Tíminn - 25.03.1972, Blaðsíða 2
2
TÍMINN
Laugardagur 25. marz 1972.
Æðisgengin leit
Morgunblaðið er orðið eins
og gullleitarmenn, sem lýst
var áður fyrr I gullæðissögum
vestan úr Klondyke. Eftir þvi
sem fleiri biekkingavefir þess
i áróðrinum gegn skatta-
breytingum rikisst jórnar-
innar grotna sundur eða gufa
upp, verður leitin að nýjum
aðfinnsluefnum æðisgengnari,
og hvert atriði sem finnst
gripið á lofti og búnar til úr þvi
upphrópanir, án þess að það sé
skoðað með nokkurri skyn-
semi áður. Og i gær ber leiðari
Morgunblaðsins það með sér,
að íhaldið telur heldur en ekki
hafa hlaupið á snærið hjá sér.
Hver var fengurinn
Og hvalreki Mbl. að þessu
sinni er tilvitnun i grein
Stcindórs Steindórsáonar,
skólameistara á Akureyri og
hljóðar svo:
„Fjöldi gamals fólks á sér i-
búð, sem það hefur verið að
berjast við aö eignast á langri
æfi. Það mun vera ósk flestra
að geta búið I Ibúö sinni svo
lengi sem heiisa leyfir, og
þurfa ekki að hrekjast á elli-
heimili eða annað. Hin gifur-
lega hækkun fasteignaskatts
gerir ollum þorra þessa fólks
það ókleift. Margt að þvi hefur
ekki haft hærri tekjur en svo,
að fasteignaskatturinn eins og
hann var, varð meginskatt-
greiösla þess. En með hækkun
hans og miskunnarlitilli inn-
heimtu s veitarfélaganna,
verður þvi óbærilegt að greiða
hinn nýja fasteignaskatt!
Morgunblaðið lætur ekki
fylgja þessari átakanlegu
lýsingu nein talnadæmi, telur
vist ekki nógu þægilegt að búa
þarna til neinar blekkinga-
tölur.
I.itum þvi á tölurnar:
Dæmi um öldruð hjón
Segjum að öldruö hjón búi i
eigin ibúö, sem sé að fast-
eignamati 1,5 millj. kr., scm
hlýtur að teljast góö meöali-
búð. Tekjuskattur af slikri i-
búð var 3-4 þús. kr. en verður
nú um hálft prósent af fast-
eignamati, eöa kr. 7-8 þús.
Hækkunin er 3-4 þús. Nú
skuium viö segja að þessi hjón
hafi litlar aðrar tekjur en elli-
lifeyri, og þvi getur þau
munað um þessa 3000 kr.
húsaleiguhækkun á mánuði.
En þaö er ekki þetta, sem
skiptir máli, heldur hitt, að
gömlu fólki verður ekki al-
mennt hjálpað til sæmilegrar
framfærslu með þvi að gefa
þeim, sem eru svo heppnir aö
eiga slika Ibúð — og öörum,
scm ciga miklu meiri hús-
eignir — eftir þennan skatt,
heldur með sæmilegum ellilif-
eyri, tekjutry ggingu eða
öðrum ráðstöfunum, sem ná
til alls gamals fólks sem þess
þarf, þvi aö ekki er róöurinn
léttari þeim mörgu, sem enga
ibúð eiga i ellinni. aMargir
aldraðir eiga stóreignir i
húsum og eftirgjöf á fast-
eignaskatti aldraðra yrðu
stórtekjur fyrir þá.
Núverandi stjórnarflokkar
bcita sér fyrir þvi að bæta elli-
lifcyri almennt, veita öldruðu
fólki lágmarkstekjutryggingu
til þess að lifa af. Það er það,
sem máli skiptir, en ekki hitt
hvort 3000 hækkun húsaleigu
er létt af nokkrum hluta þessa
fólks, og af þvi spretta svo enn
meiri friðindi fyrir stóreignar-
menn, en gamla leigufólkið
fær enga sams konar umbun.
Þessar 300 kr. á mánuði valda
engum úrslitum um það, hvort
fólk fcr á elliheimili eða ckki,
heldur hitt hvort gamalt fólk
fær ellilifeyri, sem það getur
lifað af i sjálfstæðu heimilis-
jhaldi. -AK-
Bjargvættur
kommúnista
J. D. biður Landfara fyrir
hressilega og einkar skemmti-
lega ádrepu til fyrrverandi
stjórnarflokka, og birtir Landfari
hana með lúmskri ánægju:
12. marz 1972.
