Tíminn - 02.02.1972, Blaðsíða 2

Tíminn - 02.02.1972, Blaðsíða 2
2 TÍMINN MIÐVIKUDAGUR 2. febrúar 1972. Er samræmi : málfiutningi stjórnarandstæðinga? I umræðunum um kjara- deilu BSRB og rikisins, sem uröu á Alþingi i fyrradag, rifjaði forsætisráðherra upp þau ákvæði laga, sem Kjaradómi bæri að styðjast við, er hann kvæði upp úr- skurð i kjaradeilu opinberra starfsmanna. Þessi ákvæði eru svohljóðandi: „Kjaradómur skal við úr- lausnir sinar m.a. hafa hlið- sjón af 1) kjörum launþega, er vinna við sambærileg störf hjá öörum en rikinu. 2) Kröfum, sem gerðar eru til menntunar, ábyrgðar og sér- hæfni starfsmanna. 3) Afkomuhorfum þjóðar- búsins.” ólafur sagði, að þess hefði óneitanlega gætt talsvert hjá stjórnarandstöðunni á Alþingi upp á siðkastið, að nokkrir þeirra, sem virtust styðja kröfur opinberra starfsmanna um almennar kauphækkanir, væru heldur uggandi um afkomuhorfur þjóðarbúsins. Þeir teldu að teflt væri i tvisýnu um af- komu rikissjóðs, um afkomu atvinnuveganna og að fram- undan væri hin ógurlegasta verðbólgualda. Ef kröfur opinberra starfs- manna eru réttmætar og þær fá viðurkenningu hjá Kjaradómi, verður auðvitað að taka þvi og þeim af- leiðingum, sem þvi fylgir. En þá er rétt, að allir geri sér sem be»ta grein fyrir þvi, að það myndi kalla á nýja tekju- öflun fyrir rikissjóð, og menn skulu átta sig á þvi að þær tekjur verður að sækja til skattborgaranna. Það hljóð hefur heyrzt frá opin- berum starfsmönnum áður, að þeir væru ekki meðal þeirra, sem græddu á verö- bólgu og aukinni dýrtið,eða kæmust vel undan auknum skattabyrðum, sem rikið yröi að leggja á þegnana. Enginn getur horft fram hjá þeirri staðreynd i sambandi við meðferö þessa máls, að það mundi þýða verulega aukningu verðbólgu og dýr- tiðar, ef oröið yrði við öllum kröfum, sem opinberir starfsmenn hafa sett fram, þvi að kröfur þeirra, eins og þær voru upphaflega fram settar, náðu til allra opin- berra starfsmanna upp i hæstu launaflokka. Það er rétt, að allir skatt- greiðendur hafi þetta i huga, þegar þeir meta afstööu rikisstjórnarinnar i þessu máli. Rikisstjórninni er skylt að hafa allar kringum- stæður i þjóðfélaginu i huga. Enginn neitar þvi aö með siöustu kjarasamningum fengu opinberir starfsmenn mjog verulegar kjarabætur, og var þá strax augljóst, að þær myndu verða öörum stéttum tilefni til nýrrar körfugerðar til samræmis við kjör opinberra starfs- manna. Það kom lika á daginn i þeim kjara- samningum, sem gerðir voru I desember, og má þar ásamt ööru nefna vinnutimann. Það er engin sanngirni I þvi, að þær stéttir, sem búið hafa við hvað lakastan kost og hafa orðið að sækja sinar kjarabætur með strangri baráttu og verkföllum ryöji brautina fyrir aðra, sem betur eru settir og tryggari hafa afkomuna, þannig að þeir fái sambærilegar kjara- bætur fyrirhafnarlaust. Þess vegna ætlar rikis- stjórnin að veita opinberum starfsmönnum fullan samn- ingsrétt. —TK. Borgarleikhús er mjög á dag- skrá um þessar mundir einkum vegna stórafmælis Leikfélags Reykjavíkur, Hér er bréf um það mál: „Landfari sæll. Læturðu þig ekki borgarleik- hús nokkru skipta eins og önn- ur málefni dagsins? Það er á dagskrá núna og ekki að ástæðu- lausu. Leikstarfsemi í Reykja- vík á sér aldar sögu. Starf Leik- félags Reykjavíkur verður seint fullþakkað. Þar hefur löngum verið unnið menningarstarf af fórnfýsi, að mestu ólaunað áhuga starf, til að mynda á fytrstu ára- tugum aldarinnar. Aldamóta- kynslóðin, sem nú er óðum að hverfa, spurði ekki um borgun fyrir slík tómstundastörf. Það er fullkomlega eðlilegt, að Leikfélag Reykjavíkur hafi hug á lóð undir borgarleikhús í nánd við „æskustöðvar“ sínar við Tjörnina. En það eru þrír staðir í borginni, sem eiga að vera friðhelgir og friðlýstir — Tjörnin, Austurvöllur og Arnar- hóll — um það eru víst flestir Reykvíkingar sammála. Staður fyrir borgar- Ieikhús blasir við „Fyrir sunnan Fríkirkjuna" var einhvern tírna kveðið. Þar er staðurinn. Kvennaskólinn í Reykjavík, sú gamla og fræga stofnun þarf að eignast nýtt skólahús. Gamla húsið er orðið úrelt og of lítið fyrir þá starf- semi, sem þar fer