Tíminn - 23.01.1972, Blaðsíða 9
SUNNUDAGUR 22. janáar 1972
TIMINN
9
CRÖDURREGN OG
HORNSTRANDAHRYDJUR
Fyriff nokkru birtist í Tím
anum grein er nefndist hinu
glettna nafni „Gróðurregn í
Mýrdal“. Þar sem grein þessi
er að mestu ádeila á grein
mína „Hornstrandahryðja“, er
komið hafði í Tímanum nokkru
áður, vil ég reyna að leiðrétta
að nokkru misskilning er þar
kemur fram, svo og biðjast
afsökunar á þeim atriðum, sem
fjallað hefur veirið um af lítilli
landfræð-il. þekkingu. Á þetta
sérstaklega við um muninn á
Hornströndum og Ströndum,
en fyrir mér hafa Hornstrand
ir og Strandir verið það sama.
Þó að sjónvarpsþátturinn Suð-
ur hafi verið frá Ströndum en
lýsing mín átt frekar við Horn
strandir.
Annars finnst mér Þ. M.
túlka orð mín undarlega, því
að á undan þeirri upptalningu,
sem birt er úr grein minni,
kemur þessi spurning og hefði
hún þurft að birtast líka. En
er hér náttúrunni cinni um að
kenna? Ég læt í ljós vafa um
að svo sé og tel síðan upp til
samanburðar þær mestu and
stæður, sem ég get hugsað mér
í veðurfarslegu og náttúru-
fræðilegu tilliti hérlendis. Ég
ber ekki á móti því að þessi
samanburður er byggður á
mjög einhæfu sjönarhomi
hvað Hornströndum viðvíkur,
eða aðeins frá hafi. Efalaust
eru þessar andstæður málaðar
of sterkum litum, og ásýnd
Hornstranda allt önnur í sumri
og sól. Vafalaust geta ferða-
langar, sem fara um Mýrdal-
inn í þoku og „gróðurregni"
myndað sér annarlegar skoð
anir uim héraðið og veðráttu
þess. Útkoman verður hinsveg
ar sú sama. Hvort sem við get
um orðið sammála um mismun
andi landsigæði eftir landshlut
um eða ekki þá eiga báðir,, o.g
reyndar allt dreifbýlið, við
sömu erfiðleika að stríða í sam
handi við fólksflótta úr sveit
un\n, og fæ ég ekki séð hvem
ig uivnt er ' að túlka orð mín
þannig ið til sundrangar telj
ist í gam dreifbýlisins. Þvert
4 móti er m.ðurstaða greinar-
Innar að ástíeðan fyrir fólks-
Hóttanum úr switunum sé ekki
af völdiim landsSSigs eða veð
urfars, heldur dæmigarð „Horn
strandahryðja" af mainavöld-
um. Afleiðing gróða og fjárm.-
stefnu, sem aðeins hefur stbdtot
að einu marki, að hlaða ofan
■ jf það fjármaign sem fyrir er
á Reykjavíkursvæðinu. Þessi
stefna hefur tekizt það vel, að
bú og sveitir landsins eru metn
ar til fjár af stórgróðamönn
um höfuðborgarsvæðisins með
tilliti til sumarbústaðalands eða
laxveiði. Annað þarf hinsvegar
ekki að verðleggja. Ám og vötn
um skal breytt og þau virkjuð
til almenningsheilla. Þegar
svo bændur vakná af dvala og
snúast til varnar að ám sé
veitt ýmist úr eða í sveitir
þeirra, þá skal setja lög um
að sveitir landsins eigi ekki
það land, sem þær hafa nytjað
og borið kostnað af allt frá
landnámstíð. Um viðskipti rík
isins við bændur, sem land-
eiigendur og einstaklinga, þarf
ríkið ekki að leggjast svo lágt
að semja lög eða reglur, t. d.
