Tíminn - 13.10.1971, Blaðsíða 5

Tíminn - 13.10.1971, Blaðsíða 5
M89VIKUDAGUR 13. október 1971 TIMINN 5 MEÐ MORGUN KAFFINU — Hvaó gerið þér, þegar ekki stSSua yðnr? •7ðn Sfagnússon, venjulega kallaður Ósmann, ferjumaður á Héraðsvötnum, var orðlagt hraustmenni og drykkfelldur nokkuð. Einu sinni var hann á gangi á Sauðárkróki allmjög drukk- inn. Hann sér þá mann, sem hann þekkir, sem hafði drukkið sig út úr, og tók Ósmann hann undir hendina. Síðan gengur hann um göturnar og talar við menn, með manninn undir hend inni. Loks spyr einn kunningi hans: — Hvað ertu með undir hend inni? — Almáttugur minn, segir þá Ósmann. — Hef ég ekki gleymt manninum. — Nei, en fyndið. Nýi flóð- íesturiiin í dýragarðinum lieitir sama nafni og Þú. — Sjáðu, Wilson! Vissirðu, að það er huuangsverksmiðja í runnunum þínum? er flutningabíll nálægt til að Skólapiltur í Latínuskólan- um hafði framið drengskapar- brot, sem skólabræður hans voru mjög reiðir út af. Þeir köll-uðu saman fund og voru einhuga um að hýða skóla sveininn. Þá stendur upp einn skóla- piltur, Jóhannes að nafni, og segir, að þetta sé ekki ráðlegt, það varði við lög og geti bakað , þeim ábyrgð. Hitt sé miklu ein- faldara, að þeir ljúgi því allir, að þeir hafi hýtt hann, og það geri alveg sama gagn. Óskar heitinn Halldórsson sat í strætisvagni, og var vagninn þéttsetinn, en margir stóðu. Meðal þeirra, sem ekki höfðp sæti, var fullorðin kona, en gegnt Óskai'i sat stj'ákhjiokki. , — Stattu upp, strákur, svo að frúin þarna geti setzt, sagði Óskar. — Stattu upp sjálfur, svo all- ir geti setzt, svaraði pjakkur- inn. Kona kom inn í sölubúð og spurði, hvort til væru perur. — Nei, svaraði afgreiðslu- maðurinn, — en við eigum ágætar aprikósur. — Jæja, sagði frúin. — Það er bezt ég fái eina 50 kerta. DENNI DÆMALAU5! Hjónin hér á myndinni hafa verið gefin saman í hjónaband níu sinnum um dagana. Aðspurð segja Þau, að þau láti alltaf gifta sig, þegar->*þau langi til þess, 'þettá' sé ’ ”svó skelfing .skemmtUegt. Síðasta giftingar- athöfnin fór fram í hljóðfæra- verzlun á sölutíma og voru við- skiptavinir viðstaddir. Eitt sinn létu þau gifta sig í litilli kap- ellu uppi á fjallatoppi á Nýja Sjálandi, í annað sinn í þyrlu yfir New York borg og auk þess einu sinni í skipi á Kyrrahafi. Annars búa þessi margföldu hjón í Essex í Englandi og heita Harwey og Anna Matuzov. — Gifting er dásamlegur hlutur, þegar fólk elskast, segir Anna. — Því skyldi fólk ekki gera þetta aftur og aftur og 'aftur. Frá Kaupmannahöfn berast oss þær tízkufréttir, að nú verði karlmenn að fara að ganga með veski, eitthvað í líkingu við kvenfólkið. Þetta kemur til af því, að nú eiga karlmannafötin að verða svo þröng á næstunni, að það yrði vitavonlaust að fara að troða vasana út með ein- hverju drasli. Það verða þó lík- lega bara Þeir útvöldu, sem geta tollað í tízkunni, því eins og í tízkuheimi kvenfólksins er alltaf einhver, sem ekki hefur vöxtinn til að tolla í tízkunni. Þröngt, stutt vesti fyrir herra, er það nýjasta, þröngar buxur og jakkar, peysur og •yfirleit.t hvað sem er, er