Tíminn - 13.10.1971, Blaðsíða 2
2
TIMINN
MTÐVrKUDAGUR 13. oktöber 1971
Myndargjöf
til Skógaskóla
Héraðsskólanum á Skógum
undir Eyjafjöllum barst nýlega
að gjöf mikið safn skugga-
mynda úr eigu Guðlaugs Lárus
sonar frá Álftagróf í Mýrdal.
Guðlaugur fæddist 1895 og
andaðist árið 1969. Hann var
alla ævi mikill áhugamaður um
ferðalög og hafði óvenju næmt
auga fyrir náttúrufegurð. Tók
hann mikinn fjölda mynda, þar
sem leiðir hans lágu. Þannig
eignaðist hann með árunum
merkilegt ljósmyndasafn víðs-
vegar að af landinu og einnig
frá öðrum löndum.
Ættingjar Guðlaugs og erf-
ingjar færðu skólanum mynda-
safn þetta að gjöf. Má óhætt
segja að skólanum sé að því
mikill fengur, því að bæði er
safnið mikið að vöxtum og for-
kunnargott. Verður það þeim
mun merkara og verðmætara,
sem lengur líður.
Tómas Lárusson i Álftagróf
afhenti skólanum safnið fyrir
hönd ættingja ásamt gjafabréfi.
Færir skólinn honum og öilum
öðrum gefendum alúðarþakkir
fyrir þessa fögru og höfðing-
legu gjöf. J.R.H.
Athugasemd
Blaðinu hefur borizt eftirfar-
andi frá Póst- og símamála-
stjórnínnii
í frímei'kjaþætti Tímans 1.
október s.l. er orðið sólprent-
un, sem er íslenzk þýðing á
orðinu héliogravure, gert að
umræðuefni. Segir í þættinum,
að einhver spekingur hafi tal-
ið póst- og símamálastjórninni
trú um, að forskeytið hélio
þýddi sól og því lægi beint við
að þýða héliogravure með sól-
prentun. Höfundur þáttarins
segir aftur á móti að upphafs-
maður þessarar prentaðferðar
hafi heitið Hélio og því heiti
prentaðferðin „héliogravure“,
Segir höfundur að nær sanni
væri að þýða þetta með ljós-
prentun, enda sé „héliograv-
ure“ aðeins „photogravure".
í þeim orðabókum, sem póst-
og símamálastjórnin hefur lát-
ið flett'a upp í, er þess ekki
getið, að forskeytið „hélio“ í
héliogravure sé mannsnafn,
heldur sé það dregið af gríska
orðinu helios, sem þýði sól. í
orðabók Littré 4. bindi bls.
469, er héliogravure útskýrt
sem „gravure faite a l’aide de
la photographie“ (prentun
gerð með ljósmynd). Jafnframt
er tilfært dæmi um þetta orð
í Stjórnartíðindum Frakklands
frá 8. maí 1873.
í sömu orðabók er photo-
gravure útskýrt sem 1) Grav-
ure faite par un procédé photo-
graphique (prentun gerð með
ljósmyndunaraðferð), 2) Pro-
cédé a l’aide duquel on obtient
ces gravures (aðferð til þess
að framkvæma þessa prentun).
Þarna er því gerður munur á
„hóliogravure“ og „photo-
gravure11, svo að varla kemur
til greina að þýða hvoru
tveggja orðin með ljósprent-
un.
Þess skal að endingu getið,
að póst- og símamálastjórnin
hóf að nota orðið sólprentun
eftir útkomu Handbókar um
íslenzk frímerki árið 1965, en
þar er qrðið sólprentun ein-
mitt notað. Segir svo í for-
mála handbókarinnar orðrétt:
„Nefndinni (þ.e. handlDÓkar-
Framrald á bls. 14.
\
Á föstudagskvöld verður Allt í garðinum eftlr Edward Albee frumsýnt í Þjóðleikhúsinu. Myndin er af Erlingi
Gíslasyni, Þóru Friðriksdóttur og Gunnari Eyjólfssynl f hlutverkum sfnum. (Tímamynd GE)
Flugfélagíð um Loffleiðir
Hækka „sín“ fargjöld
um 20%, en vilja lækka
Norðurlandagjöld um 15%
KJ—Reykjavík, þriðjudag.
Svo virðist, sem hálfgert stríðsástand ríki nú milli Flugfélags íslands
og Loftleiða vegna fargjaldamála. í fréttatilkynningu, sem dreift var
á blaðamannafundi í gær, fjalla Flugfélagsmenn lítillega um Ameríku-
fargjöld Loftleiða, og halda því fram, að aðalfargjöld Loftleiða á
flugleiðinni til og frá New York, hafi hækkað um 20% á einu ári,
en beri svo fram tillögur um 15% lækkun á fargjöldum til og frá
Evrópu héðan, sem fyrirfram sé vitað að útilokað sé að fá samÞykktar
á Fargjaldaráðstcfnu IATA.