ef peningamaður eða hlutafé
lag í Reykjavík á malarnámu
í nágrenni 'bæjarins dettur
hvorki ríki né einstaklingi í
hug að taka þar efni án þess
að greiða fyrir það sem upp
er sett. í viðskiptum við bænd
ur er þessu öðruvísi farið. Þar
er efni til vega- og mannvirkja
gerðar tekið bóta- og leyfis-
laust úr löndum bænda, þeir
nota þetta hvort eð er ekki
sjálfir og ástæðulaust að setja
reglur um þetta, frekar en
bara andrúmsloftið, sem allir
þurfa að draga að sér. Þannig
er keisaranum goldið það sem
keisarans er.
Þetta er ein af þeim hryðj
um af mannavöldum, sem gert
hefur sitt til að veikja trú
dreifbýlisfólks á verðgildi
jarða og stöðu bóndans gagn-
vart þéttbýlinu. Það er einnig
hrakviðri af mannavöldum, þeg
ar dreifbýlismaður verður að
greiða margfaldan kostnað við
læknishjálp vegna ferðakostn
aðar og uppihalds. Það er auð
skilið að dreifbýlisfólk, sem
reynir að koma börnum sínum
til mennta, kjósi heldur að fá
sér atvinnu í þéttbýli, en greiða
tugi þúsunda aukalega með
hverju barni í heimavist eða
annarsstaðar. Þetta er hret í
garð dreifþýlisfólks, sem losar
... um kjölfestu þess í heimabyggð
um.w-En Það er „Hornstranda-
hryðja“ af mannavöidum þegar
athafnaþörf heils landshluta er
haldið niðri í hálfa öld og at-
vinnumöguleikar þannig skert
ir, að ungt fólk verður að
leita til annarra staða til lífs
bjargar, vegna þess eins að til
er einn eða nokkrir áhrifa-
menn í áhrifastöðum, sem ekki
sjá lengra en nef þeirra nær og
haga gerðum sínum eftir þvL
Það er á þennan hátt, sem
hafnarmál okkar Skaftfellinga
hafa verið meðhöndluð síðustu
áratugina og er varla von á
öðru en það fari að hitna í
kolunum. Sýslumaður okkar
Skaftfellinga hefur nú borið
fram tillögu á alþingi um að
hraða hafnarrannsóknum við
Dyrhólaey. Skaftfellingar fylgj
ast vel með þessu máli, og von
andi er að þingmönnum Suð
urlandskjördæmis, hvar í
flokki sem þeir standa, renni
blóðið til skyldunnar og veiti
þessari tillögu fyllsta stuðning.
Ég er alveg sammála Þ. M.
um það, að skrif okkar um
kalda eða hlýja sumar- eða
vetrarveðráttu er aðeins hjaL
’lg efast urn að nokkur ís-
lendingur hafi flúið heimkynni
sín af þeirri ástæðu. Hvað
landkosti og landslag áhrærir
er það varla neitt atriði held
ur, þegar um er að ræða fólks
flótta úr dnvfbýlinu. Fólk lag
ar sig að þeh* staðháttum,
veðurfari og þeirri lífsbjörg,
sem landið býður upp á á
hverjum stað, og lærir að meta
fegurð þess og kosti. Heima-
menn líta vafalaust hérað sitt
öðrum augum en íerðalangar
og á það sennilega við um
okkur báða. Ég sé t. d. ekki
beljandi jökulár, ryðjandi á
undan sér grjoti og eyðilegg
ingu, heldur ár sem bugðast
og kvíslast um svarta sanda.
Ár með lítt nytjaða möguleika
til fiskiræktar og sanda, sem
bjóða upp á ódýrustu ræktun-
arframkvæmdir og mannvirkja
gerð hérlendis. Jafnvel eld-
fjöllin bjóða upp á sevðandi
óttablandna eftirvæntingu, nátt
úruundur, sem ekki á sinn
líka í víðri veröld. Þannig get-
ur ógnvaldur eins og Katla gef-
ið af sér milljónir í gjaldeyris-
tekjur, ef samgöngu og ferða-
mannamál eru skipulögð í tíma
og samræmd skipulagi almanna
stofni sér ekki í hættu.
