Tíminn - 26.10.1971, Blaðsíða 3

Tíminn - 26.10.1971, Blaðsíða 3
ÞRIÐJUDAGUR 2G. október 1971 TIMINN 3 wwuíuwúUh Taflmennska Petrosjans í þess- ari skák verður að metast í ljósi þeirrar staðreyndar, að hann er kominn í nánast vonlausa aðstöðu eftir ófarirnaí í 6. og 7. skákinni, og hlýtur nú að tefla sérhverja skák stíft til yinnings. í 8. skák- inni tekst Petrosjan að fá örlítið betra tafl upp úr byrjuninni, en Fischer tekst með klókindum að einfalda stöðuna svo að erfitt verð ur um sóknaraðferðir af hálfu Petrosjans. Petrosjan leggur engu að síður til atlögu á kóngsvængn- um, en Fischer er vel á verði og tekst með hnitmiðuðum að- gerðum á drottningarvængnum að binda endi á kóngssókn Pet- rosjans. í rauninni er staða Pet- rosjans mun verri, þegar hér er komið sögu, og hann afræður að fórna peði til að villa um fyrir andstæðingi sínum. En Fischer lætur ekki villa sér sýn og Pet- rosjan hefur ekkert upp úr krafs- inu. Liðsyfirburðir Fischers fara brátt að láta til sín segja og hann leiðir skákina til sigurs á óað- finnanlegan hátt. —F.Ó. Hv.: Tigran Petrosjan Sv.: Robert Fischer. Tarrasch-vörn. 1. d4 Rf6 2. c4 e6 (Fischer hefur mikið dálæti á Kóngs-indverskri vörn, en hann á það til að bregða fyrir sig öðrum byrjunumþ* 4 3 kærðir fyrir að veiða of smáa síld ÞÓ—Reykjavík, mánudag. Borið hefur á því, að bátar sem hafa veitt síld á svæðinu kringum Hrollaugseyjar, hafi kom ið með síld að landi, sem ekki hef- ur náð leyfilegri lágðmarksstærð, þ.e. 25 sentimetrum. Er nú svo komið að Fiskmat ríkisins hefur kært þrjá báta til viðkomandi yf- irvalda, eru þessir bátar frá Aust fjörðum og Vestmannaeyjum. Sjómenn eru skyldugir að taka sýni af hverju kasti, minnst hundr að síldar, og ef helmingur af sýninu er undir 25 sentimetrum að lengd, þá ber að sleppa kast- inu. Þegar síldinni er landað, þá ber kaupanda að taka samskonar-' sýnishorn, og ef sfldin reynist of smá, ber honum að kæra til Fiskmatsins. 3. Rf3 (Petrosjan gefur sjaldan færi á Nimzo-indverskri vörn, þ.e. 3. Rc3, Bb4 o.s.frv.) 3. ' — d5. (Drottningar-indverska vörnin 3. —, b6 er Fischer ekki að skapi) 4. Rc3 c5 5. e3 (Þessi rólyndislegi leikur er ein- kennandi fyrir skákstíl Petrosj- ans. Áframhaldið 5. cxd5, Rxd5 6. e4, Rxc3 7. bxc3, cxd4 8. cxd4, Bb9f 9. Bd2, BxBf 10. DxB hefur reynzt hvíti vel í seinni tíð, sbr. 5. skákina í síðara einvígi Spasskys og Petrosjans um heimsmeistara- titilinn). 5. — Rc6 6. a3 (Petrosjan teflir þessa byrjun á- vallt á þennan hátt, m.a. gegn undirrituðum í Piatigoirski-skák- mótinu í Los Angeles 1963.) 6. — Re4 (Fischer teflir á sama hátt og Korchnoj í 5. einvígisskák sinni við Petrosjan. Þar varð framhald- ið 7. Dc2, Rxc3 8. Dxc3, cxd4 9. Rxd4, Rxd4 10. Dxd4, dxc4 11. DxDf, KxD 12. Bxc4, Bd7 13. Bd2, Hc8 14. Bd3, Bd6 15. Bc3, f6. Jafn- tefli. Annars er mjög umdeilt, hvert er bezta svar svarts í þessari stöðu.) 7. Dc2. (Einnig kemur til greina 7. Bd3, Rxc3 8. bxc3, dxc4 9. Bxc4, Be7, en þannig tefldist skák milli Hort og Korchnoj í Leningrad 1967). 7. - Rxc3* - - 4 8. bxc3 -Það er skiljanlegt, að Petrosjan hafi ekki löngun til að endurtaka það, sem átti sér stað í fyrrgreindri skák við Korchnoj. Hann reynir að flækja stöðuna, en nær litlum ár- angri sökum árvekni andstæðings- ins.) | 8. — Be7 9. Bb2 0—0 10. Bd3 h6 11. 