Flugfélagsmenn skýra svo frá
að aðalfargjöld frá íslandi til Evr-
ópu hafi verið svo til óbreytt í 20
ár. Árið 1950 hafi fargjaldið á
leiðinni Reykjavík—Glasgow verið
27 sterlingspund, og þá hafi 4.400
manns flogið á milli landa héðan
og til Evrópu. 1971 er fargjaldið
ó þessari leið tæplega 31 sterlings
pund, en á tímabilinu hefur flug-
vallarskattur verið felldur inn í
fargjaldið. Áætlað er að 64 þús.
manns muni í ár fljúga á milli
íslands og annarra landa.
Flugfélag íslands hefur látið
reikna út meðalverð á flugkíló-
metra á leiðinni ísland—Evrópa
annarsvegar og 14 flugleiðir í Evr-
ópu hinsyegar. Er í báðum tilfell-
um miðað við aðalfargjöld. Meðal-
verð á flugkílómetra milli London
og Reykjavíkur er kr. 4.38 en á
hinum leiðunum 14 er verðið kr.
7.24.
Flugfélagið hcfur skráð fargjöld
milli íslands og flestra borga í
Evrópu, og hefu- það í för með
sér ódýrari fargjöld, heldur en t.d.
séu keyptir farseðlar Reykjavík—
London og London—Reykjavík.
Er fargjaldið í þess stað reiknað
Reykjavík—Róm.
Þá röktu Flugfélagsmennirnir
Birgir Þorgilsson og Sveinn Sæ-
mundsson hin ýmsu sérfargjöld
sem Flugfélagið hc*ur komið til
leiðar að fengjust samþykkt. Er
þar fyrst að nefna IT fargjöldin,
þar sem keypt er fargjald og hóteí
í einum „pakka“, og er ekki nauð-
synlegt að fólk ferðist í hóp. Vor-
og haustfargjöldin, þar sem 30%
afsláttur er veittur, tók gildi 1962,
og sama ár voru námsmannafar-
gjöld rýmkuð að mun fyrir for-
göngu Flugfélagsins. 1964 gekkst
Flugfélagið fyrir jóláfargjöldum,
sem notið hafa vinsælda, og árið
1966 bar félagið fram og fékk
samþykkta tillögu um 45% far-
gjaldalækkun milli íslands og
annarra Norðurlanda, ef 50 eða
fleiri ferðast saman. Sama ár fékk
félagið samþykkt fjölskyldufar-
gjöld frá íslandi til Norðurlanda
og Bretlands.
Síðan hefur félagið lagt áherzlu
á lækkuð fargjöld til „sólarlanda",
og í því sambandi má geta vetr-
arferðanna til Kanaríeyja, sem
nutu mikilla vinsælda á sl. vetri,
og verða teknar aftur upp í des-
ember með svipuðu sniði og áður.
Loftleiðaþáttur.
Þá er vikið að fargjöldum Loft-
leiða til Bandaríkjanna, þar sem
FÍ segir að Loftleiðir hafi getað
ráðið fargjöldum sínum án þeSs
að þurfa að leita til annarra en
stjórnvalda hér og í Bandarikjun-
um. Segir FÍ fargjaldið Reykjavík
—New York—Reykjavík 1. jan.
1970 $232 en 1. apríl sl. sé það
með þotum $280. Hafi aðalfargjöld
Loftleiða á þessari leið því hækk-
að á rúmu ári»um rúmlega 20%,
og sé hluti af hækkuninni vegna
tilkomu þota hjá Loftleiðum, en
FÍ hafi ekki hækkað sín fargjöld
1967, er þotuflug þess hófst.
Fargjaldastríð í dag.
Fulltrúar beggja félaganna héldu
fund með Flugmálastjóra á sl.
vetri varðandi sumarfargjöld. í
ár og upp úr því var ákveðið
að halda frekari fundi um vetrar-
fargjöld. 15. júlí rann út frestur
til að skila tillögum á fargjalda-
ráðstefnu IATA, og daginn áður
óska Loftleiðir eftir viðræðum um
sameiginlegar tillögur. Áður hafði
FÍ tilkynnt flugmálastjóra og Loft
leiðum (2. júní) hvenær skila
þyrfti inn tillögum fyrir ráðstefn-
una, sem hófst 8, sept.
