Tíminn - 25.03.1972, Page 2

Tíminn - 25.03.1972, Page 2
2 TÍMINN Laugardagur 25. marz 1972. Æðisgengin leit Morgunblaðið er orðið eins og gullleitarmenn, sem lýst var áður fyrr I gullæðissögum vestan úr Klondyke. Eftir þvi sem fleiri biekkingavefir þess i áróðrinum gegn skatta- breytingum rikisst jórnar- innar grotna sundur eða gufa upp, verður leitin að nýjum aðfinnsluefnum æðisgengnari, og hvert atriði sem finnst gripið á lofti og búnar til úr þvi upphrópanir, án þess að það sé skoðað með nokkurri skyn- semi áður. Og i gær ber leiðari Morgunblaðsins það með sér, að íhaldið telur heldur en ekki hafa hlaupið á snærið hjá sér. Hver var fengurinn Og hvalreki Mbl. að þessu sinni er tilvitnun i grein Stcindórs Steindórsáonar, skólameistara á Akureyri og hljóðar svo: „Fjöldi gamals fólks á sér i- búð, sem það hefur verið að berjast við aö eignast á langri æfi. Það mun vera ósk flestra að geta búið I Ibúö sinni svo lengi sem heiisa leyfir, og þurfa ekki að hrekjast á elli- heimili eða annað. Hin gifur- lega hækkun fasteignaskatts gerir ollum þorra þessa fólks það ókleift. Margt að þvi hefur ekki haft hærri tekjur en svo, að fasteignaskatturinn eins og hann var, varð meginskatt- greiösla þess. En með hækkun hans og miskunnarlitilli inn- heimtu s veitarfélaganna, verður þvi óbærilegt að greiða hinn nýja fasteignaskatt! Morgunblaðið lætur ekki fylgja þessari átakanlegu lýsingu nein talnadæmi, telur vist ekki nógu þægilegt að búa þarna til neinar blekkinga- tölur. I.itum þvi á tölurnar: Dæmi um öldruð hjón Segjum að öldruö hjón búi i eigin ibúö, sem sé að fast- eignamati 1,5 millj. kr., scm hlýtur að teljast góö meöali- búð. Tekjuskattur af slikri i- búð var 3-4 þús. kr. en verður nú um hálft prósent af fast- eignamati, eöa kr. 7-8 þús. Hækkunin er 3-4 þús. Nú skuium viö segja að þessi hjón hafi litlar aðrar tekjur en elli- lifeyri, og þvi getur þau munað um þessa 3000 kr. húsaleiguhækkun á mánuði. En þaö er ekki þetta, sem skiptir máli, heldur hitt, að gömlu fólki verður ekki al- mennt hjálpað til sæmilegrar framfærslu með þvi að gefa þeim, sem eru svo heppnir aö eiga slika Ibúð — og öörum, scm ciga miklu meiri hús- eignir — eftir þennan skatt, heldur með sæmilegum ellilif- eyri, tekjutry ggingu eða öðrum ráðstöfunum, sem ná til alls gamals fólks sem þess þarf, þvi aö ekki er róöurinn léttari þeim mörgu, sem enga ibúð eiga i ellinni. aMargir aldraðir eiga stóreignir i húsum og eftirgjöf á fast- eignaskatti aldraðra yrðu stórtekjur fyrir þá. Núverandi stjórnarflokkar bcita sér fyrir þvi að bæta elli- lifcyri almennt, veita öldruðu fólki lágmarkstekjutryggingu til þess að lifa af. Það er það, sem máli skiptir, en ekki hitt hvort 3000 hækkun húsaleigu er létt af nokkrum hluta þessa fólks, og af þvi spretta svo enn meiri friðindi fyrir stóreignar- menn, en gamla leigufólkið fær enga sams konar umbun. Þessar 300 kr. á mánuði valda engum úrslitum um það, hvort fólk fcr á elliheimili eða ckki, heldur hitt hvort gamalt fólk fær ellilifeyri, sem það getur lifað af i sjálfstæðu heimilis- jhaldi. -AK- Bjargvættur kommúnista J. D. biður Landfara fyrir hressilega og einkar skemmti- lega ádrepu til fyrrverandi stjórnarflokka, og birtir