Tíminn - 19.05.1972, Page 1
IGNIS
ÞVOTTAVÉLAR
ÞINGSKJOL ORÐIN
NÆR EITT ÞÚSUND
Gífurlegt annríki á Alþingi siðustu daga
EB — Reykjavik.
Gifurlegt annriki
hefur verið á Alþingi
undanfarna daga, enda
mjög mörg mál legið
fyrir, sem koma hefur
þurft i höfn fyrir þings-
slit, sem fram fara i
dag. Þingskjöl eru nú
orðin nokkuð á tiunda
tuginn samtals, á
þinginu i fyrra mun tala
þeirra hafa farið yfir
átta hundruð, enda þá
óvenjumörg mál lögð
fyrir þingið.
í gær og i fyrradag voru margir
fundir haldnir i báðum þing-
deildum, svo og i Sameinuðu
þingi i gær og fjöldi mála afgreitt.
A þriðjudaginn afgreiddi
Sameinað þing yfir tiu þings-
ályktanir. 1 fyrradag stóðu fundir
i þingdeildunum langt fram eftir.
Fundurinn i neðri deild var til kl.
tvö um nóttina. I gær voru einnig
mjög langir fundir i þing-
deildunum.
I fyrradag voru niu stjórnar-
frumvörp samþykkt sem lög frá
Alþingi. beirra á meðal var
frumvarpið um Stofnun Arna
Magnússonar á íslandi, frumvarp
um ný höfundalög, frumvarp um
ráðstafanir til jöfnunar á náms-
kostnaði, frumvarp um breyting
á lögum um Lifeyrissjóð 'starfs
manna rikisins, frumvarp
til staðfestingar $ bráöa-
birgðalögum um breyting á
lögum um ráðstafanir i sjávar-
útvegi, frumvarp um breyting á
lögum um erfðafjárskatt, frum-
varp um getraunir, frumvarp um
heimild til lántöku vegna fram-
kvæmdaáætlunar 1972, frumvarp
um stofnun og slit hjúskapar. Þá
var frumvarp um þingsköp
Alþingis að lögum og tvö þing-
mannafrumvörp voru afgreidd
sem lög, frumvarp Björns Fr.
Björnssonar um breyting á
sveitarstjórnarlögum og frum-
varp um breyling á lögum um
iðnfræöslu, flutt af þeim Sigurði
Magnússyni, Eðvarð Sigurössyni
og Bjarna Guönasyni.
Þá var m.a. tveimur þing-
mannafrumvörpum visað til
rikisstjórnarinnar, —• frumvarpi
Steingrims Hermannssonar og
Halldórs Kristjánssonar um
breyting á lögum um fiskvinnslu-
skóla og frumvarpi Steingrims
Hermannssonar og Asgeirs
Bjarnasonar um aðstoð rikisins
viö kaup og rekstur á snjóbilum,
þarsem þeirra er þörf vegna heil-
brigðisþjónustu.
1 gær var m.a stjórnarfrum-
varpið um Tækniskóla Islands
samþykkt, eftir að frávisunar-
Kosið í Þing-
vallanefndina
EB — Reykjavik.
1 Sameinuöu Alþingi i gær fór
fram kosning Þingvallanefndar,
þriggja þingmanna, til loka næsta
þings. Kosnir voru þeir Eysteinn
Jónsson, Gils Guðmundsson og
Steinþór Gestsson.
tillaga frá Jónasi Jónssyni hafði
verið felld. Hins vegar var sam-
þykkt breyingartillaga við frum-
varpið um að heimilt verði að
starfrækja raungreinadeild á Isa-
firði. Frumvarp um lífeyrissjóð
sjómanna varð að lögum i gær,
frumvarp um orlof húsmæðra,
frumvarp um Háskólann og
frumvarp um siglingalög. Þá var
vegaáætlun 1972 — 1975 tekin til
umræðu i Sameinuðu þingi og
urðu mjög miklar deilur um
hana, einkum um veggjald á
Reykjanesbraut og Suðurlands-
vegi.