0—0 Ra5! (Þessi leikur knýr Petrosjan til að taka ákvörðun um áform sín í skákinni. Á hann að reyna að flækja taflið með 12. cxd5, exd5 13. Re5 eða leyfa einföldun á stöð- unni. Petrosjan lízt ekki vel á fyrrnefnda kostinn, og leyfir ein- földun stöðunnar. Petrosjan er sjálfum sér samkvæmur í Þessu efni en auðvitað rýrir þetta mögu- leika hans til að vinna skákina.) 12. Rd2 dxc4 , 13. Rxc4 Rxc4 14. Bxc4 b6 15. e4 (Miðborðsstaða hvíts er öflug og ógnandi, en með nokkrum hnitmið- uðum leikjum sýnir Fischer fram á, að möguleikar hans eru ekki síðri. Undir venjulegum kringum- stæðum hefði Petrosjan sennilega kosið að fara að öllu með gát hér en staða hans í einvíginu þvingar kann til að tefla til vinnings. Hann blæs því brátt til atlögu á kóngs- vængnum, en sú atlaga strandar skjótlega á skeleggri taflmennsku Fischers.) 15. — Bb7 16. De2 (Ekki 16. Hadl, cxd4 17. cxd4, Hc8). 16. — Hc8 17Bb3 (Fyrst og fremst sóknarleikur. 17. Bd3 hefði verið svarað með — cxd4 18. cxd4. Bf6 og hv. neyðist til að leika 19. e5). «L7.*i^4» * i mm ' , (Gagnaðgerlir svarts koma á réttu augnabliki 18. Dxb5 hefur að sjálf- sögðu litið upp á sig vegna 18. —, Bxe4 o.s.frv.) 18. f4(?) (Þessi sóknartilraun er eiginlega dæmd til að mistakast, en Petro- sjan leggur allt undir eitt spil.) 18. — Db6 Áttunda skák Fischers og Petrosjans 19. Khl (19. f5 gæti sv. svarað með —, cxd4 20. cxd4, e5 eða jafnvel strax 19. —, e5.) 19. — cxd4. 20. cxd4 b4! (Gagnaðgerðir Fichers á drottn- ingarvængnum hafa að engu gert vonir Petrosjans um kóngsókn. Fischer hótar nú m.a. 21. —, Ba6.) 21. axb4 Bxb4. (Taflið hefur nú snúist Fischer í hag, og Petrosjan reynir að flækja stöðuna með peðsfórn.) 22. d5!? Bc3 23. Bxc3 Hxc3 24. Bc2. (24. Ba2 gekk að sjálfsögðu ekki vegna — Ba6). 24. — exd5 25. e5 (Síðasta hálmstráið). 25. — He3. (Fischer á auðvelt með að fyrir- byggja frekari sóknaraðgerðir af hálfu Petrosjans og stýrir nú liði sínu til sigurs á óaðfinnanlegan hátt. Sjálfur Capablanca hefði ekki gert þetta betur!) 26. Dd2 d4 27. Habl (Eða 27. Hfbl, Dc6 með hótuninni 28. —, Dxg2f) 27. — Da6 28. Hf2 Hd8 (Úrslitin eru nú ráðin og úrvinnsl- an tækniatriði eitt.) 29. Kgl Be4 30. Bxe4 HxB 31. h3 d3 32. Hb3 Dc4 33. Hb2 Hdd4 34. g3 Hd5 35. Kh2 Hb5 36. Ha2 Hbl 37. g4 He2! 38. Ilxe2 dxe2 39. Dxe2 Dxf4f 40. Kg2 Hb3 Petrosjan gafst upp enda fátt um varnir. F. Ó. ÁTTA HEIÐURSDOKTORAR KJÖRNIR Á HÁSKÓLAHÁTÍD FB—Reykjavik, mánudag. Háskólahátíðin var á laugardag- inn, og var þá minnzt, 60 ára af- mælis Háskólans. Viðstödd há- skólahátíðina voru dr. Kristján Eldjárn, forseti íslands, forseta- frúin Halldóra Eldjárn, Magnús Torfi Ólafsson, menntamálaráð- herra, Eysteinn Jónsson, forseti Alþingis, Geir Hallgrímsson borg- arstjóri, Ásgeir Ásgeirsson fyrr- verandi forseti og sendimenn er- lendra ríkja hér á landi. Háskólahátíðin hófst með því, að Stúdentakórinn söng, þá flutti Magnús Már Lárusson, háskóla- rektor ræðu, og síðan var lýst kjöri heiðursdokktora, en alls voru Magnúi Már Lárusson rektor flytur ræðu á Háskólahátíðinni. (Tímamynd Gunnar) kjörnir átta heiðursdoktorar, sjö erlendir og einn fslendingur. — Gylfi Jónsson Stud. Theoi. for- maður Stúdentaráðs flutti ávarp. Þá flutti Sinfóniuhljómsveitin Akademískan hátíðarforleik og að lokum sleit háskólarektor