Landfari hana með lúmskri ánægju: 12. marz 1972. ,,I leiöara Visis, sem lesinn var i morgun, var frá þvi skýrt, að kommúnistar stefndu að heims- yfirráðum með vopnavaldi, en þar sem þaö ætti ekki við, og lik- legra væri til árangurs, væri rek- inn lævis áróður i ýmsum mynd- um, þar sem spilað væri á til finningar fólksins, undir yfirskyni frelsis og lýðræðis. En til- gangurinn og markmiðið væri æ hið sama, að ná þjóðunum undir vald kommúnistaklikunnar og undiroka það flokksvaldinu. Þessi siðari aðgerð væri notuð hér á landi. Nú kann mörgum aö finnast þessi áróður einkennilegur i þess- um herbúðum, þar sem vitað er, að áratugum saman hefir Sjálf- stæðisflokkurinn bjargað kom- múnistum á margvislegan hátt, frá þvi að biða lægri hlut fyrir jafnaðarmönnum, eins og átt hefur sér stað á öðrum Norður- löndum og viðar, t.d. i Englandi. I þessu sambandi má minna á orð eins foringja ungra sjálfstæðis- manna, er sagði i ræðu og riti, ekki alls fyrir löngu, að áratugum saman hefði Morgunblaðið út- húðað kommúnistum og varað við þessum vondu mönnum á siðum blaðsins, en þó hefði jafnan svo farið, að þeim hefði komið hjálp og liðsinni i þinginu á dularfullan hátt, einmitt frá Sjálfstæðis- flokknum. Hver skilur svona tvi- skinnung, spyr vesalings ráð- villta foringjaefnið! Já, hver skilur svona nokkuð? Þetta heitir á fornu islenzku máli að leika tveim skjöldum, og virðist oft hafa gefizt vel, til að koma sér i mjúkinn hjá veraldlegum mát- tarvöldúm, þótt aldrei hafi það þótt drengilegt eða stórmannlegt. Sama meintu Rómverjar hinir fornu með orðtækinu: „Deildu og drottnaðu”, og gafst þeim vel og kostaði minna fé og mannfórnir, en að leggja undir sig lönd og þjóðir með hervaldi. Vondandi eru nú ekki lengur til ung foringjaefni sjálfstæðis- manna, svo þunn og einföld að þau hafi ekki til fullnustu skilið og tileinkað sér siðfræði Hildiriðar- sona, og geti þagað yfir þessari snjöllu aðferð til að sigra hættu- lega andstæðinga. Þetta tókst, að þvi er Alþýðu- flokkinn snerti. Sjálfstæðismenn léku það, sem liklega mun vera einsdæmi i veröldinni, að stofna ihaldsverkalýðsfélög, til þess að kljúfa og hjálpa kommúnistum, enda til þess refirnir skornir. Sjálfstæðismenn eru þvi bjarg- vættir kommúnista hér á landi, og gengi og stærð flokksins hér á landi, i samanburði við ná- grannalöndin, þeirra verk. Ekki var léttast á metunum það vinarbragð að taka þá i Nýsköp- unarstjórnina og leggja mennta- málin undir þeirra „reginment”. Það var kölluð kollsteypa af Pétri Ottesen, sem var einn af fimm þingmönnum Sjálfstæðisflokks- ins, sem yfirgáfu þá flokk sinn i bili. Það mun vera dæmafátt, að forystuflokkur i samsteypustjórn þoli að missa fjórða part af þing- liði sinu, og ekki óliklegt að hinir flokkarnir hafi ráðið meira en til stóð vegna þessarar blóðtöku for- ystuflokksins. En þá var nú mikil krás á borði, allur striðsgróðinn. Það tókst lika fljótt og vel að eyða honum, en þá var nú brátt vin- skapurinn úti, þegar ölið var af könnunni. Næst þegar flokkur máttar- stólpanna fór að stjórna án þátttöku Framsóknarflokksins, var öllu hægra um vik. Þá þurfti ekki á fósturbarninu að halda, enda hélt nú stóri flokkurinn öllu þingliði sinu. Þá var „pinulitla” flokknum