Tíminn - 02.02.1972, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 2. febrúar 1972.
TÍMINN
11
Æ
Verður Islendingur einn af
Finnlandsmeisturum í ár?
„í Finnlandi er mórallinn milli liðanna mjög
einkennilegur. Þar hata liðin hvert annað, og
samræður á æfingum ganga allar út á að
skammast út i leikmenn hinna liðanna og finna
þeim allt til foráttu — t.d. voru leikmenn
liðsins, sem ég leik með, mjög óhressir yfir þvi
að Urheilu Kerho (UK-51) hafði komizt i 16-liða
úrslit i Evrópukeppninni, án þess að leika
nema annan leikinn — og tapa honum samt”.
Þetta sagöi Gisli Kristins-
son, handknattleiksmaöur úr
ÍR, en hann hefur leikið með
1R i undanförnum leikjum.
Gisli stundar nám i Finnlandi
og leikur þar sem markvöröur
með 1. deildarliöinu Helsing-
fors Idrotsforeningen
Kameraterna (HIFK)
Félagið er sænsku mælandi
félag og þaö fjársterkasta i
öllu Finnlandi. A það t.d. mjög
gott isknattleiksliö, en þaö er
vinsælasta i iþróttagreinin i
Finnlandi, svo og gott knatt-
spyrnulið. En félagiö er mjög
óvinsælt - vegna þess aö talið
er aö það bjóði góðum leik-
mönnum úr öðrum félögum
peninga, til að fá þá i sinar
raðir.
- Sá maöur sem stjórnar
handknattleiksdeild felagsins
- er allt i senn, liðsstjóri, for-
maður, gjaldkeri, ritari og
framkvæmdarstjóri. Hann er
bisnessmaður, sem svifst
einskis, hvorki i bisnessnum
né handknattleiknum. Mætir
hann á allar æfingar og leiki,
ú-ar á dómarana, þegar þeir
dæma á hans lið - það eru allir
i félaginu hræddir viö hann.
- Finnskur handknattleikur
byggist allur upp á linuspili.
HIFK hefur einn ieikmann,
sem er um tveir metrar á hæð
hann er eina langskyttan i
Finnlandi. Meðalaldurinn
i HIFK er 23 ár, og er það
yngsta liðið i 1. deildinni, i
hinum liðunum er mest um
eldri menn.
- Ég lék áður með EsBo IF,
þjálfarinn (43 ára) er gamall
landsliðsmaður, og þegar
hann lék með liðinu, var hann
alltaf beztur.
- Handknattleikur er ekki
vinsæll i Finnlandi, sést það
bezt á þvi, að þegar 1. deildar
leikir eru leiknir, mæta svona
50 - 80 áhorfendur, mest
ættingjar og vinir leik-
mannanna. A landsleiki koma
um 300 - 500 áhorfendur. Það
er litið sem ekkert skrifað
um handknattleik i blöðunum
þar - þegar UK - 51 lék hér á
móti FJ i Evrópukeppninni,
kom smá klausa i blöðunum
þar meö fyrirsögninni
„Finnar höfðu yfir i hálfleik”.
Gisli er nú farinn aftur utan,
en hann lék nokkra leiki með
1R meöan hann dvaldi hér i
jólafrii. Hann mun koma heim
aftur i mai, og þá að öllum
likindum sem Finnlands-
meistari i handknattleik, þvi
að lið hans, HIFK, hefur nú
örugga forustu i deildinni með
24 stig, eða 7 stigum meira en
næsta félag. Hefur lið hans
skorað lang flest mörkin og
fengið fæst á sig. Verður
eitthvað mikið óvænt að
gerasUef HIFK tapar mótinu,
en það á nokkra leiki eftir.
-SOS-
Hand-
knatt-
leiks-
fólk
heiðrað
Austur-
ríkismenn
heim!
Eins og viö mátti búast varð
mikið fjaðrafok i Austurrlki,
þegar úrskurður Aiþjóða-
olympiunefndarinnar undir
forustu Avery Brundage, úti-
iokaði átrúnaðargoð
Austurrikismanna, Karl Schranz
frá olympfuleikunum I Sapporo,
sem hefjast á morgun.
