Tíminn - 19.10.1971, Blaðsíða 9

Tíminn - 19.10.1971, Blaðsíða 9
ÞRIÐJUDAGUR 19. október 1971 ÍÞRÓTTIR TÍMINN ÍÞRÓTT 9 „Dúkkuspil“ Vals dugði skammt gegn ákveðnu liði Breiðabliks Breiðablik komið í undanúrslit í Bika rkeppni KSÍ eftir 2:1 sigur gegn Val Hinir keppnisglöðu og ákveðnu leikmenn Breiðabliks sönnuðu það á sunnudaginn, að sigur þeirra gegn Keflvíkingum á dög- unum, var engin tilviljun. Nú gengu þeir til leiks við Val og fóru með sigur af hólrni, 2:1, og eru þar með komnir í undanúrslit Bikarkeppni KSÍ. Hver skyldi hafa trúað því í sumar, þegar Kópavogspiltamir börðust fyrir lífi sínu í 1. deild, að þeir ættu eftir að ná svo langt? En í undan- úrslit era þeir komnir og verða örugglega ekki léttir viðureignar í næstu orrustu, sem vcrður gegn annað hvort Fram eða Vestmanna eyjum, en hinn undanúrslitalcikur inn verður milli Akraness og Vík- ings. Keppnisskilyrði voru hin ákjós- anlegustu á sunnudaginn, þegar Valur og Breiðablik leiddu sam- an hesta sína á Melavellinum, en þrátt fyrir góð skilyrði var knatt- spyrnan ekki að sama skapi góð. Valsliðið lék „dúkkufótbolta", sem dugði skammt gegn ákveðnu og hörðu Breiðabliksliði, sem Þorbergur bjargaöi FRAM Það er ekki ofsögum sagt, að Þorbergur Atlason, hinn snjalli markvörður Fram, hafi bjargað liði sínu frá tapi í bikarleiknum í Vestmannaeyjum. Hvað eftir ann- að bjargaði Þorbergur á hinn ótrú- legasta hátt, en tókst þó ekki að verja fallegt og hnitmiðað skot á 30. mínútu, frá Tómasi Pálssyni, sem jafnaði Itl, en áður hafði Marteinn Geirsson skorað fyrir Fram úr vítaspymu, sem dæmd var á Pál Páimason, markvörð. Þrátt fyrir stöðuga pressu í sið- ari hálfleik tókst Eyjamönnum ekki að bæta fleiri mörkum við. Og ekki heldur í framlengingunni, þrátt fyrir nær stöðuga sókn. Iiðin verða að leika nýjan leik, og fer hann fram í Reykjavík í Þessari viku. Komst ekki til íslands Eins og kunnugt er, var von á frægum, bandarískum borðtennis leikara hingað til lands um helg- ina, Georg Braitrwaite. Ekki verð- ur þó úr komu hans að sinni. Hann starfar hjá Sameinuðu þjóðunum, og voru leyfi allra starfsmanna samtakanna afturkölluð, vegna mik illa anna við Allsherjarþing S.þ. Mun Braithwaite koma til íslands síðar. aldrei gaf eftir. Og það var fyrst og fremst keppnisviljinn, sem færði Breiðabliki sigur í þessari veiðureign. Piitar eins og Þór Hreiðarsson, Haraldur Erlends- son og Guðmundur Jónsson gefa ekkert eftir í einvígi, og þeir taka góða spretti og hika ekki við að reyna upp á eigin spýtur. Mark Þórs Hreiðarssonar í síðari hálf- leik er gott dæmi um það, en hann einlék frá miðju vallarins að Valsmarkinu — framhjá Hall- dóri Einarssyni — og skoraði sig- urmark Breiðabliks. Vel að verki staðið hjá hinum unga framherja Breiðabliks. Valsmenn léku á móti norðan golu í fyrri hálfleik og skoruðu þá sitt eina mark. Var Þórir Jóns- son að verki á 9. mínútu. Hann átti í höggi við Steinþór, bakvörð í Breiðabliksliðinu, tókst að leika hann af sér og skora. Þrátt fyrir, að Valur skoraði eina markið í fyrri hálfleik, sóttu Breiðabliksmenn miklu meira og áttu nokkur góð tækifæri, án þass þó að ná því að skora. Aftur á móti voru þeir komnir á skot- skóna í síðari hálfleik. Þá tókst Hreiðari Breiðfjörð að skora eft- ir fyrirgjöf Guðmundar Þórðar- sonar — og loks skoraði Þór sig- urmarkið 10 mínútum fyrir leiks- lok. Dómari í leiknum var Magnús V. Pétursson og dæmdi vel, en var fulláberandi persóna á vell- inum. — J.H. TÍGRIS Beethoven finnst. hann vera beztur i Kuba Imperial stereo Þetta er nú kannski ekki alveg rétt, en hitt verður þó ekki hrakið, að iMPERIAL ST-1500 stereo-samstæðan er hreinasta afbragð. Hún er glæný (árgerð 1971—72) og byggð stereo (þrýsta þarf inn takka fyrir mono). Transis- torar og díóður f útvarpsmagnara eru 37 og afriðlar 3. Lampar eru auðvitað. engir. Mögn- un er 20 W við 4 Ohrri., og er óhætt að full- yrða, að það er kappnóg (a. m. k. fyrir þá, sem búa í þéttbýli). Viðtækið er langdrægt og hefur 4 bylgjur; LB, MB, SB og FM, og er sjálfvirk tíðnisstiliing fyrir FM byllgjuna (AFC). Á útvarpi eru 2 leitarar og styrkmælir. Há- talarar eru mjög fyrirferðarlitlir (þó að sjálf- sögðu ekki á kostnað tóngæðarma) eins og samstæðan reyndar öll. Plötuspilarinn er byggður skv. vestur-þýzka gæðastaðlinum •ÐIN 45539. Er hann 4ra hraða og gerður bæði fyrir einstakar plötur og 10 plötur með sjálf- virkri skiptingu. ST-1500 fæst bæði með hvítri polyeáter áferð og í valhnotu. Verðið á aöri sámstæðunni er kr. 38.500,00 miðað við 10.000,00 kr. lágmarksútborgun og eftirstöðv- ar á 10 mánuðum. VIÐ STAÐGREIÐSLU ER VEITTUR 8% AFSLÁTTUR (verðið lækkar í kr. 35.420,00). Að vanda er ábyrgðih f 3 ÁR. Er ekki mál til komið, að þér veitið yður skemmtilega og vandaða stere.o samstæðu?tí! Röskar stúlkur geta líka eignast Kubalmperial stereo NESCO GÆDl þjÖNUc.lA [fémftnZj ImPERIRL Sjónvarps & stereotækl NESCOHF Laugavegi 10, Reykjavík.Símar 19150-19192 aam

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.