Tíminn - 19.08.1971, Qupperneq 12

Tíminn - 19.08.1971, Qupperneq 12
 Í2 IÞROTTIR TIMINN ÍÞRÓTTIR FIMMTUDAGUR 19. ágúst 1971 Haukar í úrslit? - á móti Fram eða FH Á laugardaginn hélt útihand- hnattleiksmótið áfram og voru þá leiknir tveir spennandi leikir. Haukar unnu ÍR og Valur Þrótt. — Einnig voru leiknir tveir leik- ir á þriðjudagskvöldið. Valur vann Gróttu og Fram sigraði Vík- ing. Báða dagana var rigning og setti blautur völlurinn sinn svip á Icikina. Leikur ÍR-inga gegn Ilaukum er skemmtilegasti leikur keppn- innar fram að þessu. í hálfleik stóð 10:6 fyrir Hauka, en í síðari hálfleik byrjuðu ÍR-ingar með miklum látum og náðu að jafna 12:12 og komust yfir 12:13. Þá skorar Stefán Jónsson tvö mörk og kemur Haukum yfir 14:13 og rétt á eftir bætir Viðar 15. mark inu við. Þetta líkar Ágúst „ÍR- risa“ ekki og skorar tvö stórglæsi- leg mörk fyrir ÍR og leikar eru jafnir 15:15 og ein mín. eftir. Þá er dæmt víti á ÍR sem Viðar skor- ar úr, 16:15 og sigurinn varð Hauka. Markhæstur og bezti maður Hauka var Stefán, skoraði hann 6 mörk. Hjá ÍR skoruðu Vilhjálm- ur Sigurgeirsson og Ágúst Svavars son 4 mörk hvor. Ungt Þróttarlið kom á óvart gegn lélegu Valsliði og höfðu yfir í hálfleik 9:8. í síðari hálf- leik byrjuðu þeir að skora 10:8, urðu of bráðir og misstu stöðuna í 10:10; en náðu rétt á eftir aftur forustu 13:11. Þoldu þeir þá ekki spennuna sem forustunni fylgdi og úthaldið fór að gefa sig, og töpuðu þeir leiknum 13:16. Á þriðj udagskvöldið léku Vals menn aftur og sigruðu þeir þá Gróttu með yfirburðum 26:14. Það kemur á óvart hvað Valsliðið er ósamstillt, miðað við hvað það hefur æft vel í sumar. Virðist enginn maður í liðinu geta ógnað með langskotum. Verða þeir að koma því í lag fljótlega ef þeir ætla að komast langt í vetur. Framarar komu sterkir til leiks á þriðjudagskvöldið og unnu Vík ing stórt 26:16. Björgvin Björg- vinsson og Sigurður Einarsson léku nú með og styrktu þeir liðið mikið. Leikurinn var jafn framan af, en þegar tók að líða á hann tóku Framarar öll völd í leiknum. Það var aðeins einn Víkingur sem veitti viðnám — var það Einar Magnússon, sem aldrei hefur ver- ið betri — enda æft vel. Hjá Fram vakti athygli Guðjón Er- lendsson í markinu og Pálmi Pálmason, sem er vaxandi leik- maður. Þegar leiknum var að ljúka var orðið svo skuggsýnt að knötturinn sást varla — mætti láta leikkvöld in hefjast hálftíma fyrr framvegis. I kvöld verða leiknir tveir leikir: Haukar — Þróttur og KR — FH. Haukar þurfa aðeins jafntefli til að komast í úrslit á móti Fram eða FH. —sos. í dag var Golfklúbbi Reykjavíkur afhent vegleg gjöf frá álverinu í Straumsvík. Eru þa3 fimm bikarar. Keppa á um þessa bikara á meistaraflokki, öSrum og þriðja flokki. Ennfremur var bikar aetlaður kvennaflokki til að keppa um. Ráðgert er, a3 keppni um þessa veglegu gripi fari fram 25. og 26. ágúst naestkomandi, og ber keppn- in heitið Isal-keppnin. Ráðgert er, að nokkuð á annað hundrað manns af öllu landinu taki þátt í keppninni. — Myndin er tekin, þegar forstjóri álversins, Ragnar S. Halldórsson, afhenti formanni Golfklúbbs Reykjavíkur, Svani Friðgeirssyni, bikarana. Með þeim á myndinni eru frá vinstri: Ólafur Þorsteinsson, Vilhjálmur Ólafsson, Egill Snorrason, dr. Bosshard og Ph. Miiller. (Tímamynd Gunnar) Vestmanneyingar efstir í 1. deild Leik Fram og