Tíminn - 25.03.1972, Page 6

Tíminn - 25.03.1972, Page 6
TÍMINN Laugardagur 25. marz 1972. Arið 1968 voru samþykkt iög um lifeyrissjóði fyrir aldraða félaga í stéttarfélögum. Litlar deilur urðu um þá löggjöf, því að samið hafði verið um þá lausn i sambandi við vinnudeilur. Þingmenn munu hafa litið á það sem samningsrof, væri frv. eigi samþykkt. 1 árslok 1970 var samþykkt lagafrv. á Alþ. um lffeyrissjóð bænda. Umræður miklar urðu um að frv., sem enduðu meö þvi, aö ákvæði var sett i lögin, að þau skyldu endurskoðuö innan tveggja ára. Ég minntist þess eigi, að svo stuttur reynslutimi hafi veriö ákveöinn áður i lögum. 1 árslok 1970 var samþykkt lagafrv. á Alþ. um lifeyrissjóð bænda. Umræður miklar urðu um það frv., sem enduöu með þvi, að ákvæði var sett i lögin, að þau skyldu endurskoöuð innan tveggja ára. Ég minnist þess eigi, að svo stuttur reynslutimi hafi veriö ákveðinn áður i lögum. Þaö bendir til þess að þingmenn hafi álitiö lögin gölluð. Hannibai Valdimarsson taldi frv. hafa alla þá ókosti, sem lögin um eftirlaun aldraðra félaga i stéttarfélögum höfðu, en komiö hafði i ljós, aö á þeirri löggjöf sneru iljar upp, þannig að þeir fengu flestar korónur,-spm minnsta höföu þörf- ina. Ifannibál sagði enn fremur, aðfúIifnTar launþega hefðu samið um lifeyrissjóði, af þvi að vinnu- veitendur voru fáanlegir aö fara þá leiö, en eigi að greiöa hærra kaup. Iðgjöld launþega til lifeyrissjóða þýöa, aö i framtið- inni eru tekin 10% af dagkaupi allra launþega til iaunþega og lögð i óverötryggða sjóði. Það skiptir eigi máli fyrir vinnuveit- endur, hvort þeir greiöa 6% af kaupi til launþega eða lifeyrissjóða. Vegna þessa ák- væðis jukust útgjöld vinnuveit- enda um 6% en tekjur launþega lækkuðu um 4%. Ljóst er þvi, að fyrrverandi ríkisstjórn hefur hér átt hlut að máli. Það var gildur þáttur i stefnu hennar og störfum að skattleggja atvinnuvegi ein- staklinga um framlög til sjóða. Endurteknar gengislækkanir hafa upprætt sparnaðarviðleitni fólks, en aukið þörf fyrir fleiri krónur til útlána. Hvert tækifæri var þvi notað til aö stofna sjóði og einstaklingar og atvinnuvegir skattlagðir i þeim tilgangi. Sjóðir þessir eru svo notaðir öðrum þræði til útlána og einstaklingar og atvinnurekendur þannig látnir greiöa vexti af eigin fé. Margþætt útgjöld valda þvæi að atvinnu- rekstur ber sig verr, og stuðla þannig óbeint að minni getu til að greiða eðlileg vinnulaun. Év álit, aö vinnuveitendur hafi verið tregir um of að semja um launa- hækkanir, einkum eftir gengis- breytingar, en þægir um of að greiða óbeinar álögur. Til skýringar læt ég hér fylgja lista yfir laun og launatengdan kostnað málmsveina eftir 3 ára starf. Vikukostnaður A klst. 1. Laun 6.246.00 156,15 2. Orlof 520,29 13,01 3. Helgidagar 270,64 6,77 4. Veikindi og slys 270,64 6,77 5. Verkfæra gjald 254,00 6,35 6. Sjúkrasjóður 75,62 1,89 7. Orlofsheimila sjóður 18.91 0,47 8' Lifeyrissjóíur 340,29 8,51 9. Launaskattur 189 05 4,73 10. Atvinnuleysis fj trygging 40,61 1,02 11. Lifeyris trygging 91,80 2,30 12.' Slysatrygging 31,70 0,79 13. Abyrgðar trygging 113,43 2,84 14. Iönaðargjald 15,12 0,38 15. Vinnuveit- endagjald 75,62 1,89 16. Vinnuföt 