Tíminn - 25.03.1972, Blaðsíða 3

Tíminn - 25.03.1972, Blaðsíða 3
TÍMINN 3 Laugardagur 25. marz 1972. Nokkrir úr framkvæmdarnefndínni, sem stendur fyrir Arvöku Selfoss, er hefst n.k. miövikudag. Taliö frá vinstri: Ólafur ólafssen Sigurveig Siguröardóttir, Höröur S. Óskarsson, Guðmundur Danfelsson, Hafsteinn Þorvaldsson, Jónas Ingimundarson, Karl J. Eiríks, Erla Jakobsdóttir og Sigurfinnur Sigurðsson. (Timamynd Gunnar) ARVAKA SELFOSS BÆNDUR ATHUGIÐ Til sölu HAUGSNIGILL 5 metra langur Traktorsdrif- inn Smfðaður af Landsmiöj- unni. Upplýsingar i BÍLA, BÁTA OG VERÐBRÉFASÖLUNNI viö Miklatorg. Simi 18677 ARMSTRONG- IIÖGGDEYFAR Erum að taka upp Arm- stronghöggdeyfa fyrir ýinsar gerðir bila, til dæmis: Corlinu — Willys - Mereedes Benz — Skoda — VW-Dodge Weapon — llillman — Wauxhall — og Bronco. Einnig marga fleiri. Bílabúðin h.f. llverfisgötu 54 Simi 16765 Klp — Reykjavik. Landskunn fyrirbæri i þjóðfélaginu er „Húnavakan”, „Sæluvika Skagfirðinga” og „Þjóðhátið Vestmannaeyja”. í þennan flokk bætist i næstu viku „Árvaka Selfoss” Árvakan hefst n.k. miðvikudagskvöld kl. 20,15, og mun hún standa yfir i 6 daga og ljúka á mánudagskvöldið (2. páska- dag). Á þessum tima verður fjöldinn allur af skemmtunum, fyrir unga og gamla. Hugmyndin að þessari Arvöku fæddist fyrir nokkru og var þá kallað saman til fundar með fulltrúum úr hinum ýmsu félögum og starfshópum á Selfossi og lagt á ráðin með að koma af stað einhverju, sem gæti aukið samkennd og samstöðu Sel- fossbúa, ræktarsemi þeirra og metnað fyrir hönd byggðar- lagsons. Var það úr að stofnað var til eins konar „Sæluviku Selfyssinga”, og hlaut hún nafnið „Árvaka Selfoss”. Á miðvikudaginn verður hátiðin sett, og þá verða m.a. tendruð ljós á Selfossbrúnni, eða móður Selfoss eins og hún hefur stundum verið nefnd Þá verður sögusýning, þar sem m.a. er lýst fyrsta fundi hreppsnefndarinnar 1947, en Selfoss á 25ára afmæli á þessu ári. Siðan verður almennur söngur, flugeldasýning og dansleikir i Selfossbiói. Á fimmtudaginn (skir- dag) verður opnuð sýning i Gagnfræðaskólanum og einnig i Safnhúsi Arnessýslu og barnaskólanum, og er þar um auðugan garð að gresja. Þann dag verður einnig á dagskrá leiksýning, þjóðdansar, kór- söngur, visnakeppni og margt fleira. A föstudag verða tón- leikar i Selfossbiói, en þar syngur sænskur kór, og guðs- þjónusta verður i Selfoss- kirkiu. Miðstjórnarfundur Framhald af bls. 1. samninga hefðu verið gerðir aðrir kjarasa'mningar og væri nú búið að tryggja vinnufrið i landinu til ársloka 1973. — Ég hika ekki við að telja þennan atburð einn hinn merkasta frá þvi rikisstjórnin kom til valda, saði Ólafur m.a. um þetta atriði. Ennfremur sagði hann, að hann væri þeirrar skoðunar, að samið hefði verið um hóflegar kaup- hækkanir. Þá minnti Ólafur Jóhannes- son á stofnun Framkvæmda- stofnunar rikisins. Sagðist hann binda miklar vonir við þá stofnun, tekin yrðu upp skipuleg vinnubrögð i atvinnu- málum þjóðarinnar i stað handahófsins. 1 fjárfestingar- málum yrðu nú tekin upp skynsamlegri vinnubrögð en áður hefðu tiðkazt. Þá minnti Ólafur á, að Framkvæmda- stofnunin hefði m.a. það hlut- verk að örva framkvæmdir og framtak einstaklingsins. Ættu ráðamenn stofnunarinnar að fara um landið, kynnast byggðarlögunum, ýta undir framkvæmdir fólksins þar og kynnast þvi. Ráðamennirnir ættu ekki bara að sitja i Reyk- javik. Mikilvægt væri, að á þessum málum yrði haldið á skynsamlegan hátt. Framk- væmdastofnunin ætti að koma fyrir mistök i þessum efnum og veita leiðbeiningar. Þá ræddi Ólafur nokkuð um endurnýjun togaraflotans. Hann gat þess, að nú væri búið að semja um kaup á 24 skut- togurum af svokallaðri minni gerð, auk þeirra 8 skuttogara sem samið hefði verið um kaup á i tið fyrrverandi rikis- stjórnar. Sagði Ólafur, að hann teldi, að með þessum skut- togarakaupum væri að gerast eitt af þvi stærsta i atvinnu- málum þjóðarinnar. Hinir nýju skuttogarar færu á staði úti um landið, þar sem at- vinnulifið hefði staðið höllum fæti. Með þessu væri stefnt að jafnvægi