiiiiMiituuuiMumintiniiimiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiimiiiMiiiitiiiuiiimiiiiitiii
Einn og einn koma flóttamenn
af Gyðingaættum aftur til
þeirra staða, sem þeir dvöldust
á á dögum nazistaofsóknanna í
Evrópu. Sumir koma þó ekki
aftur heldur hafa valið sér, að
gleyma því sem liðið er, eða
sótt hafa bersnskuslóðirnar er
Anna Freud. Hún kom nýlega
til Vínarborgar eftir 33 ára
fjarveru. Hún varð að yfirgefa
heimili sitt með Sigmund Freud
föður sínum í Austurríki þegar
Hitler innlimaði Austurríki í
Þýzkaland árið 1938. Freud var
að hann fór til Englands. Anna
Freud hefur fylgt í fótspor föð-
ur síns og lagt mikla stund á
sálarfræði og sálfræðilegar at-
huganir. Hún kom til Vínar til
þess að flytja erindi á 27. þingi
sálfræðinga, en hún er einmitt
varaformaður alþjóðasambands
þeirra.
i’eyna þ.að ,að kosti. prófessor í Austurríki þegar
Meðai þ'éirfá'SíðuátiiAsifiri heini i þetta .gcrðist, en dó árið eftir
4« \i0 W Mi >' ;.T
I
i
í
- * - * -
Þrír ungir Frakkar undirbúa
nú ferð umhverfis jörðina í
45 feta löngum bát, sem þeir
hafa sjálfir smíðað í heimaborg
sinni skammt frá Saint Tropez.
Þetta er sagður fyrsti stein-
steypti og stálbenti báturinn í
Frakklandi af þessari stærð,
þótt bátar hafi verið smíðaðir
með sama hætti í öðrum lönd-
um, og það meira að segja
stærri en þessi. Þremenningarn-
ir hafa ákveðið að leggja strax
af stað er báturinn hefur fengið
skráningu, en hann liggur nú við
festar í höfninni í La Roquie.
14 ára piltur og tveir félagar
hans 16 og 17 ára, brutust inn
hjá Kókakóla í Odensc og kom-
ust þar í peningaskáp fyrirtæk-
isins og höfðu á brott með sér
25 þúsund kr. danskar. Allir
voru piltarnir af barna heimili
þarna skammt frá, og höfðu
þeir komizt í brottu án þess að
um þá væri vitað. Ekki reyndist
sérlega erfitt fyrir piltana að
stela úr péningaskápnum, því
lykilinn að honum fundu þeir f
ólæstri skrifborðsskúffu.
Hver skyldi trúa því, að skip-
stjórinn á póstbátnum milli
Nekseleyjar og Hölbæk hafi
ekki fengið einn einasta frídag
í 25 ár. Skipstjórinn heitir Fred
Slots, og hefur nú hótað að
hætta siglingum á þessari áætl-
unarleið sinni. -Leggist ferðir
hans niður verða 26 íbúar eyjar
innar sambandslausir við um-
heiminn, svo ekki sé talað um
aila þá. sem venjulega hafa
lagt leið sína til eyjarinnar á
sumrin til þess að eyöa þar
sumarfríinu sínu. Slots ætlar
að hætta siglingunum nema því
— ★ — ★ -T .
aðeins. að eitthvað verði gert
til þess að bæta aðstöðuna i
höfninni á eyjunni, en höfnin
er nú í hinu mestu niðurnýðslu
svo ekki sé meira sagt, og varla
hægt að sigla lengur inn í hana.
Slots á svo sannarlega fyrir því
að fá svolítið frí, en kannski
verður höfnin ’agfærð, og þá
heldur hann trúlega áfram sigl-
ingunum í önnur 25 ár án sum-
arleyfis.
— ★ — ★ —
- ★ - ★ -
Þjófar sérhæfa sig oft á ýmsa
lund. Nýlega var handsamaður
18 ára gamall piltur í Hvidovre
í Danmörku, sem hafði lagt
stund á það í nokkurn tíma að
stela hjólum undan bílum og
sömuleiðis útvörpum úr bílum.
Hafði honum tekizt að safna að
sér töluverðu magni af þessu
hvoru tveggja áður en upp
komst um hann og lögreglan
náði honum.
— ★
★ —
ðspt
Smástelpan hér á myndinni
er aðeins tveggja og hálfs árs
gömul. Hún heitir Eva og á
heima í Ólympiuborginni Miinc-
hen. Eva setti nýlcga heims-
met barna með því að synda
26.5 metra kafsund á 42.6
sokúndum. Hún er geysimikil
sundkona og syndir oft í meira
en hálftíma samfleytt. Þjálfari
Evu og móðir hennar eru mjög
ánægð með árangur hennar. Eva
hefur sjálf gaman af að skoða
litmyndir og á kvöldin, þegar
hún fer að sofa tekur hún dúkk-
una sína með sér í rúmið ná-
kvæmlega eins og önnur litíl
börn gera.