hátíð- inni. Þeir sem kjörnir voru heiðurs- doktorar við Háskóla íslands á sextíu ára afmæli hans, voru: Einar Haugen, prófessor við Wisconsin-háskóla, Steblin-Kamen skij, sem hefur verið prófessor við háskólann í Leningrad og for- stöðumaður Norðurlandamáladeild ar skólans; Lajos Ordass, biskup í Ungverjalandi, en hann hefur meðal annars þýtt Passíusálma Hallgríms Péturssonar á ung- versku; dr. Gylfi Þ. Gíslason, pró- fessor; Svante Bergström frá Sví- þjóð; prófessor Vinding Kruse og prófessor Stephan Hurwitz frá Danmörku og prófessor Gunther Beitzke frá Sambandslýðveldinu Þýzkalandi. Þá má geta þess, • að Mogens Fog, rektor Kaupmannahafnarhá- skóla var gestur Háskólans á há- skólahátíðinni. Utaríkisstefna hlut- hafa Mbl. Leifur Sveinsson, einn af hluthöfum Morgunblaðsins, skrifar mjög athyglisverða grein í Mbl. ,s.l. sunnudag. Boð ar hann þar fullum fetum hörð ustu línu kalda stríðsins í utan- ríkismálum íslands, sem Mbl. hefur fram til þessa flutt. Þar sem tillögur þessa hluthafa Mbl. gætu orðið mönnum til aukins skilnings á undirrót þeirra skrifa um utanríkis- og varnarmál, sem nú eiga sér stað á vegum starfsmanna hlut hafa Mbl. í ritstjórnargreinum blaðsins, verða hér birt helztu atriðin úr þessari stefnuyfirlýs- ingu eins aðalhluthafa Mbl.: Leifur Sveinsson leggur til, að á meðan unnið sé að því, að sú stefna komizt í framkvæmd á íslandi, sem Jóhann Hafstein, fyrrv. forsætisráðh., áréttaði á Alþingi fyrir nokkrum dög- um, að hefði frá upphafi verið og væri enn cinnig stefna Sjálf stæðisflokksins, þ.e. að hér á landi dveldist ckki erlendur her á friðartímum, skuli utan- ríkisstefna íslands vera sem hér segir; „Tímabilið 1971—1975 þarf aftur á móti að nota til eftir- farandi: 1. Undirbúa slit á stjórnmála sambandi við Sovétríkin frá og með 1.6. 1975. 2. Nota þennan fjögurra ára umþóttunartíma til þess að finna markaði fyrir allar þær vörur, sem við nú flytjum út til Sovétríkjanna með það að höfuðmarkmiði, að útflutning- ur þangað verði úr sögunni 1.6. 1975. 3. Undirbúningur verði haf- inn að viðskiptasamningum við aðrar þjóðir um innflutning á þcim vörum, scm við nú flytj- um inn frá Sovétríkjunum, mcð það fyrir augum, að inn- flutningi frá Sovétríkjunum verði hætt 1.6. 1975. 4. Sömu ráðstafanir verði gerðar gegn þeim ríkjum öðr- um, sem eru bandingjar Rússa í Varsjárbandalaginu.“ Þetta eru hreinskilnar skýr- ingar á þcirri kaldastríðs- stefnu, sem ræður starfsmönn- um hluthafa Árvakurs h.f. í rit stjórnargreinum Morgunblaðs- ins. í fyrradag, á dcgi Sameinuðu þjóðanna, flutti U Thant, fram kvæmdastjóri samtakanna, ávarp og taldi að tími kalda stríðsins væri brátt á enda og það væri von allra góðra manna að nýtt tnnabil bættra samskipta þjóða væri að hefj- ast. Batnandi samskipti Nato- ríkja og Varsjárbandalagsríkja og aukin viðskipti milli Aust- urs- og Vesturs-Evrópuríkja, griðasamningar V-Þýzkalands við Sovétríkin og Pólland, — stórveldasamkomulagið um Berlín og fl. eru meðal annars merki um það. Stefna bættrar og friðsamlegri sambúðar þjóða Evrópu er að bera árang ui, og fyrir frumkv. og sleitu- lausa baráttu fyrir henni, hefur Willy Brandt nú verið veitt friðarverðlaun Nóbels. En hluthafar Mbl. hafa ekk- Framhald á bls. 11.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.