lofað að stjórna ár- langt, með stóra bróður að baki, en þegar litli flokkurinn var búinn að fá blóðbragð valdsins á tönn- ina, var óhætt að taka völdin i eigin hendur og haga stefnunni i samræmi við vilja burgeisanna, og láta litla flokkinn fá helming starfandi ráðherraembætta. Þá fékkst nú langþráð upp- reisn, sem ekki hafði skeð siðan 1927. Krónan var felld fjórum sinnum og þar af einu sinni i hefndarskyni. Þá var nú gaman að lifa, — sparifjáreigendur borg- uðu brúsann, en gulltrygging þeirra stóru voru byggingar og stórverðmæti á höfuðborgar- svæðinu, sem ekki voru metnar til verðs nema brot af þvi, sem þær kostuðu, og lögleg friun frá að borga tekjuskatt af ofsagróða, varað festa hann jafnóðum i fast- eignum, sem metnar voru á móts við gamalt mat fyrir strið. Árgæzka var mikil, að tveim árum undanteknum, „hlaup” mikil bárust á fjörur „Við- reisnar” i veiðimagni og verð- hækkunum. Samheldnin var svo góð, að stjórnarflokkarnir þekktu ekki sundur á sér fæturna fremur en Bakkabræður forðum. Banka- og verzlunarhallir risu um allt i þéttbýlissvæðunum, en það var aðeins eitt og þó kannski tvennt, sem ekki hafði vaxið að verðgildi og höfðatölu: islenzka krónan og Alþýðuflokkurinn. Visir og önnur blöð sjálfstæðis- manna, geta nú skemmt sér við að ihuga þessar staðreyndir, þegar þau langar að hnotabitast út af stjórn núverandi þingmeiri- hluta. Á Gvendardag 1972. J. D.” RAFVIRKJA VANTAR til starfa hjá rafveitu Borgarness frá 1. mai nk.. Upplýsingar gefnar á skrifstof- unni, simi 7292. RAFVEITA BORGARNESS Aðalfundur Aðalfundur Sparisjóðs vélstjóra verður haldinn að Hótel Esju, Suðurlandsbraut 2, sunnudaginn 26. marz n.k. Kl. 14:00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Aðgöngumiðar að fundinum verða af- hentir ábyrgðarmönnum eða umboðs- mönnum þeirra við innganginn. STJÓRNIN. Sígildar bækur vandaðar útgáfur JÓNAS HALLQRtMSSON Kvæði og sögur Með fiorepjalli Haáldóre Laxnes* Bundið í aáekinn kr. 650,00. GRlMUR THOMSEN Ljóðmæli 1 útgáifiu S4@uirðer Nordals. Burvdið í ailakirm kr. 900,00. Ævisaga Áma prófasts Þórarinssonar SkréMtt af Þórfcargt ÞórSarayn! Tvö höndi 1 skininbanidl og séreéiöJou hiuSstrl. Kr. 1900,00 ÞÓRBERGUR ÞÓRÐARSON íslenzkur aðall 1 skinnbandi kr. 830,00. ÞÓRBERGUR ÞÖRÐARSON Ofvitinn I sJdrmfcandi kr. 750,00. (SöJjuskarbtur er ekki tnrdialinn.) JÓN HELGASON Úr landsuðri 4. prpmbun. Ib. kr. 500,00. JÓHANNES ÚR KÖTLUM Sjödægra 2. pnenbun. Ib Jcr. 450,00. JÓN HELGASON Handritaspjall Með efbirmynidajm ór hamdribuan. Iranfo. kr. 400,00 og kr. 900,00. REYKJAVlK Ljósmyndir Leifs Þorsteins- sonar. Texti eftir Bjöm Th. Bjömeson. Bókin er fáanleg á fjórum tungumáUim: Wenzku, dénsku, ensku, þýzko. Ver8 kr. 1200,00. ROMAIN ROLLAND Jóhann Krístófer Cfll fimm bindin enu nú efbur fiáanáeg. Ib. kr. 2.250,00, stdnnbaind kr. 3.250,00. MAXlM GORKl Endurminningar Síðuabu eintöidn, þrjé bindi, ínnb. kr. 1500,00. NEXO Endurminnmgar BundM í tvö btracfi kr. 900JX). pAstovski Mannsævi FjogMr binril írarab. kr. 1440,00. ALAN BOUCHER Vi8 sagnabrunninn Irmb. kr. 740,00. Þúsund og ein nótt Ný útgáfia. Pytsba btndi. Innb- kr. 800,00. MAL OG MENNTNG, Laugavegi 18

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.