Bfllinn eftir veltuna (Tlmamynd G.E.)
véguryhrI
• •
BORGARFJORÐ
á árunum 1974—75
KJ — Reykjavik.
I breytingatillögum fjár-
veitinganefndar við vega-
áætlun eru sundurliðaðar fjár-
veitingar til vegafram-
kvæmda, og kemur þar i ljós,
að á árunum 1974 og 1975
verður nærri þrjú hundruð
milljónum varið til vegagerö-
ar yfir Borgarfjörð, og mun
þetta vera stærsta verkefniö á
vegaáætluninni, ef frá eru
taldar framkvæmdirnar á
Skeiðarársandi, sem verða
fjármagnaðar sérstaklega. Þá
kemur i ljós, að ætlaöar eru 25
milljónir i ár og næstu þrjú ár
til Djúpvegar, i Isafjarðar-
djúpi.
I ár eru ætlaöar nærri 120
milljónir i Suöurlandsveg
milli Reykjavikur og Selfoss*
og nærri 100 milljónir i fram-
kvæmdir Reykjavik—Kolla-
fjörður. A næsta ári verður
gert átak i Grinda
víkurveginum, á veginum um
Miðnesheiöi, i Kollafirði og
innst i Hvalfirði. Auk þess er
gert ráð fyrir hraðbrauta-
framkvæmdum á Egilsstööum
i sumar og á næsta ári milli
Hnifsdals og tsafjarðar og i
Eyjafirði.
Jónina Jónsdóttir.
Kdda Walderhaug.
TVÆR STÚLKUR
FÓRUST Á REYKJA
NESBRAUTINNI
og sú þriðja liggur stórslösuð
eftir bílveltuna
ÓÓ-Reykjavik
Mikið slys varð á
Reykjanesbrautinni kl.
1.30 aðfararnótt
fimmtudags. Volks-
wagenbill, sem i voru
þrjár stúlkur, fór út af
veginum, endastakkst
og kastaðist 60 til 70
metra vegalengd.
Stúlkurnar köstuðust
allar úr. Tvær þeirra
létust og hin þriðja er
mikið slösuð, en er ekki
talin i lifshættu.
Stúlkurnar, sem fórust hétu
Jónina Jónsdóttir, 20 ára til
heimilis að Bergstaöastræti 48 og
Edda Walderhaug, 28 ára gömul.
Hún átti heima að Ljósheimum
Hasssmyglarinn tekinn
og málið á lokastigi
OÓ-Reykjavik
Sleitulaust hefur verið unnið að
þvi að upplýsa smygliö og
dreifingu á hassinu, sem laumað
var á land á Akureyri 6. þessa
mánaðar. Þeir, sem að
rannsókninni vinna segja, að
linurnar séu nú aö skýrast og er
verið að bera saman lokafram-
burð þess fólks, sem lengst hefur
verið i vörzlu, eða siðan á Sunnu-
dag. Snemma i gærmorgun var
handtekinn maður, sem allt
bendir til að smyglað hafi hassinu
til landsins. Er það skipverji á
Laxfossi.
Laxfoss kom til Reykjavikur kl.
5 I gærmorgun. Biðu þá lögreglu-
menn á bryggjunni og fóru um
borð strax og skipið lagðist að
bakkanum. Var farið beint i klefa
mannsins, hann handtekinn og
leit gerð. Fannst eitthvað af
hassi, sem hann hafði undir
höndum og einnig tiltölulega há
peningaupphæð.
Skipverjinn, sem er á svipuðum
aldri og þeir, sem áður voru
handteknir býr i Kópavogi og er
bróðir mannsins, sem úr-
skurðaður var i gæzluvarðhald
þar á þriðjudag. Var hann
yfirheyröur i gær, en i gærkvöldi
var ekki búið að úrskuröa hann i
gæzlu.
