Tíminn - 20.05.1972, Síða 17
Umsjón: Alfreð Þorsteinsson
Tottenham sigraði í Evrópukeppni
borgarliða - UEFA-bikarinn
Pat jennings, markvörður Spurs — var maðurinn á bak við sigur liðs
sins, i UEFA-bikarnum. Hvað eftir annað varði hann frábærlega.
Landsliðið í golfi valið
Þorvaidur Ásgeirsson verður landsliðsþjálfarí
Golfsamband tslands hefur val-
ið 10 manna landslið til æfinga
fyrir Norðurlandamótið i golfi,
sem fram fer i Danmörku dagana
15.-16. júli n.k.
Valið er eftir árangri i stiga-
Sundmót KR
Hið árlega sundmót Sunddeild-
ar K.R. verður haldið i Sundlaug-
inni i Laugardal sunnudaginn 28.
mai og hefst kl. 15.00
Keppt verður i eftirtöldum
greinum:
1. 400 m. skriðsund karla
2. 200 m. bringusun kvenna
3. 200 m. bringusund karla
4. 200 m. fjórsund kvenna
5. 200 m. fjórsund krarla
6. 100 m. skriðsund hvenna
(Keppt um Flugfreyjubikarinn)
7. 100 m. skriðsund karla
8. 50 m. skriðsund sveina 14 ára
og y. Lágmarkstimi 37,5 sek.
9. 50 m. bringusund telpna 14 ára
og y. Lágmarkstimi 46,0 sek.
10. 4 x 100 m. bringusund drengja
11. 4 x 100 m. bringusund stúlkna.
Tilkynningar um þátttöku ber-
ist til Erings b. Jóhannssonar
Sundlaug Vesturbæjar fyrir 23.
mai nk.
keppni GSt, sem fram fór i fyrra,
en þá fengu menn stig fyrir
árangurinn i einstaka opnum
mótum.
Þessir 10 menn, sem valdir
hafa verið, eru þessir:
Þorbjörn Kjærbo, GS
Björgvin Hólm, GK
Gunnlaugur Ragnarsson, GR
Óttar Yngvason, GR
Einar Guðnason, GR
Björgvin Þorsteinsson, GA
Hans tsebarn, GR
Hannes Þorstcinsson, GL
Ólafur Bjarki Ragnarsson, GR
Jóhann Eyjólfsson, GR
Akveðið hefur verið að hafa
eina æfingu i viku, á miðvikudög-
um, og hefur GSl ráðið hinn góð-
kunna eolfkennara, Þorvald As-
geirsson, sem þjálfara lands-
liðsin.
Þetta er i fyrsta sinn, sem
svona stór landsliðshópur er val-
inn til æfinga i golfi hér á landi.
En fyrir tveim árum var valið liö
og æft fyrir HM-keppni áhuga-
manna i Madrid á Spáni. Þá eins
og nú var heldur seint af stað far-
ið. Nær hefði verið að velja liðið
að loknu keppnistimabili og siöan
láta það æfa utanhúss og innan
allan veturinn. —klp—
Tottenham og tllfarnir gerðu
jafntefii 1:11 frábærum leik — á
heimavelli Spurs, White Hart
Lane s.l. miðvikudagskvöld. 1 sið-
ari hálfleik urðu 55 þúsund áhorf-
endur vitni að frábærri mark-
vörzlu — markvarða liðanna Pat
Jennings, Spurs og Phil Parkes,
Úlfunum, en þá vörðu þeir oft
stórglæsilega.
Fyrirliði Spurs, Alan Mullary,
sem er að komast i sitt gamla
form — meiðsli hafa háð honum i
vetur, skoraði fyrsta mark leiks-
ins, við gifurleg fagnaðarlæti
áhorfenda. Varðstaðan l:0þartil
fimm min. voru til leikhlés — þá
skoraði Dave Wagstaffe, fyrir
Úlfana 1:1, með þrumuskoti af 30
m. færi.
1 siöari hálfleik tókst hvorugu
liðinu að skora, þrátt fyrir marg-
ar góðar tilraunir — þar meö var
sigur Tottenham Hotspurs, i
Evrópukeppni borgarliða orðinn
staöreynd, þvi að Spurs sigraði
fyrri leik liðanna, sem fór fram á
heimavelli úlfanna 2:1 — (Já,
svona fór það Jóhannes!)
