Tíminn - 31.08.1971, Page 10

Tíminn - 31.08.1971, Page 10
I 10 UMSK BIKARMEISTARI: TÍMINN Bjarni vakti mesta athygli - hijóp 400 m. á 48,1 sek.! Erlendur 53.77 m. — Guðmundur 17,44 m. — Elías 2,00 m. og Valbjörn 4,30 m. ÖE—Reykjavík. UMSIÍ varð Bikarmeistari FRÍ 1971 eftir hörkukeppni við ÍR- inga báða keppnisdagana, laugar- dag og sunnudag. Spenningurinn hélzt allt til síðustu greinar, 1000 m. boðhlaupsins. UMSK hlaut 118 stig og ÍR-ingar komu næstir, hlutu 113 stig. Ármann varð í þriðja sæti með 105 stig. KR, sem sigraði í fimm fyrstu skipti þess- arar keppni, en keppnin um lielg- ina var nú sjötta, hlutu nú 96.5 stig og voru í fjórða sæti. HSK hlaut 71 stig og HSH 57.5 stig. UMSK vann bikar Samvinnu- trygginga í fyrsta sinn, en áður hafði KR unnið hinn veglega grip tvívegis. Til þess að' vinna hann til eignar verður að sigra þrisvar í röð eða fimm sinnum alls. Þrjú fyrstu félögin hlutu litla bikara til eignar. Auk þessara föstu verðlauna gaf dr. Ingimar Jónsson afsteypu af listaverki Gests Þorgrímssonar, „íþróttamaður ársins“, en þau verðlaun hlaut Erlendur Valdi- marsson, ÍR, fyrir að kasta kringl- unni 53.77 m. sem gefur 937 stig. Næstbezta afrekið vann Guðmund ur Hermannsson, KR, í kúluvarpi, hann kastaði 17.44 m., en það gef- ur 928 stig. Hið frábæra afrek Bjarna Stefánssonar, KR, í 400 m. hlaupi, 48.1 sek., er þriðja bezta afrek keppninnar, gefur 893 stig og loks er árangur Valbjarnar Þorlákssonar, Á, í stangarstökki, 4.30 m. en það gefur 884 stig. Ekki er vafi á því, að 400 m. hlaup Bjarna sem aðeins er 1/10 úr sek. lakara en met Guðmund- ar Lárussonar, Á, frá 1950, vekur mesta athygli í keppninni og bend ir til þess, að 400 m. séu hans bezta vegalcngd. Tími eins og 46.5 til 47 sek. er alls ekki útilokaður, en þá væri hann kominn í röð beztu 400 m. hlaupara í Evrópu. — Athygli vakti einnig hástökk Elíasar Sveinssonar, ÍR, en hann stökk nú yfir 2 metra í fyrsta sinn utanhúss. Stökk hans var sérlega vel heppnað, en 2.05 m. voru of mikið að þessu sinni. Þessi afrek þeirra Bjarna og Elíasar eru þau þriðju beztu í afrekaskrá íslend- inga frá upphafi. En snúum okkur nú að einstök- um greinum. FYEKI UAGUR: 200 m. hlaup: Bjarni Stefánsson, KR, 22,1 sek. Valbjörn Þorláksson, Á, 23,1 Trausti Sveinbjörnsson, UMSK, 23,8 Kjartan Guðjónsson, ÍR, 23,9 Sævar Larsen, HSK, 24,1 Ari Skúlason, HSH, 24,2. Fátt kom á eins á óvart í þessu hlaupi, og yfirburðasigur Bjarna, en örlítill mótvindur í beygjunni og á hluta brautarinnar kom í veg fyrir betri tíma. Ari er aðeins 15 ára, hann er mikið_ efni og náði sínum bezta tíma. Ánægjulegt að sjá Kjartan aftur í keppni. 3000 m. hlaup: Ágúst Ásgeirsson, ÍR, 9:20,4 mín. Einar Óskarsson, UMSK, 9:22,0 Jóhann Garðarsson, Á, 10:00,2 Haukur Sveinsson, KR, 10:09,8 Magnús Gíslason, HSK. Hér var um „taktik“ hlaup að ræða hjá Ágústi, hann átti eftir að hlaupa 800 m. síðar um daginn og gerði út um hlaupið á síðasta hring, eftir rólega ferð mestallt hlaupið. Einar er enn kornungur, í sveinaflokki og hann getur náð langt. 