Tíminn - 19.08.1971, Qupperneq 1

Tíminn - 19.08.1971, Qupperneq 1
#£*****w**in*** Ekki búizt við mikilli síld við Suðurlandið, — segir Jakob Jakobsson, fiskifræðingur. 600 manns í Öskju ÞÓ-Reykjavík, miðvikudag. í dag liöfðum við samband við Jón Kristjánsson á Egils- stöðum og spurðum hann um umferðina á Öræfum þar eystra. Sagði Jón, að umferð á Öræfunum hefði verið geysi- mikil í sumar. Síðan sæluhús- ið var opnað í Krepputungu, hefur það verið niikið notað og um ferðir inn að Öskju er það að segja, að þar hafa verið allt að 600 manns í einu. Síðan sæluhús Ferðafélags- ins var opnað í Krepputungu hefur verið þangað mikil um- ferð, en vegurinn þangað iigg ur úr Möðrudal, gegnum Marð- ardal, yfir brúna á Kreppu, en Kreppa er kvísl Jökulsár á Fjöllum, og þaðan inn í Krepputungu. Frá sæluhúsinu er skammt inn í Kverkfjöll og Hvannalindir, og má búast við því að á næstunni verði mikil umferð á þessa fögru staði, en mönnum er ráðlagt að fara ekki mikið innfyrir sæluhúsið á bílum, þar sem gróður er mjög viðkvæmu. á þessum slóðum. Vegalengdin frá Möðrudal og inn í Kreppu- tungu er eitthvað á annað hundrað km. Mjög mikill ferðamanna- straumur hefur verið í sumar inn í Öskju, sagði Jón, t.d. var það fyrir tveimur vikum, að um 600 manns höfðu verið þar. Var fólkið í 11 langferðabílum og fjöldanum öllum af fólks- bílum. Gizkað er á, að þá hafi verið um það bil 200 tjöld við Öskju og Herðubreiðarlindir. f haust eru áformaðar ferðir frá Ferðafélaginu uppá Snæ- fell og inn í Krepputungu og verður þá unnið meira að sælu húsinu. KJ—Reykjavík, miðvikudag. Það mun vera almennt álit þeirra sem voru á blaðamanna- fundinum, sem Einar Ágústsson utanríkisráðherra hélt á Britannia hóteli í dag, að þar hafi vel verið haldið á málum, og öllum fyrir- spurnum svaraS fljótt og vel. Ekk ert hefur verið látið uppi um við- ræður þeirra Einars Ágústssonar utanríkisráðherra og Godber að- stoðarutanríkisráðherra, en eftir Viðræður í janúar NTB—London, miðvikudag. Einar Ágústsson utanríkisráð- herra sagði á blaðamannafundi í London í dag, að samningaviðræð- ur við Bandaríkin, um brottflutn- ing bandaríska herliðsins frá Kefla víkurflugvelli, hæfust í janúar 1972. — Ríkisstjórnin hefur brottflutn inginn til gaumgæfilegrar athugun- ar, og verður búin að kanna málið mjög vel, áður en sezt verður að samningaborðinu, segir NTB að ráðherrann hafi sagt, og ennfrem- ur: — Við höfum ekkert á móti Bandaríkjamönnum, en við erum eins og aðrar þjóðir, sem ekki hafa her, að vilja ekki hafa erlendan her í landinu. viðtökum þeim sem íslendingam- ir hafa fengið hjá brezku stjórn- inni, þá hafa viðbrögð hennar ver ið vinsamleg, og alls ekki gætt neinna öfga í sjónarmiðum henn- ar. Ræddu saman í einn og hálfan tíma Viðræður ráðherranna stóðu í eina og hálfa klukkustund, og að þeim loknum var fslendingunum boðið til hádegisverðar í Lancaster house, sem er skammt frá Green Park, en kunnugir segja það í hæsta máta óvenjulegt, þegar um er að ræða „heit“ mál eins og útfærslu fiskveiðilögsögunnar úr 12 í 50 mílur. Sagði Páll Heiðar Jónsson í London, að það eitt mætti taka serfi vinsemdarmerki brezku stjórnarinnar, og það mitt í öllu því fjaðrafoki, sem nú er í London, vegna efnahagsað- gerða Nixons Bandaríkjaforseta. Fyrir blaðamannafundinn í dag, þar sem mættir