80,00 2,00 17. Iðnlánasjóös gjald 34,54 0,86 18. Aðstöðugjald 86,34 2,16 Það kostar samanlagt 1 3.754,60 218,89 Arskaup starfsmanns i dag- vinnu er þvi um 325 þús. kr. Aðrar greiðslur vegna starfsmanns yfir árið eru þvi um 130 þús. Otsvör og skattar til rikissjóös eru eigi talin með og útgjöld til lifeyrissjóðs eiga eftir aö hækka. Ljóst er, að væru hinir óbeinu skattar færri og smærri, væri aö þvi vinnuhagræöing og aukin geta til hærri launagreiöslna, sem fiestir hafa þörf fyrir. Ég hef kynnt mér nokkuð tryggingamál i Noregi, Dan- mörku og Sviþjóö. Þar er trygg- ingakerfiö einfalt, en eigi tvöfalt og þrefalt eins og hér. Um það er talað i þessum löndum, að heildarlifeyrir eigi að verða 2/3 af venjulegum vinnutekjum. En lifeyrir er eigi greiddur i Noregi og Danmörku fyrr en eftir 69 ára aldur. Ellilifeyrir var hér árið 1970 50 þús. kr. fyrir einhleypan mann, en 90 þús. fyrir hjón. Miöaö viö erlendan gjaldeyri lækkaði lif- eyrir hér verulega við gengis- lækkanirnar 1967 og 1968. Nú er lifeyrir hér 120 þús. kr. fyrir ein- hleypan mann, en 216 þús. fyrir hjón. Hafi lifeyrisþegi aðrar tek- jur, getur lifeyrir lækkaö I 84 þús. fyrir einhleypan mann og hlut- fallslega fyrir hjón. Þeir, sem dvelja á elliheimilum og sjúkra- húsum geta fengið mun meira. 1 Danmörku fékk einhleypur maður áriö 1970 116 þús. i ellilif- eyri, en hjón 185 þús. i isl. krónum, ef um engar aðrar tekjur varaðræða. Hefði bótaþegi aðrar tekjur, gat lifeyrir lækkað i kr. 144 þús. fyrir hjón, en 95 þús. fyrir einhleypan mann. Ellilifeyrir er álíka mikill i Noregi en nokkru hærri i Sviþjóð. Þar mun verðlag vera hærra. Ljóst er þvi, aö elli- lifeyrir er jafnhár á tslandi nú og hiá nágrannaþjóöum okkar. 1 Noregi greiða atvinnurek- endur, þar á meðal bændur, 7,8% af nettótekjum sinum i trygg- ingagjöld, launþegar 4% af launum, en atvinnurekendur 8,8% á móti. Riki og sveitarfélög greiða litið. I Sviþjóö er svipaö kerfi, en i Danmörku greiðir rikið mun meira, en iögjöld ein- staklinga eru lægri. Þessar tryggingar svara til almanna- trygginga hér, og aðrar lög- boðnar lifeyristryggingar eru eigi i þessum löndum hvorki fyrir launþega né bændur. Þær hafa þvi einfalt tryggingakerfi. Finnar einir hafa sérstakan lifeyrissjóö fyrir bændur. Þar greiðir rikið 50% iðgjalda, en 50% greiðir bóndinn beint, og er miðað við matsverð jarða. Það er viturlegri, heiðarlegri og einfald- ari innheimtuaöferð en nota á hér. Rikið ^reiöir nú allan lifeyri hér og mikinn hluta sjúkrakostnaðar. Til tryggingainála er varið á þessu ári naér; 1/3 af rikisút- gjöldum. Þár setn 4/5 bluta rikis- tekna. er aflað' með óbeinum sköttúm, eí ljóst.að allir þurfa að greiða til try'ggingamála veru- legar fjárhæðir. Auk þessa þurfa féiagar, stéttarfélaga innan Alþýðusambands Islands að greiða 10% af dagvinnukaupi i lifeyrissjóði, en bændur 11%. Þeir bændur, sem hafa meira en meðalbú, eiga að greiða 50% til viðbótar. Formaöur Stéttarsam- bands bænda heldur þvi fram, að neytendur eigi að greiða 3/5 af lifeyrissjóðsgjaldinu, en rikið af þeim vörum, sem út eru fluttar eða notaðar til iðnaðar. Engin lagaskylda hvilir á rikinu að gera slikt. Landbúnaðarvörur hafa