Tíminn - 26.02.1972, Page 5
Laugardagur 26. febrúar 1972
TÍMINN
5
Sagt er, að gamli refurinn hann
Gary Grant sé að hugsa um að
kvænast á nýjan leik, og i þetta
sinn er það fjórða konkn hans,
sem hann gengur að eiga i
annað sinn. Eiginkonan,
Dyan Cannon, er sögð hafa hitt
hann á jólunum og hafa
samþykkt að ganga i
hjónaband með honum á nýjan
leik. Þau Dyan og Cary voru
gift i fjögur ár, eða réttara sagt
bjuggu þau saman i fjögur ár,
áður en Dyan tókst að telja
þennan glaumgosa á að giftast
sér. Svo liðu aðeins þrjú ár,
og þá slitu þau samvistum.
Dyan hefur sakaö þennan
fyrrverandi mann sinn um að
hann hafi notað LSD um hverja
helgi. En nú langar leikarann
fræga til þess að fá aftur konu
sina og litlu dótturina, hvað sem
öllu öðru liður, og við verðum að
biða og sjá, hvað hvað setur
kannski kemur frúin aftur, og
dóttirin með.
Hér sjáið þið Gary og Dyan á
meðan litla dóttirin, var enn
litil. Og svo sjáið þið dótturina,
eins og hún litur út núna, fimm
ára gömul. Hún heitir Jennifer.
Kimnigáfa KGB.
Getur það átt sér stað, að
yfirmenn rússnesku leyni-
þjónustunnar hafi einhverja
kímnigáfu, spyrja Gyðingarnir,
sem halda nú i striðum straum-
um til skrifstofu þeirrar, sem
veitir leyfi til brottflutnings
þeirra til Israel. Astæðan fyrir
þessari spurningu er sú, að yfir-
maður skrifstofunnar, sem er
reyndar kona, heitir Israelova.
Skrifstofa hennar er ein af
undirdeildum i KGB. Annars
segja Gyðingarnir, að þeir hafi
ekki undan neinu að kvarta með
Israelovu. Hún sé vingjarnleg-
asta kona, og hafi sýnt þeim
hina mestu vinsemd.
Á leið upp
á stjörnuhimininn
Það eru timaskipti að þvi,
hverjir njóta mestra vinsælda.
Ekki er langt siðan Che Guevara
var mest um talaður, og jafnvel
gerð af honum alls kyns vegg-
spjöld, sem ungir sem gamlir
hengdu upp á veggi heima hjá
sér. Siðan kom röðin að Jesú
Kristi, og er skemmst að minnast
söngleiksins Jesus Christ Super-
star, sem vakið hefur athygli viða
um lönd. Sá, sem virðist vera að
komast á toppinn aftur, eftir
nokkurra ára hlé, er gamli
Nazistahöfðinginn Hitler. Um
þessar mundir er verið að gera
hvorki meira né minna en fjórar
kvikmyndir um Hitler, lif hans og
dauða. Já, og þar að auki þrjú
leikrit. Eitt leikritanna, Lif og
Dauði Adolfs Hitlers, mun slá öll
met, hvað lengdina snertir. Það
verður sett á svið i Londons
Coliseum i mai og stendur i fjóra
tima. Sú nýbrevtni verður höfð i
sambandi við þessa sýningu,
að haft verður matarhlé i miðri
sýningu. Höfundur leikritsins er
George Hume. Þá er margt sem
bendir til þess að einræðisherr-
ann og kollegi Hitlers, Mussolini,
sé á leið upp á stjörnuhimininn.
Verið er að búa til hvorki meira
né minna en þrjár myndir um
hann. I einni þeirra leikur
Richard Burton Mussolini, og
eiginkona hans Liz Taylor fer að
sjálfsögðu með hlutverk ástmeyj-
arinnar, Clöru Petacci.
★
islendingur opnar veit-
ingahús í Höfn.
Þorsteinn nokkur
Viggósson hefur opnað nýtt
diskótek i Kaupmannahöfn sem
hann kallar Leonardo da Vinci.
Diskótekið er til húsa i sömu
húsakynnum og Klub 6 var i
áður, við Jernbanegade. Mikið
var um dýrðir, þegar þetta nýja
diskótek var opnað, og sagt, að
við opnunina hafi verið mættir
350 gestir. Klub 6 var lokað i
haust, eftir að einn gestanna
hafði orðiö fyrir skotárás og
beið bana. Margir munu kann-
ast við Þorstein, þvi hann rak
Glaumbæ um tima. Hann hefur
verið nokkurn tima i Kaup-
mannahöfn, og rekið þar mat-
sölustað. Þorsteinn hefur breytt
húsakynnum Klub 6 mikið, og af
mikilli snilld, segir i dönskum
blöðum, og hinn nýi veitinga-
staður á allan hátt hinn
skemmtilegasti.
