Fréttablaðið - 27.01.2004, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 27.01.2004, Blaðsíða 23
Húsi verslunarinnar, 4. og 5. hæð Sími 580-4000, myndsendir 580-4099 Afgreiðslutími er frá kl. 8:30 - 16:30 LÍFEYRISRÉTTINDI Sjóðurinn skiptist í sameignar- og séreignardeild. Sameignardeildin greiðir ellilífeyri, örorku-, maka- og barnalífeyri. Greiðsla í séreignardeild sjóðsins veitir góða viðbót við þau réttindi sem sameignar- deildin veitir. LÍFEYRISGREIÐSLUR Á árinu 2003 nutu 6.585 lífeyrisþegar lífeyris- greiðslna að fjárhæð 2.351 milljónir samanborið við 2.095 milljónir árið áður, en það er hækkun um 12%. Lífeyrisgreiðslurnar eru verðtryggðar og taka mánaðarlega breytingum vísitölu neysluverðs. Elli-, örorku- og makalífeyrisgreiðslur eru í réttu hlutfalli við iðgjöld til sjóðsins, þ.e. hærri iðgjöld gefa hærri lífeyri. EIGNIR 123,7 MILLJARÐAR Eignir sjóðsins námu 123,7 milljörðum í árslok og hækkuðu um 21,7 milljarða á árinu eða um rúm 21%. Á árinu 2003 greiddu 42.005 sjóðfélagar til sjóðsins. Iðgjaldagreiðslur námu 8.248 mkr. og er það aukning um tæp 12%. Þá greiddu 6.257 fyrirtæki til sjóðsins vegna starfsmanna sinna. ÁVÖXTUN 15,2% Ávöxtun á árinu 2003 var 15,2% sem samsvarar 12,1% raunávöxtun samanborið við -2,7% raunávöxtun á árinu 2002. Meðalraunávöxtun síðustu 5 árin er 4,1% og meðalraunávöxtun síðustu 10 ára er 5,9%. Ávöxtunin er nú sveiflu- kenndari samfara hækkandi hlutfalli innlendra og erlendra hlutabréfa í verðbréfasafninu. Til lengri tíma litið mun hærra hlutfall hlutabréfa skila sjóðnum betri raunávöxtun en ef eingöngu hefði verið fjárfest í skuldabréfum. Ávöxtun skiptist þannig eftir verðbréfaflokkum: Innlend hlutabréf: Raunávöxtun í fyrra var 47,1% og nafnávöxtun 51,1%. Árleg raunávöxtun inn- lendu hlutabréfaeignarinnar er 14,2% yfir tímabilið 1980 til ársloka 2003. Erlend hlutabréf: Ávöxtun í dollurum var 30,3% á árinu 2003. Á móti styrktist íslenska krónan á árinu gagnvart erlendum gjaldmiðlum um 1,2%. Skuldabréf: Raunávöxtun var 6,7% á liðnu ári samanborið við 5,9% á árinu 2002. TRYGGINGAFRÆÐILEG STAÐA Tryggingafræðileg úttekt sem miðast við árslok 2003 sýnir að skuldbindingar nema 6,8% umfram eignir. Eignir umfram áfallnar skuldbindingar nema 15,2%. VERÐBRÉFAVIÐSKIPTI Ráðstöfunarfé á árinu 2003 var 29.735 mkr. og nemur aukningin 48% frá fyrra ári. Innlend hluta- bréfakaup námu 4.850 mkr. og sala hlutabréfa 7.801 mkr. Kaup á skuldabréfum námu 14.413 mkr. og sala skuldabréfa 4.792 mkr. Erlend verðbréfakaup námu 8.799 mkr. SÉREIGNARDEILD - 80% vöxtur Séreignardeildin hefur starfað í 5 ár. Iðgjöld námu 658 mkr. samanborið við 465 mkr. árið 2002 sem er aukning um 42%. Eignir sjóðfélaga séreignar- deildar námu 1.922 mkr. sem er hækkun um 80% frá fyrra ári og í árslok áttu 25.499 einstaklingar inneignir. Ávöxtun á árinu 2003 var 15,2% sem samsvarar 12,1% raunávöxtun. Heimasíða: www.live.is LÍFEYRISSJÓÐUR VERZLUNARMANNA Upplýsingar um starfsemi á árinu 2003 Netfang: skrifstofa@live.is Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna ÁRSFUNDUR Magnús L. Sveinsson, formaður Víglundur Þorsteinsson, varaformaður Benedikt Kristjánsson Birgir R. Jónsson Gunnar P. Pálsson Ingibjörg R. Guðmundsdóttir Jóhanna E. Vilhelmsdóttir Tryggvi Jónsson Forstjóri er Þorgeir Eyjólfsson Ársfundur sjóðsins verður haldinn mánudaginn 17. maí nk. kl. 17 í Gullteigi á Grand Hótel. Fundurinn verður nánar auglýstur síðar. YFIRLIT YFIR BREYTINGAR Á HREINNI EIGNEFNAHAGSREIKNINGUR Í ÁRSLOK KENNITÖLUR Í milljónum króna 2003 2002 Innlend skuldabréf 55.575 52.479 Sjóðfélagalán 19.655 17.674 Innlend hlutabréf 16.009 13.202 Erlend hlutabréf 27.960 16.241 Verðbréf samtals 119.199 99.596 Bankainnistæður 2.914 1.337 Eignarhluti í Húsi verslunarinnar 305 232 Rekstrarfjármunir og aðrar eignir 73 73 Skammtímakröfur 1.433 939 Skammtímaskuldir -267 -220 Hrein eign sameignardeild 121.735 100.888 Hrein eign séreignardeild 1.922 1.069 Samtals hrein eign 123.657 101.957 Í milljónum króna 2003 2002 Iðgjöld 8.248 7.383 Lífeyrir -2.351 -2.095 Fjárfestingartekjur 16.023 -640 Fjárfestingargjöld -132 -121 Rekstrarkostnaður -135 -123 Aðrar tekjur 47 41 Hækkun á hreinni eign á árinu 21.700 4.445 Hrein eign frá fyrra ári 101.957 97.512 Hrein eign til greiðslu lífeyris 123.657 101.957 2003 2002 Raunávöxtun 12,1% -2,7% Hrein raunávöxtun 12,0% -2,8% Hrein raunávöxtun (5 ára meðaltal) 4,1% 3,2% Hrein raunávöxtun (10 ára meðaltal) 5,9% 5,4% Rekstrarkostnaður í % af iðgjöldum 1,16% 1,18% Rekstrarkostnaður í % af eignum 0,08% 0,08% Lífeyrir í % af iðgjöldum 30,8% 30,1% Greiðandi sjóðfélagar 42.005 41.243 Lífeyrisþegar 6.165 5.640 Greiðandi fyrirtæki 6.257 5.936 Stöðugildi 26,5 26,5 SKIPTING VERÐBRÉFAEIGNARHÖFUÐSTÓLL Í MILLJÓNUM SÉREIGN Í MILLJÓNUM 0 20.000 40.000 60.000 80.000 100.000 1999 2000 2001 2002 2003 140.000 120.000 0 500 1.000 1.500 1999 2000 2001 2002 2003 2.000 Húsnæðisbréf 6% Íbúðalánasjóður 3% Spariskírteini 2% Sjóðfélagar 16% Veðskuldabréf önnur 1% Erlend verðbréf 24% Innlend hlutabréf 13% Fjárfestinga- lánasjóðir 3% Markaðsbréf 15% Húsbréf 17%

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.