Eins og menn muna, þá sló
Tottenham Keflvikinga, úr þess-
ari keppni fyrr i vetur. Ensk lið
hafa sigrað i þessari keppni fimm
siðustu árin.
JiJfXJÍSÍXXXXJOÖOOWÖSööíJÍSÍXS
Biðu í þrjá
tíma eftir
Best
- en hann lét
ekki sjá sig
Knattspyrnusnillingurinn
Georg Best, Manchester Unitcd,
skapaði enn eitt vandamálið utan
leikvailar s.l. fimmtudag. n-
irska iandsliðið, sem Best var
valinn i, á að ieika i dag við ?kot-
land, i brezku meistarakeppni
landsliða — leikurinn fer fram á
Hampden Park i Glasgow i dag.
N-irska liðið kom saman s.l.
fimmtudag i Glasgow — til aö
fara i æfinga og hvildarbúðir rétt
fyrir utan borgina, þar sem þaö
lætur fara vel um sig fram að
leiknum i dag. Allir leikmenn
liðsins mættu stundvislega I Glas-
gow á fimmtudaginn, nema Best
— hann sást hvergi og lét ekkert
frá sér heyra — var beðiö eftir
honum i þrjá tima, en ekki kom
hann. Hélt þá n-irska liðið i
hvildarbúðirnar, án Best. Eru þvi
allar likur á, að Best leiki ekki
með N-trlandi gegn Skotlandi i
dag.
A
HLAUPABRAUTINNI
Viðar leikur með KR.
Viðar fór með
KR til Færeyja
Viðar Simonarson, landsliðs-
maður i handknattleik, fór sem
lánsmaður með KR-liöinu i
keppnisferðalag til Færeyja.
Eins og viö sögðum frá hér á
siðunni fyrir stuttu — leikur KR-
liðið tvo leiki i handknattleik i
Færeyjum nú um helgina. Þar
sem nokkrir af sterkustu leik-
mönnum KR-liðsins gátu ekki
tekið þátt i ferðinni — fengu þeir
tvo lánsmenn til að leika með lið-
inu i Færeyjum, þá Viðar
Símonarson, FH og Arna Indriða-
son, Gróttu.
SOS.
Stökk 1,90
ÖE-Reykjavik.
Það var fremur litil þátttaka i
fimmtudagsmótinu á Melavellin-
um i gær, t.d. tók Erlendur Valdi-
marsson ekki þátt i kringlukast-
inu.
Einn ljós punktur var i keppn-
inni, Karl West Fredriksen,
UMSK ungur og efnilegur há-
stökkvari fór glæsilega yfir 1,90
metra, sem er hans langbezti
árangur. Þá hljóp Lilja
Guðmundsdóttir, 1R 400 m á 64
sek., sem er allgott þegar miöað
er við hinar slæmu aðstæður.
Næsta frjálsiþróttamót er Vor-
mót 1R, sem fer fram 25. mai.
Ungverjar
sigruðu
Ungverjaland sigraði Rúmeniu
2:1 i Evrópukeppni landsliöa s.l.
miövikudagskvöld i Belgrad. Með
þessum sigri, hefur Ungverjaland
tryggt sér rétt til að leika I undan-
úrslitum, sem fara fram I Belgfu i
næsta mánuði.
Þetta var þriðji leikur þjóðanna
I átta liða úrslitum, hinum tveim
lauk meö jafntefli 0:0 og 2:2 —
þurfti þvi aukaleik til aö skera út
um það hvort liöið kæmist i
undanúrslitin i Belgiu
Með þessum sigri vann Ung-
verjaland sér rétt til að leika gegn
Rússlandi i undanúrslitunum —
hinn leikurinn verður milli V-
Þjóðverja og Belgiumanna.
Það er erfitt að spá,hvaöa þjóö
veröi Evrópumeistarar i ár — en
miklar likur eru á,að lokastaðan i
Evrópukeppni landsliöa verði
þessi:
1. Vestur-Þýzkaland
2. Ungverjaland
3. Belgia
4. Rússland.
Leika fimm
leiki í Evrópu
Landslið Uraguay i knatt-
spyrnu, er nú statt i Evrópu, þar
sem það er i keppnisferðalagi.
Liðið leikur fimm leiki i Evrópu
— tvo landsleiki og þrjá leiki við
félagslið.
