Tíminn - 13.10.1971, Blaðsíða 1
HHfHMMí ******* * #. *
Vinningaskrá í Happdrætti Háskólans - sjá bls. 6
Fjárlagafrumvarpið fyrir 1971 iagt fram á Alþingi í gær:
Verulegar hækkanir til
framkvæmda og félagsmála
Aldursforseti Alþingis, Hannibal Valdimarsson, býSur nýkjörinn forseta SameinaSs Alþingis, Eystein Jónsson,
velkominn til starfa. T.h. er Páll Þorsteinsson, sem ásamt FriSjóni ÞórSarsyni gengdi skrlfarastörfum á þing-
fundinum í gær. (Tímamynd — Gunnar)
EYSTEINN JONSSON FOR-
SETISAMEINAÐS ÞINGS
EB—Reykjavík, þriSjudag.
Eysteinn Jónsson var í dag kjörinn forseti Sameinaðs Alþingis með
öllum greiddum atkvæðum þingmanna, nema einu eða 32 atkv. alls. 26
þingmenn skiluðu auðum seðlum.
Eysteinn Jónsson hefur átt sæti
á Alþingi samfellt frá 1933 og hef-
ur því setið lengur á þingi en
nokkur annar þingmaður, sem þar
á sæti nú.
Auk ’kosningu forseta Sarnein-
aðs Alþingis, fóru þingstörf í dag
í það, að athuga kjörbréf alþing-
ismanna. Samkvæmt framkominni
ósk var frestað til morguns að
kjósa varaforseta Sameinaðs Al-
þingis svo og forseta efri deildar
Alþingis og forseta neðri deildar.
Þá munu á morgun verða kjörnir
skrifarar Alþingis, kosið í fasta-
nefndir og þingmönnunn skipt milli
þingdeilda.
Eins og segir á öðrum stað i
blaðinu, var fjárlagafrumvarpið
fyrir 1972 lagt fyrir Alþingi í dag.
Ennfremur lagði ríkisstjórnin
fram frumvörp til staðfestingar á
bráðabirgðalögum er hún hefur
gefið út. Ennfremur voru lögð
fyrir Alþingi eftirfarandi stjórn-
arírumvörp:
Frumvai’p til laga um að óheim-
ilt skal, að flytja til landsins öl,
sem hefur inni að halda 2,1/2%
af vínanda, eftir 1. jan. 1972.
Frumvarp til íaga um samein-
ingu Borgarfjarðarhrepps og Loð-
mundarfjarðarhrepps í N-Múla-
sýslu í einn hrepp, en lögin eiga
samkvæmt frv. að taka gildi 1.
janúar 1972.
Frumvarp til laga um breyting
á lögum nr. 30 frá 27. júní 1921,
um erfðafjárskatt.
Frumvarp til laga um tekjur
sveitarfélaga, samkvæmt gjald-
skráim og reglugerðum.
Frumvarp til fjáraukalaga fyr-
ir 1969 — og frumvarp til laga
um samþykkt á ríkisreikningum
fyrir 1969.
EB—Reykiavík, þriðjudag.
Frumvarp til fjárlaga var lagt fyrir Alþingi í dag. Samkvæmt þvi
verða gjöld ríkissjóðs árið 1972 kr. 13.971.188 þús. en tekjur ríkissjóðs
kr. 14-270.013 þús. Lánahreyfingar út verða kr. 254.451 þús., lánabreyt-
ingar inn, kr. 3.800 þús. Greiðslujöfnuður verður samkvæmt frumvarp-
inu kr. 298.825 þús. á rekstrareikningi og kr. 250.651 þús á lánahreyf-
ingum.
f þessu fjárlagafrumvarpi er verulega aukin fjárveiting tU ýmissa
brýnustu verkefna, svo sem geta ríkisútgjalda leyfir að þessu sinni,
og skulu nú tekin dæmi því til sönnunar.
• Framlög til bygginga skólamannv?- kja hækka um 44,9 millj. kr.
• Til togaralána hækka framlög ríkissjóðs um 29,1 millj. kr.
• Framlög til framkvæmda í flugmálum hækka um 19 millj. kr.
• Framlagið til gæzluvistarsjóðs hækkar úr 12 millj. í 20 millj. kr.
og er ætlunin að hefjast þegar handa við byggingu lokaðs lækninga-
lieimilis fyrir drykkiusjúkt fólk.
