Tíminn - 31.08.1971, Qupperneq 8
IÞROTTIR
8
TÍMINN
ÞRIÐJUDAGUR 31. ágúst W51
VALUR - KEFLAVÍK:
ÍBK sigraöi veröskuldaö í fjörugum leik
• . j. ! " .
— og jók sigurvon sína í íslandsmótinu um allan helming, en gerði veika von Vals að engu
Steinar Jóhannsson skýtur föstu skoti að Valsmarkinu í lerk Vals ag ÍBK á sunnudag. Skot Steinars fór fnam hfá
Sigurði Dagssyni og small síðan í stöng.
ET—Reykjavík.
Veðnr var ágætt í Reykjavík á
sunnudaginn, er Valur og ÍBK
leiddu saman hesta sína í íslands-
mótínu í knattspyrnu. Mikið var
i húfi fyrir bæði liðin, einkum
Keflavik. Vestmannaeyingar höfðu
sigrað Akureyringa á laugardag
og því skotízt upp fyrir Keflvík-
inga í 1. deild; höfðu 18 stig eftir
leikinn á móti 17 stigum ÍBK.
Keflvikingar urðu því að vinna
Val til að halda forystu i deild-
inni. — Valur eygði smávonar-
glætu tíl sigurs í mótinu fyrir
leikinn við Keflavík. Til sigurs
urðu Valsarar þó að vinna alla
leiki sína, um leið og ÍBK og
ÍBV töpuðu öllum sínum.
Von Vals var því veik, en ÍBK
að sama skapi sterk. Þessi að-
stöðumunur liðanna sett svo mjög
svip sinn á leikinn, einkum fyrri
hálfleik. Keflvíkingar voru mun
ákveðnari og leikglaðari en Vals-
arar í leiknum. Einnig léku þeir
skemmtilegri knattspyrnu og náðu
betur saman en mótherjarnir.
Valsliðið er þó skipað ágætum
einstaklingum, en þeir ná illa sam
an og virðast í lélegri æfingu. Þá
var vörn Vals áberandi veik í þess
um leik og má skrifa bæði mörk
Keflvíkinga á hennar reikning.
Þess verður þó að geta, að fram-
lína ÍBK er mjög hættuleg nái
hún sér á strik, sem hún og gerði
í fyrri liálfleik leiksins á sunnu-
dag.
Keflvíkingar náðu fljótt undir-
tökunum í leiknum og héldu þeim
út allan leikinn, þrátt fyrlr harða
hríð Valsara að marki þeirra und-
ir leikslok. — Á 9. mín. komst
Jón Ólafur skemmtilega fram hjá
Halldóri Ein. og stefndi hraðbyri
að marki Vals. Halldór gerði sér
lítið fyrir og brá Jóni innan víta-
teigs. Dómarinn dæmdi réttilega
vítaspyrnu og skoraði Steinar ör-
ugglega úr lienni. 1:0!
Aðeins 3—4 mín. seinna leikur
Jón Ólafur enn á varnarmann Vals,
að þessu sinni Pál „Eusebio-bana“.
Jón lék upp að endamörkum og
gaf boltann síðan vel fyrir Vals-
markið. Birgir var þar fyrir og
afgreiddi boltann í netið með
fremur lausu skoti. 2:0!
Rétt á eftir átti Steinar ágætt
skot að marki, en Sigurður varði.
Á 16. mín. skaut Gísli að Vals-
markinu, Sigurður hálfvarði og
missti knöttinn frá sér. Honum
tóks þó að hremma boltann aftur
svo að segja frá tá eins sóknar-
manns Keflvíkinga. — Eftir þess-
ar sóknarlotur Keflvíkinga jafn-
aðist leikurinn og áttu bæði lið-
in ágæt, en árangurslaus mark-
tækifæri. Á 32. mín. komst Jón
Ólafur enn einu sinni einn inn
fyrir, en skaut nú yfir Valsmark-
ið. Mínútu síðar átti Róbert, bak-
vörður Vals, sakleysislegt skot að
marki Keflvíkinga utan af kanti.
Boltinn hafnaði þó í þverslá, cn
síðan aftur fyrir mark. Loks
komst Ingi Björn í dauðafæri á
39. mín. og munaði litlu að hon-
um tækist að skora. Hann ýtti þó
eitthvað við varnarmanni Kefl-
víkinga í leiðinni og var dæmd
aukaspyrna á það brot.
f síðari liálfleik var Icikurinn
mjög jafn og áttu Keflvíkingar
sízt meira í leiknum, a.m.k. ckki
síðast í hálfleiknum. — Á 4. mín.
stóð Steinar fyrir opnu Valsmark-
inu, en Sigurður forðaði enn einu
sinni marki á meistarlegan hátt.
Á 11. mín. var Hörður í opnu færi
og bjó sig undir að skjóta á mark
Vals. Einn varnarmanna Vals
kom þá aðvífandi og ýtti ólög-
lega á bak Harðar. Dómarinn,
Steinn Guðmundsson, sá þó ekki
ástæðu til að dæma vítaspyrnu á
þetta augljósa brot innan víta-
teigs.
Á 15. min. gaf Ingi Björn
skemmtilegan bolta fyrir mark
Keflvíkinga. Ingvar skaut við-
stöðu laust að markinu en knött-
urinn smaug yfir. — Báðum lið-
um áskotnúðust nú ágæt mark-
tækifæri, en ekkert þeirra nýtt-
ist.