Það er fyrst 19. júlí sem félögin
halda sameiginlegan fund og á
honum báru Loftleiðjr fram til-
lögur um fargjöld til íslai.ds. Loft
leiðir báru hins vegar ekki fram
neinar tillögur um fargjöld frá
íslandi. Áhugi þeirra beindist þá
eingöngu að því að lækka far-
gjöld fyrir útlendinga til fslands,
en á engan hátt að því að auð-
velda fslendingum ferðalög til
annarra landa. Hugmyndir félag-
anna voru síðan ræddar á fund-
inum, svo og næstu da-ga og vikur
í óformlegum viðræðum fulltrúa
félaganna. Áður og á sama tíma
var unnið að þessum málum hjá
Flugfélagi íslands og þótt allt væri
komið í eindaga, hvað innsend-
ingu breytingatillagna áhrærði,
var ákveðið að fulltr. Flugfélags-
ins, sem færu á Fargjaldaráðstefn
una í Miami, myndu leggja sig
alla fram um að sameiginlegar til-
lögur félaganna yrðu teknar til
umræðu. Um mánaðamótin
ágúst/september óskaði Flugfélag
íslands eftir fundi með Loftleið-
um í því augnamiði að samræma
endanlegar tillögur félagánna, en
ekki virtist bera mikið á milli.
Flugfélag fslands myndi síðan
gera það, sem unnt væri til þess
að reka erindi beggja félaganna á
Fargjaldaráðstefnunni. Þessi fund-
ur félaganna var ákveðinn 3. sept-
ember.
Furðubréf Loftleiða.
Morgunn þann, sem fulltrúar
félaganna skyldu hittast til þess
að ganga endanlega frá tillögum
Framrald á bls. 14.
Minningarsjóður um
••
Ogmund Jónsson,
yfirverkstjóra
Stjórn Minningarsjóðs um ög-
mund Jónsson, yfirverkstjórá, er
stofnaður var af vinum hans og
kunningjum skömmu eftir lát hans
s.l. vor, hefur ákveðið að gefa
þeim, er óska eftir að teljast með-
al stofnenda sjóðsins, kost á því
fram til 15. nóvember n.k. Geta
þeir látið skrá sig í hóp stofnfé-
laga með því að hafa samband við
gjaldkera sjóðstjórnarinnar fyrir
tilskilinn tíma. Er það Albert
Jensen, húsasmíðameistari og er
ætíð unnt að ná í hann í heima-
síma 37009, einkum eftir kl. 7 á
kvöldin. — Stjómin.
Talið hjá biskupi
á fimmtudagimi
KJ—Reykjavík, þriðjudag.
Að venju verður ekki taBð í
prestskosningunum í Kópavogi
fyrr en á fimmtudaginn, en ávallt
líða 5 dagar frá kosningu til taln-
ingar. f það heila var kjörsókn
um 70% í báðum sóknunum, meira
í Kársnesprestakalli og mimta í
Digranesprestakalli.
Kláusarnir
sýndir aftur
N.k. sunnudag þann 17. þ.m.
hefjast aftur sýningar á barna-
leiknum Litli Kláus og stóri Kláus
í Þjóðleikhúsinu. Leikurinn var
sýndur á s.l. leikári við miklar vin-
sældir og ágæta aðsókn. Sýningar
á leiknum urðu þá alls 31 og var
uppselt á þær allar. Rösklega 18
þúsund leikhúsgestir sáu leikinn.
Eins og kunnugt er þá er leikur-
inn byggður á hinu þekkta ævin-
týri H. C. Andersen, sem öll böm
þekkja og hafa lesið.
Aðalhlutverkin eru leikin af
Bessa Bjarnasyni og Þórhalli Sig
urðssyni. Leikstjóri er Klemenz
Jónsson, en hann fer auk þess núna
með hlutverk Bertels gamla, í stað
Jóns Júlíusonar, sem lék það á sJL
leikári. 32 leikarar og aukaleikar-
ar taka þátt í sýningunm.
Málverkasýning
í Keflavík
Þorlákur Halldórsson heldur
málverkasýningu í Iðnaðarmanna-
félagssalnum í Keflavík dagana
16. — 24. þ.m. Sýnd verða um 40
málverk.
Rökkur
SJ—Reykjavík, föstudag.
Rökkur, nýr flokkur, III. hefti
er nýkomið út en útgefandi þess
er Axel Thorsteinsson, rithöfund-
ur. Meðal efni heftisins er grein-
in Aldarhátíð ritsnillingsins Char-
les Dickens eftir Dr. Richarc. Beck
prófessor, þýdd grein um írska
leikritaskáldið John Millington
Synge, greinar eftir Helga heitinn
Valtýsson um bláhvíta fánann og
hernám Breta norðanlands og út-
varpserindi, sem Axel Thorsteins-
son flutti um föður sinn Steingrím
Thorsteinsson.
Nýr flokkur Rökkurs byrjaði að
koma út 1967 og er nú komin þrjú
hefti. Efnisyfirlit þeirra allra fylg-
ir síðasta heftinu.
Afgreiðsla Rökkurs er að Flóka-
götu 15.