firam. Með því að sameina kvenna- sckólalóðina og Herðubreiðarlóð- ina, þar sem nú eru rústir einar, fæst ágæt lóð fyrir hæfilega stórt borgarleikhús, sem rúmaði 4—500 gesti. Lóðarstærð Herðu- breiðar er 1572 fermetrar, lóð- arstærð Kvennaskólans 1815 fer- metrar. Samtals eru þessar lóð- ir 3387 ferm. Slík leikhúsbygg- ing væri borgarprýði, ef stærð- in væri hófleg. Með mikilli elju og dugnaði hafa, Leikfélags- menn cignazt vænan sjóð, og auð- velt væri með happdrætti að fá nægilegt fé til þess að full- gera þarna leikhús. Vafalaust mundi ríki og borg veita því stuðning. En ánægjulegast væri að reisa þetta musteri listar- innar fyrir frjáls framlög borg- arbúa og annarra landsmanna, sem notið hafa margra góðra stunda í gömlu Iðnó. Hjálmtýr Pétursson.“ „Þá mun bætast harmasár þess horfna, hugsjónir rætast, þá mun aftur morgna". Hér kemur svo annað stutt bréf en snaggaralega samið und- iir yfirskrift ljóðlínanna hér að ofan: „Landfari karlinn. Svona orti Hannes Hafstein um aldamótin. Áður fyrr voru menntamenn vorir hugsjóna- menn, og á margan hátt voru þeir í fararbroddi í þjóðlífinu. Um skeið virðist sem nokkrum fölskva hafi slegið á hugsjóna- glæðurnar. Hins vegar gerðu stúdentar þá merkilegu uppgötv- un ekki alls fyrir löngu, að bók- vitið yrði látið í askana. En nú benda sólarmerki til þess, að merki hugsjóna verði reist að nýju. — í Vísi 8. jan. segir: „Glaumbæjar-unnendur reynd- ust vera nær 2000 talsins — undirskriftarsöfnun háskólastú- denta að ljúka“. Þá segir, að 30 undirskriftalistar í háskóla og tízkuverzlunum séu til út- fyllingar. Og sjá, tæpri viku síð- ar afhentu tveir ungir menn úr háskólanum fulltrúum hús- stjórnar lista með 2 þús. nöfn- um. Og sum blöð segja, að ung- meyjar hafi grátið á rústum Glaumbæjar. Sókn háskólastú- denta er lokið — að minnsta kosti fyrstu atrennu — með glæsibrag. Hússtjórn á raunar ekki nema einn kost: Að láta hugsjónir rætast. H. G.“ Þessi bréfkorn lætur Land- fari fólki eftir að hugsa um í dag án nokkurrar leiðbeiningar. Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðar og tæki, eign þrota- bús OES H.F., steypustöðvar, Hafnarfirði. 1. 2 steypubifreiðar R-19411 og R-19412, Volvo NB-88, árgerð 1966 með Mulder steyputunn- um og öðrum tilheyrandi búnaði. Bifreiðarnar eru taldar vera í góðu lagi. 2. Mercedes Benz vörubifreið G-4651, árg. 1961. Bifreiðin er talin vera í allgóðu lagi. 3. Henschel-dráttarbifreið, ekki í ökufæru ástandi. 4. Ljósavél, I.G.M., 25 kw., ásamt tengiboxi og skúr. Vélin er talin vera í góðu lagi. Tilboð í framangreinda muni skulu send undir- rituðum fyrir 21. febrúar n.k. Skiptaráðandinn í Hafnarfirði 29. jan. 1972. Einar Ingimundarson, BÍLASKOÐUN & STILLING Skúlagötu 32. HJOLASTILLINGAR MÖTORSTILLINGAR LJÚSASTILLINGAR Látið stilla I tíma. Fljót og örugg þjónusta. 13-10 0 1972 ÖNFIRÐINGAR SUNNANLANDS Árshátíð verður haldin í Leikhúskjallaran- um 13. febrúar n.k. Sala aðgöngumiða hefst í dag í Reykjavík: Gunnar Ásgeirs- son h.f., Laugavegi 116; Hljóðfærahús Reykjavíkur, Laugavegi 96; Raftorg við Austurvöll. — í Hafnarfirði: Búsáhöld og leikföng, Strandgötu 11—13. — Stjómin. Rafvirki Opinber stofnun óskar eftir að ráða rafvirkja til starfa við mælasetningu. Viðkomandi þarf að hafa eigin bíl til umráða. (Eiginhandar umsóknir með upplýsingum um ald- ur, menntun og fyrri störf, ásamt mynd, sendist blaðinu fyrir þ. 7. febrúar, merktar „Reglusemi". Kaupi víxla og stutt skuldabréf fyrir vörur og peninga. Upplýsingar í síma 20555 kl. 5—7 e.h., alla virka daga. % roumsi FERÐASKRIFSTOFA RfKISINS TJÆREBORG-SUMARÁÆTLUN 1972 ER KOMIN — GLÆSILEGRI EN NOKKRU SINNI FYRR. FJÖLDI ÁKVÖRÐUNARSTAÐA UM ALLAN HEIM. Noregsferðir — 9 dagar — frá kr. 24.500,00. Svíþjóð/Finnland — 14 dagar — frá kr. 28.300,00. Róm/Sorrento — 15 dagar — frá kr. 26.400,00. Rínarlönd — 7 dagar — frá kr. 22.300,00. Sviss/Ítalía — 14 dagar — frá kr. 23.700,00. Hringið í síma 11540 og biðjið um eintak af þessari fallegu, litskreyttu TJÆREBORG 1972 sumaráætlim. LÆKJARGÖTU 3, REYKJAVÍK, SÍMI 11540

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.