ÍBV í 1. deildar- keppninni, sem fram fór í Vest- mannaeyjum í gærkvöldi, lauk með sigri Vestmannaeyinga 4—1. ÍBV er nú efst í 1. deildarkeppn- inni með 16 stig. Þar sem gerðar hafa verið tvær breytingar á tillögu að aðal- skipulagi fyrir Selfoss, verður tillagan í núverandi mynd til sýnis á skrifstofu Selfosshrepps næstu sex vikur. Hér með er auglýst eftir athugasemdum við tillöguna svo- fellda, og þurfa þær að hafa borizt til hreppsnefndar Selfoss- hrepps í seinasta lagi 27. sept. 1971. Athygli er vakin á því að fyrri athugasemdir eru úr gildi fallnar, og verða að endurnýjast, ef hlutaðeigendur óska þess. Selfossi, 16. ágúst 1971 Sveitarst{óri Selfosshrepps. Landskeppni Dana og fslendinga, úrslih Danir sipðu með nokkrum yfirburðum ET-Reykjavík. - Landskeppni íslendinga og Dana í sundi lauk í gærkvöldi. Danir sigruðu í landskeppninni með 152 stigum gegn 131. Eftir fyrri dag keppninnar höfðu Danir 4 stiga forustu. Þeir juku forskotið um tvö stig í gær morgun, er keppt var í 800 og 1500 m. skriðsundum kvenna og karla. — I gærkvöldi gekk íslend ingunum ekki eins vel og í fyrra- kvöld. Danir unnu tvöfaldan sig- ur í tveimur greinum en fslend- ingar í einni. Þá sigruðu Danir í báðum boðsundunum. Helga Gunnarsdóttir vann 100 m. bringusund og Guðjón Guð- mundsson sama sund. Hins vegar Framhald á bls. 14 Ingunn setti met - Erlendur 56,54 m. ÖE—Reykjavík. EM-fararnir íslenzku kepptu á móti í Finnlandi í fyrrakvöld og náðu allgóðum árangri. Ingunn Einarsdóttir setti nýtt íslenzkt met í 800 m. hlaupi, hljóp á 2:27,0 mín., sem er 1,9 sek. betra en met Ragnhildar Pálsdóttur. Ing unn varð þriðja í hlaupinu. Erlendur Valdimarsson varð /annar í ktringlukasti, kastaði 56,54 m., sem er bezti árangur hans í greininni á árinu. Sigur- vegarinn kastaði 56,92 m. Loks tók Bjarni Stefánsson þátt í 100 m. hlaupi og varð þriðji á. 11,1 sek., en sigurvegarinn hljóp á 10,9 sek. Sólun HJÓLBARÐAVIÐGERÐIR |1 snjómunstur veitir góða spyrnu w í snjó og hólku,. önnumst allar viðgerðir hjólbarða með fullkomnum tækjum. Snjóneglum hjólbarða. GÓÐ ÞJÓNUSTA. — VANIR MENN. BARÐINN HF. Ármúla 7. — Sími 30501. — Reykjavík.. Utanför UBK 6 unglingar frá Umf. Breiða- blik í Kópavogi, eru nú á förum til Þrándheims til að taka þátt í hinu árlega íþróttamóti vina- bæjar Kópavogs. Þeir sem keppa að þessu sinni eru: Björg Kristjánsdóttir, langst., 100 m. grindahl. Kristín Björnsdóttir, hást., 100 m. grindahl. Böðvar Sigurjónsson. 800 m. hl. Ragnar Sigurjónsson, 3000 m. hl. Einar Óskarsson, 800 m. og 3000 m. hl. Hafsteinn Jóhannesson, spjótk. og hást. Fararstjóri verður Pálmi Gísla- son. Formaður frjálsíþróttadeildar UBK sagðist sannfærður um það, að í þessari ferð yrðu setl 1—3 íslandsmet. íslandsmet í 1000 metra hlaupí kvenna Á síðasta Fimmtudagsmóti FÍRR var sett eitt íslandsmet, Ragnhildur Pálsdóttir, UMSK, hljóp á 3:15.1 mín. og bætti eigið met verulega. Þá hljóp Valþjörn Þorláksson, Á, 110 m. grinda- hlaup á ágætum tíma, sínum bezta, 14.7 sek. Met Péturs Rögn- valdssonar, KR, frá 1957, er 14.6 sek. í 800 m. hlaupi vakti nýliði, Jóhann Garðarsson, Á, verulega athygli fyrir gott hlaup hanp varð þriðji á 2:02.6 mín., sem er hans langbezti tími. Þar er mikið efni á ferð. Ágúst Ásgeirs- son, ÍR, sigraði á 2:01.0 mín.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.