Tíminn - 19.08.1971, Page 6
‘S
TIMINN
FIMMTUDAGUR 19. ágúst 1971
OLD ER NU LIÐIN
FRÁ STOFNUN
ÞJÓD VINAFÉLA GSINS
Hið íslenzka þjóðvinafélag var
stofnað 19. ágúst 1871, og voru
stofnendur þess 17 þjóðkjörnir al-
þingismenn. Félagsstofnunin hafði
átt sér nokkurn aðdraganda, fyrst
á alþingi 1869 fyrir forgöngu
Tryggva Gunnarssonar og síðar á
sýslufundi Suður-Þingeyinga 8.
júní 1870, þar sem „nokkrir heið-
ursmenn ... tóku sig saman um að
hvetja landsmenn til að sýna í verk-
inu, að þeir hefðu það þrek ag
samheldi að vera sjálfstætt þjóð-
félag og vinna sér þau réttindi,
sem þar til krefðist að halda þeim“.
Tilgangur félagsins var þannig
frá upphafi stjórnmálalegur, og
fyrsti formaður þess var Jón Sig-
urðsson. Félagið efndi t. a. m. til
þjóðfundar á Þingvöllum 1873, og
sumarið 1874 stóð það fyrir þjóð-
hátíð þeirri, er haldin var í minn-
ingu þúsund ára byggðar á íslandi.
Félagið sneri sér þó brátt jafn-
framt að útgáfu ýmissa rita, og eru
þar kunnust Andvari (1874—), er
leysti af hólmi Ný félagsrit Jóns
Sigurðssonar og fél. hans (1841—
73), og Almanak (1875—). Kjarni
þess var íslandsalmanak það, er
Kaupmannahafnarháskóli hafði gef
ið út allt frá árinu 1873, en við
MUNIÐ FLÓTTAFÓLKIÐ
FRÁ PAKISTAN
'A' Tekið á móti framlögum í bönkum, sparisjóðum,
póstafgreiðslum og í skrifstofu félagsins,
Öldugötu 4.
★ GÍRÓNÚMERID ER 90-000.
RAUÐI KROSS ÍSLANDS
Frá Vélskóla íslands
Inntökupróf í 2. stig verður miðvikudaginn 1.
sept. kl. 9.30.
Innritun fer fram dagana 2. og 3. sept.
Þeir, sem hafa sótt um skólavist, þurfa að mæta
til innritunar eða láta mæta fyrir sig eða hringja
í síma 23766.
Skólastjóri.
það var svo aukið ýmsu efni, er
verið gæti alþýðu manna til gagns
og fróðleiks.
Einstök rit, er félagið hefur gef-
ið út, voru framan af langflest um
hagnýt efni, til þess ætluð að glæða
áhuga á atvinnu- og efnahagsmál-
um og hvers konar framförum í
þeim efnum.
Af þeim mörgu ritum, er Hið
íslenzka þjóðvinafélag hefur gefið
út, skulu hér nokkur talin:
Mannkynssöguágrip eftir Pál Mel-
steð, 1. og 2. hefti (1878—79).
Dýravinurinn, alls 16 hefti (1885
—1916).
Um frelsið eftir John Stuart Mill
íþýðingu Jóns Ólafssonar (1886).
Hvers vegna? Vegna þess eftir Hen-
ri de Parville, 1.—3. hefti (1891
—93).
Réttarstaða íslands eftir Einar Arn-
órsson (1913).
Hið íslenzka þjóðvinafélag 1871—
19. ágúst—1921. Stutt yfirlit eftir
Pál Eggert Ólason (1921).
Mannfræði eftir R. R. Marett í þýð
ingu Guðmundar Finnbogasonar
(1924).
Vamarræða Sókratesar eftir Plat-
on í þýðingu Steingríms Thor-
steinssonar (1925).
Jón Sigurðsson eftir Pál Eggert
Ólason I—V (1929—1933).
Býflugur eftir M. Maeterlinck í
þýðingu Boga Ólafssonar (1934).
Sjálfstæði íslands 1809 eftir Helga
P. Briem (1936).
Örnefni f Vestmannaeyjum eftir
Þorkel Jóhannesson (1938).
Sýnlng á rltum Þjóðvinafélagsins er nú að Skálholtsstíg 7.
Reykvíkingar -
Ferðafólk
Matstofa Náttúrulækn-
ingafélagsins, Kirkjustræti
býður yður í hádeginu
ýmis konar heita græn-
metisrétti, með rifnu hrá-
meti og fleira, súpur og
grauta. Á kvöldin einnig
heimabökuð brauð.
Á sunnudögum glæsilegt
hlaðborð.
MATSTOFA N.L.F.R.
Bréf og ritgerðir Stephans G.
Stephanssonar I—IV (1938—48).
Konur á Sturlungaöld eftir Helga
Hjörvar (1967).