voru 60—70 blaða menn frá blöðum og fréttastofn- unum í London, var gefin út frétta tilkynning, þar sem haft var eftir Einari Ágústssyni, að útfærslan væri nauðsynleg, sanngjörn, eðli- leg, heiðarleg og réttlát, og síðan voru færð nánari rök fyrir þess- um sf ðhæfingum. Á blaðamannafundinum voru utanríkisráðherra Ágústssonar, Pétur Thorsteinsson, ráðuneytisstjóri, Ingvi Ingvars- son, skrifstofustjóri, Niels P. Sig- ursson, nýskipaður ambassador ís- lands í London, Hans G. Andersen ambassador, sem kom frá Genf, og Eiríkur Bendix, sem kynnti íslendingana í upphafi. Framhald á bls. 14. Einar Ágústsson, utanríkisráðherra fer ásamt auk fylgdarliði frá London tii Bonn í dag Einars með að bátarnir verði fljótir að veiða upp í 25 þúsund tonnin, en ekki þýðir að tala um meiri veiði, þar sem stofninn er svo litill, að hann þolir ekki meiri veiði. Aðspurður sagði Jakob, að ómögulegt væri að segja, hvar síldin mundi halda sig við Suður land í ár. f fyrra hefði mesta veiðin verið við Surtsey, en í hitteðfyrra hefði veiðzt mest í Breiðamerkurdýpi. ENGIN SKREIÐ TIL AFRÍKU OÓ-Reykjavík, miðvikudag. Útlitið með skreiðarsölu til Nígeríu hefur ekkert farið batn- andi og er markaðurinn þar al- gjörlega lokaður, að minnsta kosti fram til 1. apríl næsta ár. Bragi Eiríksson, framkvæmda- stjóri Samlags skreiðarframleið- enda, sagði Tímanum, að enn sem komið er, væri ekkert vitað hvað skeði í þeim málum 1. apríl á næsta ári, en þangað til er inn- flutningsbann á skreið til Níger- íu, og hvort banninu verður þá af- létt eða það framlengt, er ekki hægt að segja um að svo stöddu. Eins og stendur munu vera til í landinu milli 3000 og 4000 lestir af skreið. Er alltaf selt eitt- hvað magn til Ítalíu og gengur það sæmilega, og er t.d. að fara farmur þangað þessa dagana. Lít- ið sem ekkert hefur verið fram- leitt af skreið hér á landi í ár. Þótt miðað sé við að framleiða skreið eingöngu á markað á Ítalíu er alltaf eitthvað magn sem ekki nær lágmarksmati, til að hægt sé að selja það til Ítalíu, og þegar Afríkumarkaðurinn er algjörlega lokaður, verður sú vara óseljan- leg. Joseph Godber, a'ðstoSarutanríkisráðherra, býður Einar Ágústsson, utanríkisráðherra, velkominn i brezka utan- ríkisráSuneytið í gaermorgun. (Simamynd UPI) ÞÓ-Reykjavík, miðvikudag. — Við búumst ekki við miklu síldarmagni við suðurströndina í haust, annars er lítið hægt að segja um það ennþá, sagði Jakob Jakobsson, fiskifræðingur í við- tali við blaðið í gær. — Það, sem af er, hefur lítið sem ekkert verið leitað að síld við Suðurland, en í næstu viku fer síldarleitarskipið Ámi Friðriksson til sildarleitar fyrir sunnan land. Jakob sagði, að rannsóknarskip hefðu farið nokk- uð víða á þessu svæði í sumar og var það í sambandi við ungviðs- rannsóknir. Ekki urðu skipin vör við mikla sild, en þó er það ekki að marka, því ekki var lögð áherzla á síldarleit þar. Hámarksveiði á Suðurlandssíld er núna 25 þús. lestir á ári, en í fyrra veiddust ekki nema á milli 17 og 18 þús. tonn. Núna þegar veiðin hefst í september má búast við að mikill fjöldi báta muni stunda síldveiðar við Suður- land, þar sem veiði er bönnuð í Norðursjó út september. Ef ein hver veiði verður, þá má reikna Bretar tóku máli íslendinga velvilja og skilningi

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.