,,I leiöara Visis, sem lesinn var
i morgun, var frá þvi skýrt, að
kommúnistar stefndu að heims-
yfirráðum með vopnavaldi, en
þar sem þaö ætti ekki við, og lik-
legra væri til árangurs, væri rek-
inn lævis áróður i ýmsum mynd-
um, þar sem spilað væri á til
finningar fólksins, undir yfirskyni
frelsis og lýðræðis. En til-
gangurinn og markmiðið væri æ
hið sama, að ná þjóðunum undir
vald kommúnistaklikunnar og
undiroka það flokksvaldinu. Þessi
siðari aðgerð væri notuð hér á
landi.
Nú kann mörgum aö finnast
þessi áróður einkennilegur i þess-
um herbúðum, þar sem vitað er,
að áratugum saman hefir Sjálf-
stæðisflokkurinn bjargað kom-
múnistum á margvislegan hátt,
frá þvi að biða lægri hlut fyrir
jafnaðarmönnum, eins og átt
hefur sér stað á öðrum Norður-
löndum og viðar, t.d. i Englandi. I
þessu sambandi má minna á orð
eins foringja ungra sjálfstæðis-
manna, er sagði i ræðu og riti,
ekki alls fyrir löngu, að áratugum
saman hefði Morgunblaðið út-
húðað kommúnistum og varað við
þessum vondu mönnum á siðum
blaðsins, en þó hefði jafnan svo
farið, að þeim hefði komið hjálp
og liðsinni i þinginu á dularfullan
hátt, einmitt frá Sjálfstæðis-
flokknum. Hver skilur svona tvi-
skinnung, spyr vesalings ráð-
villta foringjaefnið! Já, hver
skilur svona nokkuð? Þetta heitir
á fornu islenzku máli að leika
tveim skjöldum, og virðist oft
hafa gefizt vel, til að koma sér i
mjúkinn hjá veraldlegum mát-
tarvöldúm, þótt aldrei hafi það
þótt drengilegt eða stórmannlegt.
Sama meintu Rómverjar hinir
fornu með orðtækinu: „Deildu og
drottnaðu”, og gafst þeim vel og
kostaði minna fé og mannfórnir,
en að leggja undir sig lönd og
þjóðir með hervaldi.
Vondandi eru nú ekki lengur til
ung foringjaefni sjálfstæðis-
manna, svo þunn og einföld að
þau hafi ekki til fullnustu skilið og
tileinkað sér siðfræði Hildiriðar-
sona, og geti þagað yfir þessari
snjöllu aðferð til að sigra hættu-
lega andstæðinga.
Þetta tókst, að þvi er Alþýðu-
flokkinn snerti. Sjálfstæðismenn
léku það, sem liklega mun vera
einsdæmi i veröldinni, að stofna
ihaldsverkalýðsfélög, til þess að
kljúfa og hjálpa kommúnistum,
enda til þess refirnir skornir.
Sjálfstæðismenn eru þvi bjarg-
vættir kommúnista hér á landi, og
gengi og stærð flokksins hér á
landi, i samanburði við ná-
grannalöndin, þeirra verk.
Ekki var léttast á metunum það
vinarbragð að taka þá i Nýsköp-
unarstjórnina og leggja mennta-
málin undir þeirra „reginment”.
Það var kölluð kollsteypa af Pétri
Ottesen, sem var einn af fimm
þingmönnum Sjálfstæðisflokks-
ins, sem yfirgáfu þá flokk sinn i
bili.
Það mun vera dæmafátt, að
forystuflokkur i samsteypustjórn
þoli að missa fjórða part af þing-
liði sinu, og ekki óliklegt að hinir
flokkarnir hafi ráðið meira en til
stóð vegna þessarar blóðtöku for-
ystuflokksins. En þá var nú mikil
krás á borði, allur striðsgróðinn.
Það tókst lika fljótt og vel að eyða
honum, en þá var nú brátt vin-
skapurinn úti, þegar ölið var af
könnunni.
Næst þegar flokkur máttar-
stólpanna fór að stjórna án
þátttöku Framsóknarflokksins,
var öllu hægra um vik. Þá þurfti
ekki á fósturbarninu að halda,
enda hélt nú stóri flokkurinn öllu
þingliði sinu. Þá var „pinulitla”
flokknum lofað að stjórna ár-
langt, með stóra bróður að baki,
en þegar litli flokkurinn var búinn
að fá blóðbragð valdsins á tönn-
ina, var óhætt að taka völdin i
eigin hendur og haga stefnunni i
samræmi við vilja burgeisanna,
og láta litla flokkinn fá helming
starfandi ráðherraembætta.