• Þá hækka fjárveitingar til
félagsmála verulega. Má í því
sambandi nefna að framlag til
íþróttasjóðs liækkar úr 5 milljón-
um í 13 milljónir, framlag til Ung-
mennafélags íslands hækkar úr
0,9 milljónum í 1,2 milljónir og
framlag til íþróttasambands fs-
lands liækkar um 1,3 milljónir.
• Framlag til vatnsveitna hækk
ar úr 7,5 milljónum í 10 milljónir
og er þar vatnsveita Vestmanna-
eyja undanskilin, þvi að liún er
tekin sérstaklega. Framlag til lána
sjóðs sveitarfélaga hækkar úr 4,5
milljónum í 7 milljónir. Þá er
nýtt framlag til sláturhúsa 12
milljönir, og aðstoð við bændur
sem verst eru settir og ekki nutu
breytingar á lausaskuldum í föst
lán, nemur 10 milljónum.
• Framkvæmdafé til skóla-
bygginga verður aukið og
miðast aukningin við að unnt
verði að Ijúka áföngum að fullu
á árinu. Framlag til Menntaskól
ans á Laugarvatni verður tvöfald
að, hækkað úr 9 milljónum í 18
milljónir. Mun það fé nægja til
að ljúka byggingu kennsluluisnæð
is á næsta ári.
• Fjárveiting til Menntaskólans
á ísafirði verður 21.milljón og á
að ljúka fyrsta áfanga heimavistar
að fullu og gera 2. áfanga og
mötuneyti fokhelt á næsta ári.
• Framlag til Fæðingardeildar-
inar vei'ður tvöföldað, hækkað úr
30 milljónum króna í 60 milljónir
og er miðað við að verkinu verði
að fullu lokið á árinu 1973. Jafn-
framt er fjárveiting til að undir-
búa byggingu geðdeildar og verð
ur byrjað á framkvæmdum þcgar
að loknum framkvæmdum við
Fæðingardeild.
— Enda þótt útgjöld þessa fjár
lagafrumvarps hækki verulega
frá síðustu fjárlögum, skal það
íekið fram, að mjög fast var hald
ið á því, að aukin útgjöld vegna
útþenslu ætti sér ekki stað í
ríkiskerfinu, nema þar sem brýna
nauðsyn var til að halda eðlilegri
þjónustu og starfsháttum. Það
leiddi til þess, að hafnað var
mörgum tillögum ráðuneytanna,
jafnvel þótt sumar þeirra ættu
nokkurn rétt á sér, segir í grein-
argerð frumvarpsins, og ennfrem-
ur segir:
— Útgjöld þessa fjárlagafrum-
varps hækka um kr. 2.947,9 millj.
kr. frá gildandi fjárlögum, en
þegar frá er dregin útgjaldaaukn
ing vegna markaðra tekjustofna,
sem er kr. 516,9 millj., þá hækkar
fj árlagafrumvarpið frá gildandi
fjárlögum um kr. 2431,0 millj.
eða 27,5%. Hins vegar ber þess
að gæta við slíkan samanburð, að
í útgjaldahlið fjárlaga 1971 vant-
ar 270 millj. kr. vegna áætlaðra
áhrifa kjarasamnings við opinbera
sarfsmenn, og auk þess var
skömmu eftir samþykkt fjárlag-
anna tekin ákvörðun um hækkun
daggjalda á sjúkrahúsum, og er
kostnaðarauki ríkissjóðs af þeim
sökum áætlaður um 175 millj. kr.
Sé tekið tillit til þessa, verður
raunveruleg útgjaldaaukning
þeim mun minni, þ.e. 1986,0 millj.V
kr. eða 21,3%.
Höfuðástæður fyrir auknum út-
gjöldum eru þrjár: í fyrsta lagi
er um að ræða ákvörðun fyrr-
vcrandi ríkisstjórnar. í öðru lagi
lög frá síðasta Alþingi, er ekki
höfðu áhrif á útgjöld skv. gild-
andi fjárlögum, og í þriðja lagi
ákvarðanir núvcrandi ríkisstjórn-
ar og skal nú gerð grein fyrir
Framrald á bls. 14.