Tíminn - 19.10.1971, Qupperneq 9
ÞRIÐJUDAGUR 19. október 1971
ÍÞRÓTTIR
TÍMINN
ÍÞRÓTT
9
„Dúkkuspil“ Vals dugði skammt
gegn ákveðnu liði Breiðabliks
Breiðablik komið í undanúrslit í Bika rkeppni KSÍ eftir 2:1 sigur gegn Val
Hinir keppnisglöðu og ákveðnu
leikmenn Breiðabliks sönnuðu
það á sunnudaginn, að sigur
þeirra gegn Keflvíkingum á dög-
unum, var engin tilviljun. Nú
gengu þeir til leiks við Val og
fóru með sigur af hólrni, 2:1, og
eru þar með komnir í undanúrslit
Bikarkeppni KSÍ. Hver skyldi
hafa trúað því í sumar, þegar
Kópavogspiltamir börðust fyrir
lífi sínu í 1. deild, að þeir ættu
eftir að ná svo langt? En í undan-
úrslit era þeir komnir og verða
örugglega ekki léttir viðureignar
í næstu orrustu, sem vcrður gegn
annað hvort Fram eða Vestmanna
eyjum, en hinn undanúrslitalcikur
inn verður milli Akraness og Vík-
ings.
Keppnisskilyrði voru hin ákjós-
anlegustu á sunnudaginn, þegar
Valur og Breiðablik leiddu sam-
an hesta sína á Melavellinum, en
þrátt fyrir góð skilyrði var knatt-
spyrnan ekki að sama skapi góð.
Valsliðið lék „dúkkufótbolta",
sem dugði skammt gegn ákveðnu
og hörðu Breiðabliksliði, sem
Þorbergur
bjargaöi
FRAM
Það er ekki ofsögum sagt, að
Þorbergur Atlason, hinn snjalli
markvörður Fram, hafi bjargað
liði sínu frá tapi í bikarleiknum í
Vestmannaeyjum. Hvað eftir ann-
að bjargaði Þorbergur á hinn ótrú-
legasta hátt, en tókst þó ekki að
verja fallegt og hnitmiðað skot á
30. mínútu, frá Tómasi Pálssyni,
sem jafnaði Itl, en áður hafði
Marteinn Geirsson skorað fyrir
Fram úr vítaspymu, sem dæmd
var á Pál Páimason, markvörð.
Þrátt fyrir stöðuga pressu í sið-
ari hálfleik tókst Eyjamönnum
ekki að bæta fleiri mörkum við.
Og ekki heldur í framlengingunni,
þrátt fyrir nær stöðuga sókn.
Iiðin verða að leika nýjan leik,
og fer hann fram í Reykjavík í
Þessari viku.
Komst ekki
til íslands
Eins og kunnugt er, var von á
frægum, bandarískum borðtennis
leikara hingað til lands um helg-
ina, Georg Braitrwaite. Ekki verð-
ur þó úr komu hans að sinni. Hann
starfar hjá Sameinuðu þjóðunum,
og voru leyfi allra starfsmanna
samtakanna afturkölluð, vegna mik
illa anna við Allsherjarþing S.þ.
Mun Braithwaite koma til íslands
síðar.
aldrei gaf eftir. Og það var fyrst
og fremst keppnisviljinn, sem
færði Breiðabliki sigur í þessari
veiðureign. Piitar eins og Þór
Hreiðarsson, Haraldur Erlends-
son og Guðmundur Jónsson gefa
ekkert eftir í einvígi, og þeir taka
góða spretti og hika ekki við að
reyna upp á eigin spýtur. Mark
Þórs Hreiðarssonar í síðari hálf-
leik er gott dæmi um það, en
hann einlék frá miðju vallarins
að Valsmarkinu — framhjá Hall-
dóri Einarssyni — og skoraði sig-
urmark Breiðabliks. Vel að verki
staðið hjá hinum unga framherja
Breiðabliks.
Valsmenn léku á móti norðan
golu í fyrri hálfleik og skoruðu
þá sitt eina mark. Var Þórir Jóns-
son að verki á 9. mínútu. Hann
átti í höggi við Steinþór, bakvörð
í Breiðabliksliðinu, tókst að leika
hann af sér og skora.
Þrátt fyrir, að Valur skoraði
eina markið í fyrri hálfleik, sóttu
Breiðabliksmenn miklu meira og
áttu nokkur góð tækifæri, án þass
þó að ná því að skora. Aftur á
móti voru þeir komnir á skot-
skóna í síðari hálfleik. Þá tókst
Hreiðari Breiðfjörð að skora eft-
ir fyrirgjöf Guðmundar Þórðar-
sonar — og loks skoraði Þór sig-
urmarkið 10 mínútum fyrir leiks-
lok.
Dómari í leiknum var Magnús
V. Pétursson og dæmdi vel, en
var fulláberandi persóna á vell-
inum. — J.H.
TÍGRIS
Beethoven finnst.
hann vera beztur i
Kuba Imperial stereo
Þetta er nú kannski ekki alveg rétt, en hitt
verður þó ekki hrakið, að iMPERIAL ST-1500
stereo-samstæðan er hreinasta afbragð. Hún
er glæný (árgerð 1971—72) og byggð stereo
(þrýsta þarf inn takka fyrir mono). Transis-
torar og díóður f útvarpsmagnara eru 37 og
afriðlar 3. Lampar eru auðvitað. engir. Mögn-
un er 20 W við 4 Ohrri., og er óhætt að full-
yrða, að það er kappnóg (a. m. k. fyrir þá, sem
búa í þéttbýli). Viðtækið er langdrægt og
hefur 4 bylgjur; LB, MB, SB og FM, og er
sjálfvirk tíðnisstiliing fyrir FM byllgjuna (AFC).
Á útvarpi eru 2 leitarar og styrkmælir. Há-
talarar eru mjög fyrirferðarlitlir (þó að sjálf-
sögðu ekki á kostnað tóngæðarma) eins og
samstæðan reyndar öll. Plötuspilarinn er
byggður skv. vestur-þýzka gæðastaðlinum
•ÐIN 45539. Er hann 4ra hraða og gerður bæði
fyrir einstakar plötur og 10 plötur með sjálf-
virkri skiptingu. ST-1500 fæst bæði með hvítri
polyeáter áferð og í valhnotu. Verðið á aöri
sámstæðunni er kr. 38.500,00 miðað við
10.000,00 kr. lágmarksútborgun og eftirstöðv-
ar á 10 mánuðum. VIÐ STAÐGREIÐSLU ER
VEITTUR 8% AFSLÁTTUR (verðið lækkar í
kr. 35.420,00). Að vanda er ábyrgðih f 3 ÁR.
Er ekki mál til komið, að þér veitið yður
skemmtilega og vandaða stere.o samstæðu?tí!
Röskar stúlkur geta
líka eignast
Kubalmperial stereo
NESCO
GÆDl þjÖNUc.lA
[fémftnZj ImPERIRL
Sjónvarps & stereotækl
NESCOHF
Laugavegi 10, Reykjavík.Símar 19150-19192
aam