Tíminn - 25.03.1972, Qupperneq 11
Laugardagur 25. marz 1972. TÍMINN 11
SNJÓRINN
Umsjón: Alfreð Þorsteinsson
BÍÐUR EFTIR SKÍÐA-
FÓLKINU
Á ÍSA-
FIRÐI
GS—Isafirði.
Skiðamót Islands 1972 hefst hér
á Isafriði mánudaginn 27.marz.
Kl. 20.30 verður mótssetning og
að henni lokinni verður gengið i
kirkju. Séra Sigurður Kristinsson
prédikar.
briðjudaginn 28.marz kl. 16.
hefst keppni i 15 km göngu, 20 ára
og eldri og 10 km 17 til 19 ára.
Miðvikudaginn 29.marz kl. 15,
stökk i öllum flokkum og norræn
tvikeppni. Fimmtudaginn
30.marz kl. 15 boðganga. Kl. 11
fyrri ferð i stórsvigi kvenna og
karla. Kl. 15 veröur seinni ferðin.
Föstudaginn 31.marz verður
skiðaþing. Laugardaginn l.april
kl. 11 svig kvenna og karla, fyrri
ferð. Kl. 15 svig karla og kvenna,
seinni ferðin.
Mánudaginn 2.april verður 30
km ganga kl. 14 og á sama tima
hefst flokkasvig. Kl. 22 um
kvöldið verður verðlaunaaf-
hending og mótsslit, sem fer fram
i félagsheimilinu i Hnifsdal.
Nægur snjór er nú hér, þvi
alltaf hefur snjóað undanfarið, að
minnsta kosti i fjöll, og báðar
lyfturnar eru i gangi.
Þessi mynd var tekin um siðustu helgi í Hamragili, 1 punktamótinu, sem þar var háð, en sigurvegari I
kvennaflokki — bæði i svigi og stórsvigi — varð Svandis Hauksdóttir frá Akureyri. 1 karlaflokki haföi Arni
Óðinsson sömu yfirburði.
Lítill meistarabragur á
7. deildar kandídötunum
S.l. miðvikudagskvöld léku Ar-
mann og Grótta siðari úrslitaleik-
inn i Z.deild i handknattleik — um
hvort lið vinni sér rétt til að leika i
1. deild næsta keppnistimabil.
Leikurinn sem fór fram i Laugar-
dalshöllinni, lauk með sigri Ár-
manns 15:13. Verða þvi liðin að
AAikið um að
vera í körfu-
knatt-
leiknum
Körfuknattleikslið frá Luxem-
burg, Dudelanje er væntanlegt til
landsins og mun leika gegn lands-
liðinu á sunnudagskvöld. Það
verður mikið um að vera i körfu-
knattleiknum um helgina, eins og
sést af upptalningunni hér að
neðan:
Laugardagur 25. marz.
Leikir i iþróttahúsinu á Sel-
tjarnarnesi kl. 18,30.
1 fl. K.R. - I.S.
2. deild Umfn — Haukar
1 fl. Valur — Armann
Sunnudagur 26. marz.
Leikir I iþróttahúsinu á Sel-
tjarnarnesi
Kl. 19.00
2. fl. Valur — K.R.
Landslið — Dudelanje K1 8,00.
(20,00)
Sunnudagur 26. marz.
Iþróttahús Háskólans.
4. fl. Grótta — Fram
4. fl. Umfn — Ármann
3. fl. I.R. — Haukar.
3. fl. K.R. — Valur.
2. fl. I.R. — H.S.K.
1. fl. Valur - H.S.K.
K.K.l.
leika aukaúrslitaleik i iþróttahús-
inu i Ilafnarfirði — þvi Grótta
vann fyrri úrslitaleik liðanna
14:13 og fór sá leikur fram i
iþróttahúsinu á Seltjarnarnesi.
Litill meistarabragur var á leik
liðanna s.l. miðvikudagskvöld og
áttu slakir dómarar leíksins
Björn Kristjánsson og Jón Frið-
steinsson, sinn þátt i að hleypa
honum upp i hálfgerðan skripa-
leik. Litil ógnun var i leik liðanna
og það sást varla línuspil i
honum. T.d. um það, voru aðeins
þrjú vitaköst i leiknum og voru
þau dæmd eftir gegnumbrot.
Ármann hafði 7:6 yfir i hálfleik
- eftir að Grótta hafði haft yfir i
byrjun 1:3. Svo litil tilþrif var i
fyrri hálfleiknum, að hvorugu lið-
inu tókst að skora mark i 13
minútur.
Fljótlega i siðari háífleik náðu
Armenningar tveggja marka for-
skoti — héldu þeir þvi til leiksloka
— en lokastaðan varð 15:13.
Kjartan Magnússon var bezti
maður Ármanns en einnig áttu
góðan leik Þorsteinn Ólafsson og
Ragnar Gunnarsson, markvörð-
ur. Mörk Armanns skoruðu:
Kjartan 6, Jón A 3, Vilberg 3 og
Hörður, Þorsteinn og Ragnar
Jónsson, eitt hvor.
Hjá Gróttu voru Arni Ind-
riðason (3 mörk) og Geir Thor-
“stein-sson., markvörður beztir.