verið seldar innanlands fvrir eins Björn Pálsson hátt verð og gerlegt hefur verið, þegar undan er skilið s.l. kosningaár. Ég hygg, að svo muni verða framvegis. Sé verð á land- búnaðarvörum óeðlilega hátt, miðað við önnur matvæli, dregur úr sölu. Það eru þvi takmörk fyrir þvi, hvað borgar sig að hækka verðið. Eigi hefur skort rök fyrir þvi, að bændur þyrftu að fá hærra verð til að hafa sömu laun og við- miöunarstéttirnar. Þeir hafa t.d. aldrei fengið fulla vexti af bústofni, jörð og vélum við verð- útreikning. Þaö er þvi blekking ein, að neytendur muni greiða 3/5 hluta af iðgjöldum til lifeyris- sjóðs. Bændur gætu selt afurðir sinar fyrir jafnhátt verð þó að engir lifeyrissjóðir væru til. Félagar i stéttarfélögum og bændur munu þvi greiöa, þegar lifeyriskerfiö er fullþroskaö eftir 1-2 ár, yfir 20% af dagvinnukaupi sinu til lifeyrissjóðstrygginga, se' tillit tekið til þess, sem greitt er i gegnum rikiskerfið. Auk þess eru greiðslur til slysa-, atvinnuleysis- og sjúkratrygginga. Þetta er a.m.k. tvöfalt meira en nágrannaþjóöir okkar greiöa og ætti að nægja til, að hægt væri að greiða lifeyrisþegum 30-40% hærri lifeyri eftir 67 ára aldur en venjuleg vinnulaun eru, ef eigi væri um óvenjulega verðlækkun peninga að ræða. Þessu til viöbótar er kerfið allt tvöfalt eða þrefalt og fáránlegt i fram- kvæmd. Trúnaðarmenn verka- lýösfélaga hlaupa um og inn- heimta iðgjöld hjá vinnuveit- endum, igreiöa gamalmennum nokkrarkrónur ársfjórðungslega, sem væntanlega lækka bætur almannatrygginga hliöstætt. Káupfélagsstjórar taka ákveðnar prósentur af innleggi hvers bónda auk ákveðinnar prósentu af heildarinnlegginu. Mun hér vera um heimsmet að ræða hvað inn- heimtuaðferöir snertir. örorku- bætur — og sennilega mat á örorku — eiga að vera i tvennu lagi, sjúkrabætur I sumum til- fellum i þrennu lagi, þvi að ýmis stéttarfélög hafa sérstaka sjúkra- sjóöi,sem atvinnurekendur verða að borga i. Hér er þvi um tvöfalt og þrefalt innheimtukerfi að ræða og tvöfalt eða jafnvel þrefalt greiðslukerfi. öllu þessu fylgir mikil skriffinska og kostnaður. önnur hlið tryggingamálanna eru lifeyrisbætur. Opinberir starfsmenn hafa verðtryggð eftirlaun, þannig að lifeyrissjóður þeirra greiðir ákveðnar prósentur launa miðað við það ár, sem þeir hættu störfum. Eftir 30- 35 ára starfsaldur getur sú up- phæð orðið 2/3 launa. Verði verðbreytingar eða launahækk- anir, greiðir rikissjóður mis- muninn. Hefur sú fjárhæö farið vaxandi og nemur sennilega 60- 70 milljónum nú. Auk þess hafa opinberir starfsmenn lifeyri frá almannatryggingum, þannig að þeir eru á fullum launum, eftir að þeir hætta störfum. Þeir eru þvi á vissan hátt betur settir en á fyrri starfs-a'rum sinum, þegar þeir þurftu að stofna heimili ala upp börn og greiða námsskuldir. Ráðherrar og þingmenn hafa nokkra sérstöðu. Hafi þeir gengt þeim störfum um árabil, fá þeir i fyrsta lagi eftirlaun sem ráöherrar eða þingmenn. Sé um embættismann eða bankastjóra að ræða, fá þeir væntanlega eftir- laun þannig, þegar þeir sjóðir taka til starfa til fulls, að 13 árum liðnum. Eiga þær bætur að nema 2/3 hlutum vinnulauna. 