Aldurinn færist yfir þau
Hversu lengi mun þeim takast
að halda sér uppréttum,
glæsilegum og velbúnum,
þessum hjónum, sem svo mikið
hefur verið rætt um undanfarna
áratugi. Þetta eru hjónin Wallis
og Edvard hertogi af Windsor.
Hann er 75 ára gamall og hún er
73 ára, og það má sjá, að þau
eru farin aðeldast. Það eru búin
að vera gift i 35 ár, og þessi 35 ár
hafa liðið við glaum og gleði.
Þau hafa farið úr einni veizlunni
i aðra, og alltaf hafa þau verið
óaðfinnanlega klædd. Þau hafa
lika oftar en einu sinni verið
valin meðal 10 bezt klæddu
kvenna og karla i heimi. Hann
er blindur, og hún er komin með
óteljandi hrukkur á andlitið, en
hvað sem öllu öðru liður, eru
þau bæði hamingjusöm og neita
aldrei boði, og verða barnslega
glöð, i hvert sinn, sem þeim er
boðið i veizlu.
*
Ung stúlka hafði verið i sumar-
leyfi i Paris og notaði hvert tæki-
færi, til að minnast á það. Nýlega
var hún i strætó og vildi ungur,
kurteis maður standa upp fyrir
henni.
—Nei, takk, svaraði stúlkan — ég
sat svo mikið, þegar ég var i
Paris i sumar.
Ungi Marsbúinn kom inn og
spurði: —Pabbi, má ég fá lánað-
ann diskinn i kvöld?
—Já drengur minn, hvert
ætlarðu?
—-Út að borða...
Það var islenzk málfræði i bekkn-
um og öllum hundleiddist meðan
kennarinn þuldi: —Ég þvæ mér,
þú þværð þér, hann, hún og það
þvær sér...Segöu mér Pétur,
hvaða tið er þetta?
—Ég held, að þetta geti ekki verið
annað en laugardagskvöld, herra
kennari.
Gamli majórinn var úti að ganga
með vini sinum, þegar óvenju vel
löguð ungpia leið framhjá.
—Mikið vildi ég vera orðinn sjö-
tugur aftur, sagði majórinn.
—Ég held, að maðurinn minn sé
að verða gamall, sagði Jónina.
—Hvers vegna heldurðu það?
spurði Pálina.
Þegar við förum út að borða,
sókkvir hann sér niður i matseðil-
inn, en áður var hann vanur að
rannsaka gengilbeinuna gaum-
gæfilega fyrst.
Jenseshjónin eiga sumarbústað
þar sem fjölskyldan býr i frium
sinum. Eitt sinn buðu þau Jakobi
gamla. Hann kom, dvaldi i viku
og siðan aðra. Fyrst gekk allt vel,
en loks kom Jensen til konu
sinnar og spurði hana, hvort hún
gæti ekki einhvern veginn losnað
við karlinn. —Spurðu hann hvort
hann sakni ekki konunnar og
barnanna, stakk Jensen upp á.
—Ég er búin að spyrja hann að
þvi og hann sagðist strax ætla að
skrifa og biðja þau að koma.
Aslákur gamli var að koma úr
kirkjunni, þar sem hann hafði
verið að hlusta á nýja prestinn.
Konan hans vildi fá að vita,
hvernig ræðan hefði verið.
—Hann var allt of öfgafullur,
svaraði Láki. —Hann talaði um
helviti eins og hann væri alinn
upp þar.
Sörensen kom mjög seint heim og
samvizkan var slæm, þó áfengið
hefði minnkaö samvizkubitið
nokkuð. Ekki lagaðist ástandið
þegar hann sá frúna standa i
dyrunum, með rúllur i hárinu og
kökukerfið undir hendinni. En
Sörensen var fljótur að hugsa og
sagði:
—Hvað, ég bað leigubilsstjórann
að keyra mig heim, en ekki til
Himnarikis.
—Hvað á ég að gera við börnin?
Þau eru alltaf að slást, sagði
barnfóstran við frúna.
—Sendu þau til min, þá skal ég
syngja fyrir þau.
—Ég er búin að hóta þvi tvisvar,
en það dugar ekki.
DENNI
DÆAAALAUSI
— Þetta er eitt af þvi fyrsta, sein
ég lærði að lesa. Hérna stendur:
Þurrkaðu af þér.