Sem fyrr verst lögreglan allra
frétta um rannsóknina, en segir
þó,að hún sé á lokastigi. Greini-
legt er, aö hér er um ákveðinn
hring aö ræða Sá bræðranna,
sem fyrr var handtekinn, sér um
útvegun hassins erlendis, i
þessu tilfelli sennilega i Amster-
dam. Hinn smyglaði þvi til
landsins,en mennirnir, sem settir
voru til vörzlu s.l. sunnudag,
höfðu það verkefni aö dreifa þvi.
Fleiri aöilar sjá um peningaút-
vegun til kaupanna, þótt þeir,
sem flytja fikniefnið inn leggi þar
mest af mörkum.
En margir fleiri hafa lagt fram
minni upphæðir og lagt
fram pöntun og áttu siðan
að fá varninginn þegar
hann kæmi til landsins.
Sjálfsagt hafa einhverjir verið
búnir að fá sinn skammt,þegar
lögreglan komst i spilið, en aðrir
áttu ósóttar pantanir. Þótt
lögreglan vilji litið segja, má
ráða af öllum sólarmerkjum,að
hún hefur komizt yfir pöntunar-
listann og viðskiptavinirnir verða
yfirheyrðir, en alls er búið að
yfirheyra á þriðja tug manna
vegna hassmálsins.
20. Stúlkan, sem lifði af, heitir
Sigríður Ingadóttir, 22 ára,
Brautarholti 22.
Billinn, sem stúlkurnar voru i,
er i eigu bilaleigunnar Fals.
Voru þær að koma sunnan af
Keflavikurflugvelli. Var hann
kominn inn undir Lónakot, sem er
um 4 km sunnan við gjaldskýlið
við Straum.
Svo virðist sem þar hafi billinn
verið kominn yfir á rangan
vegarhelming, eftir þvi sem
sjónarvottar segja. Var það fólk i
bfl, sem var á suðurleiö. Kona,
sem ók þeim bil, sá hvar billjós
komu á móti á röngum vegar-
helmingi. Hún ok eins iangt út á
hægri vegarkant og hægt var, og
stöðvaði bil sinn þar. Bjóst hún
viö,að þarna yrði hörkuárekstur.
En þegar Volicswagen billinn var
kominn rétt að kyrrstæða bflnum,
var honum sveigt skyndilega yfir
á réttan vegarhelming, eða á
hægri akrein miðaö við stefnu
bflsins. En það skipti engum
togum, að billinn lenti út af
veginum hægra megin. Okukona
og farþegar i kyrrstæöa bilnum,
sáu hinn fara i loftköstum út fyrir
veg, endastakkst billinn yfir stór-
grýtisurð.
Stúlkurnar þrjár köstuðust
allar út úr bflnum. Ein þeirra
hentist 10 eða 12 metrum lengra
en bilinn.
Mjög fljótlega eftir slysið var
kallaö á sjúkrabil og voru
stúlkurnar fluttar á slysadeild
Borgarspitalans. Voru tvær
þeirra látnar,þegar þangaö kom.
En sjónarvottar telja^ð þær hafi
látizt nær samstundis og bfllinn
valt.
Sigriður Ingadóttir, er mikið
slösuð. Báðir lærleggir brotnir,
hún er sködduð á hrygg og hand-
leggsbrotin. Einnig er hún
sködduð á andliti og viðar.
Ekkert bendir til.að bilnum hafi
verið ekið á meiri hraða en leyfi-
legt er á Reykjanesbrautinni.
Ekki er að sjá,að bilun hafi orðið
bflnum, fyrir slysið. Allir hjól-
barðar eru heilir, en eftir
velturnar er bilinn illa farinn, —
talinn ónýtur.
Stúlkurnar tóku bflinn á leigu
um kl. 7 um kvöldið. Er talið.að
Jónina hafi ekiö honum.
Oryggisbeltin héngu ónotuð er
bfllinn valt.