Menntamálaráðherra Austur-
rikis, Fred Sinowatz, sendi þegar
skeyti til forráðamanna austur-
riska skiðasambandsins, sem
voru með liðinu i Sapporo, og
sagði þeim að senda alla kepp-
endur Austurrikis heim til að
mótmæla útilokun Karls Schranz
frá leikunum.
madurinn
Spámaður okkar að þessu sinni
er Jón Hermannsson knatt-
spyrnumaður og handknattleiks-
maður úr Armanni. Jón er einn af
aðstoðarmönnum okkar, sér um
að skrifa fréttir af keppninni I
haudknattleik kvenna og er þvi
sjálfsagt vinsæll meöal þeirra.
Jón er einn þeirra fáu islend-
inga, sem ekki á uppahaldsliö i
Englandi meðal 1. deildarlið-
anna. Hans lið er 3. deildarliðið
Bornemouth, sem nú er efst i
deildinni.
Spá Jóns á getraunaseðli nr.5 er
er þessi:
Leikir 5. tebrúar 1972 1 X 2
Birmingham — Ipswich* X
Carditf — Sunderland I
Chelsea — Bolton I
Coventry — Hull I
Derby — Notts County I
Huddersfield — Fulham X
Leicester — Orient L
Liverpool — Leeds 1
Millwall — Middlesboro I
Preston — Manch. Utd. 2
Reading — Araenal l
Tranmere — Stoke l
Jón Herinannsson.
Frh. á bls. 14.
Handknattleiksráð Reykja-
víkur er 30 ára um þessar
mundir. Ráðið var stofnað árið
1942 og hefur þaö ætiö slðan unnið
ötullega að uppbyggingu hand-
knattleiksins og hefur vegnað
mjög vel I því, sem og I flestu,
sem það hefur tekið sér fyrir
hendur. S.l. sunnudag bauð stjórn
HKRR gestum til kaffidrykkju og
var þar nokkrum þeirra afhent
viðurkenningarm erki HKRR
fyrir margþáttuð störf á liðnum
árum.
A minni myndinni nælir Arni
Arnason, formaður HKRR,gull-
merki ráðsins i Valgeir Arsæls-
son, formann HSI, en milli þeirra
stendur Hilmar Olafsson, sem
einnig var sæmdur gullmerkinu.
A stóru myndinni er hópurinn,
sem hlaut merki af næstu gráðu,
talið frá vinstri: Þórður Þorkels-
son, Val, Valur Benediktsson,
Val, Sveinn Ragnarsson, Fram,
Magnús V. Pétursson, Þrótti,
Maria Guðmundsdóttir, KR,
Hulda Pétursdóttir, Fram, Helga
Emilsdóttir, Þrótti, Halldóra
Jóhannesdóttir, Viking, Sigurður
Jónsson, Viking og Pétur Bjarna-
son, Viking. A myndina vantar
Svönu Jörgensdóttir og Gunnlaug
Hjálmarsson. (Timamyndir
Gunnar).
Heldur hefur afgreiðsla KSI
verið slæleg. Það liðu fleiri vikur
þar til Austfiröingar fengu send
ingu frá þeim, en hún hafði inni
að halda afrit af leikskýrslum
Selfoss. Leikskýrslur Hveragerð-
is komu ekki, og hafa þær enn
ekki borizt, þrátt fyrir itrekuð til-
mæli þeirra.
Þykir mönnum þar þetta orðið
all undarlegt, og vilja sumir
halda þvi fram, að þetta sé þá
rétt, að sami maður hafi leikið
með báðum liðum. önnur ástæða
geti ekki verið fyrir þvi að þeir fái
ekki skýrslurnar i hendur.
Ef svo reynist vera, að sami
maður hafi leikið með báðum lið-
um, ætla Þróttarar að kæra til
Vilja láta rannsaka
leikskýrslurnar
Eins og menn eflaust muna féll
Þróttur frá Neskaupstaö I 3. deild
á tslandsmótinu i knattspyrnu s.l.
sumar. Þróttur varð I neðsta sæti
i deildinni, einu stigi á eftir
Selfossi, sem hélt sæti sinu þar
áfram.
I haust fengu Austfirðingar
fréttir af þvi, að með liöi Selfoss
hefði leikið a.m.k. einn leikmað-
ur, sem einnig heföí leikið með
liði Hveragerðis i 3. deild, en sem
kunnugt er,er óleyfilegt að leika
meö tveim liðum i Islandsmóti.
Þeir fóru þegar fram á það við
KSI, að fá afrit af öllum leik-
skýrslum Selfoss i 2. deild og
Hveragerðis i 3.deild i sumar, til
að kanna málið, og fá úr þvi
skorið, hvort sami maður hafi
leikið með báðum liöum.