Mörk Gróttu skoruðú Þór Ottesen
3, Magnús 2, Halldór 2, Benony,
Sigurður og Grétar eitt hvor. SOS
Fjölmennasta unglingameist-
aramót í badminton til þessa
Unglingameistaramót Islands i
badminton verður haldið . i
tþróttahúsinu i Hafnarfirði
dagana 25. qg.26. marz n.k.
Mótið hefst með setningu á
laugardagkl. 14.00 og strax á eftir
hefst keppni.
Keppt verður i 3 aldurs-
flokkum, þ.e. pilta og stúlkna,
drengja og telpna og sveina og
meyja flokkum. 1 hverjum flokki
er keppni i einliðaleik, tviliðaleik
og tvenndarkeppni. ------
Mót þet.ta' ér fjölmennasta
ungjingameistaramót, sem
haldið hefur verið, keppendur eru
alls 69, sem skiptast þannig:
Tennis— og badmintonfél.
Reykjavikur 28
Valur 8
K.R. 4
Þessi mynd var tekin á sfðasta unglingameistaramóti, sem háö var á
Akureyri. Hrólfur Jónsson og Einar Kjartnnsson báöir úr Val, sjást 1
keppni í tviliðaleik.
Tennis— óg badmintonfél.
Siglufjarðar 22
Iþróttabandalag Akraness 7
Að venju eru Siglfirðingar mjög
fjölmennir á þessu móti, en þeir
hafa verið sigursælir á unglinga-
mótum undanfarin ár. Á ung-
lingameistaramóti Islands i
fyrra, sem haldið var á Akureyri
sigruðu Siglfirðingar i lOgreinum
af 14, sem þá var keppt i. Nú er
spennandi að vita, hvort þeim
tekst að endurtaka þann frábæra
árangur.
Eins og áður sagði, hefst mótið
á laugardag kl. 2, en úrslitaleikir
verða leiknir á sunnudagskvöld
kl. 19,30, einnig i iþróttahúsinu i
Hafnarfirði.
Alls verða leiknir u.þ.b. 100
leikir á 5 völlum. Þetta er i fyrsta
sinn, sem badmintonmót er
haldið, i hinu nýja iþróttahúsi i
Hafnarfirði, en þar er vaxandi
áhugi á badminton og ætti þetta
mót þvi að verða til að vekja
meiri áhuga Hafnfirðinga á
þessari iþrótt.
—- taka þátt í
Víðavangshlaupi
íslands á
sunnudag
Viðavangshlaup Islands fer
fram i Laugardal á sunnudag og
hel'st kl.2 á svæðinu milli sund-
laugarinnar og Laugardals-
vallarins. Keppendur eru beðnir
að mæta á Laugardalsvelli kl. 1.
Þátttaka er mjög góð i hlaup-
inu, alls 192 keppendur l'rá 10
félögum og héraðssamböndum.
Keppt er i ljórum flokkum, þ.e.
karlar 19 ára og eldri, drengir 15
til 18 ára og piltar 14 ára og yngri.
Einnig er keppt i einum kvenna-
l'lokki. Keppt er um 12 glæsilega
verðlaunagripi, sem flokkur Ka-
sko manna útvegaði hjá velunn-
urum frjálsiþrótta.
Keppendur eru 37 i karlaflokki,
49 i kvennaflokki, 50 i drengja- og
sveinaflokki og 56 i pillaflokki.
Meistaramót i viðavangshlaupi
fór fram fyrir nokkrum árum, en
lagðist niður vegna þátltöku-
leysis. Nú virðist öldin önnur og
áhugi geysilegur.
Sveitaglíma
KR háð í dag
Sjöunda sveitaglima KR verður
háð i dag, laugardag, kl 17.30 og
fer hún fram að þessu sinni i
iþróttasal Melaskólans.
Búast má við mjög spennandi
keppni, þar sem fleslir beztu
glimumenn landsins eigast við.
Ber þar helst að nel'na núverandi
glimukappa lslands og Skjaldar-
hafa Sigtrygg Sigurðsson KR og
Jón Unndórsson KR, sem varð
annar i siðustu Skjaldarglimu,
ennfremur verða Irá Ungmenna-
lélagi Vikverja þeir Gunnar
Ingvarsson, sem varð þriðji i
siðustu Skjaldarglimu og Sigurð
Jónsson, núverandi Reykjavikur-
meistara i þriðja þyngdarflokki.
Sveitaglima KR hefur verið háö
sex sinnum, KR hefur unnið
þrisvar og Ungmennafélag Vik-
verja þrisvar. Vinni KR-ingar að
þessu sinni, eignast þeir bikar i
verðlaun.
ENSKIR OG
ÍSLENZKIR
FÉLAGSBÚNINGAR
Flest tslenzku liðin
Ensk lið t.d.: Leeds, Ar-
senal, M. Utd. M. City,
Stoke, W. Ham., o.fl.
Einnig búningar Brasiliu,
Englands, Þýzkalands,
Ajax, Celtic o.fl. o.fl.
PÓSTSENDUM
SPORTVÖRUVERZLUN
INGÓLFS
ÓSKARSS0NAR
Klapparstig 44 — simi 117X3
Rey kjavik