Tíminn - 25.03.1972, Blaðsíða 1

Tíminn - 25.03.1972, Blaðsíða 1
BÍLSTJÓRARNIR AÐSTOÐA N S£ND\B!L ASTÖÐIN HT EINGÖNGU GÓÐIR BÍLAR --- a 71. tölublað - Laugardagur 25. marz 1972 - 56. árgangur. --—--------- ||ERA if kæli- skápar ^Aátía/kvé/a't 4bf »AnMKMOmU), MMUUTMn tx Utfl IUM V. y Karlar eru fleiri fram að aldursflokknum 55-59 ára OÓ—Reykiavik. Fjölmennasti aldursflokkurinn á íslandi eru börn á aldrinum 5-9 ára. Samkvæmt Hagtiðindum voru börn á þessum aldri 22.811 i árslok 1970. Á þessu aldursskeiði voru þá 11.646 piltar og 11.165 stúlkur. Sá aldursflokkur sem næst kemur eru börn á aldrinum 10-14 ára. Voru þau i árslok 1970 22.662, 11.675 piltar og 10.987 stúlkur. Börn á aldrinum 0-4 ára voru 20.711, 10.637 piltar og 10.174 stúlkur. A þessum tölum má sjá, að drengir eru talsvert fleiri en stúlkur i ölium yngri aldursflokk- unum. Reyndar eru karlar fleiri fram að aldursflokknum 55-59 ára, en eftir þann aldur bregður svo við, að fleiri konur eru i öllum aldurs- flokkum en karlar. Endar talning Hagstofunnar á 85 ára og eldri og er þá svo komið að i þeim aldursflokki eru 432 karlar og 674 konur. 1 Reykjavik eru konur fleiri en karlar. Alls voru þa r i árslok 1970 40.024 karlar og 41.780 konur. En i öllum öðrum kaupstöðum og sýsl- um landsins voru konur færri en karlar, svo að viða hlýtur kven- mannsleysið að sverfa að. Aldursskipting mannafjölda i kaupstöðum og sýslum landsins virðist vera mjög svipuð. |M* Ólafur Jóhannesson forsætisráðherra á aðalfundi miðstjórnar Framsóknarflokksins: Stjórnarskiptin hafa valdið þáttaskilum í þjóðlífinu Efling Framsóknarflokksins og traust samstarf stjórnarflokkanna leiðir til farsællar lausnar þjóðfélagsvandamála EB—Reykjavík. í ræðu, sem formaður Framsóknarflokksins/ ólafur Jóhannesson, for- sætisróðherra, hélt í upphafi aðalfundar mið- stjórnar flokksins i gær, lagði hann rika áherzlu á traust og gott stjórnar- samstarf. Þá lagði ólaf- ur einnig ríka áherzlu á eflingu Framsóknar- flokksins, þess stjórn- málaafls, sem bezt væri treystandi til að fara Ólafur Jóhannesson forsætisráöherra, formaður Framsóknar flokksinsjlytur ræðu sina á miðstjórnarfundinum í gær. farsællega með málefni þjóðarinnar. Ölafur Jóhannesson, rakti þróun stjórnmála á Islandi frá lokum flokksþings Framsókn- arflokksins siðast liðið vor, og I % Frá setningu miðstjórnarfundarins i ráðstefnusal Loftleiðahótelsins (Timamyndir Gunnar) minnti á þau miklu timamót, sem urðu i þeim s.l. sumar, þegar þrir vinstri flokkanna mynduðu nýja rikisstjórn und- ir forsæti Framsóknarflokks- ins. Minnti Ólafur á, að þær breytingar væru meiri en fólk almennt gerði sér grein fyrir. Ólafur rifjaði upp, hvernig núverandi rikisstjórn hefði staðiö að framgangi land- helgismálsins, þvi máli, sem rikisstjórnin hefði ávallt lagt áherzlu á, að sæti fyrir öörum málefnum þjóðarinnar. Hann gat þess m.a. að þessi rikis- stjórn hefði á fyrstu fjórum mánuðum valdatima sins, kynnt sjónarmið okkar i land- helgismálinu meira, en fyrr- verandi rikisstjórn hefði gert á öllum valdatima sinum. Ólafur kvaðst vona, að þótt rikisstjórnin hefðu nú sagt upp landhelgissamningunum við Breta og Vestur-Þjóðverja frá 1961, þá myndu enn frek- ari viðræöur fara fram við þessar þjóðir um útfærslu lög- sögunnar, áður en hún yrði framkvæmd 1. september næst komandi. Þá ræddi Ólafur um kjara- samningana, sem gerðir voru 4. desember siðast liðinn án þess að kæmi til verkfalla. Minnti Ólafur á, að þá hefði núverandi rikisstjórn unnið einn sinn stærsta sigur, og hann minnti ennfremur á, að þeir samningar hefðu verið viðameiri, en slikir samning- ar, sem áður hefði verið gerð- ir. 1 kjölfar þessárá Fr.mhaldá bls. 3. Kvenfólkið alls staðar færra nema í Reykjavík

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.