Tíminn - 31.08.1971, Qupperneq 1
Landhelgismálið
lagt fyrir Alþingi
KJ-Reykjavík, mánudag .
í morgun hélt landhelgis-
nefndin fund, og eftir hádegi
í dag var haldin ríkisstjórnar-
fundur um málið. í fréttatil-
kynningu forsæt!sráðuneytis-
ins um fundinn, segir að það
sé skoðun ríkisstjórnarinnar
að uppsögn samningsins verði
Erlendum veiði
skipum fjölgar
ÞÓ—Reykjavík, mánudag.
Erlendum veiðiskipum hefur
fjölgað að mun á íslandsmiðum
síðasta hálfa mánuðinn. Þegar
Landhelgisgæzlan lét fara fram
Framhald á 11. síðu.
tilkynnt með sex mánaða
fyrirvara, og að ríkistjórnin
hafi ákveðið að leggja stefnu
stjórnarinnar í landhelgismál-
inu fyrir Alþingi þegar er það
kemur saman.
Fréttatilkynning ráðuneytisins
fer í heild hér á eftir:
„Ríkisstjórnin hefur ákveðið að
leggja fyrir Alþingi, þegar er það
kemur saman, tillögu til staðfest-
ingar á stefnu stjórnarinnar í
landhcl'gismálinu, þ.á.m. uppsögn
landhelgissamninganna við Breta
og Vestur-Þjóðverja.
Það er skoðun ríkistjórnarinnar
að fullnægjandi sé að samþykkt
/’þingis um uppsögn samning-
anna verði formlega tilkynnt með
6 mánaða fyrirvara.
Jafnframt hefur stjórnin ákveð
ið að ítreka sjónarmið sín í land-
helgismálinu við ríkisstjórnir
Bretlands og Vestur-Þýzkalands.
Reykjavík, 30. ágúst 1971
Forsætisráðuneytið“.
Ráðstefna Stjórnunarfélagsins
Stjórnunarfélag íslands efndi til ráðstefnu á Laugarvatni um sl. helgi um
viðfangsefnið „Markmið og umhverfi atvinnurekstrar". Meðal þeirra, sem
fluttu erindi á ráðstefnunni, sem um 70 manns sátu, var Ólafur Jóhannes-
son, forsætisráðherra, og ræddi hann viðhorf ríkisvaldsins til viðfangsefna
ráðstefnunnar, Myndin er tekin á föstudagskvöld, er forsætisráðherra,
flytur erindi sitt á ráðstefnunni. Nánar er fjallað um erindi Ólafs Jóhannes-
sonar í lelðara blaðsins t dag.
AKVÖRÐUN UM STÆKKUN BÆNDA
HALLARINNAR FRESTAÐ UM SINN
MEÐAN BÆNDUM ER KYNNT ÁFORM UM STÆKKUNINA
AK-Höfn, mánudag.
Aðalfundi Stéttarsambands
bænda lauk hér á Höfn í Horna-
firði um klukkan þrjú á mánu-
dagsnótt. Fundurinn afgreiddi
mörg mál og ályktanir sem síðar
verður getið nánar. Stjórn sam-
bandsins var öll endurkjörin, og
skipa hana: Gunnar Guðbjartsson,
Guðmundur Ingi Tryggvason,
Bjarni Halldórsson, Ingi Tryggva-
son, Vilhjálmur Hjálmarsson. Páll
Diðriksson og Ólafur Andrésson.
Miklar umræður urðu í fundar-
lok um stækkun Hótel Sögu, en
samþykkt var tillaga um að fund-
urinn teldi sér ekki fært að
taka afstöðu til málsins, þar sem
bændastéttinni hefði ekki verið
kynnt það nægilega, og það snerti
hana alla fjárhagslega.
Stéttarsambandsfundurinn hófst
klukkan tíu á laugardagsmorgun.