i byggð landsins og ólafur sagðist vera þeirrar skoðunar, að þessi skut- togarakaup hefðu miklu meiri áhrif i þá átt heldur en allar smáskammtalækningarnar, sem átt hefðu sér stað i þvi efni. Það mætti vel verða að hinum eldri og smærri fiski- skipum yrði lagt vegna þess arna, en i framfarasókn þyrfti hið eldra og ófullkomnara að vikja fyrir þvi nýja og full- komna. Ólafur Jóhannesson ræddi þvi næst um endurbætur i hraðfrystiiðnaðinum, það væri eitt af stærri verkefnunum og að þvi væri nú unnið. Þá sagði Ólafur, að stjórnarfrumvörpin um Sölustofnun niðursuðu- iðnaðarins og Siglóverksmiðj- una yrðu afgreidd á þessu Al- þingi. Ennfremur ræddi Ólaf- ur um landgræðsluna og skipulega nýtingu gæða lands- ins. Þessu næst minnti Ólafur á utanrikismálastefnu rikis- stjórnarinnar svo og ýmislegt, sem rikisstjórnin hefði þegar framkvæmt. Um stjórnarandstöðun-sagði Ólafur, að hún væri eins og bezt væri á kosið. Stjórnar- andstaðan væri máttlaus, reikul og ráðvillt. Hvert upp- hlaupið á fætur öðru, sem hún hefði reynt að gera, hefði runnið út i sandinn, allt frá Kina-málinu til skattalaga- breytinganna. Ólafur sagði, að vonir hefðu verið uppi um að Alþýðuflokkurinn myndi skilja sig frá Sjálfstæðis- flokknum. 1 byrjun þings hefðu verið uppi tilburðir i þá átt, en nú virtust þessir flokk- ar hafa fallizt i innileg faðm- lög á nýjan leik. Að lokinni ræðu Ólafs Jóhannessonar, flutti ritari Framsóknarflokksins, Stein- grimur Hermannsson, skýrslu um flokksstarfið, þá flutti Skrifstofustarf Starfsmaður óskast til alhliða bókhalds- starfa. Verzlunarskólamenntun, eða hliðstæð menntun æskileg. Laun skv. launakerfi opinberra starfs- manna. Skrifstofa Rannsóknastofnana atvinnuveganna, Hátúni 4a (Norðurver) A laugardag verður barna- skemmtun i Selfossbiói. bæði kl. 13.00og aftur kl. 16,00. Hafa börn sjálf lagt til allt efniö, sem er fjölbreytt. Um kvöldið verður popphátið i Selfossbiói, en þar er ætlazt til, að full- orðnir komi jafnt, sem ung- lingar, og kl. 23,00 hefst páskavaka i Selfosskirkju. A sunnudag fer fram keppni i iþróttum, einnig verður hópreið hestamanna frá Sel- fossi og kvöldvaka i kirkjunni. Arvökunni lýkur á mánudags- kvöldið, og þann dag verður margt um að vera, eins og alla hina dagana. 1 sambandi við Arvökuna hefur verið gefið út mjög myndarlegt blað, þar sem er að finna m.a. þætti úr sögu Selfoss fyrirtækja, félaga og stofnana. Tómas Árnason, gjaldkeri flokksins, skýrslu sina. Ey- steinn Jónsson gerði grein fyr- ir viðræðum við hina vinstri flokkana um myndun sam- eiginlegs stjórnmálaafls, og að lokum flutti Kristján Bene- diktsson, framkvæmdastjóri Timans, skýrslu um afkomu blaðsins. Siðan fór fram kosn- ing starfsnefnda og að lokum voru almennar umræður og nefndastörf i gærkvöldi. Skeiðará Framhald af bls. 16. ur hávaði, að þvi að talið er. Sigurður Þórarinsson, sagði i Skaftafelli i gær, að hann gæti vel hugsað sér, að sitja ofan á ishell- unni er hún fellur niður, en það • mun vera allt i lagi, þvi að isinn springur aðeins út við jaðrana á Grimsvötnum og gætu menn þvi þá auðveldlega setið á miðri is- hellunni og látið sig fylgja isnum niður i Grimsvatnakvosina. Eftir fréttum, sem bárust frá Skaftafelli i gærkvöldi, þá heldur Gigjukvisl áfram að aukast og var hún komin i 1500 tenings- metra á sekúndu. Nelndastörf heíjast að nýju kl. 9.30 f.h. i dag, en klukkan 2 siðdegis flytur Jón Sigurðsson, hagrannsóknarstjóri, fræðslu- erindi um ástand og horfur i efnahagsmálum. Siðan verða umræður og afgreiðsla mála. Miðstjórnarfundinum lýkur á morgun með ávarpi varafor- manns flokksins, Einars Ágústssonar, utanrikisráð- herra. Helgi Bergs, bankastjóri, stýrði fundi i dag, en fundar- ritarar voru þeir Sigurður Geirdal og Jónas Gestsson, Sem kunnugt er fer aðalfund- urinn fram i ráðstefnusal Loftleiðahótelsins. DREGU í 12. FLOKKI 5. APRÍL ENDURNÝIÐ GðÐFÚSLEGA FYRIR PÁSKA NÚ MÁ ENGINN GLEYMA AD ENDURNÝJA HDKKRIR LAUSIR MIDAR TIL SÖLU Á KR. 1200.00

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.