800 m. hlaup. Þorsteinn Þorsteinsson, KR, 1:59,8 mín. Böðvar Sigurjónsson, UMSK, 2:01,8 Ágúst Ásgeirsson, ÍR, 2:02,5 Gunnar Kristjánsson, HSH, 2:12,8 Jón Kristjánsson, HSK, 2:14,8. Þorsteinn var hinn öruggi sig- urvegari, hljóp aðeins til að sigra. Baráttan um næstu sæti var aftur á móti gífurlega hörð. Böðvar hreppti það og náði sínum lang- bezta tíma, en Ágúst skautzt fram úr Jóhanni, sem einnig náði sín- um bezta tíma. Jóhann er mikið efni í millivegalengdarhlaupara. Langstökk: Valbjörn Þorláksson, Á, 6.85 m. Karl Stefánsson, UMSK, 6.65 Ólafur Guðmundsson, KR, 6.61 Friðrik Þór Óskarsson 6.61 Guðm. Jónsson, HSK, 6.38 Ólafur Rögnvaldsson, HSH, 6.12. Valbjörn vann þetta sentimetra stríð, en engum tókst að stökkva yfir 7 metra, sem er slappt. Frið- rik var eitthvað meiddur í ökla og Ólafur, sem er óæfður, sýndi sina alkunnu keppnishörku. Ilástökk: Elías Sveinsson, ÍR, 2.00 m. Hafsteinn Jóhannesson, UMSK, 1.85 Árni Þorsteinsson, KR. 1.85 m. Valbjörn Þorláksson, Á, 1.75 Georg Ottósson, HSK, 1.75 Sigurþór Hjörleifsson, HSH, 1.70. Við höfum áður rætt um afrek Elíasar, sem er hans bezta utan- húss til þessa, en honum mistókst að bæta unglingamet Jóns Þ. að þessu sinni, en það er 2.03 m. Hafsteinn og Árni háðu harða bar áttu um annað sætið, en urðu jafnir. Báðir áttu góðar tilraunir við 1.90 m., sérstaklega Árni, sem bætir sig jafnt og þétt. Kúluvarp: Guðmundur Hermannsson, KR, 17,44 m. Erlendur Valdimarsson, ÍR, 15,72 Sigurþór Hjörleifsson, HSH, 14,68 Hallgrímur Jónsson, Á, 13,40 Sigurður Siðurðsson, UMSK, 13.04 Georg Ottóson, HSK, 10,73. Lítið kom á óvart í þessari grein, en Sigurþór var þó heldur lakari en fyrr í sumar. Hann gæti með góðri æfingu kastað mun lengra. Guðmundur vann næst- bezta afrek mótsins. Spjótkast: Stefán Jóhannsson, Á, 51,54 m. Ásbjörn Sveinsson, UMSK, 51,12 Elías Sveinsson, ÍR, 48,70 Hildimundur Björnsson, HSH, 45,02 Helgi Benediktsson, HSK, 43.16 Grétar Guðmundsson, KR, 41,22. Lélegasta greinin í mótinu. Það er næstum sorglegt hve lélega spjótkastara við eigum. 4x100 m. boðlilaup: Sveit KR, 43,8 sek. Sveit HSK, 44,7 Sveit ÍR, 45,2 Sveit UMSK, 46,2 Sveit Ármanns, 46,3 Sveit HSH, 47,6. Sveit KR náði bezta tíma ársins af félagssveit og HSK setti nýtt héraðsmet. KVENNAGREINAR: 100 m. hlaup: Sigrún Sveinsdóttir, Á, 13,0 sek. Jensey Sigurðardóttir, UMSK, 13,2 Þuríður Jónsdóttir, HSK, 13,4 Lilja Guðmundsdóttir, ÍR, 13,8 Anna Kristjánsdóttir, KR, 13,8 Ingibj. Benediktsd., HSH, 14,5 Spennandi grein, en sigur Sig- rúnar var þó öruggur, hún er ein í hópi hinna efnilegu stúlkna, en vonandi fáum við einhverntíma meira en efnilega stúlku í frjáls- um íþróttum. Til þess að ná ár- angri, þó ekki sé nema á Norður- lundamælikvarða verður að æfa mun meira en hér er gert af kven- fólki. Spjótkast: Arndís Björnsdóttir, UMSK, 34,96 m. Sif Haraldsdóttir, HSH, 34,68 Hólmfríður Björnsdóttir, IR, 30,35 Þuríður Jónsdóttir, HSK, 25,02 Emelía Sigurðardóttir, KR 21,90 Sigurborg Guðm.d., Á. 19,27 Sif ógnaði sigri Arndísar í síðasta kasti og setti nýtt héraðsmet, en töluvert vantaði á met Arndísar frá 1969, sem er 38,53 m. Kúluvarp: Kristín Bjargmundsd. HSH 9,50 m Gunnþórunn Geirsd. UMSK 9,17 Sigríður Skúladóttir, HSK, 8,90 Kristjana Guðmundsd. ÍR 8,61 Sigurborg Guðmundsd. Á, 7,70 Emelía Sigurðard. KR, 7,42 Þetta var sú slappasta grein kven fólksins, en eini sigur Snæfell- inga í keppninni. Hástökk: Lára Sveinsdóttir, Á 1,53 m. Kristín Björnsdóttir UMSK 1,45 Ingunn Vilhjálmsdóttir ÍR, 1,40 Sigríður Skúladóttir, HSK, 1,35 Svandís Sigurðard. KR 1,30 María Guðnadóttir, HSH, 1,20 Lára bætti árangur sinn til muna og vann Kristínu, sem hef- ur stokkið 1,55 m. í sumar en var eitthvað miður sín í þessari keppni. 