Tryggvi Gunnarsson (1835—
1917) tók við af Jóni Sigurðssyni,
er lézt 1879, og var forseti Þjóð-
vinafélagsins 1880—1911 og aftur
1914—17. Hann annaðist í samfellt
30 ár ritstjórn Almanaksins og aft-
ur þrjú ár síðar. Hefur enginn mað-
ur unnið félaginu slíkt gagn sem
hann, enda kom mönnum jafnan
hann í hug, er þeir heyrðu félags-
ins getið, þótt hér væri einungis
um eitt viðfangsefni þessa þjóð-
kunna athafnamanns að ræða. Það
er því ekki ófyrirsynju, að póst-
stjómin gefur í tilefni aldarafmælis
Þjóðvinafélagsins út frímerki með
mynd Tryggva Gunnarssonar auk
frímerkis með nierki félagsins
sjálfs.
Aðrir forsetar félagsins en þeir
Jón og Tryggvi hafa verið:
Jón Þorkelsson þjóðskjalavörður
1912—13.
Benedikt Sveinsson alþingismaður
1918—20.
Dr. Páll Eggert Ólason 1921—34.
Pálmi Hannesson rektor 1936—39.
Jónas Jónsson alþingismaður 1940.
Bogi Ólafsson yfirkennari 1941—56.
Þorkell Jóhannesson háskólarektor
1958—60.
Miðstöð viðskipta
austurs og vesturs
Kaupstefnan-Leipzig
Þýzka Alþýðu-
lýðveldið
5.-12. 9.1971
Á alþjóðlega tækni-sýningarsvæðinu:
Efnavörur — Efnaverksmiðjur — Plastvélar —
Pappírsgerðarvélar — Prent- og bókbandsvélar
— Bifreiðahlutir — Brunavarna-vagnar —
Trésmiðavélar — Tæki fyrir lækninga- og
efnarannsóknastofur — Kennsluáhöld og
skólahúsgögn — Húsgögn — Tómstunda- og
iþróttatæki — Ýmsar samsýningar erlendra rikja
— Útflutningsskrifstofur.
A alþjóðasýningunni í miðborginni:
Neyzluvörur í 22 vöruflokkum.
Kaupstefnuskirteini og upplýsingar um ferðir,
m. a. beinar ferðir frá Kaupmannahöfn,
fást hjá umboðinu
KAUPSTEFNAN — REYKJAVÍK, PÓSTHÓLF 13,
— SlMAR: 24397 OG 10509.
Armann Snævarr háskðlarektor
1962—67.
Finnbogi Guðmundsson landsbóka-
vörður 1967 og síðan.
Auk hans eiga nú sæti í stjóm
félagsins þeir Bjami Vilhjálmsson
þjóðskjalavörður varaforseti, Einar
Laxness menntaskólakennari, Jón-
as Kristjánsson forstöðumaður
Handritastofnunar íslands og dr.
Þorsteinn Sæmundsson, meðstjóm-
endur, en Þorsteinn hefur verið rit-
stjóri Almanaksins síðan 1964.
Arið 1940 var efnt til samvinnu
Hins íslenzka þjóðvinafélags og
Bókadeildar Menningarsjóðs um
bókaútgáfu, og var þá gert ráð fyr-
ir, að félagið gæfi út þrjár bækur
á ári, en bókadeildin í forsjá
Menntamálaráðs fjórar. Reyndin
hefur þó orðið sú, að bókaútgáfan
hefur færzt að miklum mun á
hendur forráðamanna Menningar-
sjóðs, enda hafa þeir haft mestöll
fjárráðin.
Arið 1959 var Andvari gerður að
sameiginlegu málgagni Hins ís-
málaráðs, breytt um brot og hann
lenzka þjóðvinafélags og Mennta-
gefinn út í þremur heftum á ári.
Ritstjórar skyldu verða tveir, einn
frá hvorum aðila. Árið 1968 var
Andvara þó breytt að nýju í ársrit.
Ritstjórar Andvara em nú Finn-
bogi Guðmundsson og Helgi Sæ-
mundsson.
Andvari 1971 verður tileinkaður
aldarafmæli Hins íslenzka þjóð-
vinafélags. Verður þar rakin saga
en ennfremur birtar ýmsar greinar
félagsins síðari 50 árin, 1921—71,
um Jón Sigurðsson.
Þá er ákveðið, að út komi á þessu
ári á vegum Þjóðvinafélagsins
fyrsta bindi úrvals bréfa til Steph-
ans G. Stephanssonar.
Sýning á ritum Þióðvvafélagsms
mun standa næstu daga í husnkynn-
um Bókaútgáfu Menningarsjóðs og
Þjóðvinafélagsins að Skálho’tsstí?
7. og verður sýnmgin opin á sömu
tímum og verzlun útgáfunnar,
mánud.—föstud kl. 9—12 og 13—
18. ''nnfr-m'”' laugardaginn 21. ág-
úst kl. 14—19.
(Frétt frá stjórn
Hins ísl. þjóðvinafélags)