Á 31. mín. var Völsurum dæmd
aukaspyma til hliðar við víta-
teig og aðeins utan við vítateigs-
línuna. Hermann Gunnarsson tók
aukaspyrnuna og hafnaði frábær
snúningsbolti hans næstum í marki
Keflvíkinga. Þeim tókst þó að
forða marki í svipinn og myndað-
ist við það mikil þvaga á vítafaúg.
f þeim liamagangi veitti Völsui-
um betur og tókst Inga Birni loks
að koma boltanum í netíð fram
hjá keflvísku varnarmönnunum.
Mínútu síðar stóð Steinar fyrir
opnu marki Vals og skaut. Skot
hans hafnaði í stöng, þaðan út
aftur, og enn skutu Keflvíkingar
að marki. Ekki fór bottínn heldttr
Framhald á íl. sfSu.
FH Islandsmeistarar í hand-
knattleik karla utanhúss
FH-ingar endurheimtu aftur
íslandsmeistaratitilinn í hand-
knattleik utanhúss sl. föstu-
dagskvöld með því að vinna
Hauka í úrslitaleik 15:13 (8:8).
Enginn meistarabragur var á
leik liðsins og mega FH-ing-
ar muna „sinn fífil fegurri“, —
þegar Iiðið var léttlcikandi og
skemmtilegt — en nú einkenn-
ist liðið af hörku og grófum
varnarleik.
FH-ingar komust yfir í byrj
un leiks 3:1, en Haukum tókst
að jafna og komast yfir. —
Þeir héldu forystunni með einu
til tveimur mörkum allan hálf-
leikinni, þar til FH tókst að
jafna 8:8 fyrir hálfleik.
Síðari hálfleikurinn var jafn
framan af og sáust tölur eins
og 9:9, 10:10, 11:11, og 12:12,
þegar atvik gerðist sem réði úr-
slitum í leiknum — Stefáni
bezta manni Hauka var vikið
af leikvelli í tvær mínútur.
Framhald á 11. síðu.
Vestmannaeyjar — Akureyri:
lEleour leikur í eyjum
AE—Vestmannaeyjum, ET—Rvík.
Leikur ÍBV og ÍBA, er lauk mcð
sigri Vestmannaeyinga, 5:1, var
lélegur af beggja hálfu. Vestmanna
eyingar voru þó betri aðilinn í
leiknum og sigur þeirra því verð-
skuldaður. ÍBV er nú í næst efsta
sæti í 1. deild og hefur enn mikla
möguleika á íslandsmeistaratitlin-
um. — Akureyringar virtust gjör-
sneyddir öllum baráttuvilja og var
leikur þeirra sundurlaus og óákveð
inn, þeir sitja nú á botninum í
deildinni með jafn mörg stig og KR
en einum leik færra.
1 fyrri hálfleik sóttu Vestmanna-
eyingar látlaust og oft skall hurð
nærri hælum Akureyringa í þeim
hálfleik. Þ 'v léku líka varnarleik,
voru oft 8-9 í vörn, og uppskáru
því svo að segja engin tækifæri í
hálfleiknum.
Vestmannaeyingar áttu fjölda
tækifæra í hálfleiknum. Á 4. mín.
skallaði Óskar í þverslá og tveim
mín. síðar varði Árni skot HaraliF
ar úr dauðafæri. Á 13. mín. varðr
Árni enn og nú meistaralegi mjög
gott skot frá Sævari, er liann skaut
úr erfiðri aðstöðu.
Á 18. mín. gekk boltinn á milli
Vestmannaeyinganna upp völlinn.
Sævar rak svo endahnútinn á þetta
samspil og sendi boltann í mark
Akureyringa frá miðjum vítateigi.
Á eftir markinu rak hvert tækifæri
Vestmanneyinga annað, en þeim
tókst ekki að skora fyrr en á 39.$
mín. Þá myndaðist þvaga við mark
Akureyringa. Tómas náði loks
knettinum, lék á tvo varnarmenn
og vippaði boltanum loks yfir Árna
og í markið. Við þetta mark var
sem flóðgættir opnuðust og gerðu
Vestmannaeyingar tvö mörk í við-
bót fyrir hálfleikslok. Fyrra mark-
ið skoraði Sævar á 41. mín. og það
síðara gerði Óskar' litlu seinna
mcð þrumuskoti.
1 síðari hálfleik léku Akureyr-
ingar mun betur, en vantaði Þó
alltaf herzlumuninn til að ná alger-
um tökum á leiknum. Vestmanney-
ingar voru flestir daufir í hálfleikn
um. Tómas var þó sívinnandi og
átti oft góð marktækifæri, þótt.
aldrei tækist honum að skora. Á
13. mín. skoraði Eyjólfur fyrir
Akureyringa og var vöm Vest-
mannaeyinga sem oftar illa á verði.
Á 23. mín. björguðu Vestmannaey-
ingar á línu eftir snarpa sókn Ak-
ureyringa. Á 34. mín. skoruðu Vest-
Tnannaeyingar fimmta mark sitt og
gerði það alveg út um leikinn. Það
var Haraldur, sem skoraði, eftir
góða fyrirgjöf frá Val. — Fátt
gerðist markvert í leiknum síðustu
mínúturnar og laVik honum því með
sigri ÍBV 5:1.
Þess má geta í lokin, að Hannes
Þ. Sigurðsson dæmdi leikinn ágæt-
lega.