Þá fékkst nú langþráð upp-
reisn, sem ekki hafði skeð siðan
1927. Krónan var felld fjórum
sinnum og þar af einu sinni i
hefndarskyni. Þá var nú gaman
að lifa, — sparifjáreigendur borg-
uðu brúsann, en gulltrygging
þeirra stóru voru byggingar og
stórverðmæti á höfuðborgar-
svæðinu, sem ekki voru metnar til
verðs nema brot af þvi, sem þær
kostuðu, og lögleg friun frá að
borga tekjuskatt af ofsagróða,
varað festa hann jafnóðum i fast-
eignum, sem metnar voru á móts
við gamalt mat fyrir strið.
Árgæzka var mikil, að tveim
árum undanteknum, „hlaup”
mikil bárust á fjörur „Við-
reisnar” i veiðimagni og verð-
hækkunum.
Samheldnin var svo góð, að
stjórnarflokkarnir þekktu ekki
sundur á sér fæturna fremur en
Bakkabræður forðum.
Banka- og verzlunarhallir risu
um allt i þéttbýlissvæðunum, en
það var aðeins eitt og þó kannski
tvennt, sem ekki hafði vaxið að
verðgildi og höfðatölu: islenzka
krónan og Alþýðuflokkurinn.
Visir og önnur blöð sjálfstæðis-
manna, geta nú skemmt sér við
að ihuga þessar staðreyndir,
þegar þau langar að hnotabitast
út af stjórn núverandi þingmeiri-
hluta.
Á Gvendardag 1972.
J. D.”
RAFVIRKJA VANTAR
til starfa hjá rafveitu Borgarness frá 1.
mai nk.. Upplýsingar gefnar á skrifstof-
unni, simi 7292.
RAFVEITA BORGARNESS
Aðalfundur
Aðalfundur Sparisjóðs vélstjóra verður
haldinn að Hótel Esju, Suðurlandsbraut 2,
sunnudaginn 26. marz n.k. Kl. 14:00.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Aðgöngumiðar að fundinum verða af-
hentir ábyrgðarmönnum eða umboðs-
mönnum þeirra við innganginn.
STJÓRNIN.
Sígildar bækur
vandaðar útgáfur
JÓNAS HALLQRtMSSON
Kvæði og sögur
Með fiorepjalli Haáldóre Laxnes*
Bundið í aáekinn kr. 650,00.
GRlMUR THOMSEN
Ljóðmæli
1 útgáifiu S4@uirðer Nordals.
Burvdið í ailakirm kr. 900,00.
Ævisaga Áma prófasts
Þórarinssonar
SkréMtt af Þórfcargt ÞórSarayn!
Tvö höndi
1 skininbanidl og séreéiöJou hiuSstrl.
Kr. 1900,00
ÞÓRBERGUR ÞÓRÐARSON
íslenzkur aðall
1 skinnbandi kr. 830,00.
ÞÓRBERGUR ÞÖRÐARSON
Ofvitinn
I sJdrmfcandi kr. 750,00.
(SöJjuskarbtur er ekki tnrdialinn.)
JÓN HELGASON
Úr landsuðri
4. prpmbun. Ib. kr. 500,00.
JÓHANNES ÚR KÖTLUM
Sjödægra
2. pnenbun. Ib Jcr. 450,00.
JÓN HELGASON
Handritaspjall
Með efbirmynidajm ór hamdribuan.
Iranfo. kr. 400,00 og kr. 900,00.
REYKJAVlK
Ljósmyndir Leifs Þorsteins-
sonar.
Texti eftir Bjöm Th.
Bjömeson.
Bókin er fáanleg á fjórum
tungumáUim: Wenzku, dénsku,
ensku, þýzko. Ver8 kr. 1200,00.
ROMAIN ROLLAND
Jóhann Krístófer
Cfll fimm bindin enu nú efbur
fiáanáeg.
Ib. kr. 2.250,00, stdnnbaind
kr. 3.250,00.
MAXlM GORKl
Endurminningar
Síðuabu eintöidn, þrjé bindi,
ínnb. kr. 1500,00.
NEXO
Endurminnmgar
BundM í tvö btracfi kr. 900JX).
pAstovski
Mannsævi
FjogMr binril írarab. kr. 1440,00.
ALAN BOUCHER
Vi8 sagnabrunninn
Irmb. kr. 740,00.
Þúsund og ein nótt
Ný útgáfia. Pytsba btndi.
Innb- kr. 800,00.
MAL OG MENNTNG, Laugavegi 18