Liðið leikur sinn fyrsta leik
gegn spánska 1. deildaliöinu
Atletic Madrid 23. mai, siðan
heldur þaö til A-Þýzkalands og
leikur þar einn landsleik við A-
Þjóðverja. Þaðan heldur liöið til
Frakklands og leikur þar viö
félagslið 3. júni. 7. júni leikur þaö
við Feyenoord i Hollandi og endar
svo keppnisferðina i Noregi, þar
sem þeir leika landsleik við Norð-
menn 14. júni.
Eins og menn muna varð
Uruguay i fjórða sæti i HM-
keppninni i Mexikó 1970. Uruguay
hefur tvisvar sinnum orðiö
heimsmeistari — 1930 og 1950.
1*S0JÉ<XI««
PUMA
knattspyrnu-
SKÓR
Póstsendum
Skref í rétta átt - en betur má ef duga skal
greinum t.d. hér i Reykjavik.
Þeir, sem hugsa sér að hljóta
meiri menntun en þarf til að
leggja stund á iþróttakennslu I
skólum, verða að fara til útlanda,
til að sérhæfa sig I einstökum
greinum. Frjálsiþróttaþjálfun er
t.d. orðin það flókin og visindaleg,
að erlendis fara menn i íþrótta-
kennaraháskóla til að fullnuma
sig.
Menntun iþróttakennara hefur
verið mjög á dagskrá undanfarið.
Aðal orsakavaldur þeirra um
ræðna eru frumvarp um Iþrótta-
kennaraskóla íslands, sem Al-
þingi hefur fjallað um siðustu
vikurnar og nú er orðiö að lögum.
Ekki er auðvelt i stuttri grein að
rekja öll þau sjónarmið, sem
fram hafa komið um þetta mikil-
væga mál, enda er það ekki til-
gangurinn með þessu greinar-
korni. Um hitt blandast engum
hugur, sem áhuga hefur á þessu,
að menntun iþróttakennara hefur
verið ábótavant undanfarna ára-
tugi, enda er allsstaðar skortur á
nægilega menntuðum þjálfurum
hjá hinni frjálsu iþróttahreyf-
ingu.
Osök þess, að iþróttakennarar,
sem útskrifast úr Iþrótta-
kennaraskóla íslands, hafa ekki
nægilega þekkingu til að sjá um
þjálfun afreksmanna i iþróttum
er ekki, að kennarar séu lélegir
við Iþrottakennaraskólann, eða
að skólinn er staðsettur að
Laugarvatni, — en það atriði hef-
ur mest verið umdeilt. bær eru af
öðrum toga spunnar. Menntun
iþróttakennara nú á dögum er
orðin það umfangsmikil, að það
tekur mörg ár aö öðlast þá þekk-
ingu, sem til þarf. Þessvegna má
með sanni segja, að lenging
Iþróttakennaraskólans i tveggja
vetra nám sé skref i rétta átt og
stuðli að betri kennurum. En bet-
ur má ef duga skal. Mér er t.d. til
efs, að þetta nægi til þess að úr-
valsmenn i iþróttum fái þá til-
sögn, sem þarf til að komast i
fremstu röð i iþróttum. Rétt væri
að stefna aö framhaldsnámi, eða
sérnámi i einstökum iþrótta-
1 náiiTni framti.ð verður aö
stefna að þvi, að íþróttakennara-
skólinn verði settur á háskólastig.
beir, sem taka að sér íþrótta-
kennslu i skólum og hjá hinni
frjálsu iþróttahreyfingu, vinna
þýðingarmikið starf og þess-
vegna er nauðsynlegt, að mennt-
un þeirra sé sem bezt.
Orn Eiðsson.
Malarskór:
Pelé Mexico, stærð 6 1/2-101/2 verð kr. 2060,00
Benfica Super, stærð 7—12, verð kr. 1946,00
London City, stærð 6 1/2—9, verð kr. 1798,00
Puma Rapid, stærð 5—12, verð kr. 1590,00
Pelé Santos, stærð 3 1/2—8, verð kr. 1430,00
PeléRio, stærð 3 1/2—7, verð kr. 984,00
Grasskóri
Puma Tottenham, stærð 7—10 1/2, verð kr. 2205,00
Sportvöruverzlun
Ingólfs Oskarssonar
Klapparstig 44 — Simi 11783 — Reykjavík