4x100 m. boðhlaup: SveitUMSK 52,1 sek. Sveit Ármanns 53,0 sek. Sveit HSK 54,1 sek. Sveit ÍR 55,7 sek. Sveit HSH 56,9 sek. Sveit KR 57,8 sek. UMSK-stúlkurnar höfðu nokkra yfirburði, en vantaði 3/10 úr sek. á metið, sem þær settu í fyrra. SÍÐARI DAGUR: 110 m. grindahlaup: Valbjörn Þorláksson, Á, 15,6 sek. Borgþór Magnússon, KR, 15,9 Kjartan Guðjónsson, ÍR 16,9 Bjarni Stefánsson sigrar í 400 m hlaupi í Bikarkeppninni. ÞRIÐJUDAGUR 31. ágúst 1971 Hafdís Ingimarsdóttir, sigraði í lang- stökki í Bikarkeppninni. Hafsteinn Jóhanness. UMSK 17,0 Sam Glad, HSH 22,5 Aðalbaráttan í þ,essu Maupi, sem fór fram í örlitlum mótvindi var milli Kjartans, sem er í lítilli æfingu, og Hafsteins, um 3ja sæti. Sá fyrrnefndi sigraði eftir skemmtilega baráttu, en Valbjöm vann Borgþór með svipuðum mun og áður í sumar. 100 m. hlaup: Bjarni Stefánsson, KR^ 11,1 sek. Valbjörn Þorláksson, Á, 11,5 Friðrik Þór Óskarsson ÍR, 11,7 Sigurður Jónsson, HSK, 11,9 Kristinn Magnússon, HSK, 12,1 Ari Skúlason, HSH, 12,1 Hér hafði Bjarni yfirburði og Valbjörn varð annar. Aftur á móti kom sigur Friðriks Þórs yfir Sig- urði Jónssyni á óvart. Hlaupið var í örlitlum mótvindi, sem gerði tímann 2 til 3/10 úr sek. verri á mann en ella. 400 m. hlaup: Bjarni Stefánsson, KR, 48,1 sek. Sigurður Jónsson, HSK, 51,4 Böðvar Sigurjónsson, UMSK 52,6 Guðm. Ólafsson, ÍR, 53,0 Ari Skúlason, HSH, 54,6 Jóhann Garðarsson, Á, 55,0 Þetta var aðalhlaupagrein móts ins. Bjarni hljóp skínandi og náði sínum langbezta tíma, aðeins 1/10 úr sek. lakara en hið fræga met Guðm. Lárussonar frá 1950, en það er næstelzta ísl. metið. — Spjótkastmet Jóels er elzt. Aðrir keppendur náðu allir sínum bezta tíma, nema Sigurður, sem á bezt 50,6 sek. frá í fyrra. 1500 m. hlaup: Þorst. Þorsteinsson KR, 4:11,2 Ágúst Ásgeirsson, ÍR, 4:18,3 Einar Óskarsson, UMSK, 4:23,2 Jóhann Garðarsson, Á, 4:29,7 Jón Kristjánsson, HSK, 4.41,8 Gunnar Kristjánsson, HSH 4:44,2 Þetta var óvenju dauft hlaup, Þorsteinn hafði forystu nær allt hlaupið, og enginn spenningur. Þorsteinn getur mun meira í greininni. 5000 m. hlaup: Jón H. Sigurðsson, HSK, 16:00,4 Ágúst Ásgeirsson, ÍR, 16:49,8 Ragnar Sigurjónss. UMSK 16:55,2 Nils Nilsson, KR, 17:24,4 Kristján Magnússon, Á, 17:56,8 Sam Glad, HSH, 19:12,6 Smáspenningur var um annað sæti milli Ágústs og Ragnars, en að öðru leyti var hlaupið í sama deyfðarklassa og 1500 m. Jón hafði mikla yfirburði. Kringlukast: Erlendur Valdimarsson, ÍR, 53,77 Þorsteinn Alfreðsosn UMSK 43,19 Hallgrímur Jónsson, Á, 42,50 Guðm. Hermannsosn, KR, 40,61 Erling Jóhannesson, HSH, 39,08 Valdimar Gíslason, HSK, 25,98 Framliald á 11. síðu.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.