Fundarstjórar voru kjörnir þeir
Bjarni Halldórsson og Hermann
íslendingaþættir
Tímans fylgja blaðinu
á morgun
Guðmundsson á Eyjólfsstöðum í
S-Múl. Fundarritarar voru þeir
Guðmundur Ingi Kristjánsson og
Ólafur Andrésson.
Gunnar Guðbjartsson formaður
Stéttarsambands bænda, flutti
síðan ítarlega setningarræðu og
skýrslu stjórnarinnar um störf á
árinu, og verður hennar nánar
getið í blaðinu síðar. Sæmundur
Friðriksson, framkvæmdastjór^,
skýrði reikninga sambandsins og
Bændahallarinnar. Rekstrarhagn-
aður Bændahallarinnar á síðasta
ári var 5 milljónir króna, en var
óhagstæður fram til 1968. Rekstur
Hótel Sögu gekk vel. Árni Jónas-
son, erindreki, ræddi nokkur at-
hugunarefni, sem hann hafði haft
með höndum, á árinu, að tilmæl-
um síðasta Stéttarsambandsfund-
Geysir gaus aðfaranótt sunnudags-
ins, eftir að mikilli sápu hafði verið
hellt í hverinn á laugardaginn, og
margir búnir að bíða æðilengi eftir
gosinu þann dag. cáir áhorfendur
voru að þessu næturgosi, en svo
virðist sem hann gjósi helzt á nótt-
unni. Myndin var tekin við Geysi á
laugardaginn, og er Haligrímur
Björnsson verkfræðingur fremstur á
myndinnl að mæla hitann í yfirborð-
inu. (Tímamynd Kári)
ar, um bústærð, fjárfestingu
bænda og tryggingamál bænda.
Síðdegis ávarpaði Halldór E. Sig-
urðsson, landbúnaðarráðh. fund-
inn, og ræddi ýms mál, sem efst
Framhald á bls. 11.
Norræn
mengunar-
ráðstefna
SB—Reykjavík, mánudag.
Fyrstu vikur júnímánaðar á
næsta ári, verður haldin í Stokk
hólmi alþjóðleg ráðstefna um
umhverfisvernd, á vegum Sam-
einuðu þjóðanna. Nú í vikunni
koma fulltrúar utanríkisráðu-
neyta Norðurlanda saman í
Reykjavík og ræða það, scm er
að gerast í umhverfismálum í
heiminum, og eru þær viðræð-
ur liður í undirbúningi ráð-
stefnunnar.
Ákveðið var árið 1968 að
halda slíka ráðstefnu og ári síð-
ar var ákveðið, að hún yrði hald
in í Stokkhólmi og að Svíar
tækju að sér framkvæmdastjóm
hennar.
Ráðstefnan er einkum haldin
í því skyni að vekja athygli um
heimsins á umhverfisvandamál-
um og mengun.
Ákveðnar þjóðir hafa tekið
að sér að leggja fram tillögur
til lausnar mengunarvandamál-
inu. Verða málin rædd á breið-
um grundvelli, en ekki kafað til
botns í neinu þeirra. Starfsemi
ráðstefnunnar verður aðallega
í þrem þáttum. í fyrsta lagi
könnun á vandamálinu sem
slíku, í öðru lagi ráðstafanir,
sem hægt sé að gera þegar á
fundinum og í þriðja lagi annar
undirbúningur, fyrir það, sem
gert yrði í framtíðinni.
Þess er vænzt, að mörg þró-
unarlandanna sitji ráðstefnuna,
en fram til þessa hefur verið
erfitt að fá þau til að ræða um
mengunarráðstafanir, þar sem
aðgerðir sem lögboðnar yrðu til
að vernda umhverfið, yrðu svo
margfalt dýrari í þróunarlönd-
unum, en í iðnaðarlöndum.
Framkvæmdastjóri ráðstefnunn-
ar, Kanadamaðurinn Maurice
FramhaW á 11. síðu.