1 þriðja lagi eiga þeir að fá bætur frá almannatryggingum. Saman- legt nema þessar bætur sennilega hærri fjárhæð en tekjur viðkom- andi aðila voru, meðan þeir voru I starfi. Félagar i stéttarfélögum og bændur' eiga að fá tvöfaldan lifeyri, þ.e. frá almannatrygg- ingum og hinum lögboðnu lifeyrissjóðum þegar þeir taka til starfa. Sé gert ráð fyrir, að bætur almannatrygginga nemi 2/3 af venjulegum vinnulaunum. eins og stefnt virðist að nú, og bætur sérsjóða nemi 2/3 hluta vinnulauna, ættu aldraðir lifeyrisþegar aö hafa 20- 30% meiri tekjur en þeir höfðu af vinnu sinni, meðan þeir voru ungir. Auk þess hafa margir aldraðir menn tekjur af eignum og ýmsir geta haft einhver störf með höndum. Er það meira virði fyrir gamalt fólk en háar bætur. Ég tel það rétta stefnu, sem tekin var á þessu þingi, að hafa bætur lægri fyrir þá, sem hafá vinnú- tekjúr. Rétt er að gera sér ljóst, að ýmsir standa enn utan við þessa margþættu tryggingalöggjöf og eiga eigi von annarra ellibóta en frá almannatryggingum. Ég lit svo á, að tryggingakerfi okkar sé orðið frumskógarkennt og ástæða sé til aö gera það ódýrara og einfaldara i framkvæmd. Einh- verjir verða að borga til allra þessara sjóða og greiða kostn- aðinn við hið margþætta og að nokkru rangláta tryggingakerfi. Eigi þeir, sem hættir eru störfum að meira eða minna leyti, eru búnir að ala upp börn sin og eiga i mörgum tilfellum verulegar eignir, að hafa hærri árstekjur en ung hjón, sem þurfa aö stofna heimili og ala upp nýja borgara þá tel ég að stefnt sé i öfuga átt. Það er hliðstætt og farið sé að bera á túnin, þegar grösin eru að fella fræ. Gunnar Guðbjartsson taldi, aö 2/5 hlutar af ársiðgjaldi bónda, sem hefði visitölubú, miðað við verölag ársins 1970, væru 13.200 kr. Þetta er sama upphæð og ég talaði um við umr. um lifeyris- sjóð bænda. Árlega þarf þvi visi- tölubúið að greiða 33 þús. kr., er þá miðaö við verðlag 1970. Þeir, sem hafa eitt og hálft vistölubú þurfa að greiða 50% meira eöa 49.500 kr. á ári, en 2/5 hlutar af þeirri upphæð eru 19.800 kr. Rétt er, að launþegar og bændur geri sér ljóst, hve hagkvæm hin nýja lifeyrislöggjöf er. Ég fékk þvi banka- og tryggingafræðing til að reikna út, hve miklar fjárhæöir hver einstaklingur þyrfti að greiöa. Tekin eru timabilin 30 ár og 40 ár og reiknað með 10% vöxt- um og vaxtavöxtum, en þaö eru þeir viðskiptavextir, sem nær all- ir verða að greiða. Iðgjöld eru reiknuð i tvennu lagi, þ.e. 2/5 hlutar og heildariðgjöld: 13 þús. kr. lagt inn árlega i 30 ár verður með 10% vöxtum og vaxtavöxlum 2.352.264. 13 þús. kr. lagt inn árlega i 40 ár verður með 10% vöxtum og vaxtavöxtum 6.329.073. 33 þús. kr. lagt inn árlega i 30 ár verður með 10% vöxtum og vaxtavöxtum 5.971.133. 33 þús. kr. lagt inn árlega i 40 ár verður með 10% vöxtum og vaxtavöxtum 16.066.109. 19.500 kr. lagt inn árlega i 30 ár verður með 10% vöxtum og vaxtavöxtum 3.528.396. 19.500 kr. lagt inn árlega i 40 ár verður með 10% vöxtum og vaxtavöxtum 9.493.610. 48 þús. kr. lagt inn árlega i 30 ár verður með 10% vöxtum og vaxtavöxtum 8.685.284. 