Segja má því að hvorugur
hafi séð nema aðra hlið á
heimabyggð hins.
Það má vera að bændur í
Strandasýslu séu ekki fátækir
eða mergsognir, enda byggist
atvinna annarra á vinnu bæði
til sjávar og sveita, eins og
Þ. M. orðar það. Hér er þessu
öðruvísi farið. Mest öll atvinna
annarra en bænda í sýslunni
snýst um verzlun og þjónustu
vi® þá í einh. mynd, og þar
er varla lengur á bætandi. Þeg
ar svo árslaun þessara þjón-
ustuliða eru orðin tvöföld á
við árslaun bænda héraðsins,
og þeir verða að greiða dýr-
ari flutningskostnað á fóður-
vörum og áburði en annarstað-
ar þekkist, vegna hafnleysis, þá
tel ég að þeir séu mergsognir.
Þetta er ekki sagt til þess að
kasta rýrð á þessa aðila eða
koma á úlfúð á milli stétta,
heldur aðeins staðreynd sem
Skaftfellingar búa við og
vilja bæta úr með því að fá
höfn við Dyrhólaey. Fá þannig
aðgang að þeim auðlindum,
sem eru við þeirra bæjardyr og
skapa sér þannig annað verk-
efni en vera uppeldisstöð fyrir
stór-Reykjavík, sem þegar á
við ofþensluvandamál að glíma.
Ég vil að endingu þakka
Þ. M. þarfa áminningu, en jafn
framt ítreka það, að ég skrifa
ekki sem forsvarsmaður eins
eða neins, heldur era þetta per-
sónulegar skoðanir, sem ekki
ber að blanda saman við félags-
sitanfsemi á neinu sviði. Hafi
ég vakið reiði Strandamanna
með rangri lýsingu á byggð
þeirra harma ég það og biðst
afsökunar á því.
Ég vil ekki halda því fram,
að skoðanir mínar á þessum
málum séu þær einu réttu.
Byggðaþróun dreifbýlisins er
mál okkar alira úti á lands-
byggðinni, og orð mín eru að-
eins rödd þaðan. Óskandi væri
Framhald á bls. 10.
gjörið þið
svo vei.
ðbte Tila
YÍðsMptfn
Síminner
(90)91400
Verksmiðjuafgreiðsla KEA
annast heildsöluafgreiðslu á
vörum frá framleiðsludeild-
um félagsins. Með einu sím-
tali getið þér pantað allt
það, sem þér cskið, af fjöl-
breytilegri framleiðslu þeirra,
landsþekktar úrvalsvörur, —
allt á einum stað:
Málningarvörur og hreinlæt-
isvörur frá Sjöfn, kjöt- og
niðursuðuvörur frá Kjötiðn-
aðarstöð KEA og hangikjöt
frá Reykhúsi KEA. Gula-
bandið og Flóru-smjörlíki,
Braga-kaffi og Santos-kaffi,
Flóra-sultur og safar, forauð-
vörur frá Brauðgerð KEA,
ostar og smjör frá Mjólkur-
samlagi KEA, allt eru þetta
þjóðkunnar og mjög eftir-
sóttar vörur, öruggar sölu-
vörur, marg-auglýstar í út-
varpi, sjónvarpi og blöðum.
Innkaupastjórar. Eitt símtaL
Fljót og örugg afgreiðsla.
Kynnið yður kjörin og veyar
ið viðskiptin.
Síminner (96) 21400.
7
/
r &
/
BRAUÐ
GERÐ
e/m
REYK
HÚS
SMJÖRLÍKIS
GERB
i
I
t'
VERKSMIÐJUAFGREIÐSIA K-E-A AKUREYRI