níðþröngt, nema hálsbindin, og kannski skórnir. En þeir herrar, sem vilja tolla í tízkunni en hafa of mörg kíló á kroppnum til þess, hafa svo sem allan veturinn til að koma línunum í lag, því þetta verður vor- og sumartízk- an 1972. Það gleður líka ættingja og vini, þegar þeim er boðið til brúðkaupsveizlu. Þetta gerist ósköp venjulega, segir Harvey. - - Það er að segja, aðdragand- inh. Ég’ báira brosi'tií Önnu og segii. ~. A.sliii..mýi,.yiltu giftast mer. Og svo förúm við að undir búa brúðkaupið. Myndin af ný- giftu hjónunum er tekin við ní- unda brúðkaupið nýlega, í hljóð færaverzluninni- Lloyds í London e’r alþjóð- legt tryggingafélag, sem hef- ur orðið frægt vegna þess, að það hefur tryggt ýmislegt, sem önnur slík félög hafa harðneit- að að tryggja. Nokkrum sinn- um hefur Llovds tryggt fræga fótleggi, ennfremur brjóst nokk urra fagurra kvenna, en nú hefur félagið í fyrsta sinn tryggt nafla. Nafli þessi er á Sonju nokkurri Benjamin, sem fyrir fáum árum kom fljúgandi frá Persíu (ekki þó á teppi) og hefur síðan verið í því að raka inn peningum i London. Á dag- ínn afgreiðir hún í sinni eigin ilmvatnsverzlun, en á kvöldin er hún magadansmær í Kens- ington. Þetta hlýtur að vera á- hættusamt starf fyrir naflann á henni, því hún hefur gengið á milli tryggingafélaga í Lond- on undanfarið, til að fá hann tryggðan. Að minnsta kosti er það svo, að ef eitthvað kemur fyrir naflann á Soniu, er hún búin að vera sem magadans- mær. Lloyds tryggði loks nafl- ann fyrir 800 þúsund kr. (ísl.). — ★— ★— Ef einhver skyldi spyrja gor- illuapa, hvað honum finnist mest gaman, er nokkuð víst, að apinn nefnir ekki sund, því flestar gorillur eru afar vatns- liræddar. En endurtekningar eru frá öllu og Aruna, 7. ára gor illuapi, sem er í dýragarði í Nígeríu, er undantekningin hér. Honum finnst ekkert eins .skemmtiregí.Qg^,ð busla í vatni. Gæzlumaður hans hefur látið byggia-sundíáug“og þar fá þeir sér báð saman, apinn og maður inn. Aruna hermir eftir gæzlu- manninum og hefur þegar til- einkað sér sundtökin. -★ —★- Fyrir skömmu birtum við frá sögn af tveggja ára ítalskri stúlku, sem var að éta foreldra sína og systkini út á gaddinn. Nú höfum við komizt yfir mynd af Lydiu litlu, þar sem hún er að taka til matar síns, Hún verð ur að borða minnst tvö kíló af bgnönum á dag, og bananar eru dýrir á ítalíu. Auk þess, eins og menn muna kannski, þarf Lydia að borða tvö ldló af kjöti daglega, auk mjólkur, vatns og mikilla ávaxta. Ástæðan fyrir þessu er sú, að barnið er haldið sjaldgæfum efnaskiptasjúk- dómi og er enn of ungt til að verða skorið upp, og sjúkdóm- inn er ekki hægt að lækna með lyfjum. Ríkið hefur fram til þessa neitað að styrkja fjölskyld una til matarkaupanna, en ef Lydia fær ekki matinn, deyr hún fl.iótlega. íbúðin er nú að verða húsgagnalaus, því mest hcfur verið selt fyrir mat. Og hér er sú litla að taka til við bananana. iimiimuiiiiiiiHiimiiiiiuiimiiiiimiimiiiiuiiiiiiiuiiiiiituuuiiiiuitMHiiiuiiMiiiiiiiHiiiitiiiiiiiuiiiiiiiHHiiittiiiii

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.