48 þús. kr. lagt inn árlega i 40 ár verður með 10% vöxtum og vaxtavöxtum 23.368.886. Ljóst er af þessari töflu, hve miklu skiptir fyrir ungt fólk að eignast eigið fé. Það er frumskil- yrði til, að það verði efnahagslega sjálfstæðir borgarar. Hagsýnn bóndi getur haft miklu meira en 10% vexti af þvi fé, sem hann leggur i bústofn. Eigi er þvi hag- kvæmt fyrir bændur að greiða stórar fjárhæðir i sjóði, sem þeir eiga að fá endurgreiðslur úr að einhverju leyti eftir 40-50 ár, þ.e.a.s. ef þeir eru þá eigi dauðir. öllum má ljóst vera af þessari töflu, aö það eru eigi litlar fjár- hæðir, sem félagar i stéttarfélög- um eiga að leggja á borð með sér til elliáranna, og ánægjulegt fyrir Gunnar Guðbjartsson og Hanni- bal Valdimarsson að geta gert sér ljóst, hvaða pinklar það eru, sem þeir hafa laumað á bak skjólstæð- inga sinna. Visitölubúið hefur greitteftir40ár rúmar 16milljón- ir með 10% vöxtum og vaxtavöxt- um. Svipaðar upphæ.ðir verða launþegar, sem eru félagar i stéttarfélögum, að greiða. 1 Alþýðusambandinu eru um 36 þús. félagar i stétt og bændur eru nálægt 5 þús. Þegar lífeyrissjóðs- iðgjöldin eru innheimt til fulls, eftir 1-2 ár, er liklegt, að þau nemi með óbreyttu verðlagi allt að 2000 milljónum króna árlega. Lifeyrissjóðirnir eiga ekki að hefja starfsemi fyrr en eftir 14 ár. I þessum sjóðum verður þá allhá upphæð með vöxtum og vaxta- vöxtum. Sé reiknað með fullum vöxtum, mun sú fjárhæð nema rúmum 40 milljörðum. Þá upp- hæð hafa hinir laegst launuðu i landinu greitt beint og óbeint auk allra skatta. Ég álit, að hér sé farið öfugt að. Almennan sparnað á að efla með þvi að treysta verð- gildi'peninga og gera það m.a. með þvi að stilla i hóf útgjöldum og eyðslu. Stóra vitleysan. Hér á landi munu starfandi um 70 lifeyrissjóðir, og eignir þeirra nema 3-4 milljörðum. Skráning krónunnar hefur breytzt s.l. 12 ár úr 16 kr. dollarinn i 88 kr.. i lif- eyrissjóðum væri mikið fé, ef gengið hefði verið óbreytt. Tryggingarfræðingar hafa rétti- lega á það bent, að óverðtryggðir lifeyrissjóðir séu nær óstarfhæfir vegna endurtekinna gengislækk- ana, sem hér hafa verið. Starfsaldur þeirra, sem stunda langt nám, er mun skemmri en bænda og venjulegra laun- þega. Þetta atriði hafa þeir athugað, sem sömdu trygginga- lög sjómanna, þótt illa sé raunar með sjómenn farið. farið er hámark iðgjaldatimabilsins 30 ár. Launþegar og bændur eiga hins vegar að greiða iögjöld frá 16-20 ára aldri. Ljóst er af töfl- unni, að iðgjaldaupphæðin nær þrefaldast á fjórða áratugnum, hvað þá á hinum fimmta. Sá, sem greiðir iðgjald i 40 ár, greiðir þvi nærri þrisvar sinnum meira i ið- gjöld, séu vextir og vaxtavextir reiknaðir með, en sá, sem greiðir iðgjöld i 30 ár. Þetta er stóra vit- leysan i tryggingalöggjöf bænda og stéttarfélaga. Það væri til mikilla bóta, ef tryggingatimabil- ið væri aðeins 30 ár og iðgjalda- greiöslur hæfust eigi fyrr en eftir 35 ára aldur. Iðgjaldagreiðslur bænda og félaga i stéttarfélögum eru allt of háar, nema reiknað sé með miklum gengislækkunum. Vera má, aö rétt sé að reikna með sliku, en i þvi tilfelli er viturlegast að reikna dæmið til enda. Niður- staðan mundi þá verða sú, að hagkvæmast væri fyrir bændur og jafnvel fleiri að ráða sjálfir yf- irkrónum sinum, þeir gætu oftast Framhald á bls. 15

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.